Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Freyja Þórisdóttir skrifar 27. október 2026 22:02 Kristrún segir yfirlýsinguna, sem undirrituð var í dag, vera mikilvæga en hún snúi að öruggu stafrænu umhverfi barna. Forsætisráðuneyti Finnlands Ný yfirlýsing sem snýr að áhrifum nýrrar tækni á börn og ungmenni var undirrituð á fundi forsætisráðherra Norðurlanda í dag, þann 27. október, sem er í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs sem fram fer í Helsinki þessa dagana. Kristrún Frostadóttir segir jákvætt að þjóðirnar, sem hafi oft verið frumkvöðlar þegar kemur að velferðarmálum, taki höndum saman um að bjóða tæknirisum birginn. „
Við vorum að fylgja eftir samtali sem við áttum,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í samtali við fréttastofu en þessi sami hópur, forsætisráðherrar Norðurlandanna, hittist í Marienborg í Danmörku á sumarfundi í ágúst. Nú hefur yfirlýsingin einmitt verið titluð Marienborg-yfirlýsingin. „Það spratt upp umræða eftir fundi með ákveðnum sérfræðingum þar og pólitískt samtal um að vera með sameiginlega stefnu og verkefni til að vernda börn og styðja þau í stafrænum heimi,“ segir hún einnig. Jákvætt að fá stuðning Í tilkynningu sem birt var á Stjórnarráðinu segir að meðal þess sem sé snert á í yfirlýsingunni sé sameiginleg afstaða til snjalltækja, samfélagsmiðla og gervigreindar með áherslu á að verja lífsgæði og heilsu barna og ungmenna í breyttum heimi. „Þetta snýr að öruggu stafrænu umhverfi barna. Og að við séum að skapa þeim umhverfi þar sem að samfélagsmiðlar og tækni hafa jákvæð áhrif á þau, ekki neikvæð,“ segir Kristrún.Forsætisráðuneyti Finnlands Sama gildi um öll Norðurlöndin þar sem staðið sé frammi fyrir áskorunum þegar komi að nýtingu samfélagsmiðla og nú enn fremur þegar gervigreind þróist á ógnarhraða. Yfirlýsingin sé upphaf að formlegu samstarfi á sviðinu. Málefnið sé oft á dagskrá heima á Íslandi og þess vegna sé tilvalið, og í rauninni mjög jákvætt, að þarna fáist stuðningur frá líkt þenkjandi ríkjum til þess að innleiða ný samfélagsleg norm. „Þegar kemur að samfélagsmiðlum, þegar kemur að hugmyndum um hvernig við getum beitt okkur í sameiningu gegn tæknirisum varðandi þróun miðla sem geta haft skaðleg áhrif á börn og líka hvernig við getum leitt umræðuna, vegna þess að þessar þjóðir hafa oft verið frumkvöðlar þegar kemur að velferðarmálum,“ segir Kristrún enn fremur í samtali við fréttastofu. Bjóða tæknirisunum birginn Í sjálfri yfirlýsingunni segir meðal annars: „Við viljum bjóða veldi tæknirisanna birginn. Þannig að það verði lýðræðisleg gildi og ekki viðskiptahagsmunir sem knýja samfélag okkar áfram,“ en haft er eftir Kristrúnu á vef Stjórnarráðsins að drög þessa efnis hafi þegar verið kynnt hérlendis. Á Íslandi hafi átt sér stað vitundarvakning um þessi mál upp á síðkastið og ríkisstjórnin hafi ekki látið sitt eftir liggja. „Mennta- og barnamálaráðherra kynnti nýverið drög að frumvarpi um aldursmörk fyrir börn á samfélagsmiðlum, sem var einmitt samþykkt af ríkisstjórn í dag, og reglugerð um símafrí í skólum hefur þegar tekið gildi. Það eru mikilvæg skref en við höfum einsett okkur að eiga frekara samráð og ganga í verkin í þessum efnum,“ er haft eftir forsætisráðherra. Þá var einnig haft eftir henni að hún og hinir þjóðarleiðtogarnir væru staðráðin í því að grípa til þeirra aðgerða sem eru nauðsynlegar til að tryggja lífsgæði og heilsu barna. „Þar getum við haft áhrif og náð raunverulegum árangri með samstilltum þrýstingi á alþjóðavísu og með því að standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum, til dæmis með reglum um samfélagsmiðla og aldursmörk, viðmiðum um skjátíma, símafríi í skólum, aðgerðum til að auka netöryggi og svo framvegis,“ er þar jafnframt haft eftir henni.
Gervigreind Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Noregur Danmörk Finnland Svíþjóð Grænland Færeyjar Álandseyjar Tækni Samfélagsmiðlar Börn og uppeldi Tengdar fréttir Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Skiptar skoðanir eru á boðuðu samfélagsmiðlabanni fyrir 14 ára og yngri; þeir yngstu lýsa vonbrigðum en fullorðnir eru sáttir. Fjöldi ríkja hefur innleitt eða íhugað að innleiða aldurstakmark á samfélagsmiðla en árangurinn af því er misgóður. Tvær þingkonur ræddu einnig mögulega kosti og galla bannsins í kvöldfréttum Sýnar. 15. júlí 2026 20:42 Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira
Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Skiptar skoðanir eru á boðuðu samfélagsmiðlabanni fyrir 14 ára og yngri; þeir yngstu lýsa vonbrigðum en fullorðnir eru sáttir. Fjöldi ríkja hefur innleitt eða íhugað að innleiða aldurstakmark á samfélagsmiðla en árangurinn af því er misgóður. Tvær þingkonur ræddu einnig mögulega kosti og galla bannsins í kvöldfréttum Sýnar. 15. júlí 2026 20:42