Innlent

Kennarar boðaðir á fund hjá sátta­semjara

Smári Jökull Jónsson skrifar
Magnús Þór Jónsson er formaður KÍ.
Magnús Þór Jónsson er formaður KÍ. Vísir/Vilhelm

Kennarar voru boðaðir á fund hjá ríkissáttasemjara skömmu fyrir hádegi en í kvöld rennur út frestur til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningum kennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna viðræðna um virðismat.

Fjallað var um það í gær að kjarasamningar kennara væru í uppnámi vegna túlkunar á ákvæði um gerð virðismats. Kjarasamningurinn gildir til 31. mars 2028 en þar er fjallað sérstaklega um svokallað virðismat sem felur í sér að lagt er mat á virði ákveðinna verkefna kennara.

Vinnan hefur hins vegar tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir, eitthvað sem gert var ráð fyrir í kjarasamningum að gæti gerst og myndi endurskoðun á ferlinu þá frestast um ár.

Samkvæmt heimildum fréttastofu sendu stjórnvöld KÍ hins vegar tillögu sem var utan þess ramma sem kjarasamningur gerir ráð fyrir. Magnús Þór sagði í viðtali við Vísi á fimmtudag að kennarar væru ekki tilbúnir að samþykkja lengingu samkomulagsins en í viðtali við Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra kom fram að hann teldi ekki að verið væri að víkja frá gildandi samkomulagi.

Fundur hjá sáttasemjara

Þegar fréttastofa náði sambandi við Magnús Þór Jónsson í morgun sagði hann lítið að frétta, mikið væri um fundahöld og að stjórn KÍ hefði fundað í gær. Þá var málið í ákveðinni biðstöðu en skömmu fyrir hádegi sagði Magnús í skilaboðum til fréttastofu að hann hefði fengið boð frá ríkissáttasemjara um að koma á fund.

Ekki er vitað nánar um efni fundarins né hvort fulltrúar SÍS hafi einnig verið boðaðir til sáttasemjara.

Dagurinn í dag er sá síðasti til að virkja forsenduákvæði kjarasamninga varðandi gerð virðismatsins. Fari svo að ákvæðið verði virkjað tekur til starfa nefnd sem mun þá freista þess að ná samkomulagi en annars munu kjarasamningar um 12.000 félagsmanna KÍ losna þann 1. mars næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×