Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Hættu við aðra tilraun vegna leka Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) eru hættir við að reyna að skjóta Artemis-1 af stað til tunglsins í kvöld. Hætt var við aðra tilraun til fyrsta tunglskots Artemis-áætlunarinnar vegna leka á einum af elsdneytistönkum Space Launch System-eldflaugarinnar. 3.9.2022 14:30
Á sjötta tug látin í dag, þar af 25 börn Ekkert lát er á hamfaraflóðum í Pakistan. 57 hafa látist í dag, þar af 25 börn. Óttast er að mikill fjöldi barna muni látast í hamförunum. 3.9.2022 13:39
Fatlað fólk fær ekki rafræn skilríki á Íslandi Formaður Þroskahjálpar segir að það sé verið að brjóta mannréttindi á fötluðu fólki á Íslandi, því að bankastofnanir og opinberir aðilar vilja ekki veita fólki með þroskahömlun, einhverfu og skyldar fatlanir rafræn skilríki. Ástæðan er sú að þessi hópur fær ekki rafræn skilríki er sú að það getur oft ekki valið fjögurra stafa PIN númer og lagt það á minnið, án aðstoðar eða leiðbeiningar. 3.9.2022 13:05
Sýknaður af ákæru fyrir að nauðga unglingsstúlku Ungur karlmaður var á dögunum sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins eftir að hafa verið ákærður fyrir að nauðga stúlku á unglingsaldri. Minnisleysi stúlkunnar var helsta ástæða sýknunnar. 3.9.2022 12:27
Sendiherra Íslands vottaði virðingu sína: Langar raðir við útför Gorbatsjovs Langar biðraðir hafa myndast við útför Míkhaíl Gorbatsjov í Moskvu í morgun. Útförin fer fram í dag en líkkista síðasta leiðtoga Sovétríkjanna liggur í Súlnasalnum í Húsi verkalýðsins í Moskvu þar sem fólk vottar honum virðingu sína í dag. 3.9.2022 11:00
Aðrar orsakir en mannleg mistök Forstöðumaður vatns- og fráveitu hjá Veitum segir að nóttin hafi farið í hreinsa upp eftir stóran vatnsleka í Hvassaleiti. Nú sé fram undan hefðbundin vinna við að komast að því hvað orsakaði lekann. Engar framkvæmdir séu á svæðinu og því engin augljós orsök. 3.9.2022 10:40
Íslendingar á meginlandinu glíma við margfalt hærri reikninga Staðan á orkumarkaði í Evrópu er grafalvarleg að sögn Íslendinga búsettra á meginlandinu. Dæmi eru um að fólk sé að fá allt að 200 prósentum hærri reikninga fyrir hita og rafmagni nú en fyrir ári síðan. Rússar munu ekki opna fyrir Nordstream gasleiðsluna til Evrópu á morgun líkt og til stóð, sem er talið viðbragð við nýjum aðgerðapakka G-7 ríkjanna. 3.9.2022 09:31
Vatn flæddi inn í hús og bíla Vatn flæddi um götur í Hvassaleitinu í gærkvöldi eftir að 800 millimetra kaldavatnslögn fór í sundur. Vatnið flæddi inn í nokkur hús á svæðinu, kjallara, bílskúra og bíla. Ljóst er að nokkuð tjón varð. 3.9.2022 07:46
Sameinast um að fægja og lífga upp á falda perlu á Blönduósi Sveitarstjórn Húnabyggðar og fyrirtækið Info Capital hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu gamla bæjarkjarnans á Blönduósi. Gömlu götumyndinni er lýst sem einstakri perlu sem ætlunin er að fægja og lífga upp á. 3.9.2022 07:37
Erill vegna mikillar ölvunar Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt og var sérstaklega mikið af ölvunartengdum málum á borði hennar. Í dagbók lögreglu segir að óvenju margar tilkynningar um ofurölvi fólk og vandræði vegna ölvunar hafi borist í nótt. 3.9.2022 07:22
Ólga meðal aðventista vegna sölu á heilu fjalli Gavin Anthony, formaður Kirkju sjöunda dags aðventista á Íslandi, sem eiga Litla-Sandfell sem til stendur að nýta sem íblöndunarefni í sement úti í Evrópu, segir að sér lítist vel á verkefnið. Samkvæmt heimildum Vísis fer því þó fjarri að allir innan safnaðarins séu á eitt sáttir um hvernig að málum er staðið. 3.9.2022 07:00
Efna til söfnunar fyrir fjölskyldu Brynjars Þórs á Blönduósi Efnt hefur verið til söfnunar fyrir fjölskyldu Brynjars Þórs Guðmundssonar sem grunaður er um að hafa orðið konu að bana á Blönduósi og sært eiginmann hennar alvarlega. Brynjar Þór lést í kjölfarið og er atburðarásin til rannsóknar hjá lögreglu. 3.9.2022 00:21
Myndasyrpa: Allt á floti í Hvassaleiti Um klukkan tíu í kvöld fór kaldavatnslögn í sundur í Hvassaleitinu. Vatnið flæddi um hverfið eins og um straumþunga á væri að ræða. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari fréttastofunnar fór á vettvang, myndir af svæðinu má sjá hér að neðan. 3.9.2022 00:04
Vatnslögn fór í sundur og vatn flæðir um Hvassaleiti og Kringluna Stór kaldavatnslögn fór í sundur upp úr klukkan tíu í Hvassaleitinu og flæðir nú vatn um svæðið líkt og um straumþunga á sé að ræða. Bæði lögreglumenn og fulltrúar slökkviliðs eru mættir á svæðið til að gæta öryggis og reyna að leysa vandann. 2.9.2022 22:37
„Þetta er stórkostlegur staður en þetta getur orðið besti staður á jörðinni“ Hundrað og þrítugasti rampur verkefnisins Römpum upp Íslands var tekinn í notkun í dag við sumarbúðir fatlaðra barna og ungmenna í Reykjadal. Ramparnir sem áður voru við sumarbúðirnar voru komnir til ára sinna og því ljóst að þörf væri á breytingum. Foreldrar stefna á að bæta aðstöðuna enn frekar þar sem ramparnir eru aðeins fyrsta skrefið. 2.9.2022 22:30
Einn látinn eftir að aurskriða féll í Þrændarlögum Einn er látinn eftir að aurskriða féll í Þrændarlögum í Noregi í dag en aurskriðan eyðilagði hús sem varð á vegi hennar og á helmingur hússins að hafa flust burt með skriðunni. 2.9.2022 21:58
„Traust til ráðherra hefur beðið stórkostlega hnekki í faginu“ Formaður BHM segir óeðlilegt að skipa í stöðu þjóðminjavarðar, staðan hefði átt að vera auglýst. Formaður félags fornleifafræðinga telur að traust fólks til menningarmálaráðherra hafi beðið mikinn hnekki vegna málsins. 2.9.2022 21:02
Fátt um svör eftir margra ára töf á uppbyggingu í Vesturbugt Ekkert bólar á uppbyggingu tæplega tvö hundruð íbúða í Vesturbugt á slippsvæðinu í Reykjavík þótt tilkynnt hafi verið með athöfn fyrir fimm árum að framkvæmdir ættu að hefjast innan átján mánaða. Deilur verktaka við borgina virðast tefja verkið en í vor hótaði borgarstjóri að lóðin yrði dregin til baka. 2.9.2022 20:23
Óvíst hvenær gas muni flæða um Nord Stream 1 leiðsluna á ný Á dögunum tilkynnti orkurisinn Gazprom að flæði á gasi um Nord Stream 1 leiðsluna yrði stöðvað vegna viðhalds í þrjá daga eða þar til 3. september. Nú hefur komið í ljós að fyrirtækið muni ekki standa við fyrri áætlun. 2.9.2022 20:08
„Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu alvarlegt þetta er“ Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hversu alvarlegt það er að fjórtán hjúkrunarfræðingar hafi sagt upp störfum á bráðamóttöku Landspítala. Þetta segja tveir hjúkrunarfræðinganna. Uppsögn var að þeirra sögn síðasta úrræðið. 2.9.2022 19:33
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hjúkrunarfræðingar í hópi þeirra fjórtán sem hættu á Landspítalanum í gær segir fólk ekki gera sér grein fyrir hversu alvarleg staða sé komin upp á bráðamóttökunni. Þær segja að uppsögn hafi verið síðasta úrræði sem þær hafi haft. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 2.9.2022 18:00
Á leið út úr dyrunum þegar kviknaði í spjaldtölvu heimilisins Móðir á Akureyri virðist hafa brugðist hárrétt við aðstæðum þegar eldur kviknaði í spjaldtölvu heimilisins. Litlu hefði mátt muna að afleiðingarnar hefðu orðið alvarlegar. 2.9.2022 17:44
„Ósanngjarnt að hengja sig í smáatriðum“ Forstöðumaður kjarasviðs Fagfélaganna segir ósanngjarnt af veitingastöðunum Flame og Bambus að ætla að fara að hengja sig í smáatriðum í launaþjófnaðarmáli sem höfðað hefur verið gegn þeim. Kjarni málsins sé sá að farið hafi verið illa með fólk - og því borgað of lítið fyrir of mikla vinnu. 2.9.2022 17:36
Vígðu fyrsta heimagerða flugmóðurskipið Indverjar vígðu í dag fyrsta heimabyggða flugmóðurskip ríkisins. INS Vikrant er eitt af tveimur starfræktum flugmóðurskipum Indverja en ráðamenn í Indlandi vilja auka mátt flota ríkisins og auka skipasmíðagetu Indlands til að sporna gegn auknum umsvifum Kína. 2.9.2022 17:16
Þriðjungur kvenna orðið fyrir áreitni eða ofbeldi á vinnustað Þriðjungur kvenna á Íslandi hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi á vinnustað einhvern tímann á lífsleiðinni samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar á vegum vísindamanna Háskóla Íslands. 2.9.2022 16:16
Fundu fjölmargar tómar möppur utan af leynigögnum Meðal þess sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) lögðu hald á við húsleit í Mar-a-Lago, sveitaklúbbi og heimili Donalds Trump, fyrrverandi forseta, í síðasta mánuði, voru tugir tómra mappa sem voru utan af leynilegum gögnum. 2.9.2022 16:14
Grunaður um að hafa nauðgað eiginkonu sinni í bíl Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. september fyrir að hafa meðal annars ógnað eiginkonu sinni með hníf og nauðgað henni í bíl sem lagður var á malarsvæði. Maðurinn hefur einnig verið ákærður fyrir eignaspjöll og líkamsárásir. 2.9.2022 14:55
Eigandinn hafi mætt með leyfi MAST til að flytja hryssuna og folaldið: „Fólk er við það að taka völdin í sínar hendur“ Íbúi í Borgarnesi sem hefur ítrekað kvartað vegna slæmrar meðferðar á hestum í Borgarfirði segir íbúa öskuilla þar sem eigendur hafi fengið leyfi MAST til að flytja illa haldna hryssu og folald sem höfðu verið innilokuð. Samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu sé málið til skoðunar og samráðsfundur fari fram síðar í mánuðinum. Tilkynning Ríkisendurskoðunar um úttekt á eftirliti MAST hafi verið áfangasigur. 2.9.2022 14:15
Prawie 1200 dzieci na liście oczekujących Tej jesieni, łącznie 3368 dzieci otrzymało miejsce w ośrodkach pozaszkolnych w Reykjaviku, a 1155 wciąż jest na liście oczekujących. 2.9.2022 12:41
Fyrrverandi starfsmenn lýsa afar ófaglegum vinnubrögðum safnstjórans Nokkrir fyrrverandi starfsmenn Listasafns Íslands lýsa afar ófaglegum stjórnunarstíl fyrrum safnsstjóra sem hefur nú verið skipuð án auglýsingar sem þjóðminjavörður. Nefndarmaður Pírata í stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd Alþingis vill fá menningarmálaráðherra fyrir nefndina vegna ráðningarinnar. 2.9.2022 12:22
Opóźnienie w lądowaniu z powodu zablokowanego pasa Samolot obsługiwany przez Icelandair musiał wczoraj odwołać lądowanie na lotnisku Keflavík, ponieważ inny samolot był na pasie startowym. 2.9.2022 11:56
Hádegisfréttir Bylgjunnar Deilur í kringum nýskipaðan þjóðminjavörð, ill meðferð á hrossum, launaþjófnaður og kjarnorkumál í Úkraínu verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 2.9.2022 11:38
Ekki líðandi að Zaporizhzhia kjarnorkuverinu sé ógnað Forstjóri Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar segir ekki líðandi að öryggi kjarnorkuversins í Zaporizhzhia haldi áfram að vera ógnað af stríðandi fylkingum í Úkraínu. Eftirlitsmenn stofnunarinnar væru komnir til að vera í kjarnorkuverinu sem er það stærsta í Evrópu og hefur þegar verið ógnað með sprengjuárásum. 2.9.2022 11:21
Afla upplýsinga vegna atviksins á Keflavíkurflugvelli Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur hafið upplýsingaöflun vegna flugatviks sem varð á Keflavíkurflugvelli í fyrradag, þegar hætt var við lendingu flugvélar Icelandair á leið frá München í Þýskalandi. 2.9.2022 11:11
Segir MAGA-Repúblikana ógna Bandaríkjunum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fór hörðum orðum um Donald Trump, forvera sinn og stuðningsmenn hans, í ræðu sem hann hélt í gærkvöldi. Biden sagði að svo lengi sem Trump stjórnaði Repúblikanaflokknum ógnaði flokkurinn lýðræði í Bandaríkjunum. 2.9.2022 10:53
Gámur eyðilagðist á Reykjanesbraut Hreinsunarstarf stendur nú yfir á Reykjanesbraut eftir að gámur, sem verið var að flytja á palli vörubíls, hafnaði undir brúnni milli Smiðjuhverfisins og Staldursins í Reykjavík. 2.9.2022 10:39
Segir hryssu og folald enn innilokuð án dagsbirtu Íbúi í Borgarnesi segir hryssu og folald enn innilokuð í hesthúsi í Borgarnesi, þar sem ekki sjáist til sólar. Eigandinn var tilneyddur í gær að færa önnur hross sín, sem voru vannærð og illa haldin, á beit en hryssa með folald er enn innilokuð í hesthúsinu. 2.9.2022 10:29
Samræmdum prófum slaufað og „Matsferill“ kemur í þeirra stað Samræmd könnunarpróf í grunnskóla verða ekki lögð fyrir á þessu skólaári og fram til ársins 2024. Í stað prófanna verður unnið með svokallaðan „Matsferil“, nýtt samræmt námsmat, sem mun leysa samræmdu prófin af hólmi. 2.9.2022 10:11
Allt sem þú þarft vita um sænsku þingkosningarnar Níu dagar eru nú þar til að Svíar ganga að kjörborðinu en þingkosningar fara fram í landinu sunnudaginn 11. september. Spennan er mikil og ekki víst hvernig mál muni þróast þegar búið er að telja öll atkvæði. Þegar kemur að myndun næstu stjórnar hefur sjónum sérstaklega verið beint að Miðflokknum og svo Svíþjóðardemókrötum sem eru komnir inn í hlýjuna á hægri vængnum eftir að hafa verið einangraðir á sænska þinginu allt frá því að þeir náðu fyrst inn mönnum árið 2010. 2.9.2022 09:00
1.200 börn á biðlista og fjöldi staða ómannaður Alls hafa 3.368 börn fengið pláss á frístundaheimilum í Reykjavík í haust en 1.155 eru enn á biðlista. Enn hefur ekki tekist að manna nema 75 prósent staða á frístundaheimilunum og sértækum félagsmiðstöðvum borgarinnar. 2.9.2022 08:58
Kjarnorkuverið í Zapoizhzhia ítrekað orðið fyrir hnjaski Formaður eftirlitsnefndar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar segir byggingu kjarnorkuversins í Zapoizhzhia í Úkraínu hafa orðið fyrir hnjaski ítrekað. Hann hafi áhyggjur af öryggismálum í verinu, sem er undir yfirráðum rússneskra hersveita. 2.9.2022 08:22
Suu Kyi fær enn einn fangelsisdóminn Dómstóll í Mjanmar hefur dæmt Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtoga landsins, í þriggja ára fangelsi fyrir kosningasvindl í tengslum við þingkosningarnar í nóvember 2020. 2.9.2022 07:54
Hlaðinni byssu beint að höfði varaforsetans Litlu munaði að varaforseti Argentínu væri ráðinn af dögum í gær þegar maður beindi hlaðinni byssu að höfði hennar og tók í gikkinn en byssan stóð á sér. 2.9.2022 07:39
Hyggst verja 32 milljónum dollara í að þjálfa her bardagamanna Taívanski auðkýfingurinn Robert Tsao, stofnandi og eigandi örflöguframleiðandans United Microelectronics Corp, hefur greint frá því að hann hyggist verja jafnvirði 32 milljón dollara í að þjálfa 3,3 milljónir almennra borgara til að verja Taívan ef Kínverjar gera innrás. 2.9.2022 07:38
Hiti gæti náð sautján stigum á Suðurlandi Veðurstofan spáir norðaustanátt í dag, þar sem reikna megi með strekkingi sums staðar en lægir svo með kvöldinu. Væta verður um landið austanvert, en bjartviðri suðvestantil. 2.9.2022 07:19