Fleiri fréttir Hafþór Júlíus kærður til lögreglu af fyrrverandi kærustu Þrjár fyrrverandi kærustur Fjallsins segja hann hafa beitt þær líkamlegu og andlegu ofbeldi auk þess að hóta þeim. Ein þeirra hefur kært nokkur atvik úr sambandi þeirra. Lögmaður Fjallsins segir ekkert hæft í sögunum og hótar Fréttablaðinu málsókn. 15.6.2017 23:45 „Við viljum vera siðmenntað ríki sem þýðir að við gefum mönnum annað tækifæri“ Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Roberts Downey sem í dag hlaut lögmannsréttindi á ný, gagnrýnir fjölmiðla fyrir að rifja upp þau brot sem skjólstæðingur hans var dæmdur fyrir í Hæstarétti árið 2008. Ekki er laust við að nokkurrar reiði gæti á samfélagsmiðlum vegna málsins en Jón Steinar minnir á að í íslenskum rétti sé það svo að menn fái annað tækifæri. 15.6.2017 22:00 Stærsta seiðaeldisstöð landsins og sú fyrsta sem endurnýtir vatnið Ein fullkomnasta seiðaeldisstöð heims rís nú í botni Tálknafjarðar þar sem megnið af vatninu verður endurnýtt. 15.6.2017 22:00 Stefnir í harða deilu milli Félagsstofnunar stúdenta og Minjastofnunar vegna nýbygginga á háskólasvæðinu Minjastofnun leggst alfarið gegn því að hugmyndir Félagsstofnunar stúdenta um byggingu við hlið Gamla Garðs á háskólalóðinni verði að veruleika. Byggingin muni skyggja á og raska einstæðri og mikilvægri skipulagsheild með óafturkræfum hætti. Félagsstofnun segir Minjavernd ekki hafa lögsögu í málinu enda sé Gamli Garður ekki friðaður. 15.6.2017 21:00 Gagnrýna hvernig óhollusta er markaðssett til barna Neytendasamtök Íslands taka undir með Evrópusamtökum neytenda sem kalla eftir því að markaðssetningu með teiknimyndapersónum á óhollri matvöru sem beint er gegn börnum verði hætt. 15.6.2017 19:45 Akraborgin siglir á ný Flóasiglingar á milli Akraness og Reykjavíkur hófust aftur í dag eftir 19 ára hlé. 15.6.2017 19:33 Skoða losun fráveituvatns í borholur Í dag sendi sveitarfélagið Skútustaðahreppur og fimmtán rekstraraðilar í sveitarfélaginu inn fimm ára umbótaáætlun um fráveitumál. Áætlunin stendur og fellur með fjárstuðningi ríkisins. 15.6.2017 18:45 Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hefjast á slaginu 18:30. 15.6.2017 18:15
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hefjast á slaginu 18:30. 14.6.2017 18:15 Sjá næstu 50 fréttir
Hafþór Júlíus kærður til lögreglu af fyrrverandi kærustu Þrjár fyrrverandi kærustur Fjallsins segja hann hafa beitt þær líkamlegu og andlegu ofbeldi auk þess að hóta þeim. Ein þeirra hefur kært nokkur atvik úr sambandi þeirra. Lögmaður Fjallsins segir ekkert hæft í sögunum og hótar Fréttablaðinu málsókn. 15.6.2017 23:45
„Við viljum vera siðmenntað ríki sem þýðir að við gefum mönnum annað tækifæri“ Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður Roberts Downey sem í dag hlaut lögmannsréttindi á ný, gagnrýnir fjölmiðla fyrir að rifja upp þau brot sem skjólstæðingur hans var dæmdur fyrir í Hæstarétti árið 2008. Ekki er laust við að nokkurrar reiði gæti á samfélagsmiðlum vegna málsins en Jón Steinar minnir á að í íslenskum rétti sé það svo að menn fái annað tækifæri. 15.6.2017 22:00
Stærsta seiðaeldisstöð landsins og sú fyrsta sem endurnýtir vatnið Ein fullkomnasta seiðaeldisstöð heims rís nú í botni Tálknafjarðar þar sem megnið af vatninu verður endurnýtt. 15.6.2017 22:00
Stefnir í harða deilu milli Félagsstofnunar stúdenta og Minjastofnunar vegna nýbygginga á háskólasvæðinu Minjastofnun leggst alfarið gegn því að hugmyndir Félagsstofnunar stúdenta um byggingu við hlið Gamla Garðs á háskólalóðinni verði að veruleika. Byggingin muni skyggja á og raska einstæðri og mikilvægri skipulagsheild með óafturkræfum hætti. Félagsstofnun segir Minjavernd ekki hafa lögsögu í málinu enda sé Gamli Garður ekki friðaður. 15.6.2017 21:00
Gagnrýna hvernig óhollusta er markaðssett til barna Neytendasamtök Íslands taka undir með Evrópusamtökum neytenda sem kalla eftir því að markaðssetningu með teiknimyndapersónum á óhollri matvöru sem beint er gegn börnum verði hætt. 15.6.2017 19:45
Akraborgin siglir á ný Flóasiglingar á milli Akraness og Reykjavíkur hófust aftur í dag eftir 19 ára hlé. 15.6.2017 19:33
Skoða losun fráveituvatns í borholur Í dag sendi sveitarfélagið Skútustaðahreppur og fimmtán rekstraraðilar í sveitarfélaginu inn fimm ára umbótaáætlun um fráveitumál. Áætlunin stendur og fellur með fjárstuðningi ríkisins. 15.6.2017 18:45
Dæmdur kynferðisbrotamaður fær lögmannsréttindi á ný Maður sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum hefur fengið lögmannsréttindi sín á ný samkvæmt úrskurði Hæstaréttar. 15.6.2017 17:33
Bílstjóri Ferðaþjónustu fatlaðra sýknaður Hæstiréttur hefur snúið dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli manns sem var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn konu sem hann ók fyrir Ferðaþjónustu fatlaðra. 15.6.2017 16:46
Dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að reyna að drepa barnsmóður sína Maðurinn þarf að greiða konunni 3,5 milljónir króna í bætur en hann svipti hana frelsi, nauðgaði og tók hana hálstaki sem hún missti meðvitund við. 15.6.2017 15:54
Bandaríska heilbrigðisstofnunin veitir 130 milljónir til íslenskrar svefnrannsóknar Bandaríska heilbrigðisstofnunin (National Institute of Health) hefur veitt Þórarni Gíslasyni, yfirlækni á lungnadeild Landspítalans og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, og alþjóðlegum samstarfshóp hans 130 milljón króna styrk til rannsóknar á kæfisvefni. 15.6.2017 15:37
Nabakowski-bræðurnir saklausir hvort sem fólki líki betur eða verr Það hefur auðvitað verið mjög þungbært fyrir þá að vera í gæsluvarðhaldi í þennan tíma, vitandi að fjallað væri um þá á óvæginn hátt í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum, segir Þórður Már Jónsson, lögmaður bræðranna. 15.6.2017 15:18
Manndráp í Mosfellsdal: Fjórum sakborninganna sleppt úr haldi Fjórum sakborningum af sex, sem handteknir voru grunaðir um aðild að manndrápinu í Mosfellsdal í síðustu viku, var sleppt úr haldi lögreglu skömmu eftir hádegi í dag. 15.6.2017 14:36
Hjólafólk vill hjóla í atvinnubílstjóra Vilja kæra bílstjóra vegna ósmekklegra ummæla. 15.6.2017 13:45
Ingveldur ráðin aðstoðarmaður Sigurðar Inga Ingveldur Sæmundsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður formanns Framsóknarflokksins. 15.6.2017 13:42
Stofn landsela hrunið úr 33 þúsund dýrum í 8000 Stofn landsela er nú langt innan við markmið stjórnvalda um stærð hans og verður að grípa til aðgerða honum til verndar að sögn vísindamanna. 15.6.2017 13:16
Svar Benedikts um áhuga á flugstöðinni „ónákvæmt og jafnvel rangt“ Fjármálaráðherra segist þurfa að orða svör sín á þingi nákvæmar. Þingmaður vinstri grænna segir málið grafalvarlegt. 15.6.2017 13:15
Sara Óskarsson varaþingmaður segir Fokk the Glock Jæja-hópurinn boðar til mótmæla vegna vopnaburðar lögreglu. 15.6.2017 13:14
Hælisumsóknum fjölgaði um 60 prósent milli ára Samanlagður fjöldi umsókna á fyrstu fimm mánuðum ársins var 370 sem eru tæplega 60 prósent fleiri umsóknir en bárust á sama tíma á síðasta ári. 15.6.2017 12:52
Ekki líklegt að hlanddólgurinn sé þjakaður af blæti Pétur Tyrfingsson sálfræðingur segir erfitt að greina hvað býr að baki því að vilja pissa í ruslafötur. 15.6.2017 12:37
Ferðamaður frá Íslandi gripinn með uppstoppaðan lunda í Bandaríkjunum Tollayfirvöld á Baltimore-flugvelli gerðu uppstoppaðan lunda upptækan sem ferðamaður sem kom frá Íslandi flutti með sér. Bannað er að flytja inn farfugla til Bandaríkjanna. 15.6.2017 11:18
Tíu vilja stýra Skaupinu Ríkisútvarpinu bárust 10 umsóknir um framleiðslu á Áramótaskaupinu 2017. Umsóknarfrestur rann út síðastliðinn mánudag en að sögn dagskrárstjóra sjónvarpsins tekur nú við úrvinnsla umsóknanna. Stefnt er að því að ljúka samningum um mitt sumar en þetta er í fyrsta skipti sem hægt er að sækja um framleiðslu Skaupsins í opnu ferli. 15.6.2017 10:30
Burðardýr í steininn fyrir innflutning á kílói af kókaíni Brasilíumaður var handtekinn á Keflavíkurflugvelli þann 31. mars síðastliðinn. 15.6.2017 10:12
Heitavatnslaust í Hnoðraholti og Salahverfi vegna leka Röskun verður á afhendingu heits vatns víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu eftir að leki kom að svokallaðri Suðuræð. 15.6.2017 09:57
Birkifrjóið að fjara út en grasið að taka við Lítið hefur verið um frjókorn í lofti í borginni síðustu vikuna en birkifrjótímanum er að ljúka. Grasið er hins vegar að taka við og frjótímabil þess gæti varað fram í september. 15.6.2017 09:30
Vill bæta stíginn út á Geldinganes Jóhann Walderhaug, húsasmiður til 50 ára, er ekki sáttur að stígurinn út í Geldinganes sé ekki nógu góður. 15.6.2017 09:00
Beit lögreglumann sem stoppaði hann fyrir að vera á nöglum Ökumaður bíls sem lögreglumenn stöðvuðu í nótt fyrir að vera á nagladekkjum réðst á annan lögreglumanninn og beit hann. Grunur leikur á að maðurinn hafi ekið undir áhrifum fíkniefna. 15.6.2017 07:20
Listaverkin sem enginn hefur ánægju af lengur Útilistaverk í Reykjavík eru mörg hver að grotna niður vegna skemmda og sum þeirra jafnvel farin að rifna af undirstöðunum og orðin hættuleg vegfarendum. Listasafn Reykjavíkur fær eina milljón á ári til að halda við 148 verkum. 15.6.2017 07:00
Sextíu íbúðir fyrir eldri borgara Samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð var í gær mun Byggingarsamvinnufélagið Samtök aldraðra byggja 60 íbúðir fyrir eldri borgara á reit Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð. 15.6.2017 07:00
Glænýtt vopn sérsveitar þegar verið notað í lögregluaðgerð Höggbyssu sem skýtur boltum var fyrir nokkru beitt á mann sem ógnaði lögreglu með búrhnífum. Það var í fyrsta og eina skiptið sem byssunni hefur verið beitt af sérsveit Ríkislögreglustjóra. Vopnið er kallað gula byssan enda fagurgult. 15.6.2017 07:00
Ástráður og Jóhannes með sama lögmann Ástráður Haraldsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson eru með sama lögmann, Jóhannes Karl Sveinsson í málum gegn íslenska ríkinu. 15.6.2017 07:00
Ótryggð verk Magnúsar í Grafarvogskirkju Eftirlifandi eiginkona Magnúsar, leirlistamaðurinn Kolbrún Björgólfsdóttir eða Kogga, vill að kirkjan tryggi verkin en kirkjan hefur ekki svarað erindum hennar. 15.6.2017 07:00
Mótmæla fyrirhuguðum framkvæmdum Fjölmennur hópur íbúa í Kópavogi hefur skrifað undir tvær áskoranir þess efnis að svæði sem afmarkast af Hávegi, Álftröð og Skólatröð verði skipulagt í samráði við íbúa í nærliggjandi götum. 15.6.2017 07:00
Vernd Teigsskógar gæti kostað hreppinn milljarða Reykhólahreppur stendur frammi fyrir því að þurfa að greiða 4,5 milljarða króna velji sveitarstjórnin jarðgöng undir Hjallaháls fremur en veg um Teigsskóg. 14.6.2017 21:45
WOW strandaglópar á Miami komast heim á morgun WOW Air hefur leigt flugvélar til þess að ferja farþega heim sem setið hafa fastir í Miami frá því í gær. 14.6.2017 21:15
Manndráp í Mosfellsdal: Búið að yfirheyra alla sakborninga aftur Búið er að yfirheyra alla sakborninganna í manndrápsmálinu í Mosfellsdal aftur að sögn Gríms Grímssonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 14.6.2017 20:30
Skóarafjölskylda leggur skóna á hilluna Skóvinnustofa Hafþórs lokar 1. júlí eftir fimmtíu ára starsemi í Garðastrætinu. Öll fjölskyldan hefur starfað í fyrirtækinu og börnin nánast alin upp á verkstæðinu. 14.6.2017 20:00
Viðgerð á nýjum sæstreng kostar yfir hálfan milljarð Viðgerð á fjögurra ára gömlum sæstreng milli lands og Eyja er talin kosta yfir hálfan milljarð króna. Eitt af stærstu kapalskipum heims var fengið til verksins. 14.6.2017 19:45
Borgarstjóri ekki látinn vita af vopnaburði lögreglu á fjöldasamkomum Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, segist ekki hafa verið látinn vita af áætlunum lögreglunnar um vopnaburð á fjöldasamkomum í sumar. 14.6.2017 19:30
Lögreglan vildi skerða ferðafrelsi ungs hælisleitanda Héraðsdómur Reykjavíkur felldi á dögunum úr gildi ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að ungur hælisleitandi þyrfti að halda sig á dvalarstað sínum, það er í húsnæði Útlendingastofnunar í Reykjavík, og mætti ekki fara út fyrir svæði sem afmarkaðist af 50 metra radíus umhverfis húsnæðið. 14.6.2017 19:12
Fullgilda viðauka við samþykkt um afnám nauðungarvinnu Þorsteinn Víglundsson, félags-og jafnréttismálaráðherra, afhenti í morgun Guy Ryder, forstjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, fullgildingu íslenskra stjórnvalda á bókun við samþykkt stofnunarinnar um afnám nauðungarvinnu. 14.6.2017 19:00
Segir sífellt fleiri lögreglumenn leita í önnur störf á sama tíma og verkefnum fjölgar Varaformaður Landssambands lögreglumanna, segir að lögreglumenn leiti í sífellt meira mæli í önnur störf. 14.6.2017 18:36
Segir getu slökkviliðs til að takast á við eldsvoða í háhýsum háða brunavörnum Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir að brunavarnir skipti sköpum hvað varðar getu slökkviliðsins til þess að takast á við eldsvoða í háhýsum hér á landi. 14.6.2017 18:30