Fleiri fréttir „Hvað gerðir þú árin sem skiptu máli?“ Hildur Knútsdóttir rithöfundur segir það ekki vera í boði að hundsa áhrif loftslagsbreytinga lengur. 20.9.2019 20:18 Icelandair frestar endurskoðun flotastefnu vegna MAX-óvissu Bogi Nils Bogason forstjóri segir fjárhagsstöðu Icelandair það sterka að félagið muni komast leikandi í gegnum kyrrsetningu Boeing 737 MAX-vélanna. 20.9.2019 20:00 Á spítala eftir rafrettunotkun: „Við vitum að 50% þeirra í 10. bekk hafa prófað“ Grunur leikur á að unglingur sem nýlega greindist með lungnasjúkdóm hér á landi hafi veikst vegna rafrettunotkunar. Landlæknir segir rafrettunoktun ungmenna áhyggjuefni. 20.9.2019 19:00 Stöðvuðu ökumann og komu upp um umfangsmikla kannabisræktun Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði í gær ökumann fólksbifreiðar í því skyni að kanna ástand hans og ökuréttindi. Í kjölfarið fóru lögreglumennirnir á heimili mannsins þar sem umfangsmikil kannabisræktun átti sér stað. 20.9.2019 18:08 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kvöldfréttir Stöðvar 2 á sínum stað klukkan 18:30. 20.9.2019 17:59
Sjá næstu 50 fréttir
„Hvað gerðir þú árin sem skiptu máli?“ Hildur Knútsdóttir rithöfundur segir það ekki vera í boði að hundsa áhrif loftslagsbreytinga lengur. 20.9.2019 20:18
Icelandair frestar endurskoðun flotastefnu vegna MAX-óvissu Bogi Nils Bogason forstjóri segir fjárhagsstöðu Icelandair það sterka að félagið muni komast leikandi í gegnum kyrrsetningu Boeing 737 MAX-vélanna. 20.9.2019 20:00
Á spítala eftir rafrettunotkun: „Við vitum að 50% þeirra í 10. bekk hafa prófað“ Grunur leikur á að unglingur sem nýlega greindist með lungnasjúkdóm hér á landi hafi veikst vegna rafrettunotkunar. Landlæknir segir rafrettunoktun ungmenna áhyggjuefni. 20.9.2019 19:00
Stöðvuðu ökumann og komu upp um umfangsmikla kannabisræktun Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði í gær ökumann fólksbifreiðar í því skyni að kanna ástand hans og ökuréttindi. Í kjölfarið fóru lögreglumennirnir á heimili mannsins þar sem umfangsmikil kannabisræktun átti sér stað. 20.9.2019 18:08
Krefst fimm ára fangelsis yfir Árna Gils Héraðssaksóknari krafðist fimm ára fangelsisdóms yfir Árna Gils Hjaltasyni vegna tilraunar til manndráps við lok aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 20.9.2019 17:15
Tveggja ára dómur fyrir nauðgun á Þjóðhátíð Landsréttur hefur dæmt Helga Fannar Sæþórsson í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa, á Þjóðhátíð 2015, nauðgað konu sem ekki gat spornað við verknaðinum sökum svefndrunga og ölvunar. 20.9.2019 17:08
Dómur mildaður í nauðgunarmáli manns sem kom GPS-tæki fyrir í bíl konu sinnar Landsréttur hefur mildað dóm yfir karlmanni á fertugsaldri fyrir að nauðga þáverandi eiginkonu sinni og að koma GPS-tæki fyrir í bíl konunnar, án hennar vitundar, í þeim tilgangi að fylgjast með ferðum hennar. 20.9.2019 16:59
RÚV fær 5000 evra sekt vegna Palestínufána Hatara Samband evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, hefur ákveðið að sekta Ríkisútvarpið fyrir það uppátæki hljómsveitarinnar Hatara að veifa borða í fánalitum Palestínu í græna herberginu á úrslitakvöldi Eurovision í Ísrael í maí. 20.9.2019 16:37
Eldur í einbýlishúsi á Akureyri Eldur kom upp í olíu í einbýlishúsi á Akureyri nú síðdegis. 20.9.2019 16:28
Rekja veikindi unglings til rafrettureykinga Grunur leikur á að veikindi unglings, sem greindist nýverið með lungnasjúkdóm hér á landi, megi rekja til rafrettunotkunar. 20.9.2019 15:44
419 dæmi um hraðakstursbrot við grunnskólana fyrstu fjórar vikurnar Frá því að grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu tóku aftur til starfa í síðasta mánuði hefur lögreglan verið með aukið eftirlit við skólana í umdæminu og þar sem þekkt er að börn þurfi að þvera veg til að komast til og frá skóla. 20.9.2019 15:19
Sakar Árna Gils um árás með hafnaboltakylfu: „Gaurinn bara snappaði“ Vitni sem gaf skýrslu í máli Árna Gils Hjaltasonar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sakaði hann um að hafa ráðist á sig með hafnaboltakylfu þegar hann sneri baki í hann skömmu fyrir átök við Leifasjoppu þar sem Árni er sakaður um að hafa veitt öðrum manni stungusár á höfði. 20.9.2019 14:47
21 milljón í greiningu á iðnaðarkostum á Norðvesturlandi Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun veita SSNV tímabundinn 21 milljón króna styrk til greiningar á iðnaðarkostum sem gætu hentað Norðurlandi vestra. 20.9.2019 14:22
Í gæsluvarðhald og einangrun grunuð um kókaínsmygl Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að kona er grunuð er um að hafa flutt hingað til lands um 400 grömm af kókaíni og 0,49 grömm af amfetamíni sæti gæsluvarðhaldi til 24. september næstkomandi. 20.9.2019 14:11
Sonur Sævars segir Valtý lögmann eiga ríkra hagsmuna að gæta Hafþór Sævarsson, sonur Sævars Ciesielski, kemur Erlu Bolladóttur til varnar í nýrri grein. Um er að ræða viðbrögð Hafþórs við þeirri skoðun þriggja karlmanna sem sátu í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 að ekki eigi að greiða Erlu skaðabætur án þess að hún verði formlega sýknuð af dómi fyrir rangar sakargiftir. 20.9.2019 13:49
Þinghaldi lokað á meðan fyrrverandi vinkona Árna bar vitni Dómari féllst á beiðni saksóknara sem sagði vitnið óttaslegið og telja viðvist fólks í dómsalnum geta haft áhrif á framburð sinn. 20.9.2019 13:46
Ferðamenn fari með gát vegna vatnavaxta á Vesturlandi og Vestfjörðum Veðurstofa Íslands hefur ákveðið að framlengja úrkomuviðvaranir fyrir Faxaflóa, Breiðafjörð og Vestfirði. Á síðasta sólarhring hefur rignt gríðarlega á vesturhelmingi landsins og útlit er fyrir enn meiri ofankomu á næstu klukkutímum. 20.9.2019 13:27
Markar upphaf allsherjarverkfallsviku um aðgerðir í loftslagsmálum Búist er við að milljónir taki þátt í allsherjarverkfalli sem boðað hefur verið til á yfir fimm þúsund stöðum í heiminum vegna loftslagsbreytinga í dag. 20.9.2019 13:26
Strákurinn sem lýst var eftir kominn í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir nítján ára dreng. 20.9.2019 12:49
Deilt um dagbókarfærslur lögreglu í stóra amfetamínmálinu Verjendur og saksóknari í umfangsmiklu fíkniefnamáli þar sem þrír menn eru ákærðir fyrir framleiðslu á rúmum átta kílóum af amfetamíni í sumarbústað í Borgarfirði tókust á um það fyrir dómi í dag hvort ákæruvaldinu beri að leggja fram dagbókarfærslur lögreglu í málinu. 20.9.2019 12:30
Telur vörubíla og fáklæddar konur sérdeilis góða samsetningu Framkvæmdastjóri RS Parta í Tranavogi segir ömurlegt þegar fyrirsæturnar eru dregnar niður í svaðið á netinu. 20.9.2019 11:55
Tvöfalt fleiri konur mættu í fyrstu skimun Þátttaka kvenna kvenna í skimun sem fá í fyrsta sinn boð um leit að brjósta- og leghálskrabbameini tvöfaldaðist frá 1. janúar til 31. júlí 2019 miðað við sama tímabil árið 2018. 20.9.2019 11:16
Snýst ekki um vanhæfni heldur þekkingarleysi á ættleiðingum Sálfræðingur segir að missir sé óaðskiljanlegur hluti af ættleiðingu og það skipti máli hvernig brugðist er við slíkum tilfinningum. 20.9.2019 11:15
Misbauð beiðni Erlu Bolladóttur um bætur og hittust í fyrsta skipti í 43 ár Þrír menn sem sátu saklausir í gæsluvarðhaldi í 105 daga árið 1976 grunaðir um að hafa orðið Geirfinni Einarssyni að bana telja alls ekki réttlætanlegt að greiða Erlu Bolladóttur bætur vegna dóms sem hún hlaut fyrir rangar sakargiftir. 20.9.2019 10:51
Gagnrýni á loftslagsbölsýni snúið gegn þeim sem krefjast aðgerða Ummæli yfirmanns Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar um öfgar í loftslagsumræðu fóru víða á dögunum en án samhengisins sem þau féllu í. 20.9.2019 10:15
Guðmundar og Geirfinnsmálið: „Ríkið er nú komið í stríð við Hæstarétt“ Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar, segir það hafa komið skjólstæðingi sínum á óvart að ríkisstjórnin skyldi hafa krafist sýknu af skaðabótakröfum Guðjóns vegna fangelsunar hans í Gerfinnsmálinu. 20.9.2019 09:10
Enn einn blauti dagurinn Appelsínugul viðvörun er enn í gildi við Faxaflóa og Breiðafjörð í dag. Mikil úrkoma hefur verið á vesturhelmingi landsins síðastliðinn sólarhring og áfram er spáð úrkomu frameftir degi. 20.9.2019 08:43
Stal áfengi í samkomuhúsi í Mosfellsbæ Rúða var brotin og leikur grunur á að áfengi hafi verið stolið. 20.9.2019 08:23
Allsherjarverkfall vegna loftslagsbreytinga fer fram í dag Allsherjarverkfall sem boðað hefur verið vegna loftslagsbreytinga á jörðinni fer fram í dag víðsvegar um heiminn og þar á meðal á Íslandi. 20.9.2019 07:26
Slökkvilið kallað út að húsi í Reykjanesbæ Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var kallað út að húsi við Fífumóa í Reykjanesbæ á sjöunda tímanum í morgun. 20.9.2019 07:02
Lykilatriði að geta ropað almennilega Um 600 manns munu þreyta árlegt bjórhlaup RVK Brewing sem hefur vaxið hratt milli ára. Íslandsmeistari kvenna segist hafa lært af reynslunni. Það hafi komið henni á óvart hversu erfitt er að spretta af stað eftir einn stóran bjór. 20.9.2019 06:45
BHM-félög vilja launaviðræður Þess er krafist í yfirlýsingu 21 aðildarfélags innan BHM að ríkið, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga hefji tafarlaust raunverulegt samtal um launalið kjarasamninga. 20.9.2019 06:45
Farþegar sex prósentum fleiri á þessu ári Fyrstu átta mánuði ársins voru þau tæpar 7,8 milljónir sem er rúmlega 440 þúsund fleiri en á sama tíma í fyrra. 20.9.2019 06:45
Netverslun með áfengi lýðheilsumál Vínkaupmaður fagnar fyrirhuguðu frumvarpi dómsmálaráðherra um að opna á innlenda netsölu á áfengi. Slík verslun sé nútímaleg, í anda lýðheilsu og gefi meiri möguleika til að miðla upplýsingum til kaupandans. Netverslun þýði ekki að ÁTVR verði lokað. 20.9.2019 06:45
Shooters burt úr Austurstræti Um er að ræða einn alræmdasta skemmtistað landsins en lögregluyfirvöld hafa ítrekað haft afskipti af rekstrinum síðan staðurinn var opnaður fyrir rúmum fimm árum. 20.9.2019 06:45
Kirkja og ríki hafi hag af aðskilnaði Jón Steindór er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um fullan aðskilnað ríkis og kirkju og nýja heildarlöggjöf um starfsemi trú- og lífsskoðunarfélaga. 20.9.2019 06:30
Dómurinn frá 1980 hafi fullt sönnunargildi um málsatvik Ríkið telur að byggja eigi á málsatvikum eins og þeim er lýst í sakfellingardómi Hæstaréttar frá 1980 um bótakröfu Guðjóns Skarphéðinssonar. Ný gögn sem aflað hefur verið gangi ekki framar þeim dómi. Fullyrðingum Guðjóns um ólöglegar rannsóknaraðgerðir hafnað sem ósönnuðum með öllu. 20.9.2019 06:15
Bensínþjófur slapp með sekt Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í vikunni ungan mann til að greiða Olíuverzlun Íslands 67 þúsund króna skaðabætur auk dráttarvaxta fyrir að hafa ítrekað stolið bensíni frá fyrirtækinu. 20.9.2019 06:15
Skriða lokar veginum yst á Skarðsströnd Vatnavextir eru nú víða og ekki hvað síst á Vesturlandi og Vestfjörðum. 19.9.2019 22:10
Æfa endurlífgun á sýndarsjúklingum Hermisetrið Örk hefur verið starfrækt á Landspítalanum nú í um fjögur ár. Þar inni má finna fjölda svokallaðra sýndarsjúklinga sem fagfólk notar til að æfa sig á. 19.9.2019 22:00
Hefja aðgerðir gegn matarsóun Eru verkefnin liður í aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum og verða þau í umsjón Umhverfisstofnunar. 19.9.2019 21:37
„Við getum ekki brugðist við með því að reyna að lifa eins og í sænskri hippakommúnu“ Sérstök umræða um loftslagsmál og skuldbindingar Íslands á alþjóðavettvangi fór fram á Alþingi í dag. 19.9.2019 19:50
Þurfa ekki að vera feimin við að ætla sér fjárhagslegan ávinning í baráttunni við loftslagsvána Þetta kom fram á stofnfundi samráðsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífsins í loftslagsmálum sem haldinn var í dag. Þar var farið yfir þann árangur sem vonast er til að ná í loftslagsmálum innan tveggja ára. 19.9.2019 19:45
Varði doktorsritgerð sína 78 ára gömul Flaggað var fyrir utan Háskóla Íslands í dag þegar Björk Guðjónsdóttir varði doktorsritgerð sína í mannfræði. Björk er fædd 1941 og því 78 ára gömul. 19.9.2019 19:45