Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórtán greindust með veiruna Fjórtán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir voru utan sóttkvíar við greiningu. 5.12.2020 10:53
Dæmi um að einstaklingar undir tvítugu þurfi jólaaðstoð Dæmi eru um að einstaklingar undir tvítugu þurfi að sækja sér jólaaðstoð hjálparsamtaka á Eyjafjarðarsvæðinu fyrir komandi jól. Umsókum um aðstoð hefur fjölgað um þriðjung á milli ára. 5.12.2020 08:01
Frost á bilinu þrjú til sextán stig í dag Það verður nokkuð kalt í veðri í dag, en frostið verður yfirleitt á bilinu þrjú til sextán stig, kaldast í innsveitum norðanlands. 5.12.2020 07:39
Tvær líkamsárásir og innbrot í skartgripaverslun Tvær líkamsárásir, innbrot í skartgripaverslun og tilkynningar um fimm heimilisofbeldismál voru á meðal þess sem kom til kasta lögreglu á erilsamri nótt. 5.12.2020 07:20
Flúðu á Hverfisgötu undan myglu Samtökin ’78 hafa flutt skrifstofu sína í húsnæði á Hverfisgötu 39 vegna myglu sem fannst í húsakynnum Samtakanna við Suðurgötu. Frá þessu greina samtökin á Facebook í dag. 4.12.2020 23:45
Sagði 497 símtöl á 23 dögum tengjast „bílaviðskiptum“ Héraðsdómur Reykjavíkur taldi félagana Matthías Jón Karlsson og Vygantas Visinskis ekki eiga sér neinar málsbætur í stórfelldu fíkniefnamáli, sem þeir voru dæmdir í fjögurra og tæplega sex ára fangelsi fyrir í dag. Matthías og Vygantas hringdust á 497 sinnum á 23 daga tímabili í vor en sá síðarnefndi sagði að símtölin hefðu tengst „bílaviðskiptum.“ 4.12.2020 22:09
Sjálfsafgreiðslubúðir að hætti Svía gætu gagnast dreifbýlinu Ómannaðar sjálfsafgreiðslu gámaverslanir, líkt og komið hefur verið á fót í Svíþjóð, gætu verið lausn fyrir fámenn samfélög á landsbyggðinni, að mati sveitarstjóra Reykhólahrepps, en þar var einu matvöruverslun sveitarinnar nýlega lokað. 4.12.2020 21:21
Tuttugu mínútna bið eftir bólusetninguna flækir málið Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir flókið að skipuleggja bólusetningu við kórónuveirunni og horfa þurfi til ýmissa sviðsmynda. Eitt flækjustigið felist til dæmis í því að þeir sem eru bólusettir þurfa að bíða í 20 mínútur eftir bólusetninguna áður en þeir geta haldið brott. 4.12.2020 20:28
Pfizer-bóluefnið verður flutt um allt land í þurrís og geymist í kæli í nokkra daga Pfizer-bóluefnið verður flutt um allt land í þurrís til að tryggja að það haldist við 80 gráðu frost. Þá geymist það í nokkra daga í kæli við 2 – 8 gráður. 4.12.2020 20:00
Grunaðir um framleiðslu á hættulegu ofskynjunarlyfi Þrír menn sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald í gær í tengslum við umfangsmikla rannsókn lögreglu á höfuðborgarsvæðinu eru grunaðir um framleiðslu á ofskynjunarlyfinu DMT. Ríkisútvarpið greinir frá þessu. 4.12.2020 19:28
Með hlaupabretti og upphífingarstöng í skólastofunni Hreyfing gegnir veigamiklu hlutverki í almennu skólastarfi í Langholtsskóla þar sem nemendur geta tekið sér hvíld frá lærdómnum og notað æfingatæki sem hafa verið sett upp í skólastofunni. 4.12.2020 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Skipulag fjöldabólusetningar við kórónuveirunni í Reykjavík verður klárt fyrir jól. Kjördeildir í kosningum verða lagðar til grundvallar. 4.12.2020 18:00
Ungir jafnaðarmenn segja orðræðu Sigríðar Andersen hættulega Ungir jafnaðarmenn segja í yfirlýsingu að það sé fullkomlega óboðlegt að Sigríður Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, hafi verið gerð að formanni utanríkismálanefndar Alþingis eftir að hafa gerst brotleg í starfi. 4.12.2020 17:15
Kosningabragur á bólusetningum í Reykjavík Borgarstjóri segir að skipulag bólusetningar í höfuðborginni verði með svipuðu fyrirkomulagi og í kosningum. Markmiðið sé að gera bólusetninguna auðsótta og aðgengilega svo opnaðir verða bólusetningastaðir í anda kjörstaða víða um borgina. 4.12.2020 17:05
Sýknaður af brotum gegn dóttur fyrrverandi sambýliskonu Landsréttur staðfesti sýknu karlmanns sem var ákærður fyrir að misnota dóttur fyrrverandi sambýliskonu sinnar kynferðislega þegar hún var níu til ellefu ára gömul í dag. 4.12.2020 16:46
Sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi en heldur ökuréttindum fyrir mistök Landsréttur staðfesti í dag dóm yfir karlmanni fyrir manndráp af gáleysi í október 2018. Var hann sakfelldur fyrir að hafa ekið bíl sínum yfir á rangan vegarhelming á Reykjanesbraut í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að árekstur varð við bíl sem kom úr gagnstæðri átt. 4.12.2020 16:31
Gagnaversþjófur fékk tæplega sex ára dóm í dópmáli Matthías Jón Karlsson, sem hlaut dóm í Bitcoin-málinu svokallaða, hefur verið dæmdur í fimm ára og níu mánaða fangelsi fyrir stórfellda fíkniefnaframleiðslu. Vygantas Viskinskis hlaut fjögurra ára dóm í málinu. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 4.12.2020 16:07
Neyslan merki þess að aðgerðir stjórnvalda virki Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sér fram á bjartari tíma í efnahagsmálum hér á landi á komandi ári. Komur ferðamanna séu lykill að góðum árangri í þeim efnum. 4.12.2020 15:57
Fimm handteknir í máli sem talið er tengjast skipulagðri brotastarfsemi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið fimm vegna umfangsmiklar rannsóknar sem talin er tengjast skipulagðri brotastarfsemi. Rannsóknin snýr að framleiðslu og sölu fíkniefna og hafa þrír verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 15. desember á grundvelli rannsóknarhagsmuna. 4.12.2020 15:38
Litakóðakerfi vegna Covid-19 samþykkt Ríkisstjórnin hefur samþykkt að taka upp Covid-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum. Tillaga þessi kom frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og Embættis landlæknis og svipar veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands. 4.12.2020 14:39
Veikindi Víðis fara versnandi Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fór í skoðun á Covid-göngudeild Landspítalans í dag vegna íferðar í lungum. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannvarnadeild ríkislögreglustjóra og staðgengill Víðis, segir Víði kominn heim eftir skoðun. Hann sé brattur miðað við aðstæður. 4.12.2020 14:23
Karl Steinar stýrir alþjóðasviði ríkislögreglustjóra Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið ráðinn yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra. 4.12.2020 14:08
Borgin mun að öllum líkindum stefna ríkinu vegna Jöfnunarsjóðs Reykjavíkurborg mun að öllum líkindum höfða mál við ríkið vegna vangoldinna framlaga úr Jöfnunarsjóði. Í dag rennur út sá frestur sem borgarlögmaður gaf ríkinu til að greiða þá átta komma sjö milljarða króna sem borgin fer fram á. 4.12.2020 13:27
Var að störfum á eigin landi þegar hann féll í gegnum vökina Karlmaður sem lést eftir að hann féll í gegnum vök í gær var að störfum í mýrlendi á eigin landi í Flóanum austan við Selfoss, að sögn lögreglu. Ekki er ljóst hversu djúpt maðurinn sökk eða hver dánarorsök hans var. 4.12.2020 12:32
Bein útsending: Jarðarför Salmans Tamimi Jarðarför Salmans Tamimi, forstöðumanns Félags múslima á Íslandi, fer fram í dag klukkan 12:30. Vegna samkomutakmarkana geta fáir verið viðstaddir jarðarförina en henni verður streymt, meðal annars hér á Vísi. 4.12.2020 12:01
Frumvarp um aukna álagningu á innfluttar landbúnaðarvörur nýtur mikils stuðnings Frumvarp landbúnaðarráðherra um tímabunda hækkun á álögum ríkisins á innfluttar landbúnaðarvörur virðist njóta stuðnings mikils meirihluta þingmanna. Þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar lýstu sig einir andsnúna frumvarpinu við fyrstu umræðu um það í gær. 4.12.2020 12:01
„Þetta er alls ekki tíminn til að slaka á“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir það ánægjulegt að allir þeir tólf sem greindust með veiruna innanlands í gær hafi verið í sóttkví. 4.12.2020 11:47
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir sem greindust voru í sóttkví og við ræðum við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni í hádegisfréttum okkar um þróun faraldursins. 4.12.2020 11:32
Tólf greindust innanlands og allir í sóttkví Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir sem greindust voru í sóttkví. 4.12.2020 10:52
Vormisserisumsóknir 60 prósent fleiri en í fyrra Háskóla Íslands bárust hátt í 1.800 umsóknir um grunn- eða framhaldsnám fyrir komandi vormisseri og eru þær um 60 prósent fleiri en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum og segir að reikna megi með að um 16 þúsund nemendur verði í skólanum á næsta ári. 4.12.2020 09:04
Studdust við staðsetningarforrit og leituðu án leyfis í herbergi hælisleitenda Tekist verður á um það í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur hversu háa fjárhæð tveir hælisleitendur fá í skaðabætur frá ríkinu vegna fjölmennrar leitar lögreglu að síma sem grunur var um að stolið hefði verið af barni í Reykjanesbæ. 4.12.2020 09:01
Búið að opna Súðavíkurhlíð og Holtavörðuheiði Búið er að opna veginn um Súðavíkurhlíð eftir að hún varð ófær seint í gærkvöldi vegna snjóflóðs. Þó er enn óvissustig á veginum vegna snjóflóðahættu. 4.12.2020 08:20
Meira en helmingur Covid-sjúklinga fann fyrir truflun á bragðskyni Niðurstöður íslenskrar rannsóknar um tíðni og þróun einkenna meðal fólks sem greindist með Covid-19 í fyrstu bylgju faraldursins sýna að meira en helmingur sjúklinga fann fyrir bragðskyns- og lyktarskynstruflunum. Niðurstöðurnar sýna einnig að nærri helmingur sjúklinganna fann fyrir einkennum í meltingarfærum. 4.12.2020 07:44
Þakplötur fuku af húsi í Mosfellsbæ Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um að þakplötur væru að fjúka af húsi í Mosfellsbæ í hvassviðrinu skömmu eftir klukkan 18 í gærkvöldi. 4.12.2020 07:28
Kaldasti tíminn í fyrramálið: „Kæmi ekki á óvart að sjá mæla skríða undir 20 stigin“ Norðanáttin er farin að gefa eftir en þá nær kalda loftið yfir landinu að komast niður að yfirborðinu og verður kaldasti tíminn í fyrramálið að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. 4.12.2020 07:01
Ófært um Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðs Súðavíkurhlíð er ófær vegna snjóflóðs að því er segir í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Þá er Holtavörðuheiðin einnig ófær sem og Brattabrekka, Þröskuldar og vegurinn yfir Þverárfjall samkvæmt korti Vegagerðarinnar. Þungfært er á Mývatnsöræfum og skafrenningur. 4.12.2020 06:33
Lést af slysförum í Árnessýslu Maður sem féll ofan í vök í Árnessýslu á sjöunda tímanum var úrskurðaður látinn á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu á Suðurlandi. 3.12.2020 22:14
Heitara vatn í pípunum og fólk gæti því varúðar Notkun á heitu vatni á höfuðborgarsvæðinu eykst nú stöðugt með kólnandi veðri. Búist er við að álagsmet verði slegið á laugardag. Brugðist hefur verið við auknu álagi með því að hækka hitastig á vatninu og er fólk því hvatt til að gæta varúðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum. 3.12.2020 20:36
Fjölmiðlafrumvarpi vísað í nefnd í þriðja sinn Frumvarpi menntamálaráðherra um almennan stuðning við einkarekna fjölmiðla hefur verið vísað til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Það var gert að lokinni fyrstu umræðu á þingi í kvöld. 3.12.2020 20:23
25 nýir hrútar að störfum – Guðni og Sammi eru þar á meðal Tuttugu og fimm nýir hrútar hafa tekið til starfa á Sauðfjársæðingastöðvunum á Suðurlandi og Vesturlandi og verða þeir að gefa sæði fram að jólum. Af þeim eru þrettán hyrndir, níu kollóttir, einn feldhrútur, einn forystu hrútur og svo ferhyrndur hrútur. 3.12.2020 20:05
Tvítugir að tapa milljónum í íþróttaveðmálum Miklar áhyggjur eru af íþróttaveðmálum ungra karlmanna. Dæmi eru um að tvítugir menn tapi mörgum milljónum á netinu. Engin sérhæfð spilafíklameðferð er í boði á Íslandi. 3.12.2020 20:03
Fór niður um vök í grennd við Selfoss Lögregla og björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út á sjöunda tímanum í kvöld vegna slyss sem varð fyrir utan Selfoss. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu féll manneskja niður um vök. 3.12.2020 18:51
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir bólusetningar við kórónuveirunni geta hafist í fyrstu vikum næsta árs og hjarðónæmi myndist fljótt. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum okkar klukkan 18:30. 3.12.2020 18:22
Bólusetningar hefjist á fyrstu vikum næsta árs Heilbrigðisráðherra segir að bólusetningar við kórónuveirunni hefjist á fyrstu vikum næsta árs. Hjarðónæmi við veirunni geti orðið að veruleika strax á fyrsta ársfjórðungi. 3.12.2020 17:56
Rjúpnaveiði lítil í vetur: Formaður Skotvís telur líklegt að fálkadauða megi rekja til rjúpnaleysis Rjúpnaveiði hefur verið fremur lítil í vetur og segir formaður Skotveiðifélags Íslands, Skotvís, að það sem bjargi jólamatnum á mörgum heimilum séu rjúpur í frystinum frá síðasta vetri. Veiðin rétt dugi fyrir jólamatnum. 3.12.2020 17:49