Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu 200 - 250 þúsund Íslendingar þurfa að fara í bólusetningu gegn kórónuveirunni til að bæla faraldurinn niður. 7.12.2020 18:01
Ekki farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald: Rannsókn málsins miðar vel Ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem var handtekinn í kjölfar þess að hafa birt myndskeið af sér ganga í skrokk á öðrum manni. Rannsókn málsins miðar vel að sögn lögreglu. 7.12.2020 14:10
„Þarna var nýbúið að taka fram úr mér“ Honum Úlfari Snæ Arnarsyni brá nokkuð í brún þegar hann mætti jepplingi ekið á móti umferð á Reykjanesbrautinni í Hafnarfirði í gær. Úlfar telur líklegt að ökumaður bílsins hafi ruglast í ríminu og að hann hafi ekki áttað sig á mistökunum, miðað við hraðann sem hann var á. 7.12.2020 13:59
Þórólfi þykir miður að sjá kollega tala með þeim hætti sem Elísabet gerir „Mér þykir miður þegar mínir kollegar sem hafa gengið í gegnum ákveðið nám og fengið ákveðna reynslu tala með þessum hætti en við því er ekkert að gera en það hefur ekkert verið skoðað sérstaklega hvort það eigi að meðhöndla það einhvern veginn öðruvísi þótt fólk tali með þessum hætti.“ 7.12.2020 12:20
Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist rúm 27 prósent Ný könnun MMR leiðir í ljós að fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 27,1 prósent, rúmlega tveimur prósentustigum hærra en við síðustu könnun sem framkvæmd var í fyrri hluta nóvember. 7.12.2020 12:05
Segir faraldurinn á góðri niðurleið en fara þurfi mjög hægt í tilslakanir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir helgina hafa verið nokkuð góða hvað varðar nýgreiningar kórónuveirusmita. Þróunin sé jákvæð en hann minnir á að færri sýni voru tekin um helgina en dagana á undan. 7.12.2020 11:38
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Sjö greindust innanlands með kórónuveiruna í gær og voru þeir allir í sóttkví. 7.12.2020 11:30
Stjórnendur Zuism ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti Tveir bræður sem stýra trúfélaginu Zuism hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Trúfélagið var á tímabili eitt það fjölmennasta á landinu og hefur þegið tugi milljóna króna úr ríkissjóði í formi sóknargjalda. 7.12.2020 11:23
Sjö greindust með veiruna innanlands Sjö greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þeir voru allir í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. 7.12.2020 10:52
Covid-19 viðvörunarkerfið kynnt til leiks Covid-19 viðvörunarkerfi hefur verið kynnt sem ætlað er að auka fyrirsjáanleika til lengri tíma varðandi þær aðgerðir sem grípa þarf til í baráttunni við faraldurinn og lágmarka þannig heildarskaðann sem hann veldur í samfélaginu. 7.12.2020 10:48
Svona var 144. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. 7.12.2020 10:16
Búið að opna fyrir tilnefningar til manns ársins 2020 Lesendum Vísis og hlustendum Bylgjunnar gefst færi á að útnefna Mann ársins 2020 nú um áramótin. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er öllum frjálst að senda inn. 7.12.2020 09:35
Hræddastur við að fólk haldi að þetta sé búið og sleppi fram af sér beislinu Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, kveðst hræddastur við að fólk haldi nú að baráttunni við Covid-19 sé lokið og leyfi sér því að slaka á í samræmi við það. Hann segir baráttunni alls ekki lokið og ekki sé hægt að sleppa fram af sér beislinu. 7.12.2020 08:02
Stálu þvotti af snúrum í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók um kvöldmatarleytið í gær tvo karlmenn sem grunaðir eru um húsbrot í Hlíðunum. Þeir gistu fangageymslur í nótt á meðan málið var í rannsókn. 7.12.2020 07:02
Mögulegt að bólusetja tugþúsundir á dag Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að ef nægt bóluefni gegn Covid-19 verður tiltækt hér á landi væri hægt að bólusetja alla þá sem það vilja á örfáum dögum. Mögulegt sé að bólusetja tugþúsundir einstaklinga á dag. 7.12.2020 06:43
Heyrði ópin út á götu en snerist á hæl „Þegar maður fer í gegnum málið og skoðar það sem hafði gerst þarna þá finnst manni að það hefði verið hægur leikur að koma í veg fyrir þessa árás af hálfu þessa manns,” segir Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður. 7.12.2020 06:31
Snælduvitlaust veður í grunnbúðunum hjá John Snorra „Veðrið var klikkað í nótt og sum tjöldin þar á meðal eldhústjaldið sprungu,“ segir John Snorri Sigurjónsson fjallgöngukappi. Hópur hans kom í grunnbúðir í gær og bar sig vel. Veðrið í nótt fór hins vegar illa með nýuppsettar búðir. 6.12.2020 22:53
„Bara af því valdið er til staðar þá er því misbeitt“ Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og stjórnarmaður í Geðhjálp til lengri tíma, segir breytingar á lögræðislögum nauðsynlegar. Fjarlægja þurfi greinar í lögunum, meðal annars þær sem heimila geðlæknum valdbeitingu gagnvart sjúklingi. 6.12.2020 21:59
„Frábær vinna hjá smitrakningarteyminu“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fagnar því að af 44 greindum smitum hér á landi í desember hafi aðeins þrír verið utan sóttkvíar. 41 hafa verið í sóttkví við greiningu sem svarar til 93 prósenta. 6.12.2020 19:07
Vill að ríkissaksóknari bregðist við dómi MDE Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður vill að ríkissaksóknari taki til skoðunar dóma sem komu til kasta fjögurra dómara við Landsrétt í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu um að þeir hefðu verið ólöglega skipaðir. Hann gagnrýnir aðgerðarleysi stjórnvalda og þá afstöðu að niðurstaðan hafi ekki áhrif á mál sem þegar hafi fallið. 6.12.2020 19:01
Víðir fékk vökva í æð Líðan Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns er ögn skárri í dag en í fyrradag. Víðir greindist með Covid-19 sjúkdóminn fyrir tæpum tveimur vikum. Heilsu hans fór hrakandi í vikunni og á föstudag fékk hann vökva í æð á Covid-göngudeild Landspítalans. 6.12.2020 18:23
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögmaður í Landsréttarmálinu kallar eftir viðbrögðum frá ríkissaksóknara í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu, þess efnis að Landsréttur hafi verið ólöglega skipaður. Við ræðum við hann í kvöldfréttum Stöðvar 2. 6.12.2020 18:19
Móðurmissirinn hafi engin áhrif haft á kröfu um afsögn án tafar Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir ríkisstjórnina hafa misst fótanna í Landsréttarmálinu í fyrra og ætlað að láta það snúast um hana sem persónu. Það hafi ekki verið eitthvað sem hún hafi ætlað að sitja undir og því sagt af sér sem dómsmálaráðherra. 6.12.2020 18:12
Landsréttur og geðheilbrigði í Víglínunni Umræður og fréttir af nýlegum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu hafa verið fyrirferðamiklar í fjölmiðlum að undanförnu. Heimir Már Pétursson fréttamaður fær Sigríði Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra til sín í Víglínuna í dag. Þá ræðir hann einnig við Svein Rúnar Hauksson lækni um geðheilbrigðismál en hann kallar m.a. eftir afnámi laga sem heimila að þvinga sjúklinga til að taka lyf. 6.12.2020 16:31
Sakborningar fá nafnleynd í kjölfar ónæðis frá lögmönnum Tveir stærstu dómstólar landsins eru hættir að birta nöfn sakborninga opinberlega á dagskrá sinni vegna ónæðis frá lögmönnum sem hafa nýtt sér dagskrána til þess að sækja sér skjólstæðinga. Um er að ræða Héraðsdóm Reykjavíkur og Héraðsdóm Reykjaness. 6.12.2020 15:16
Sporhundurinn Píla þarf að finna leiðina heim til Íslands Björgunarsveit Hafnarfjarðar auglýsir nú eftir ferðafélaga fyrir blóðhundinn Pílu, sem verður næsti sporhundur sveitarinnar. Píla er nú stödd í Alicante á Spáni, en sveitin auglýsir eftir einhverjum sem gæti skráð hana á sig sem farangur í flugi til Íslands þann 10. janúar næstkomandi. 6.12.2020 14:40
Skjálfti við Ingólfsfjall Jarðskjálfti að stærð 2,7 varð skammt norður af Ingólfsfjalli í dag. 6.12.2020 13:46
„Okkur finnst að lýðræði eigi að standa öllum til boða, ekki bara sumum“ Fulltrúar tuttugu sveitarfélaga hafa lagt fram tillögu til landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga þess efnis að fallið verði frá hugmyndum um lögfestingu íbúalágmarks. 6.12.2020 13:02
Óvissa um ferðaþjónustuna eftir bólusetningu Hagfræðingur segir að jákvæðar fréttir af bóluefni geti haft óbein áhrif á efnahagskerfið. Óvissa sé þó um hvað gerist í ferðaþjónustunni þegar búið er að bólusetja flestar þjóðir. 6.12.2020 12:42
Hóflega bjartsýnn og hvetur fólk til að slaka ekki á verðinum Rögnvaldur Ólafsson, aðstöðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, segir að nýjustu tölur um Covid-smit hér á landi gefi tilefni til hóflegrar bjartsýni. Fjórir greindust með kórónuveiruna hér á landi í gær og voru þeir allir í sóttkví. 6.12.2020 12:05
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Hagfræðingur segir að jákvæðar fréttir af bóluefni geti haft óbein áhrif á efnahagslífið. Óvissa sé þó um hvað gerist í ferðaþjónustunni þegar búið er að bólusetja flestar þjóðir. Fjallað verður um þau áhrif sem bólusetningar hafa haft í hádegisfréttum Bylgjunnar 6.12.2020 11:46
Fjórir greindust með veiruna í gær og voru allir í sóttkví Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Enginn var utan sóttkvíar við greiningu. 6.12.2020 10:53
Mál Elísabetar á borði lögreglu Mál Elísabetar Guðmundsdóttur lýtaskurðlæknis sem fór hvorki í skimun né sóttkví við komuna til landsins er á borði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt heimildum fréttastofu. 6.12.2020 10:24
Viðbrögð við bóluefni og Landsréttarmálið á Sprengisandi Viðbrögð hagkerfisins við tíðindum af bóluefni, nýsköpun og viðreisn efnahagslífsins, dómur yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu og staða eldri borgara er á meðal þess sem fjallað verður um á Sprengisandi á Bylgjunni á dag. 6.12.2020 09:16
Frostið skreið undir tuttugu stig í nótt Það var ansi kalt víða á landinu í nótt, þá helst norðan til. Áfram verður kalt í innsveitum norðaustantil en hlýnar víða annars staðar. 6.12.2020 07:37
Frelssisvipting og fall á rafskutlu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmis horn að líta í gærkvöldi og nótt. 6.12.2020 07:27
Þvottavél stolið í miðjum þvotti Svo virðist sem að ansi bíræfinn þjófur hafi stolið þvottavél úr þvottahúsi í fjölbýlishúsi í 101 Reykjavík í gærkvöldi, í miðjum þvotti. 6.12.2020 07:21
Aldrei fundið svona kulda Íbúi á Hvanneyri segist aldrei hafa fundið fyrir jafn miklum kulda og nú en þar hefur hitastig mælst lægst mínus 16,8 gráður í dag. 5.12.2020 21:01
Tómas biðst afsökunar og fjarlægir myndböndin Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir á Landspítalanum hefur fjarlægt myndbönd sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær. Í myndböndunum sagðist Tómas að hann og ritari á spítalanum hefðu unnið að því að para saman læknanema í skurðlæknisfræðikúrsi á fjórða ári. 5.12.2020 20:41
Starfsmenn Hótel Selfoss „gengu, hjóluðu og hlupu“ til Austurríkis Starfsmenn Hótel Selfoss sitja ekki með hendur í skauti og bíða eftir því að heimsfaraldrinum ljúki því þeir hafa nýtt tímann til að hreyfa sig og efla starfsandann. Það gerðu þeir með því að ganga, hjóla og hlaupa þrjú þúsund kílómetra í nóvember, eða vegalengdina sem samsvarar því að komast í árlega skíðaferð hópsins til Austurríkis. 5.12.2020 20:08
„Væri grátlegt að detta í fjórðu bylgju þegar bóluefni er handan við hornið“ Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra óttast að fólk sé farið að slaka verulega á vegna jákvæðra fregna af bóluefni. 5.12.2020 20:01
Hinn almenni borgari geti ekki keppt við yfirburði ríkisins Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélags Íslands, segir það miður að fólki gefist ekki kostur á að sækja um gjafsókn við málarekstur fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. Íslenska ríkið hafi yfirburði sem almennur borgari geti ekki keppt við. Allir eigi að hafa jafnan aðgang að dómstólum, óháð stöðu. 5.12.2020 19:20
Fór hvorki í skimun né sóttkví og var mætt á mótmælin í dag Elísabet Guðmundsdóttir lýtaskurðlæknir sem gagnrýnt hefur sóttvarnaraðgerðir íslenskra yfirvalda kom til landsins í gærkvöldi eftir dvöl í Danmörku. Hún kaus að fara hvorki í skimun né sóttkví við komuna til landsins og var mætt á mótmæli á Austurvelli klukkan 13 í dag. 5.12.2020 18:32
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann Lögmannafélags Íslands sem segir miður að fólki gefist ekki kostur á að sækja um opinberan stuðning, eða gjafsókn, við málarekstur fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. 5.12.2020 18:13
Hafnarfjarðarvegi lokað vegna bílveltu Hafnarfjarðarvegi milli Hamraborgar og Arnarnesshæðar hefur verið lokað vegna bílveltu sem varð við Kópavogslæk. 5.12.2020 16:44