Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Geðheilbrigðismálin ekki jaðarsett verkefni heilbrigðiskerfisins Heilbrigðisráðherra mun taka mið af þeim ábendingum sem komu fram á geðheilbrigðisþingi í morgun frá sérfræðingum jafnt sem notendum geðheilbrigðisþjónustu við smíði nýrrar geðheilbrigðisstefnu til 2030. Hún segir brýnasta ákallið á sviði geðheilbrigðismála vera betri samþættingu ólíkra kerfa samfélagsins. Geðheilbrigðismálin séu ekki jaðarsett verkefni heilbrigðiskerfisins. 9.12.2020 15:53
Sjö sinnum fleiri smitast í líkamsræktarstöðvum en sundlaugum Smitrakningarteymi almannavarna hefur rakið 36 bein Covid-19 smit til líkamsræktarstöðva. Heildarfjöldi afleiddra smita er 74. Þetta kemur fram í skriflegu svari ríkislögreglustjóra við fyrirspurn fréttastofu. Smit sem hafa verið rakin beint til sundlauga eru fimm talsins og afleidd smit tuttugu alls. 9.12.2020 15:37
Klemmdi annan ökumann á milli vörubíls og sendibíls eftir rifrildi Ökumaður vörubíls hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa klemmt ökumann sendibíls á milli bílanna tveggja eftir rifrildi ökumannanna á milli. Héraðsdómur telur að bílstjóra vörubílsins hafi þó stafað ógn af hinum ökumanninum. 9.12.2020 15:03
Lýsir lokunina ólögmæta í erindi til þriggja ráðherra Björn Leifsson eigandi líkamsræktarstöðva World Class telur þá ákvörðun heilbrigðisráðherra að halda líkamsræktarstöðvum lokuðum af sóttvarnaástæðum ólögmæta. Þetta kemur fram í formlegu erindi sem Björn sendi þremur ráðherrum í byrjun mánaðar, ásamt minnisblaði frá lögmönnum. 9.12.2020 13:43
Slökkvilið kallað út vegna elds í ruslageymslu í Breiðholti Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í kringum 12:30 vegna elds í ruslageymslu í Breiðholti. 9.12.2020 12:41
Aukið eftirlit með komufarþegum um hátíðirnar Icelandair mun tvöfalda flugáætlun sína í aðdraganda jólanna til að koma Íslendingum heim. Lögreglan mun auka eftirlit með komufarþegum til að tryggja að þeir fari eftir fyrirmælum um sóttkví. 9.12.2020 12:01
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Icelandair mun tvöfalda flugáætlun sína í aðdraganda jólanna til að koma Íslendingum heim. Lögreglan mun auka eftirlit með komufarþegum til að tryggja að þeir fari eftir fyrirmælum um sóttkví. 9.12.2020 11:33
Átta greindust innanlands Átta manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sjö af þeim sem greindust voru í sóttkví, en einn ekki. 9.12.2020 10:59
Engin miðnæturopnun í sundlaugunum í Reykjavík Sundlaugar í Reykjavík verða opnaðar klukkan hálf sjö í fyrramálið. Þetta segir Steinþór Einarsson, skrifstofustjóri Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur. 9.12.2020 10:22
Spurði hvort „grenjandi minnihluti“ ætti að hafa neitunarvald varðandi hálendisþjóðgarð Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis og þingmaður Vinstri grænna, blandaði sér í umræður á þingi í gærkvöldi um frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfisráðherra, um hálendisþjóðgarð. 9.12.2020 10:18
„Allar þessar aðgerðir fela í sér mismunun“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir það ósköp eðlilegt að það skapist umræða í samfélaginu um sóttvarnaaðgerðir, hvort sem verið sé að herða á þeim eða slaka, og að það heyrist gagnrýnisraddir. Hins vegar það sé svo að í öllum þessum aðgerðum felist mismunun og í raun sé ekki hægt að vera í aðgerðum án þess að vera með mismunandi hluti í gangi á mismunandi stöðum. 9.12.2020 09:06
Bein útsending: Opið þing um framtíðarsýn í geðheilbrigðismálum Geðheilbrigðisþing sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur boðað til hefst klukkan 9 og stendur til klukkan 11:15. Ráðstefnan hefst með opnunarávarpi ráðherra en svo taka við stutt erindi leik- og fagmanna um efnið sem lýkur svo með pallborðsumræðum. Hægt er að fylgjast með þinginu hér á Vísi. 9.12.2020 08:55
Nokkrir skjálftar yfir 3,0 norður af Kolbeinsey Þrír skjálftar yfir 3,0 að stærð urðu rétt rúmum hundrað kílómetrum norðnorðaustur af Kolbeinsey í nótt. 9.12.2020 08:16
Falið að ræða um „lágkúrulegt“ og „sorglegt“ hringtorg nærri Bessastöðum Bæjarráð Garðabæjar hefur falið Gunnari Einarssyni bæjarstjóra að taka upp viðræður við Vegagerðina um hvort bæta megi frágang á hringtorgi á Álftanesi. 9.12.2020 07:36
Grunur um stórfelldan fjárdrátt og brask með veiðileyfi innan SVFR Fyrrverandi framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur er talinn hafa braskað með veiðileyfi fyrir milljónir króna til eigin hagsbóta. Mannlegur harmleikur segir formaðurinn. Framkvæmdastjórinn fyrrverandi er steinhissa á öllu saman. 9.12.2020 07:01
Færð getur spillst á fjallvegum á Austfjörðum Það verður hægt vaxandi norðaustlæg átt á landinu í dag. Það fer að snjóa austanlands og síðar einnig norðvestan auk þess sem það er spáð rigningu syðst en annars úrkomulitlu veðri. 9.12.2020 06:52
Fluttur á slysadeild eftir fall af rafskútu Upp úr klukkan hálfsjö í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um slys í Hlíðahverfi. 9.12.2020 06:29
Elísabet ætlar í mál við ríkislögreglustjóra Elísabet Guðmundsdóttir, lýtaskurðlæknirinn sem vakti mikla athygli fyrir helgi þegar hún hafnaði því að fara í skimun á landamærunum eða fjórtán daga sóttkví við komu hingað til lands frá Danmörku, hyggst nú höfða mál á hendur embætti ríkislögreglustjóra. 8.12.2020 21:52
Heilbrigðisráðherra vongóður um útbreidda bólusetningu Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segist vongóð um að þátttaka almennings í bólusetningu við Covid-19 verði góð. Íslendingar hafi alla jafnan verið jákvæðir gagnvart bólusetningum og það skipti miklu máli fyrir samfélagið allt að fólk taki þátt. 8.12.2020 21:40
Kári „skíthræddur“ um eina bylgju í viðbót áður en bóluefni kemur Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að sér lítist prýðilega á þær sóttvarnaaðgerðir sem kynntar voru í dag og koma til með að gilda til 12. janúar næstkomandi. Hann segir þó að hann hefði viljað halda aðgerðum óbreyttum og kveðst hræddur um að ein bylgja kórónuveirufaraldursins til viðbótar muni ríða yfir áður en bólusetning hefst hér á landi. 8.12.2020 20:26
Ferðast 114 ár aftur í tímann Nákvæm götumynd af Aðalstræti, eins og hún leit út fyrir hundrað og fjórtán árum, var flutt á Landnámssýninguna í dag. Þar verður hægt að skyggnast inn í fortíðina og sjá hvernig fólk lifði og bjó í miðbæ Reykjavíkur á þessum tíma. 8.12.2020 20:00
Fleiri sækja um mataraðstoð fyrir jólin í ár Hjálpræðishernum í Reykjavík hafa borist um 600 umsóknir um mataraðstoð fyrir jólin og er það gríðarleg aukning frá síðasta ári, að því er fram kemur í tilkynningu á vef samtakanna. Á síðasta ári voru umsóknir í kring um 200 talsins. 8.12.2020 19:53
Alþingismenn samstíga um kjarabætur til öryrkja Fulltrúar allra flokka á Alþingi eru sammála um nauðsyn þess að frumvarp sem felur í sér fimmtíu þúsund króna eingreiðslu og hækkun skerðingamarka bóta öryrkja verði að lögum fyrir jól. Full samstaða á Alþingi er ekki algeng í málum sem þessum. 8.12.2020 19:21
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum verður fjallað ítarlega um tilslakanir sem voru kynntar í dag á samkomubanni vegna kórónuveirufaraldursins. 8.12.2020 18:00
„Lokaspretturinn er að hefjast“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir gríðarlega mikilvægt að sem flestir Íslendingar láti bólusetja sig við kórónuveirunni. Þá segir hún tilefni til bjartsýni til nýs árs. Nú sé lokaspretturinn í baráttunni við veiruna að hefjast. 8.12.2020 17:24
Segir eigendur líkamsræktarstöðva íhuga réttarstöðu sína vegna sóttvarnaaðgerða Einn eiganda crossfitstöðvarinnar Granda 101 segir að eigendur líkamsræktarstöðva íhugi nú réttarstöðu sína vegna sóttvarnaaðgerða stjórnvalda. Eigendurnir séu í daglegum samskiptum og eigi fund með lögfræðingi á morgun. 8.12.2020 17:18
Áramótabrennur úr sögunni þetta árið Áramótabrennur eru úr sögunni þetta árið, ef marka má reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum sem birt var í dag. 8.12.2020 16:19
Fimm þúsund Íslendingar vilja riffil í jólagjöf „Hann fékk aðeins meiri athygli en ég bjóst við,“ segir Guðjón Agnarsson, einn eigenda Byssusmiðju Agnars, um Facebook-leik sem verslunin stendur fyrir nú fyrir jól og hefur vakið mikla athygli. 8.12.2020 16:03
Íslensk erfðagreining hlýtur Útflutningsverðlaun forsetans Íslensk erfðagreining hlaut í dag Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2020. Kári Stefánsson, forstjóri fyrirtækisins, veitti verðlaununum viðtöku við lokaða athöfn í Hörpu en við sama tilefni var tónskáldinu og tónlistarkonunni Hildi Guðnadóttur veitt heiðursviðurkenning fyrir störf sín á erlendri grund. 8.12.2020 15:00
Spyr hvort eðlilegt sé að sami flokkur stýri ráðuneytinu og fari með formennsku í nefndinni Kristján Guy Burgess, kennari í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands og fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra, segir nauðsynlegt að ræða það á vettvangi Alþingis hvort eðlilegt sé að utanríkisráðherra, formaður utanríkismálanefndar og nú jafnframt varaformaður nefndarinnar komi öll úr sama stjórnmálaflokki. 8.12.2020 14:28
244 grásleppusjómenn vilja setja tegundina í kvóta Grásleppusjómenn afhentu sjávarútvegsráðherra stuðningsyfirlýsingu í morgun við frumvarp hans um kvótasetningu grásleppuveiða. Ríflega helmingur leyfishafa grásleppuveiða skrifaði undir. Ráðherrann segir að þetta sýni þörfina á að breyta veiðistjórnun tegundarinnar. 8.12.2020 14:00
Svandís gerði nokkrar breytingar á tillögunum í samráði við Þórólf Heilbrigðisráðherra gerði nokkrar breytingar á tillögum sóttvarnalæknis um sóttvarnaaðgerðir sem taka gildi á fimmtudag. Breytingarnar voru gerðar í samráði við þann síðarnefnda í gærkvöldi, að sögn ráðherra. 8.12.2020 13:32
Valinn vísindamaður ársins hjá Dönsku sykursýkisakademíunni fyrir byltingarkennda aðferð Páll Karlsson, aðstoðarprófessor og dósent við Dönsku verkjarannsóknarmiðstöðina við Árósarháskóla, var á dögunum valinn vísindamaður ársins hjá Dönsku sykursýkisakademíunni fyrir byltingarkennda aðferð sem hann þróaði við að taka og greina lítil húðsýni sem notuð eru til að kanna ástand skyn- og verkjatauga í húðinni. Í ljós kom að krónískir verkjasjúklingar voru með verkjasameindir sem umluktu taugarnar. Páll hefur búið í Danmörku frá árinu 2007. 8.12.2020 13:19
Opna sögu- og tæknisýningar vegna aldarafmælis rafstöðvarinnar Orkuveita Reykjavíkur ætlar að opna sögu- og tæknisýningar undir merkjum Elliðaárstöðvar. Það verður gert í tilefni þess að á næsta ári verða liðin hundrað ár frá rafstöðin í Elliðaárdal var opnuð. 8.12.2020 13:14
Ekki skynsamlegt að beita mishörðum aðgerðum eftir landsvæðum að mati Þórólfs Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ekki skynsamlegt að beita mismunandi sóttvarnaraðgerðum á mismunandi landsvæðum á þessu stigi kórónuveirufaraldursins. 8.12.2020 13:05
Margir vonuðust eflaust eftir 20 manna fjöldamörkum Heilbrigðisráðherra segir að margir hefðu eflaust viljað að fjöldamörk samkomubanns yrðu hækkuð í tuttugu manns með nýjum sóttvarnareglum sem taka gildi á fimmtudag. Faraldurinn sé hins vegar á viðkvæmum stað og stíga þurfi varfærin skref. 8.12.2020 13:01
Vara við fölsuðum bóluefnum Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur varað við efni sem auglýst eru á netinu sem bóluefni. Skipulagðir brotahópar hafi margir nýtt tækifærið í kjölfar jákvæðra frétta af þróun bóluefna. 8.12.2020 12:15
Áfram tíu manna samkomubann en sundlaugar opnaðar Samkomubann mun áfram miðast við tíu manns til 12. janúar með nýjum sóttvarnareglum sem taka gildi á fimmtudag. Allar verslanir munu þó geta tekið við fimm manns á hverja tíu fermetra, mest hundrað manns, og þá verða sundlaugar opnaðar. 8.12.2020 11:50
„Eitthvað verið að rýmka“ að sögn Bjarna Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir að eitthvað verði rýmkað til með nýjum sóttvarnareglum sem ræddar voru á ríkisstjórnarfundi nú í morgun. 8.12.2020 11:45
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Átta greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Sex af þeim sem greindust voru í sóttkví, en tveir ekki. 8.12.2020 11:31
Átta manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Átta manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Fjórir af þeim sem greindust voru í sóttkví, en fjórir ekki. 8.12.2020 10:50
Rætt við ráðherra eftir ríkisstjórnarfund Tillögur Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, um næstu aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins voru ræddar á ríkisstjórnarfundi í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun. 8.12.2020 10:22
92% Íslendinga ætla í bólusetningu Yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga er jákvæður í garð bólusetningar gegn Covid-19 en í könnun Maskínu sögðust 61% þátttakenda örugglega ætla í bólusetningu og 31% líklega ætla í bólusetningu. 8.12.2020 09:33
Handtökuskipanir gagnvart tveimur Samherjamönnum sagðar gefnar út í Namibíu Búið er að gefa út handtökuskipun gagnvart tveimur starfsmönnum Samherja í Namibíu, samkvæmt skjölum frá Ríkissaksóknara Namibíu, sem Namibian Sun vitnar í. 8.12.2020 09:09
Lést á Landspítala vegna Covid-19 Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. 8.12.2020 08:38