Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Staðfestir það sem samtökin óttuðust Tveir þriðju fyrirtækja í ferðaþjónustu standa nú frammi fyrir ósjálfbærri skuldsetningu og munu gera á næsta ári, samkvæmt nýrri greiningu KPMG fyrir Ferðamálastofu sem birt var í desember. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu segir skýrsluna staðfesta það sem samtökin óttuðust. Viðbúið sé að fjöldi fyrirtækja sé á leið í gjaldþrot. 12.12.2020 18:56
Dómari á launaskrá hjá málsaðila Synjun Hæstaréttar um áfrýjunarbeiðni Kristins Sigurjónssonar fyrrverandi lektors við Háskólann í Reykjavík hefur verið felld úr gildi. Það var gert vegna þess að einn dómaranna sem afgreiddi synjuninna er einnig kennari við HR. 12.12.2020 18:18
Ætlar ekki að efna til óeirða í síðasta jólaerindi sínu Staða orkumálastjóra hefur verið auglýst laus til umsóknar en doktor Guðni A. Jóhannesson, núverandi orkumálastjóri, mun ekki sækja um. 12.12.2020 18:08
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir hefur miklar áhyggjur af komandi vikum með tilliti til kórónuveirufaraldursins. Lítið þurfi út af að bregða á áhættutímum sem nú fara í hönd. Veiran hefur skotið upp kollinum í þremur skólum í Reykjavík. 12.12.2020 17:56
Fjölskylduhjálp segir meirihluta skjólstæðinga vera af erlendum uppruna Fjölskylduhjálp Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ásakana sem fram hafa komið í fjölmiðlum þess efnis að samtökin hafi mismunað skjólstæðingum sínum á grundvelli uppruna. Í yfirlýsingunni sem birtist á vef Fjölskylduhjálpar í gær er tekið fram að 58% skjólstæðinga séu með erlent ríkisfang og að gagnrýnin byggi á „staðreyndavillum.“ 12.12.2020 15:37
Veiran fannst í þremur skólum Í síðustu viku fóru nemendur í Laugarnesskóla í sóttkví eftir að veiran greindist þar í síðustu viku. 10 kennarar og um tólf nemendur í Hagaskóla eru komnir í sóttkví eftir að veiran greindist í nemendum. Þá eru nokkrir bekkir Austurbæjarskóla í sóttkví eftir að kennari greindist með smit í gær. 12.12.2020 15:02
„Ekkert ófremdarástand í gangi“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti þremur útköllum í gærkvöldi og nótt þar sem kvartað var undan hávaða út heimahúsi. 12.12.2020 14:20
Mætt aftur á Austurvöll til að mótmæla Mótmælendur sóttvarnaaðgerða eru samankomnir á Austurvelli til þess að lýsa yfir andstöðu við sóttvarnaaðgerðir. Þetta eru ekki fyrstu mótmælin, en vika er síðan hópurinn mótmælti síðast. 12.12.2020 14:12
Katrín ávarpar leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna í dag Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun á eftir ávarpa sérstakan leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna þar sem hún mun kynna ný markmið Íslands í loftslagsmálum. Fundurinn hófst klukkan tvö og fer fram rafrænt. 12.12.2020 14:08
Tvö hundruð ný störf í Ölfusi í kringum laxeldi Mikil uppbygging á sér nú stað í Sveitarfélaginu Ölfusi þar sem allt snýst um lax og laxeldi því nú er í undirbúningi laxeldisverkefni upp á fimmtíu þúsund tonn, sem þýða útflutningsverðmæti upp á fimmtíu milljarða króna á ári. 12.12.2020 13:16
Notfærði sér fákunnáttu aldraðrar frænku til að ná út 30 milljónum í reiðufé Landsréttur hefur staðfest dóm yfir konu sem var í héraði fundin sek um að hafa notfært sér einfeldni og fákunnáttu aldraðrar frænku sinnar til að verða sér úti um tugi milljóna króna. Konan hlaut í Héraðsdómi Norðurlands eystra fjögurra mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm í fyrra sem Landsréttur hefur nú staðfest. 12.12.2020 13:08
Slökkvilið kallað út vegna reykjar á Seltjarnarnesi Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um svartan reyk úr kjallara á Seltjarnarnesi. Viðbragðsaðilar eru á leið á vettvang. 12.12.2020 13:06
Þeir sem eiga boð í gleðskap hugsi sig um hvar þeir vilji vera um jólin Rögnvaldur Ólafsson, deildarstjóri almannavarnadeildar, hvetur fólk til að hugsa sig um hvar það vill vera um jólin ef því hefur verið boðið í gleðskap í kvöld. 12.12.2020 13:00
Sagði yfirvöld í Namibíu ekki hafa burði í að rannsaka aflandsviðskipti Jón Óttar Ólafsson, ráðgjafi Samherja og fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, sagði yfirvöld í Namibíu ekki hafa burði til þess að rannsaka aflandsviðskipti Samherja. Þar vísaði hann til greiðslna félagsins inn á reikninga félagsins Tundavala í Dúbaí, en félagið er skráð á einn þeirra manna sem er grunaður um að þiggja mútur frá Samherja. 12.12.2020 12:37
„Hann átti góðan dag í gær“ Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn er sagður á batavegi í Covid-veikindum sínum. 12.12.2020 12:02
„Þetta er áhættutími“ Sóttvarnalæknir segir stöðu faraldursins hér á landi ágæta en nú fari í hönd mikill áhættutími tengdur aðventunni. Fólk þurfi að passa sig vilji það ekki verja jólunum í veikindi 12.12.2020 11:55
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við sóttvarnalækni um stöðu kórónuveirufaraldursins á þriðju helgi aðventu en fimm greindust með veiruna innanlands í gær. 12.12.2020 11:30
Fimm greindust með covid-19 innanlands í gær Fimm greindust með covid-19 innanlands í gær. Þar af voru þrír í sóttkví en tveir utan sóttkvíar. Í uppfærðum tölum á covid.is kemur fram að nú séu alls 292 í sóttkví og 178 í einangrun. Fjölgar þannig um nokkra sem eru í sóttkví milli daga en þeim fækkar um tíu sem eru í einangrun. Rúmlega 1.200 sýni voru tekin í gær. 12.12.2020 10:56
Atvinnuleysi hærra á meðal kvenna en karla Almennt atvinnuleysi á landinu var 10,6 prósent í nóvember, sem er aukning frá fyrri mánuðum en minna en spár gerðu ráð fyrir. Þetta kemur fram í nóvemberskýrslu Vinnumálastofnunar. 12.12.2020 10:30
Bíður eftir útsölum til að kaupa gleraugu á dætur sínar „Dætur mínar geta ekki verið án gleraugna, þær verða að vera með þau til að geta lifað eðlilegu lífi.“ Þetta segir Ása Ingiþórsdóttir sem berst nú fyrir því að gleraugu barna verði að fullu niðurgreidd af ríkinu. Hún segir grófa mismunun felast í því að heyrnartæki barna séu niðurgreidd en gleraugu ekki. 12.12.2020 09:03
Óvenju hlýtt miðað við árstíma en of snemmt að segja til um jólaveðrið Meðalhiti fyrstu tíu daga desembermánaðar er 0,2 stigum hærri en hefur verið að meðaltali síðustu tíu árin í Reykjavík. Dagarnir voru þó hlýrri á sama tíma árið 2016 en að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands er vissulega óvenjulega hlýtt. 12.12.2020 08:02
Reyndist dvelja ólöglega í landinu og vistaður í fangaklefa Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt vegna ölvunar- og fíkniefnaaksturs. Einn ökumaður, sem stöðvaður var vegna fíkniefnaaksturs, reyndist dvelja ólöglega í landinu. 12.12.2020 07:32
Sprengjusérfræðingar kallaðir út að sumarbústað í Borgarfirði Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði í dag för ökumanns í Borgarfirði sem grunaður er um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Bæði ökumaður og farþegi hans eru grunaðir um vörslu og meðferð fíkniefna. Þetta kemur fram í færslu sem lögreglan birti á Facebook. 11.12.2020 21:33
Ríkið hafnar milljarða kröfu borgarinnar Ríkið hefur hafnað 8,7 milljarða kröfu Reykjavíkurborgar sem borgin telur sig eiga inni úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem snýr að rekstri grunnskóla og nýbúafræðslu. Borgin segir að um sé að ræða vangoldið framlag og krafðist svara frá ríkinu í síðasta lagi í dag. Málið verður að líkindum útkljáð fyrir dómstólum. 11.12.2020 21:01
Tillaga um gjaldfrjálsar tíðarvörur felld á Alþingi Breytingartillaga Andrésar Inga Jónssonar, þingmanns utan flokka, við frumvarp til fjárlaga um að gera tíðarvörur aðgengilegar án endurgjalds fyrir tiltekna hópa var í dag felld á Alþingi með einu atkvæði. Þingmenn Vinstri grænna, fyrrverandi samflokksmenn Andrésar, greiddu atkvæði gegn tillögunni. 11.12.2020 20:46
Leitin að Bússa heldur áfram Bússi, sex ára gamall, svartur labrador rakki hefur verið týndur frá síðasta föstudag. Gréta Sóley Sigurðardóttir stýrir leitinni að Bússa en eigandi hans, Eva Hrönn, er föst erlendis vegna kórónuveirufaraldursins. 11.12.2020 20:03
Fyrstu skammtar til heilbrigðisstarfsfólks Um tíu þúsund manns munu að óbreyttu fá bóluefni við kórónuveirunni um áramót eftir samkomulag heilbrigðisráðuneytisins og lyfjaframleiðandans Pfizer í dag. Stærstur hluti þessarar fyrstu sendingar verður nýttur í að bólusetja heilbrigðisstarfsfólk. 11.12.2020 19:36
Hestur og folald hafa náð einstöku sambandi í fyrsta dýraathvarfi landsins Fyrsta dýraathvarfið á Íslandi hefur verið sett á laggirnar en þar verður tekið á móti dýrum af öllum stærðum og gerðum. Hestur og folald sem hafa náð einstöku sambandi eru fyrstu dýrin í athvarfinu. 11.12.2020 19:30
Veiking krónunnar styður við útflutning sjávarafurða Verðmæti útflutnings íslenskra sjávarafurða hefur náð að halda í horfinu frá fyrra ári þrátt fyrir heimsfaraldur, miklar sveiflur á gengi krónunnar og loðnubrest. Framkvæmdastjór Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir þetta varnarsigur. 11.12.2020 19:21
Uppgreiðsluþóknunin leggist ofan á 200 milljarða fjárhagsbagga vegna ÍLS Fjármálaráðherra segir mögulegar greiðslur til þeirra sem greitt hafi uppgreiðslugjald vegna lána sinna hjá Íbúðalánasjóði leggjast ofan á um tvö hundruð milljarða fjárhagsbagga ríkisins vegna Íbúðalánasjóðs. Mikilvægt sé þó að tryggja fjárhagslega hagsmuni lántakenda sem hugsanlega hafi verið brotið á hjá sjóðnum. 11.12.2020 19:01
Börn allt niður í nokkurra mánaða gömul á farsóttarhúsinu Tólf umsækjendur um alþjóðlega vernd dvelja í farsóttahúsinu eftir að hafa smitast í húsnæði Útlendingastofnunar fyrir hælisleitendur. Sviðsstjóri hjá Útlendingastofnuninni vísar á bug ásökunum um að sóttvörnum sé ábótavant í húsnæði á hennar vegum. 11.12.2020 18:51
Toppstöðin verður miðstöð jaðaríþrótta Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær að gera viljayfirlýsingu við fjárfesta sem vilja byggja upp og mæta þörfum jaðaríþrótta með breytingum á Toppstöðinni í Elliðaárdal. 11.12.2020 18:07
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar greinum við frá því hvaða tíu þúsund Íslendingar verða bólusettir með fyrsu skömmtum bóluefnis sem koma til landsins strax upp úr áramótum.Bein Ú 11.12.2020 17:52
Nauðgunardómur mildaður úr tveimur árum í átján mánuði Landsréttur mildaði í dag dóm yfir manni sem sakfelldur hafði verið í Héraðsdómi Reykjaness í mars 2019 fyrir nauðgun, hótanir og annað ofbeldi. Maðurinn hafði verið dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar en mildaði Landsréttur dóminn í átján mánuði. 11.12.2020 17:26
Yfirmaður heilbrigðiseftirlitsins beint í vinnuna eftir Covid-19 sýnatöku Sigrún Guðmunsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins á Suðurlands, fór í sýnatöku vegna Covid-19 í gær. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að þegar sýnatöku var lokið sneri hún aftur á skrifstofuna til vinnu. Þetta herma heimildir fréttastofu. 11.12.2020 17:16
Landsréttur sneri við sjö ára dómi fyrir barnaníð Karlmaður á sextugsaldri sem dæmdur var í sjö ára fangelsi fyrir brot á syni sínum yfir margra ára tímabil hefur verið sýknaður í Landsrétti. Dómur var kveðinn upp í dag og taldi Landsréttur að ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á sekt karlmannsins gegn eindreginni neitun hans. 11.12.2020 16:47
Landsréttur staðfestir að símtal Lilju til Ágústu var nóg Landsréttur hefur staðfest sýknudóm yfir íslenska ríkinu varðandi skólameistara á Akranesi sem sagt var upp störfum. Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skólastjóri Fjölbrautarskóla Vesturlands, taldi að skipunartími hennar hefði framlengst sjálfkrafa til fimm ára þar sem henni hefði ekki verið tilkynnt innan nauðsynlegs fyrirvara að starfið yrði auglýst. 11.12.2020 16:26
Dómar styttir yfir mönnum sem nauðguðu unglingsstúlku Landsréttur hefur mildað dóm yfir tveimur Pólverjum á fertugsaldri sem sakfelldir voru fyrir að hafa nauðgað unglingsstúlku í Reykjavík í febrúar 2017. Lukasz Soliwoda og Tomasz Walkowski fengu tveggja ára fangelsisdóm en höfðu hlotið þriggja ára dóm í héraði. 11.12.2020 15:02
Áslaug Thelma áfrýjar málinu gegn Orku náttúrunnar Áslaug Thelma Einarsdóttir hefur áfrýjað dómi héraðsdóms í máli hennar gegn Orku náttúrunnar en það var niðurstaða dómsins að sýkna ON af ásökunum Áslaugar um ólögmæta uppsögn og kynbundinn launamun. 11.12.2020 14:46
Viðar sakar Ólínu um „hálfstuld“ og hroðvirkni Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur fer ófögrum orðum um Lífgrös og leyndir dómar - Lækningar, töfrar og trú í sögulegu ljósi eftir Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur þjóðfræðing í nýjasta tölublaði Sögu, tímarits Sögufélags. Bókin kom út í fyrra við góðar undirtektir og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna en Viðar sakar Ólínu meðal annars um „hálfstuld“ og hroðvirkni. 11.12.2020 14:34
Mikill viðbúnaður sérsveitar og lögreglu á Akureyri Lögregla á Akureyri ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra handtók mann í fjölbýlishúsi við Ásatún á Akureyri eftir umsátur á þriðja tímanum í dag. 11.12.2020 14:25
Pfizer-skammtar fyrir tíu þúsund manns væntanlegir um áramótin Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa undirritað samning við bóluefnaframleiðandann Pfizer. Samningurinn kveður á um 170 þúsund skammta til Íslands sem dugir fyrir 85 þúsund manns. Áætlað er að fyrstu skammtarnir frá Pfizer berist um áramót, alls rúmlega 21 þúsund skammtar sem duga fyrir 10.600 manns. 11.12.2020 13:48
Klasasmitið gerði útslagið en erum þó á svipuðu róli Sóttvarnalæknir segir klasasmit kórónuveirunnar sem kom upp í gær í búsetuúrræði fyrir hælisleitendafjölskyldur í Hafnarfirði hafa gert útslagið fyrir tölur gærdagsins. Þær séu þó á svipuðu róli og undanfarna daga en klasasmitið sýni hvað staðan sé viðkvæm. 11.12.2020 12:34
Hafa ítrekað bent á að sóttvarnir séu ekki í lagi Formaður hjálparsamtakanna Solaris segir það ekki koma á óvart að klasasmit hafi komið upp í búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samtökin hafi ítrekað bent á að sóttvörnum sé ábótavant í úrræðunum. 11.12.2020 12:11
Deila um tölur snýst raunverulega um umfang og forgangsröðun Framkvæmdakostnaður Reykjavíkurborgar vegna Óðinstorgs nam 60,6 milljónum króna samkvæmt svari fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar en heildarkostnaður framkvæmda á torginu og í nágrenni var 474 milljónir króna. 11.12.2020 11:45