Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Krapaflóðið lokar enn hringveginum Hringvegurinn milli Mývatns og Egilsstaða er enn lokaður þar sem krapastífla flæðir yfir veginn við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. 27.1.2021 07:26
Strekkingur, bjart með köflum og stöku él Það verður austlæg átt í dag, víða strekkingur, allhvöss eða hvöss syðst og á Vestfjörðum en mun hægari austanlands. Þá verður bjart með köflum en stöku él úti við sjávarsíðuna. 27.1.2021 07:10
Hafnarsvæðinu á Hofsósi lokað vegna snjóflóðahættu Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur í samráði við ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands ákveðið að loka hafnarsvæðinu á Hofsósi vegna snjóflóðahættu. 27.1.2021 06:40
Fjöldi manns kærður fyrir brot á sóttvarnalögum vegna dansleiks í miðbænum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi tilkynning um dansleik í húsnæði við hlið veitingastaðar í miðbæ Reykjavíkur. 27.1.2021 06:21
Mun fleiri „konur“ en „karlar“ breytt skráningu í kynsegin/annað Fjórtán hafa fengið kynskráningu sinni breytt hjá Þjóðskrá Íslands eftir að opnað var fyrir þann möguleika að velja „kynsegin/annað“ eftir áramót. 26.1.2021 22:07
Krapaflóðið tók sundur stofnstreng Krapaflóðið í Jökulsá á fjöllum í dag tók í sundur stofnstreng milli Reykjahlíðar og Hjarðarhaga. Ekki er gert ráð fyrir að hægt verði að gera við strenginn fyrr en á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu. 26.1.2021 21:38
Metár í fjölda nýrra íbúða í Reykjavík Metfjöldi íbúða var í byggingu í Reykjavík á síðasta ári þegar bygging yfir ellefu hundruð íbúða hófst. Líkur eru á mikili grósku á þessu ári en deiliskipulag liggur fyrir varðandi fjögur þúsund og níu hundruð íbúðir, meðal annars á BYKO reitnum þar sem rísa munu rúmlega áttatíu íbúðir. 26.1.2021 21:01
„Áhugavert“ bóluefni sem lofar mjög góðu Sérfræðingur í ónæmisfræðum segir bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni, sem Íslendingar gætu átt von á til landsins á fyrsta ársfjórðungi, áhugavert bóluefni, sem svipi mjög til bóluefnis AstraZeneca. Niðurstöður úr fyrsta og öðrum fasa rannsókna lofi mjög góðu. 26.1.2021 19:53
Útboðsgjald á innfluttar landbúnaðarvörur hækkar um allt að 2.840 prósent Dæmi eru um að útboðsgjald vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum innan tollakvóta Evrópusambandsins hafi tuttugu og níu faldast eftir að eldri álagning var tekin upp á ný um áramót. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir þessar hækkanir skila sér út í verðlagið bæði á innfluttum og innlendum landbúnaðarvörum. 26.1.2021 19:20
„Ósköp var þetta nú Miðflokkslegt“ „Ósköp var þetta nú Miðflokkslegt. En gott og vel, það er bara partur af veruleikanum hér í þingsal og eitthvað sem við verðum að reyna að hafa skilning á,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, þegar hún svaraði fyrirpurn Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, þingmanns Miðflokksins, um bóluefni. 26.1.2021 18:18
Sex leikskólar opnir í allt sumar: Kostnaðurinn í fyrra 44 milljónir Sex leikskólar á vegum Reykjavíkurborgar verða opnir í allt sumar; einn í hverju hverfi. Um er að ræða framhald af tilraunaverkefni sem var sett af stað sumarið 2019 en í nýlegri viðhorfskönnun sögðust 97% foreldra mjög eða frekar ánægðir með fyrirkomulagið. 26.1.2021 18:04
Þriggja metra djúpur „krapahaugur“ lokar þjóðveginum Krapastífla flæðir nú yfir þjóðveg 1 við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. Vegurinn milli Mývatns og Egillstaða er lokaður af þessum sökum. Lögregla segir „krapahauginn“ einna líkastan snjóflóði; hann sé um þriggja metra djúpur og nái yfir um 200 metra vegkafla. 26.1.2021 18:04
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Von er á bóluefni frá Janssen fyrr en áður var talið og segist heilbrigðisráðherra enn gera ráð fyrir að þorri þjóðarinnar verði bólusettur á fyrri hluta ársins. Málið var rætt á þingi í dag og verður fjallað um það í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þá verður rætt við yfirlækni ónæmisfræðideildar um hvað sé vitað um bóluefni Janssen. 26.1.2021 18:01
Tilkynningar um andlát orðnar átta Lyfjastofnun var í gær tilkynnt um andlát aldraðrar manneskju sem fengið hafði bólusetningu gegn kórónuveirunni með bóluefni Pfizer. Engar vísbendingar eru um tengsl bólusetningarinnar og andlátsins. Stofnuninni hefur nú verið tilkynnt um átta andlát eftir bólusetningu. 26.1.2021 17:48
Söguleg skipun forstöðumanns Fjölmenningarseturs Nicole Leigh Mosty hefur verið skipuð í embætti forstöðumanns Fjölmenningarseturs til fimm ára. Hún tekur til starfa þann 1. mars. Greint er frá skipun Ásmundar Einar Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, á vef stjórnarráðsins. 26.1.2021 16:18
Mistök ástæða vatnstjóns í Háskóla Íslands Veitur segja að mistök hafi verið gerðar við framkvæmdir á vegum fyrirtækisins við Suðurgötu sem olli því að stofnlögn vatns fór í sundur þannig að vatn flæddi inn í byggingar Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum sem viðurkenna mistök og segjast líta atvikið alvarlegum augum. 26.1.2021 14:55
Heilbrigðisráðherra býst við bóluefni Janssen fyrr en áður var talið Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir von á bóluefni Janssen fyrr en áður var talið. Þetta kom fram í máli Svandísar í umræðum um skýrslu sem hún flutti um öflun og dreifingu bóluefnis á Alþingi í dag. 26.1.2021 14:54
Vilja bíða með útgöngubann og skyldubólusetningu Velferðarnefnd Alþingis leggur til að heimild til setningar útgöngubanns og skyldubólusetningar á landamærunum verði felldar brott úr frumvarpi til breytinga á sóttvarnalögum. 26.1.2021 13:30
Persónur og leikendur í málsvörn Jóns Ásgeirs Verulegur titringur er vegna óútkominnar bókar Einars Kárasonar: Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar en þar gerir Jón Ásgeir fjárfestir og athafnamaður upp feril sinn hingað til, einkum í því sem snýr að viðamiklum dómsmálum sem honum var gert að eiga í. 26.1.2021 13:21
Sundhöllin er með skynjara sem sendir viðbragð ef manneskja liggur hreyfingarlaus á botni sundlaugar Sundhöll Reykjavíkur er með eftirlitskerfi í innilaug sem sendir frá sér viðvörun ef manneskja liggur hreyfingarlaus á botni laugarinnar. Fyrirtækið Swimeye sem selur búnaðinn segir búnaðinn bregðast fyrr við en sundlaugarverðir. Faðir manns sem lést eftir að hafa legið á botni sundlaugarinnar á fimmtudag veltir fyrir sér hvað fór úrskeiðis. 26.1.2021 13:18
Róbert liggur undir feldi Róbert Marshall, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, íhugar nú að bjóða sig fram í forvali Vinstri grænna í Reykjavík fyrir þingkosningarnar sem fram fara næsta haust. 26.1.2021 12:18
Uppfært: Bóluefni fyrir 35 þúsund manns væntanlegt fyrir lok mars Ísland á von á bóluefni fyrir 33.500 manns í febrúar mánuði. Enn sé stefnt að því að þorri þjóðar verði bólusettur fyrir mitt ár, þó engu sé slegið á föstu. 26.1.2021 12:10
Ferðaþjónustan bjartsýn en kallar eftir frekari aðgerðum stjórnvalda Mikillar bjartsýni gætir meðal ferðaþjónustufyrirtækja en stór meirihluti þeirra ætlar að halda sínu striki samkvæmt könnun KPMG sem unnin var fyrir Nýársmálstofu Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðaklasans og KPMG. Á málstofu klasans kom fram að flest ferðaþjónustufyrirtæki skorti fjármagn til fjárfestinga og að nauðsynlegt væri að byggja upp innviði landsins eins og vegakerfi. 26.1.2021 11:54
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar er rætt við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um væntanlega afhendingu bóluefnis hingað til lands en hún gerir ráð fyrir að hægt verði að bólusetja um 33 þúsund manns í febrúarmánuði. 26.1.2021 11:35
Segist vanur brekkunum og hefur engar áhyggjur Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, segist engar áhyggjur hafa af því að Framsóknarflokkurinn mælist ekki með einn þingmann í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur ef kosið yrði til Alþingis nú. Um er að ræða niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu fyrir fréttastofuna sem fjalla var um í morgun. 26.1.2021 11:32
Heilbrigðisráðherra gefur þinginu skýrslu um bóluefni Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, mun flytja munnlega skýrslu um öflun og dreifingu bóluefnis á Alþingi í dag. Síðast flutti ráðherra sambærilega skýrslu áður en þingfundum var frestað fyrir jólafrí. 26.1.2021 10:57
Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Báðir voru í sóttkví við greiningu. 26.1.2021 10:56
Guðmundur Magnússon látinn Guðmundur Magnússon, kennari og leiðsögumaður, er látinn 84 ára að aldri. Útför Guðmundar fer fram frá Grensáskirkju klukkan 15 í dag en streymt verður frá athöfninni vegna samkomutakmarkana. 26.1.2021 10:55
Ráðherra fagnar að tekist hafi að afstýra loðnubresti Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. 26.1.2021 10:34
Jódís gefur kost á sér í annað sætið Jódís Skúladóttir, lögfræðingur og oddviti VG í Múlaþingi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jódísi. 26.1.2021 10:24
Furðar sig á seinagangi við upptöku skimana fyrir ristilkrabbameini Öll Norðurlöndin utan Íslands eru með reglubundna skimun fyrir krabbameini í ristli. Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins furðar sig á því að sú skimun hafi ekki verið tekin upp þegar þjónustan færðist til heilsugæslunnar. 26.1.2021 10:06
Tólf gefa kost á sér í forvali VG í Norðausturkjördæmi Alls hafa tólf manns gefið kost á sér í forvali Vinstri grænna um fimm efstu sætin á lista flokksins fyrir þingkosningar næsta haust. Forvalið verður rafrænt og haldið 13. til 15. febrúar næstkomandi. 26.1.2021 09:58
Malbika veginn að Urriðafossi Vegagerðin hefur boðið út endurbyggingu 1,2 kílómetra kafla Urriðafossvegar. Kaflinn nær frá gatnamótunum á hringveginum við Þjórsárbrú að bílaplani við Urriðafoss. 26.1.2021 09:31
Framsókn næði ekki inn manni í Reykjavík Framsóknarflokkurinn næði ekki inn þingmanni í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur ef kosið yrði til Alþingis nú samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Þá mælist Samfylkingin stærsti flokkurinn í Reykjavíkurkjördæmi norður. 26.1.2021 09:13
Ný afbrigði og bólusetningar: Full ástæða til að fara varlega Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ekki þurfi nema smá óheppni til að smit berist inn í landið. Þess vegna, segir hann, er nauðsynlegt að viðhafa áfram öflugt eftirlit á landamærunum og huga að persónubundnum sóttvörnum. 25.1.2021 23:54
Eiga von á því að húsið verði rifið að hluta á morgun Slökkvistarfi við Kaldasel í Seljahverfi í Breiðholti lauk nú á ellefta tímanum í kvöld. Mikill eldur kom upp í þaki hússins fyrr í kvöld, en þar hafði eldur komið upp í morgun og altjón orðið. 25.1.2021 22:54
Segir kenningu um nafnið Thymele vera skáldfræði Rannsóknarprófessor við Árnastofnun segir nýja kenningu þess efnis að fyrsta nafn Íslands hafi verið Thymele en ekki Thule aðeins skemmtilega hugdettu í ætt við skáldfræði. Hann segir þó almennt orðið viðurkennt meðal fræðimanna að Thule sé Ísland. 25.1.2021 21:56
Aftur logar í þaki hússins við Kaldasel Eldur er aftur kominn upp í þaki hússins sem varð alelda í morgun. Húsið er í Kaldaseli í Seljahverfi í Breiðholti, en mikill eldur kom upp í húsinu í morgun og varð altjón eftir brunann. 25.1.2021 20:28
„Hann var einfaldlega perla þessi drengur“ Faðir mannsins sem lést í Sundhöll Reykjavíkur á fimmtudaginn segir hann hafa verið afar hraustan og slysið skilji eftir sig ótal spurningar. Sonur hans hafi legið á botni laugarinnar í sex mínútur áður en endurlífgunartilraunir hófust. Hann segist ekki vilja finna sökudólga, aðeins fá svör. 25.1.2021 19:45
Hundar með fjólubláa tungu vekja athygli Hundar með fjólublá tungu eru sjaldgæfir en þó eru nokkrir slíkir hundar hér á landi með þannig tungu, meðal annars Chow Chow hundar. Tegundin er með mjög loðin felld og líkist helst böngsum eða loðnum öpum. 25.1.2021 19:45
Hátt í fjórtán þúsund skammtar af bóluefni AstraZeneca væntanlegir til landsins í febrúar Von er á 13.800 skömmtum af bóluefni frá AstraZeneca í febrúar, ef væntingar ganga eftir um að bóluefnið fái markaðsleyfi í Evrópu á föstudaginn. Þetta kemur fram í skriflegu svari frá heilbrigðisráðuneytinu við fyrirspurn Rúv. 25.1.2021 19:30
Yfirboðið í þriðjung dýrari eigna Sífellt fleiri dýrar fasteignir seljast á yfirverði og í lok árs var yfirboðið í um þriðjung allra eigna sem kostuðu yfir 75 milljónum króna. Hagfræðingur segir þetta til marks um að kreppan snerti fólk með mjög misjöfnum hætti. 25.1.2021 19:01
Sigldi utan í Elliðaey Skuttogarinn Dala Rafn VE sigldi utan í Elliðaey við komu til hafnar í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Eyjafréttir greina frá óhappinu en málsatvik eru sögð óljós að svo stöddu. 25.1.2021 18:52
Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu Þórólfur Guðnason ítrekaði á upplýsingafundi dagsins að fólk vandi sig við sóttvarnir og fari í sýnatöku við minnstu einkenni. Ástæðan er ótti við bakslag enda er faraldurinn í miklum vexti allt í kringum okkur. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 förum við yfir stöðuna í nágrannalöndunum og fjöllum nánar um þrjú afbrigði veirunnar sem talin eru ein aðalástæða fleiri smita og dauðsfalla í heiminum. 25.1.2021 18:01
John Snorri þurfti að snúa við en ætlar seinna á toppinn Fjallagarpurinn John Snorri Sigurjónsson og föruneyti hans, sem hélt af stað á topp K2 á laugardaginn, neyddust til að snúa við vegna veðurs og tókst ekki að ljúka för sinni á toppinn. Teymið er komið aftur í grunnbúðirnar og eru allir heilir á húfi. 25.1.2021 17:59