Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ræðir Palestínu og Ísrael við Blinken og Lavrov Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun hvetja utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússlands til þess að beita sér fyrir friðsamlegri lausn á átökum Ísraels og Palestínu á fundi þeirra í vikunni. 17.5.2021 13:32
Mikil fjölgun bráðatilfella á Bugl: Mjög ljót neteineltismál og fleiri átröskunartilfelli Mikil aukning hefur verið á tilfellum bráðavanda hjá börnum og ungmennum á Bugl. Fjölgun milli ára er um 30-40%. Sérfræðilæknir þar segir að fleiri átröskunartilfelli hafi komið upp en áður. Þá séu mjög alvarleg neteineltismál að koma upp. 17.5.2021 13:31
Eurovision-hópnum hleypt fram fyrir í bólusetningu eftir beiðni frá RÚV Eurovision hópur Íslendinga var bólusettur með Jansen-bóluefninu fyrir förina til Hollands þar sem Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fer fram í ár. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir beiðni hafa borist frá Ríkisútvarpinu um að bólusetja Eurovision-farana. 17.5.2021 12:35
Stytta biðtíma barna í kerfinu Ríkið hefur nú óskað eftir tilboðum í vinnu við þróun á nýjum miðlægum gagnagrunni fyrir upplýsingar sem varða hag barna og kerfi þar sem sveitarfélög geta haft yfirsýn og rekið barnaverndarmál. 17.5.2021 12:01
Ertu í ofbeldisfullu sambandi? Taktu prófið Árleg forvarnarherferð Stígamóta – SJÚKÁST – um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna er komin í loftið. Hluti af herferðinni er svokallað sambandspróf þar sem fólk fær svör við spurningum um hvort hlutir sem komi upp í samböndum séu heilbrigðir eða ekki og í versta falli ofbeldi. 17.5.2021 11:51
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við sóttvarnalækni um stöðuna í kórónuveirufaraldrinum en til stendur að bólusetja 24 þúsund manns í vikunni. 17.5.2021 11:35
Kýldi konu algjörlega að tilefnislausu í Hveragerði Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa kýlt konu að tilefnislausu í Hveragerði í desember 2019. Þá þarf hann að greiða henni 300 þúsund krónur í bætur. 17.5.2021 10:57
Benedikt Bogason með 423 þúsund krónur á mánuði hjá HÍ Samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands er Benedikt Bogason forseti Hæstaréttar prófessor í 48 prósenta starfshlutfalli og þiggur fyrir það mánaðarlaun sem nema 423.003 krónum. 17.5.2021 10:55
Tveir greindust á Suðurlandi Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Báðir sem greindust voru í sóttkví. 17.5.2021 10:48
24 þúsund bólusettir í vikunni Um 24 þúsund einstaklingar verða bólusettir hér á landi í vikunni. Notast verður við öll fjögur bóluefnin – það er AstraZeneca, Pfizer, Moderna og Janssen. 17.5.2021 09:27
Hætta ekki að skima bólusetta ferðamenn eða þá með mótefni á næstu vikum Ekki stendur til að hætta á næstunni að skima ferðamenn á landamærum sem eru bólusettir eða eru með mótefni. Enn sé verið að greina bólusetta einstaklinga á landamærunum með veiruna. 17.5.2021 08:41
Svandís vill leiða VG í öðru Reykjavíkurkjördæmanna Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra býður sig fram til að leiða lista Vinstri grænna í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. Frá þessu greindi hún á Facebook í gærkvöldi. 17.5.2021 06:56
Brotist inn í skartgripaverslun í miðborginni Rétt fyrir miðnætti í nótt barst lögreglu tilkynning um að innbrot í skartgripaverslun stæði yfir í miðborginni. Rúða var brotin og skarti stolið en maður handtekinn með þýfið skömmu síðar. Var hann vistaður í fangageymslu. 17.5.2021 06:18
Skárri kostur en að rústa lífi manns með fangelsisdómi Eiríkur Tómasson fyrrverandi Hæstaréttardómari segir skárra að sekir menn sleppi við fangelsisvist en að saklaus maður endi bak við lás og slá. Dómarar eigi að hafa sannleiksreglu að leiðarljósi í því skyni að rétt sé dæmt í málum sem rati fyrir dóminn. 17.5.2021 06:00
Í höndum Kolbeins hvort hann sitji út kjörtímabilið Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir þingflokkinn ekki hafa boðvald yfir sínum þingmönnum um hvað þeir gera. Mál sem varðaði hegðun Kolbeins Óttarssonar Proppé, þingmanns Vinstri grænna, var tilkynnt til fagráðs flokksins en þingflokkurinn hafði ekki vitneskju um það fyrr en hann sjálfur greindi frá því. Kolbeinn dró framboð sitt í forvali flokksins til baka í kjölfarið. 16.5.2021 23:26
8 ára „sauðfjárbóndi“ sem les Hrútaskrána Þó hann sé ekki nema 8 ára er hann búin fyrir löngu að ákveða hvað hann ætlar að verða þegar hann verður stór. Hér erum við að tala um Helga Fannar Oddsson á bænum Hrafnkelsstöðum við Flúðir, sem ætlar sér að verða sauðfjárbóndi. Hrútaskráin er uppáhalds bókin hans. 16.5.2021 20:05
Telur skynsamlegast að hraðprófa bólusetta ferðamenn eða hætta að skima þá Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar telur að vænlegast væri að bólusettir ferðamenn verði hraðprófaðir fyrir kórónuveirunni á landamærum, eða þeir gerðir undanþegnir skimunum, að því gefnu að gögn sýni að þeir greinist almennt ekki jákvæðir við komu til landsins. 16.5.2021 20:01
Telja nauðsynlegt að fordæma ofbeldið en mikilvægt að gera greinarmun á alvarleika brota Þingkonurnar Helga Vala Helgadóttir og Sigríður Á. Andersen telja nauðsynlegt að gera greinarmun á alvarleika þeirra brota sem verið til umræðu í tengslum við nýjustu MeToo-bylgju á samfélagsmiðlum. Umræðan sé snúin þar sem konur hafi verið að stíga fram og greina frá óþægilegri hegðun karlmanna sem og alvarlegum ofbeldisbrotum. 16.5.2021 18:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um árásirnar á Gasa og rætt við Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem segir ekki koma til greina að setja viðskiptaþvinganir á Ísrael. 16.5.2021 18:20
Ætlaði út að hlaupa og taka daginn rólega Sá sem greindist með kórónuveiruna í íslenska Eurovision-hópnum hefur ekki hugmynd um hvernig hann smitaðist, að sögn fararstjóra hópsins. Viðkomandi hafi ætlað út að hlaupa og taka daginn rólega á meðan aðrir í hópnum færu á opnunarhátíð Eurovision - en af því varð vitanlega ekki. 16.5.2021 18:18
Viðskiptabann við Ísrael ekki á teikniborðinu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra lítur svo á að Ísland geri það sem það geti í átökum Ísraels og Palestínu. Viðskiptabann sé ekki það fyrsta sem komi upp í hugann sem viðbrögð frá 370 þúsund manna þjóð. 16.5.2021 18:00
Guðbjörg Oddný vill fjórða sæti Sjálfstæðisflokksins í kraganum Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, varabæjarfulltrúi í Hafnarfirði, sækist eftir 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Hún segist vilja á þing fyrir ungt fjölskyldufólk því nauðsyn sé á fulltrúm þeirra þar. 16.5.2021 14:17
„Alveg fráleitt að við séum að velja gamla skólafélaga“ Formaður nefndar um hæfni dómara vísar á bug gagnrýni þess efnis að klíkuskapur ráði við val nefndarinnar á dómurum. Hann kveður gagnrýnina ómaklega og segir hana nær eingöngu komna frá einum manni. 16.5.2021 14:00
„Hefði ekki tekist án samtakamáttar“ Hörðum sóttvarnaaðgerðum í Skagafirði verður aflétt á miðnætti eftir ákvörðun almannavarna þess efnis, sem telur sig hafa náð tökum á hópsmitinu. Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af fjórir í Skagafirði. 16.5.2021 13:43
Meðlimur íslenska Eurovision-hópsins með Covid Meðlimur íslenska Eurovision-hópsins greindist með kórónuveiruna í Rotterdam í Hollandi í dag, þar sem keppnin fer fram. Þetta kemur fram í tilkynningu frá EBU, Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva. 16.5.2021 13:41
Ekkert landgræðsluflug lengur á Íslandi Mikið frumkvöðulsstarf var unnið á sviði landgræðslu með eins hreyfils flugvélum á árunum 1958 til 1992 þar sem flugvélarnar fóru um landið og dreifðu áburði og fræi. Í dag er ekkert landgræðsluflug stundað á Íslandi. 16.5.2021 12:32
Hádegisfréttir Bylgjunnar í beinni útsendingu Reiknað er með að nýtt sóttkvíarhótel verði tekið í notkun í dag þegar fimm flugvélar frá hááhættusvæðum koma til landsins. 16.5.2021 11:30
Kona nýkomin frá útlöndum fékk hríðir á sóttkvíarhóteli Reiknað er með að Hótel Rauðará við Rauðarárstíg verði tekið í notkun sem nýtt sóttkvíarhótel í dag. Fimm flugvélar með farþega frá hááhættusvæðum eru væntanlegar til landsins síðdegis. Þá hefur ýmislegt gengið á á sóttkvíarhótelum landsins, að sögn umsjónarmanns; aðfaranótt laugardags fékk kona hríðir á sóttkvíarhóteli í Reykjavík. 16.5.2021 10:30
Fimm greindust með veiruna innanlands Fimm greindust með kórónuveiruna í gær og voru allir í sóttkví, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavörnum. Flestir þeirra eru búsettir á Norðurlandi. 16.5.2021 10:29
Mæla með hettu yfir höfuðið á gosstöðvunum Þeir sem ætla að leggja leið sína á gosstöðvarnar í dag eru hvattir til að taka með sér auka peysu og úlpu. Ástæðan er sú að nokkur vindur er á svæðinu, 5-9 m/s og í kaldara lagi að því er fram kemur á Safetravel.is. 16.5.2021 10:13
Bein útsending: Meintur klíkuskapur og kynferðisbrot á Sprengisandi Staða þolenda í dómskerfinu, nýtt fyrirbrigði í hagfræðinni, meintur klíkuskapur á æðsta dómstigi og stefna í ferðamennsku til framtíðar verður á dagskrá Sprengisands á Bylgjunni í dag. Kristján Kristjánsson fær til sín góða gesti. 16.5.2021 09:09
Plokkuðu 750 kíló af rusli í Elliðaárdalnum Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur plokkuðu 750 kíló af rusli úr Elliðaárdalnum í vikunni, þegar vorhreinsun Orkuveitunnar fór fram. Alls tóku 132 starfsmenn OR þátt í átakinu yfir þrjá daga. 16.5.2021 08:59
Mikill erill, hávaði og ölvun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Um hundrað mál eru skráð í dagbók lögreglunnar og þar af mikið um hávaðatilkynningar og annað tengt ölvun. 16.5.2021 07:20
„Þetta er bara búið að vera hreint út sagt ömurlegt“ Leigubílstjórar segja síðastliðið ár hafa verið ömurlegt. Margir hafi hrakist úr starfi og enn sé lítið að gera þrátt fyrir að ferðamönnum sé tekið að fjölga á ný. 15.5.2021 23:50
Telur íslensk stjórnvöld hræðast að „stugga við“ Ísrael Þingmaður Samfylkingar vill að ríkisstjórnin fordæmi aðgerðir Ísraelsmanna á Gasasvæðinu undanfarna daga. Hún telur að stjórnvöld hræðist það að stugga við ísraelskum stjórnvöldum og því hafi ríkisstjórnin ekki tekið skýrari afstöðu með Palestínu en raun ber vitni. 15.5.2021 20:31
Ekki þörf á að framlengja staðbundnar aðgerðir Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra ákvað í dag að óska ekki eftir framlengingu reglugerðar sem sett var sérstaklega fyrir Skagafjörð og Akrahrepp vegna hópsmits á svæðinu. Aðgerðirnar, sem gilda til morgundagsins, verða því ekki í gildi umfram það. 15.5.2021 20:03
Stefna á að klára varnargarðana á morgun Áfram er unnið að því að reisa garða til að varna því að hraunið úr Geldingadölum renni niður í Nátthaga og ógni þannig Suðurstrandarvegi. Stefnt er að því að ljúka verkinu fyrir lok dags á morgun. 15.5.2021 19:16
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fjöllum við ítarlega um átökin á Gasasvæðinu og um viðbrögð stjórnvalda við hörmungunum. 15.5.2021 18:05
Sofnaði út frá eldamennsku Slökkviliðið var kallað út síðdegis í dag eftir að tilkynning barst um viðvörunarkerfi í gangi í íbúðarhúsnæði. Tilkynnandi hafði einnig fundið brunalykt og hafði samband við slökkvilið. 15.5.2021 18:02
Stöðvaðir í Kópavogi án skilríkja og dvalarleyfis Lögreglan stöðvaði í dag bifreið í Kópavogi sem þrír voru í. Farþegar og ökumaður reyndust vera án skilríkja og dvalarleyfis. 15.5.2021 17:12
„Til fjandans með Pollýönnu“ Guðmundur Felix Grétarsson ber ekki lengur sárabindi allan sólarhringinn, eins og sjá má af nýjustu mynd hans á samfélagsmiðlum. 15.5.2021 16:45
Slys á hverjum degi á rafhlaupahjóli síðasta sumar Síðasta sumar leitaði að meðaltali 1,6 á bráðamóttökuna vegna slysa á rafhlaupahjólum á degi hverjum, sem samsvarar um ellefu á viku. Margir sem slösuðust voru undir áhrifum áfengis eða vímuefna. 15.5.2021 14:43
Mörghundruð mótmæltu „blóðbaðinu“ á Austurvelli Mörghundruð manns komu saman á Austurvelli og mótmæltu framgöngu Ísraelsmanna á Gasasvæðinu í Palestínu síðustu daga. Mótmælafundurinn var haldinn undir yfirskriftinni „Stöðvum blóðbaðið“. 15.5.2021 14:30
Hæstaréttardómarar notfæri sér breytta stöðu til að sinna öðrum umfangsmiklum störfum Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi Hæstaréttardómari, segir algeran óþarfa að dómarar í Hæstarétti séu sjö í stað fimm. 15.5.2021 14:16
Íslensku garparnir stefna á tind Everest í kvöld Íslensku göngumennirnir Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson hyggjast reyna að klífa tind Everest-fjalls í kvöld. 15.5.2021 14:07