Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrír þéttir karlar auk Bryndísar verja sín vígi í Kraganum Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, sem jafnan er kallað Kraginn, fyrir alþingiskosningar 2021 fer fram nú um helgina. 10.6.2021 13:24
Vatnsþurrð í Grenlæk ógnar sjóbirtingsstofninum Alvarlegt ástand hefur skapast í Grenlæk í Landbroti vegna þurrka. Við vettvangsskoðun Hafrannsóknarstofnunar þann 3. júní síðastliðinn að efstu ellefu kílómetrar lækjarins, á svæðinu fyrir ofan Stórafoss, eru þurrir. 10.6.2021 13:13
Skipar Hlyn sem dómara Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að skipa Hlyn Jónsson lögmann í embætti dómara hjá Héraðsdómi Norðurlands eystra frá og með 10. júní 2021. 10.6.2021 13:04
Stefnir í málþóf á Alþingi: Verðum hér í sumar ef þörf er á Það stefnir í málþóf um hálendisþjóðgarð á Alþingi sem þarf að taka til umræðu áður en málinu verður vísað aftur til ríkisstjórnar. Þingflokksformaður Miðflokksins segir þó að semja megi um ræðutímann ef samkomulag næst um þinglok. Hann sé hins vegar reiðubúinn til þess að verja sumrinu í þingsal. 10.6.2021 12:04
Fjölskyldufaðir á fertugsaldri vann stóra vinninginn Heppinn fjölskyldufaðir á fertugsaldri hefur gefið sig fram við Íslenska getspá eftir að hafa hreppt langstærsta lottóvinning Íslandssögunnar í gærkvöldi; rúmlega 1.270 milljónir króna. 10.6.2021 11:57
Grípa til smáauglýsinga vegna lítillar trúar á verkfærum þingmanna Viðreisn birti smáauglýsingu í Fréttablaðinu í dag þar sem óskað var eftir skýrslu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um umsvif stærstu útgerðarfyrirtækja landsins í íslensku atvinnulífi. Þingmenn flestra flokka fóru fram á að skýrslan yrði gerð og var beiðnin samþykkt í þinginu fyrir jól. 10.6.2021 11:54
Flestir rekast á falsfréttir á Facebook Átta af hverjum tíu segjast hafa rekist á upplýsingar á netinu síðustu tólf mánuði sem þau hafi efast um að væru sannar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu fjölmiðlanefndar um falsfréttir og upplýsingaóreiðu. 10.6.2021 11:54
Eiga í viðræðum um seinkun á endurgreiðslu á AstraZeneca-skömmtunum Viðræður standa yfir á milli íslenskra og norskra yfirvalda um seinkun á endurgreiðslu á 16 þúsund skömmtum af bóluefni AstraZeneca sem Íslendingar fengu lánaða frá Noregi í vor. 10.6.2021 11:49
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Enginn greindist með veiruna innanlands í gær en í hádegisfréttum verður rætt við sóttvarnalækni um stöðuna á faraldrinum. 10.6.2021 11:33
Boða fleiri árganga í bólusetningu vegna einungis um 50 prósent mætingar Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur boðað þrjá hópa til viðbótar í bólusetningu í Laugardalshöll í dag þar sem einungis um helmingur af þeim sem hafði verið boðaður í morgun mætti á staðinn. 10.6.2021 11:12
Glitti í sólmyrkvann á höfuðborgarsvæðinu Nokkrir heppnir íbúar á höfuðborgarsvæðinu sáu glitta í sólina – og já, mánann í leiðinni – á milli skýjanna í morgun. Skýjað hefur verið á höfuðborgarsvæðinu í dag og var því viðbúið að Íslendingar fengju ekki að berja sólmyrkva augum. 10.6.2021 10:58
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. 10.6.2021 10:47
Bílabrú fyrir Herjólf skemmdist í Vestmannaeyjahöfn Einhverjar tafir verða á ferðum Herjólfs eftir að bílabrú skemmdist í Vestmannaeyjahöfn um klukkan níu í morgun. 10.6.2021 10:02
Kristín segir púlsana hafa orðið þéttari og lækkað í nótt Breytingar urðu á eldgosinu í Fagradalsfjalli í nótt. Um klukkan fjögur urðu sérfræðingar á Veðurstofunni varir breytingar á óróanum og tóku eftir að púlsarnir séu orðnir þéttari og aðeins lækkað. 10.6.2021 09:45
Þurfum að skila Noregi 16 þúsund skömmtum af AstraZeneca fyrir mánaðarlok Ísland þarf að skila Noregi 16 þúsund skömmtum af bóluefni AstraZeneca fyrir mánaðarlok nema samið verði um annað. Tíu þúsund voru bólusettir með efninu í Laugardalshöll í gær. 10.6.2021 08:38
Sjáðu sólmyrkvann í beinni Skýjað og rigning er nú víða á landinu þegar deildarmyrkvi á sólu fer yfir fyrir hádegið. Myrkvinn sést þó víðar á norðurhveli og hægt er að fylgjast með honum í beinu streymi á Vísi. 10.6.2021 08:16
Vatn flæddi um gólf í íþróttahúsinu í Kaplakrika Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna vatnsleka í íþróttahúsinu í Kaplakrika skömmu fyrir klukkan eitt í nótt. Þar hafði svokallaður sprinklerloki gefið sig og flæddi um gólf. 10.6.2021 07:25
Sautján ára stúlkum veitt undanþága til að giftast 31 árs mönnum Frá árinu 1998 hafa átján einstaklingar fengið undanþágu til að ganga í hjúskap þrátt fyrir að hafa ekki náð 18 ára aldri. Um er að ræða sautján stúlkur og einn dreng en mesta aldursbilið milli hjónaefna var fjórtán ár. 10.6.2021 06:28
Með gjallarhorn í miðbænum Lögregla var kölluð á vettvang í gærkvöldi vegna einstalings sem var að ónáða aðra hrópandi í gjallarhorn í miðbænum. Viðkomandi reyndist vera í annarlegu ástandi en lét af hegðun sinni eftir samtal við lögreglu. 10.6.2021 06:00
Bandarískir strandgæsluliðar í þjálfun við höfn í Reykjavík Tæplega tvö hundruð ungmenni eru í þjálfun til starfa hjá bandarísku strandgæslunni um borð í tæplega hundrað metra löngu seglskipi sem kom til hafnar í Reykjavík í morgun. 9.6.2021 22:28
Norðanáttir valdi því að júní verði kaldur Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að búast megi við því að júnímánuður verði nokkuð kaldur hér á landi, sökum norðanáttar sem verði ríkjandi. 9.6.2021 21:04
Íslendingur vann tæplega 1,3 milljarða Íslenskur þátttakandi í Vikinglottó vann í kvöld langhæsta vinning sem komið hefur til Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. 9.6.2021 20:23
Bæta við mannskap til að mæta neyðarástandi á bráðamóttöku Landspítalinn mun bæta við mannskap á bráðamóttöku til að mæta því neyðarástandi sem þar hefur ríkt að undanförnu. Forstöðumaður á spítalanum telur að með því sé öryggi sjúklinga tryggt. Þetta sé þó tímabundin lausn og í höndum stjórnvalda að ráða úr vandanum. 9.6.2021 20:02
Rætt við röðina: „Það stóð nú til að fá sprautu þarna í þessu húsi“ Aldrei hefur myndast lengri röð eftir bólusetningum við Laugardalshöll eins og í dag. Þrátt fyrir mikinn ágang tókst að bólusetja um tíu þúsund manns, þeirra á meðal fjármálaráðherra. Margir sem ekki höfðu verið boðaðir þurftu frá að hverfa. 9.6.2021 19:18
Sjónarspilið verður sífellt minna Sjónarspilið við gosstöðvarnar verður sífellt minna að sögn Þorvaldar Þórðarsonar, prófessors hjá Jarðvísindastofnun. Hann segist hafa það á tilfinningunni að gosið eigi eftir að halda áfram í nokkur ár en hraun myndi þá óhjákvæmilega renna yfir Suðurstrandarveg. 9.6.2021 19:08
Maður á sjötugsaldri handtekinn fyrir að tæla ólögráða stúlkur Karlmaður á sjötugsaldri var handtekinn í síðustu viku eftir að hafa sett sig í samband við fimm ólögráða stúlkur, klæmst við þær og reynt að fá þær til að hitta sig. Eftir að manninum var sleppt úr haldi er hann grunaður um að hafa ítrekað brotið af sér með sams konar hætti. 9.6.2021 18:50
Kölluðu eftir fleira fólki í bólusetningu undir lok dags Um tíu þúsund manns fengu seinni skammt af bóluefni AstraZeneca við kórónuveirunni í Laugardalshöll í dag. Framkvæmdastjóri hjá heilsugæslunni segir daginn hafa verið nokkuð tvískiptan. Hluta dags var mikil umferð og nánast örtröð í og við höllina en seinna um daginn þurfti að auglýsa skammta sem annars hefðu farið til spillis. 9.6.2021 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar greinum við frá karlmanni á sjötugsaldri sem lögreglan handtók eftir að hann setti sig í samband fimm ólögráða stúlkur og klæmdist við þær og reyndi að mæla sér mót við þær. Eftir að honum var sleppt hélt hann uppteknum hætti. 9.6.2021 18:01
Hættir á skrifstofu borgarstjóra vegna Vigdísar Helga Björg Ragnarsdóttir, fyrrum skrifstofustjóri skrifstofu borgarstjóra, hefur verið færð til í starfi að eigin ósk. Hún segist hafa orðið fyrir stöðugu áreiti og ofsóknum af hálfu borgarfulltrúa Miðflokksins, Vigdísar Hauksdóttur. Hún telur að kerfið hafi brugðist sér í málinu. 9.6.2021 17:29
Ók Angjelin í Rauðagerði en segist ekkert hafa vitað um tilganginn Shpetim Qerimi, einn fjögurra sem ákærður er fyrir manndráp í Rauðagerðismálinu svokallaða, hefur verið úrskurðaður í farbann til 1. október. Aðalmeðferð í málinu er fyrirhuguð í september. 9.6.2021 16:00
Tveir fluttir með sjúkraflugi eftir harðan árekstur Harður árekstur tveggja bifreiða varð á Siglufjarðarvegi við Kýrholt í dag. Að sögn lögreglu voru ökumennirnir báðir einir í bifreiðum sínum. 9.6.2021 15:27
Arna McClure ekki lengur kjörræðismaður Kýpur á Íslandi Utanríkisráðuneytinu barst tilkynning þar um 2. júní síðastliðinn að aðallögfræðingur Samherja væri ekki lengur ræðismaður Kýpur. 9.6.2021 15:10
Fimm mánaða skilorðsbundinn dómur fyrir að stefna lífi verkamanna í hættu Eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að stefna lífi og heilsu á þriðja tugar erlendra starfsmanna sinna í hættu með því að hýsa þá í hættulegu húsnæði á Smiðshöfða í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 9.6.2021 15:04
Brenna inni með bunka af málum Á lokametrum kjörtímabilsins er ljóst að mörg af stóru málum ríkisstjórnarinnar munu ekki hljóta afgreiðslu í bili, þrátt fyrir að hafa sum verið í undirbúningi um langa hríð. 9.6.2021 14:31
Lögregla lýsir eftir Mantas Telvikas Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Mantas Telvikas, 40 ára. 9.6.2021 14:07
Anton Kristinn ákærður fyrir vopna- og fíkniefnalagabrot Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært Anton Kristinn Þórarinsson fyrir brot á vopnalögum og fíkniefnalögum sem rekja má til húsleitar lögreglu á heimili hans í Akrahverfinu í Garðabæ í mars 2019. Þrjú rafmagnsvopn, rafstuðbyssur, fundust á heimili Antons Kristins auk kókaíns og lítilræði af tóbaksblönduðu kannabisefni. 9.6.2021 13:14
Gæti glitt í sólmyrkvann á milli rigningarskýjanna Útlit er fyrir að það rigni víðast hvar um landið þegar deildarmyrkvi á sólu gengur yfir í fyrramálið. Sérfræðingur Veðurstofu Íslands segir þó mögulegt að það rofi til inn á milli þannig að myrkvinn verði sjáanlegur, jafnvel á höfuðborgarsvæðinu. 9.6.2021 12:49
Hannes beið og beið og fékk enga bólusetningu Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor þurfti frá að hverfa og fékk enga bólusetningu. 9.6.2021 12:17
Lagt til að vísa hálendisþjóðgarði aftur til ríkisstjórnar Áform um stofnun miðhálendisþjóðgarðs á kjörtímabilinu virðast endanlega fallin niður þar sem meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hefur lagt til að málinu verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar. Rammaáætlun mun líklega einnig daga uppi í nefnd að sögn þingflokksformanns Viðreisnar. 9.6.2021 12:10
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um hina gríðarmiklu ásókn í seinni sprautu með Astra Zeneca en röðin fyrir utan Laugardalshöllina hefur aldrei verið eins mikil og það sem af er morgni. 9.6.2021 11:34
Fjórir greindust innanlands Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví. 9.6.2021 10:45
Þeim sem ekki fá boð er vísað frá fyrri part dags Gríðarlega löng röð hefur myndast fyrir utan Laugardalshöll, þar sem verið er að bólusetja fyrir Covid-19 með bóluefni AstraZeneca í dag. Röðin nær alla leið upp á Suðurlandsbraut og hringinn í kring um túnið við hlið hallarinnar. 9.6.2021 10:19
Ólíklegt að það verði af afglæpavæðingu neysluskammta Ólíklegt er að frumvarp heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neysluskammta nái í gegnum þingið á lokadögum þess að mati Birgis Ármanssonar, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins. Píratar hyggjast þá leggja fram eigið frumvarp í staðinn. 9.6.2021 10:10
Rafmagni aftur komið á á Norðausturlandi Rafmagnslaust var á stórum hluta Norðurlands í gærkvöldi og í nótt eða í Kelduhverfi, Öxarfirði, á Kópaskeri, Raufarhöfn, Þistilfirði, Þórshöfn og Bakkafirði. 9.6.2021 08:14
Harry og Meghan sögð ekki hafa borið nafngiftina undir drottninguna Harry og Meghan, hertogahjónin af Sussex, báðu Elísabetu drottningu ekki um leyfi áður en þau ákváðu að nefna dóttur sína Lilibet, Lísbet upp á íslensku, en um er að ræða fjölskyldu-gælunafn drottningarinnar frá því hún var stúlka. 9.6.2021 07:04