Fleiri fréttir Tveir íbúar á Hlíf smitaðir Tveir íbúar á Hlíf, íbúðakjarna fyrir aldraða á Ísafirði, hafa greinst með kórónuveiruna. Þetta staðfestir Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum, í samtali við fréttastofu. 26.7.2021 16:17 Líkin of hátt uppi til að vera sótt með þyrlum Stefnt er að því að sækja það sem talið er vera lík fjallgöngumannsins John Snorra Sigurjónssonar af K2 við fyrsta tækifæri. Hópurinn sem fann líkið var kominn hærra en nokkur annar hópur hafði komist frá því í febrúar, þegar John Snorri og félagar hans misstu samband og voru í kjölfarið taldir af. 26.7.2021 16:13 Miðflokkurinn vill gera sig kvenlegri Unnið er að því að laga ásýnd Miðflokksins í átt að auknu jafnræði kynjanna. Annað kvöld mun liggja fyrir hvort Karl Gauti Hjaltason leiði listann í Suðvesturkjördæmi. 26.7.2021 15:48 Þriðji starfsmaður heilsugæslunnar greindist með veiruna Starfsmenn heimahjúkrunar á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem greinst hafa með kórónuveiruna eru orðnir tveir. Áður hafði verið greint frá því að einn starfsmaður heimahjúkrunar hefði greinst, auk starfsmanns á heilsugæslunni Sólvangi, sem sinnti ungbarnaeftirliti. 26.7.2021 14:20 Þrettán starfsmenn Landspítala í einangrun með Covid-19 Á þriðja hundrað starfsmanna Landspítalans er í vinnusóttkví og talið er að þeim muni fjölga nokkuð í dag. Nú liggja þrír inni á spítala með virkt Covid-smit en einn inniliggjandi sjúklingur greindist smitaður af veirunni í dag. 26.7.2021 13:40 Vonast til þess að óskýrar myndir veiti vísbendingar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum sem sjá má á meðfylgjandi myndum. 26.7.2021 12:54 Upplýsingafundur verður haldinn á morgun Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar á morgun klukkan 11:00, þriðjudaginn 27. júlí. 26.7.2021 12:52 Erilsamur sólarhringur hjá björgunarsveitum Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast síðastliðinn sólarhring. Björgunarsveitir á Austurlandi eru á leið að manni sem óskaði eftir aðstoð í grennd við Snæfell. 26.7.2021 12:47 Eitt af verkefnum dagsins að fara yfir fjölmargar starfsumsóknir Um 160 manns dvelja nú í einangrun farsóttarhúsum á vegum Rauða krossins, þar af um fimmtán í þriðja farsóttarhúsinu sem opnað var í gær. 26.7.2021 12:30 Engin heit sturta í kvöld og fram á morgun fyrir Seltyrninga Ekkert heitt vatn verður í boði fyrir Seltirninga frá klukkan sjö í kvöld og fram á morgun. 26.7.2021 12:30 Hert á reglum um sóttkví Hert verður á reglum um sóttkví sem verða þá eins og þær voru áður en bólusetningar hófust hér á landi. Ekki verður lengur tekið tillit til þess hvort útsettur einstaklingur sé bólusettur eða ekki, segir sérfræðingur á sóttvarnarsviði embættis landlæknis. 26.7.2021 12:10 Tveir starfsmenn Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu smitaðir Starfsmaður á heilsugæslunni Sólvangi og starfsmaður heimahjúkrunar Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa greinst smitaðir af Covid-19. Þetta segir í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 26.7.2021 11:45 Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Sjötíu og einn greindist smitaður innanlands af kórónuveirunni í gær. Í hádegisfréttum verður rætt við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur verkefnastjóra hjá Landlækni um þróun faraldursins. 26.7.2021 11:39 Hegðun gossins í dag gefi litla vísbendingu um framtíðina Prófessor í eldfjallafræði segir að sá mikli kraftur sem sást í eldgosinu í Geldingadölum um helgina sé hluti af því mynstri sem sést hefur undanfarnar vikur. Hann telur ómögulegt að segja til um hvenær gosinu muni ljúka út frá mælingum dagsins í dag. 26.7.2021 11:29 Fæðingar hafa ekki verið fleiri á öðrum ársfjórðungi frá upphafi mælinga Á öðrum ársfjórðungi 2021 fæddust 1.270 börn. Fæðingar hafa ekki verið fleiri á öðrum ársfjórðungi síðan mælingar hófust árið 2010. Landsmönnum fjölgaði um 1.700 á ársfjórðungnum. 26.7.2021 10:43 71 greindist smitaður af Covid-19 í gær Í gær greindist 71 innanlands með Covid-19. Þar af voru 53 fullbólusettir og 16 óbólusettir. 46 voru utan sóttkvíar við greiningu. Tveir eru á sjúkrahúsi vegna sjúkdómsins og hefur fækkað um tvo á milli daga. 26.7.2021 10:42 Leita vitna að hópslagsmálunum á Akureyri Lögreglan á Akureyri óskar þess nú að ná tali af vitnum að tveimur líkamsárásum sem framdar voru á Akureyri, þar á meðal vitnum að hópslagsmálum í miðbæ bæjarins í síðustu viku. 26.7.2021 10:42 Allir vinir í Viðreisn 26.7.2021 10:34
Sjá næstu 50 fréttir
Tveir íbúar á Hlíf smitaðir Tveir íbúar á Hlíf, íbúðakjarna fyrir aldraða á Ísafirði, hafa greinst með kórónuveiruna. Þetta staðfestir Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum, í samtali við fréttastofu. 26.7.2021 16:17
Líkin of hátt uppi til að vera sótt með þyrlum Stefnt er að því að sækja það sem talið er vera lík fjallgöngumannsins John Snorra Sigurjónssonar af K2 við fyrsta tækifæri. Hópurinn sem fann líkið var kominn hærra en nokkur annar hópur hafði komist frá því í febrúar, þegar John Snorri og félagar hans misstu samband og voru í kjölfarið taldir af. 26.7.2021 16:13
Miðflokkurinn vill gera sig kvenlegri Unnið er að því að laga ásýnd Miðflokksins í átt að auknu jafnræði kynjanna. Annað kvöld mun liggja fyrir hvort Karl Gauti Hjaltason leiði listann í Suðvesturkjördæmi. 26.7.2021 15:48
Þriðji starfsmaður heilsugæslunnar greindist með veiruna Starfsmenn heimahjúkrunar á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem greinst hafa með kórónuveiruna eru orðnir tveir. Áður hafði verið greint frá því að einn starfsmaður heimahjúkrunar hefði greinst, auk starfsmanns á heilsugæslunni Sólvangi, sem sinnti ungbarnaeftirliti. 26.7.2021 14:20
Þrettán starfsmenn Landspítala í einangrun með Covid-19 Á þriðja hundrað starfsmanna Landspítalans er í vinnusóttkví og talið er að þeim muni fjölga nokkuð í dag. Nú liggja þrír inni á spítala með virkt Covid-smit en einn inniliggjandi sjúklingur greindist smitaður af veirunni í dag. 26.7.2021 13:40
Vonast til þess að óskýrar myndir veiti vísbendingar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum sem sjá má á meðfylgjandi myndum. 26.7.2021 12:54
Upplýsingafundur verður haldinn á morgun Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar á morgun klukkan 11:00, þriðjudaginn 27. júlí. 26.7.2021 12:52
Erilsamur sólarhringur hjá björgunarsveitum Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast síðastliðinn sólarhring. Björgunarsveitir á Austurlandi eru á leið að manni sem óskaði eftir aðstoð í grennd við Snæfell. 26.7.2021 12:47
Eitt af verkefnum dagsins að fara yfir fjölmargar starfsumsóknir Um 160 manns dvelja nú í einangrun farsóttarhúsum á vegum Rauða krossins, þar af um fimmtán í þriðja farsóttarhúsinu sem opnað var í gær. 26.7.2021 12:30
Engin heit sturta í kvöld og fram á morgun fyrir Seltyrninga Ekkert heitt vatn verður í boði fyrir Seltirninga frá klukkan sjö í kvöld og fram á morgun. 26.7.2021 12:30
Hert á reglum um sóttkví Hert verður á reglum um sóttkví sem verða þá eins og þær voru áður en bólusetningar hófust hér á landi. Ekki verður lengur tekið tillit til þess hvort útsettur einstaklingur sé bólusettur eða ekki, segir sérfræðingur á sóttvarnarsviði embættis landlæknis. 26.7.2021 12:10
Tveir starfsmenn Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu smitaðir Starfsmaður á heilsugæslunni Sólvangi og starfsmaður heimahjúkrunar Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa greinst smitaðir af Covid-19. Þetta segir í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 26.7.2021 11:45
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Sjötíu og einn greindist smitaður innanlands af kórónuveirunni í gær. Í hádegisfréttum verður rætt við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur verkefnastjóra hjá Landlækni um þróun faraldursins. 26.7.2021 11:39
Hegðun gossins í dag gefi litla vísbendingu um framtíðina Prófessor í eldfjallafræði segir að sá mikli kraftur sem sást í eldgosinu í Geldingadölum um helgina sé hluti af því mynstri sem sést hefur undanfarnar vikur. Hann telur ómögulegt að segja til um hvenær gosinu muni ljúka út frá mælingum dagsins í dag. 26.7.2021 11:29
Fæðingar hafa ekki verið fleiri á öðrum ársfjórðungi frá upphafi mælinga Á öðrum ársfjórðungi 2021 fæddust 1.270 börn. Fæðingar hafa ekki verið fleiri á öðrum ársfjórðungi síðan mælingar hófust árið 2010. Landsmönnum fjölgaði um 1.700 á ársfjórðungnum. 26.7.2021 10:43
71 greindist smitaður af Covid-19 í gær Í gær greindist 71 innanlands með Covid-19. Þar af voru 53 fullbólusettir og 16 óbólusettir. 46 voru utan sóttkvíar við greiningu. Tveir eru á sjúkrahúsi vegna sjúkdómsins og hefur fækkað um tvo á milli daga. 26.7.2021 10:42
Leita vitna að hópslagsmálunum á Akureyri Lögreglan á Akureyri óskar þess nú að ná tali af vitnum að tveimur líkamsárásum sem framdar voru á Akureyri, þar á meðal vitnum að hópslagsmálum í miðbæ bæjarins í síðustu viku. 26.7.2021 10:42
Malbikun Hvalfjarðarganga frestað fram á annað kvöld Uppfært: Framkvæmdum hefur verið frestað vegna veðurs. Þess í stað verður göngunumm lokað frá klukkan 22: 00 á þriðjudagskvöld til sjö að morgni miðvikudags.Hvalfjarðargöng verða lokuð frá klukkan 22 í kvöld til klukkan 7 í fyrramálið vegna malbikunarframkvæmda. 26.7.2021 09:46
Veit ekki hve lengi þau halda út án fleiri starfsmanna Stanslaust fjölgar í sýnatöku vegna Covid-19 hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnastjóri skimana sagðist í gær ekki vita hversu lengi hægt er að halda ástandið út ef ekki fengist fleira fólk til starfa. 26.7.2021 09:11
Fundu hníf á vettvangi slagsmála Í gærkvöldi var lögregla kölluð út vegna slagsmála fyrir utan íbúðahús í miðbænum. Þegar hana bar að garði hafði ástandið róast en lagt var hald á hníf sem fannst á vettvangi. Þetta segir í dagbók lögreglu. 26.7.2021 06:24
Matvöruverslanir muni beina þeim tilmælum til viðskiptavina að bera grímur Fólk mun einungis þurfa að bera grímur þar sem ekki er unnt að tryggja eins metra fjarlægðarmörk á milli einstaklinga eða þegar húsnæði er illa loftræst. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir óskýrleika í reglugerð. 25.7.2021 20:58
Ljósmyndasýning á Hvolsvelli opin allan sólarhringinn Mikil aðsókn hefur verið að útiljósmyndasýningu í miðbæ Hvolsvallar í sumar en þar sýna áhugaljósmyndarar myndir sínar, sem allar eru teknar í héraði. Sýningin er opinn allan sólarhringinn. 25.7.2021 20:05
Unnið að því að stoppa í þá leka sem leiddu til alvarlegrar hópsýkingar á Landakoti í fyrra: Sjúklingar skimaðir vikulega Formaður farsóttanefndar Landspítala vonar að búið sé að stoppa í þá leka sem leiddu til alvarlegrar hópsýkingar á Landakoti í fyrra. Nýjum loftræstibúnaði hefur meðal annars verið komið fyrir og sjúklingar verða skimaðir vikulega. 25.7.2021 20:01
Grunur um að nokkrir hafi sýkst tvisvar af Covid-19 hér á landi Grunur er um að þrír til fjórir einstaklingar hér á landi hafi sýkst af Covid-19 í annað sinn. Eru tilvikin nú til rannsóknar hjá vísindamönnum Landspítalans. Yfirlæknir smitsjúkdómadeildar segir að smit virðist almennt vera mun útbreiddari í samfélaginu nú en í fyrri bylgjum. 25.7.2021 19:45
Heilbrigðisráðuneytið áréttar reglur um grímuskyldu vegna meints misskilnings Á miðnætti tók gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur meðal annars í sér eins metra nálægðartakmörkun og grímuskyldu. Einhver óvissa hefur ríkt um grímuskylduna og hafa forsvarsmenn verslana meðal annars kallað eftir skýrari tilmælum frá heilbrigðisyfirvöldum. 25.7.2021 19:10
Segir mun meiri vörn felast í tveggja metra fjarlægðarreglunni en eins metra Yfirlögregluþjónn almannavarna segir mun meiri vörn felast í tveggja metra fjarlægðarreglunni en eins metra. Hann hefur áhyggjur af því hve illa gengur að hemja smitin sem nú séu komin út um allt land og finnast í öllum aldurshópum. 25.7.2021 18:31
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar verður rætt við formann farsóttanefndar Landspítala sem bindur vonir við að búið sé að stoppa í þá leka sem auðkenndir voru í skýrslu landlæknis um hópsýkinguna sem reið yfir á Landakoti í fyrra. 25.7.2021 18:07
Minnst 30 nemendur Flensborgar með Covid-19 eftir útskriftarferð Síðustu daga hafa 30 útskriftarnemendur Flensborgarskólans greinst með Covid-19 eftir heimkomu þeirra úr 80 manna útskriftarferð á Krít. Allir nemendurnir eru nú ýmist í sóttkví eða einangrun en hópurinn kom til landsins á föstudagskvöld. 25.7.2021 17:41
Farsóttarhúsin full og bráðvantar starfsfólk til að opna þriðja húsið Yfir 130 manns eru í einangrun á farsóttarhúsum Rauða krossins og eru hótelin tvö orðin full. Stefnt er að því að opna það þriðja í kvöld en það strandar á því að starfsfólk sárvantar. 25.7.2021 17:04
Vöktun þarf áfram að vera heimil ef starfsemi breytist Persónuvernd gerir ráð fyrir að taka mál fótboltastúlkna til skoðunar, sem gerðu athugasemdir við að öryggismyndavélar væru að taka þær upp í svefnsal þeirra í Laugardalshöll á meðan Rey Cup stóð yfir nú um helgina. 25.7.2021 17:00
ReyCup segir að um athugunarleysi hafi verið að ræða ReyCup og Knattspyrnudeild Selfoss segjast í sameiginlegri yfirlýsingu harma þá stöðu sem upp hafi komið á mótinu, þegar eftirlitsmyndavélar fundust í gistiaðstöðu stúlkna í þriðja og fjórða flokki Selfoss um helgina. Ekki bendi til þess að um neins konar ásetning hafi verið að ræða heldur fyrst og fremst athugunarleysi sem beðist sé velvirðingar á. 25.7.2021 16:18
Íhugar að setja á laggirnar sóttvarnastofnun Heilbrigðisráðherra segir tímabært að horfast í augu við það að kórónuveiran verði hluti af okkar tilveru til lengri tíma. Því þarfnist heilbrigðiskerfi landsins varanlegrar styrkingar og að til greina komi að setja á laggirnar sérstaka sóttvarnastofnun. 25.7.2021 14:57
Engan áhuga á að prófa að hleypa veirunni inn á krabbameinsdeildir Yfirlæknir á Landspítalanum segir það vonbrigði hve illa bólusetningin virðist hemja veiruna meðal fólks þó að bólusetningin dragi verulega úr alvarlegum veikindum. 25.7.2021 14:20
Ráðherrar skuldi þjóðinni afsökunarbeiðni á kolrangri sóttvarnarstefnu Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins og frambjóðandi flokksins í komandi Alþingiskosningum, segir að ríkisstjórnin eigi að biðja þjóðina afsökunar á því sem hann segir kolranga sóttvarnarstefnu sem sé rekin gegn augljósum meirihlutavilja þjóðarinnar. 25.7.2021 13:55
Þorsteinn segir niðurstöðuna engan dóm yfir pólitískum ferli sínum Þorsteinn Sæmundsson mun ekki fá sæti á lista Miðflokksins fyrir komandi Alþingiskosningar, eftir ráðgefandi oddvitakjör flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Hann segir það engan dóm yfir pólitískum ferli sínum en viðurkennir að hann sé keppnismaður og sé ósáttur að því leyti að hann eigi nóg inni. 25.7.2021 13:25
Segist ekki hafa fengið neina beiðni um að slökkva á myndavélunum „Laugardalshöll er fjölnota hús og ekki ætluð sem gistiaðstaða," segir Birgir Bárðarson, framkvæmdastjóri Laugardalshallar. 25.7.2021 13:07
Veiran úti um allt samfélag, allt land og í öllum aldurshópum Yfirlögregluþjónn almannavarna segir að í þessari fjórðu bylgju faraldurins smiti hver og einn fleiri út frá sér en áður. Smit sé nú komið um allt land og finnst í öllum aldurshópum. 88 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru 54 utan sóttkvíar við greiningu. 25.7.2021 12:25
Fundu myndavélar í gistiaðstöðu fótboltastúlkna á Rey Cup Eftirlitsmyndavélar fundust um helgina í gistiaðstöðu fótbotlastúlkna á unglingsaldri á fótboltamótinu Rey Cup sem fram fer í Laugardal um helgina. 25.7.2021 11:59
Hádegisfréttir Bylgjunnar Eftirlitsmyndavélar fundust í gistiaðstöðu fótboltastúlkna á Rey Cup sem fram fer nú um helgina. Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu en fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan 12. 25.7.2021 11:56
88 greindust smitaðir innanlands 88 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þar af greindust sex smit í handahófssýnatökum en 82 í einkennasýnatökum. 14 af þeim sem greindust voru óbólusettir. 25.7.2021 10:44
Skiptar skoðanir um nýjar sóttvarnaaðgerðir á Sprengisandi Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Már Kristjánsson yfirlæknir á Landspítalanum munu skiptast á skoðunum um ráðstafanir vegna nýrrar bylgju Covidsmita í Sprengisandi á Bylgjunni klukkan tíu. 25.7.2021 09:59
Tíðindalítið hjá lögreglu fyrstu nótt takmarkana Greina má gríðarlegan mun á dagbók lögreglu frá því í nótt samanborið við aðfaranótt sunnudags í síðustu viku. Samkomutakmarkanir tóku gildi á miðnætti og lokuðu skemmtistaðir klukkan 11 og þurftu allir að vera komnir út fyrir miðnætti. 25.7.2021 09:09
Færanlegur forstjóri Umhverfisstofnunar Forstjóri Umhverfisstofnunar bregður oft undir sig betri fætinum og fer út á land með skrifstofuna sína en stofnunin er með starfsstöðvar á níu stöðum víðs vegar um landið. Forstjórinn segir að það verði mun meira úr verki þegar unnið er á landsbyggðinni í stað höfuðborgarinnar. 25.7.2021 09:03
Íbúar höfuðborgarsvæðisins sjá aftur til sólar í vikunni Veðurfræðingur segir að útlit sé fyrir að veðurblíðan á Norðausturlandi sé að síga á seinni hlutann. Hinsvegar fari hitatölur hækkandi á höfuðborgarsvæðinu. 25.7.2021 08:00