Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Síðasta myndin úr vél Johns Snorra Síðasta myndin úr GoPro-myndavél Johns Snorra Sigurjónssonar, sem hann var með á sér á K2 þegar hann fórst þar í byrjun febrúar, hefur verið birt á netinu. Sajid Sadpara, sonur Ali Sadpara, sem fórst með John í leiðangrinum, náði GoPro-myndavélinni úr jakka Johns þegar hann fann lík göngumannanna á mánudaginn var. 1.8.2021 10:20
Allt farið vel fram í Vestmannaeyjum um helgina Verslunarmannahelgin hefur farið afskaplega vel fram í Vestmannaeyjum. Varðstjóri lögreglunnar á svæðinu segir fólk almennt glatt og skemmtilegt. 1.8.2021 10:19
Kári Stefánsson og Gunnar Smári mæta í Sprengisand Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. 1.8.2021 09:47
Sóttkvíarbrjótur handtekinn fyrir líkamsárás Tveir menn voru handteknir í Kópavogi eftir líkamsárás í nótt. Við handtökuna kom í ljós að annar þeirra ætti að vera í sóttkví. 1.8.2021 07:17
Lenti lítilli flugvél á bensínstöð Viðstöddum brá heldur betur í brún í dag þegar lítilli flugvél var lent á plani bensínstöðvar N1 í Árnesi. Upphaflega hélt fólk að um brotlendingu væri að ræða og safnaðist saman á bensínstöðinni. 31.7.2021 22:01
Verslunarmannahelgi í farsóttarhúsi: „Ætli við stelpurnar tökum ekki bara Facetime og förum yfir stjörnuspána“ Margt ungt fólk mun verja verslunarmannahelginni í einangrun í farsóttarhúsi. Kona sem fréttastofa ræddi við ætlaði að skemmta sér á Djúpavogi um helgina en mun í staðinn skoða stjörnuspá í einangrun. 31.7.2021 21:00
Stuð og stemming á harmonikkufjöri á Borg í Grímsnesi Mikið stuð og stemming er á tjaldsvæðinu á Borg í Grímsnesi því þar eru harmoníkuleikarar, saxófónleikarar, trommuleikari og maður sem spilar á sög komnir saman til að skemmta sér og öðrum við dillandi tónlist og dans tjaldsvæðisgesta. 31.7.2021 20:04
„Ég er ekkert hrædd við þetta“ „Manni finnst maður mjög öruggur,“ segir heimilismaður á hjúkrunarheimilinu Grund, sem trúir að bóluefnin séu þegar búin að breyta miklu um áhrif veirunnar á daglegt líf. Enginn hefur greinst smitaður af Covid-19 á Grund frá því á þriðjudaginn, þegar starfsmaður og tveir heimilismenn sendu heila deild í sóttkví. 31.7.2021 19:42
Segir engar vísbendingar um að faraldurinn sé á niðurleið og hefur áhyggjur Yfirmaður smitrakningarteymisins segir engar vísbendingar um að faraldurinn sé á niðurleið og hefur áhyggjur af stöðunni. Aldrei hafa fleiri greinst með kórónuveiruna innanlands á einum degi og vegna álags getur smitrakningarteymið ekki hringt í þá sem þurfa í sóttkví. 31.7.2021 18:30
Fólk í sóttkví fær ekki að dvelja á farsóttarhúsum Heilbrigðisráðherra hefur tekið ákvörðun um að breyta reglugerð sinni um farsóttarhús þannig að húsin verði aðeins fyrir þá sem þurfa að vera í einangrun. Samningaviðræður eru einnig í gangi um að koma tveimur nýjum farsóttarhúsum á laggirnar. 31.7.2021 17:41
Fundu síma og tækjabúnað Johns Snorra Sími, myndavél og staðsetningarbúnaður göngugarpsins John Snorra hefur nú fundist. Þessu greinir félagi Johns Snorra frá á Twitter-síðu sinni. 31.7.2021 17:11
Aðeins „orðrómur“ að fólk sé að flykkjast til Eyja um helgina Þrátt fyrir að stærstu hátíðum landsins hafi verið aflýst eru fjölmargir Íslendingar á ferðalagi um landið og eru tjaldsvæði víða þéttsetin. Tjaldvörður í Vestmannaeyjum segir stöðuna þar þó afar ólíka því sem vant er um verslunarmannahelgi. 31.7.2021 16:36
Keyrði inn í Ísbúð Vesturbæjar Ökumaður bifreiðar keyrði inn í Ísbúð Vesturbæjar í Bæjarlind fyrr í dag. Engin alvarleg slys urðu á fólki en starfsfólk ísbúðarinnar er í töluverðu áfalli. 31.7.2021 15:56
Einn lagður inn á spítala með Covid-19 Einn var lagður inn á Landspítalann með Covid-19 í gær og eru nú samtals tíu Covid-sjúklingar inniliggjandi á spítalanum, þar af tveir á gjörgæslu. 31.7.2021 14:49
Nóg um að vera í uppsveitum Árnessýslu Mikill fjöldi fólks er nú í Uppsveitum Árnessýslu þó engin skipulögð dagskrá sé þar í gangi. Ferðamálafulltrúi svæðisins segir þrátt fyrir það sé mikla afþreyingu í boði fyrir fólk. Miklar þrumur og eldingar voru á svæðinu síðdegis í gær og í gærkvöldi. 31.7.2021 14:04
Viðbúið að sumir fari að ljúga til að losna fyrr úr einangrun Bólusett fólk í einangrun er margt í vafa um hvort nýjar reglur um styttri einangrunartíma, gildi fyrir það. Það veltur allt á mati lækna Covid-göngudeildarinnar sem hafa tekið símaviðtöl við smitaða einstaklinga og eru með góða yfirsýn yfir það til hverra styttri einangrunartími nær. 31.7.2021 13:56
Rakningarteymið nær ekki lengur að sinna öllum Svo margir greinast nú daglega með kórónuveirusmit að smitrakningarteymið nær ekki að hringja í alla þá sem eiga að fara í sóttkví. Nú eru þeir sem smitast beðnir að hafa sjálfir samband við þá sem þeir hafa verið í návígi við og sendir rakningarteymið aðeins á þá SMS með áminningu um að þeir séu komnir í sóttkví. 31.7.2021 12:17
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við ítarlega um faraldur kórónuveirunnar en aldrei hafa fleiri greinst smitaðir á einum degi. Ómögulegt er fyrir smitrakningarteymi að hringja í alla sem þurfa í sóttkví. 31.7.2021 12:00
Aldrei fleiri greinst á einum degi: 145 greindust innanlands Í gær greindust 145 einstaklingar með Covid-19 innanlands. Aldrei hafa fleiri greinst innanlands á einum degi. 31.7.2021 10:56
Allir heimilismenn virðast hafa sloppið við smit Enginn heimilismaður á hjúkrunarheimilinu Ási greindist smitaður af kórónuveirunni í skimun sem var gerð á þeim í gær. Starfsmaður hjúkrunarheimilisins greindist með veiruna fyrr í vikunni. 31.7.2021 09:53
Einstaklega róleg byrjun á helginni: „Hér er allt eins og blómstrið eina“ Fólk á ferð um landið skemmti sér fallega í nótt, allavega í þeim lögregluembættum sem Vísir náði tali af nú í morgunsárið. Þetta virðist ætla að vera róleg verslunarmannahelgi í tvö hundruð manna samkomubanni, lögreglumönnum til einstakrar ánægju. 31.7.2021 09:28
Handtekinn fyrir að yfirgefa farsóttahús fullur Lögregla handtók mann við Hlemm klukkan að verða ellefu í gærkvöldi en sá átti að vera í farsóttahúsi. Hann hafði yfirgefið farsóttahúsið ofurölvi í gærkvöldi og var sökum ástands síns vistaður í fangageymslu í nótt. 31.7.2021 07:18
„Við stöndum betur að vígi en meirihluti mannkyns“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segir að fólk þurfi að sýna sóttvarnayfirvöldum biðlund. Verið sé að fylgjast með þróun fjórðu bylgjunnar hér á landi og um tíu dagar séu þar til framhald sóttvarnaaðgerða skýrist. 30.7.2021 22:01
Segir ferðahug í fólki þrátt fyrir uppsveiflu Margir hafa sett sig í samband við Neytendasamtökin vegna breytinga eða afpöntunar utanlandsferða. Samskiptastjóri Play segir fólk hikandi við að bóka flug en að ferðahugur sé í fólki þrátt fyrir uppsveiflu í faraldrinum. 30.7.2021 21:00
„Ég held að þetta snúist fyrst og fremst um fræðslu“ Ný lög í Noregi sem skylda áhrifavalda til að merkja myndir sem búið er að eiga við eru skrýtin að mati áhrifavalds. Hún segir rökréttara að fræða ungt fólk um skaðsemi samfélagsmiðla og veltir því fyrir sér hvers vegna lögin taki einungis til áhrifavalda. 30.7.2021 20:00
Ofnæmistíminn í hámarki en varanleg lækning möguleg Landsmenn hafa kannski margir tekið eftir asparfræjum á sveimi um landið en þau líkjast helst snjókornum, stór og hvít. Fræin eru þó enginn ofnæmisvaldur, eins og margir hafa kannski haldið, heldur eru það frjóin sem ráðast á ónæmiskerfi fólks. 30.7.2021 19:47
FM957 kynnir hlaðvarpið Blökastið Strákarnir í FM95Blö gefa út fjóra hlaðvarpsþætti í mánuði til viðbótar við föstudagsþáttinn vinsæla. Fyrsti þátturinn er kominn út og lofa strákarnir góðri skemmtun. 30.7.2021 19:02
Sofa í bílnum með Covid-19 Dæmi eru um að Covid-sjúklingar hafi neyðst til þess að sofa í bílum sínum undanfarna daga vegna þess að þeir eiga ekki í önnur hús að venda. Farsóttarhús í Reykjavík eru yfirfull. 30.7.2021 18:41
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dæmi eru um að Covid-sjúklingar hafi neyðst til þess að sofa í bílum sínum undanfarna daga vegna þess að þeir eiga ekki í önnur hús að venda. Farsóttarhús í Reykjavík eru yfirfull og reynt er að mæta stöðunni með því að stytta einangrunartíma bólusettra covid-sjúklinga í tíu daga. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 30.7.2021 18:01
Sýnatökuprófin segja ekki bara já eða nei Það kemur fyrir að falskar jákvæðar niðurstöður komi út úr greiningu sýna hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Bæði getur verið um tæknileg frávik að ræða en einnig að út komi „mjög óafgerandi niðurstöður“ úr sýnatökunni. 30.7.2021 17:03
Fjögur til tíu prósent barna fæðist með tunguhaft: „Þetta er vefur sem skerðir hreyfigetuna“ Fjögur til tíu prósent barna fæðast með vara- eða tunguhaft. Talmeinafræðingur segir að fræða þurfi heilbrigðisstarfsfólk um vandann. 30.7.2021 16:56
„Er ekki einhver þefur af láglaunakvenna-fyrirlitningu hjá ykkur?“ Eflingarfólk gefur lítið fyrir kumpánlegar kveðjur Samfylkingar til verkalýðsstéttarinnar. 30.7.2021 15:19
„Svo stunda þær samfarir á manni eins og enginn sé morgundagurinn“ Húsflugufaraldur er í Grafarvogi og víðar. 30.7.2021 15:04
Óttast um þátttöku í mikilvægri klíniskri tilraun og vilja bólusetningu sem fyrst Foreldrar ellefu ára gamals drengs með Duchenne-sjúkdóminn hafa kallað eftir því að hann fái bólusetningu gegn Covid-19 hér á landi svo hann komist sem fyrst til Kanada, til þess að þátttaka þeirra í klíniskri tilraun á lyfi sem þau segja að hafi stórbætt lífsgæði drengsins og bróður hans, sem einnig er með Duchenne, sé ekki í hættu. Málið er í skoðun hjá sóttvarnaryfirvöldum. 30.7.2021 15:04
Stytta einangrun bólusettra niður í 10 daga Sóttvarnalæknir hefur tekið ákvörðun um að stytta einangrunartíma þeirra sem hafa smitast af Covid-19 ef þeir eru bólusettir og geta talist til „hraustra einstaklinga“. Þeir verða framvegis aðeins að vera í einangrun í tíu daga en ekki tvær vikur eins og hefur verið hingað til. 30.7.2021 14:55
Sjúklingur á krabbameinsdeild fékk falska niðurstöðu Sjúklingur og starfsmaður á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala sem greindust með Covid-19 í fyrradag eru lausir úr einangrun eftir að neikvæð niðurstaða kom úr seinni sýnatöku. 30.7.2021 13:48
Ætla að rannsaka áhrif Covid-19 bóluefna á tíðahring kvenna Til stendur að hefja rannsókn á áhrifum bóluefna gegn Covid-19 á tíðahring kvenna hér á landi. Rannsóknin verður unnin undir forystu Lyfjastofnunar og í samvinnu við landlækni og sóttvarnalækni. 30.7.2021 12:27
Bjarkey færð í efsta sæti í Norðaustur Óli Halldórsson, sem sigraði í forvali flokksins, greinir frá því að alvarleg veikindi hafi komið upp hjá eiginkonu hans. 30.7.2021 12:13
„Það er grátið heima hjá mér“ Eyjamenn reyna ekki að leyna því að frestun á Þjóðhátíð er gríðarlegur skellur, ekki bara fjárhagslega heldur ekki síður tilfinningalega. 30.7.2021 11:45
„Við eigum að halda áfram að njóta góðs af því að vera vel bólusett“ Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins segir lítið meðalhóf felast í að ráðast í harðar aðgerðir á meðan lítill hluti bólusettra veikist alvarlega af Covid-19. Ljóst væri að án bólusetninga væri staðan allt önnur hér á landi. 30.7.2021 11:45
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar greinum við frá stöðunni í kórónuveirufaraldrinum en mikill fjöldi fólks heldur áfram að greinast með veiruna. Við förum yfir framboðsmál fyrir komandi alþingiskosningar og fleira. 30.7.2021 11:33
Covid-smitaðir fá ekki pláss í einangrun Farsóttarhús hins opinbera eru sprungin og Covid-smitaðir komast ekki að, á sama tíma og fjöldi ferðamanna dvelur í sóttkví en ekki einangrun. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að þar gæti komið til álita að hefja gjaldtöku fyrir sóttkvíardvöl, enda myndi það létta álagið á húsunum. 30.7.2021 11:20
Metfjöldi greindist í fyrradag Nú liggur fyrir endanleg tala þeirra sem greindust með kórónuveiruna innanlands í fyrradag, 129 manns. Er það mesti fjöldi sem greinst hefur á einum degi hér á landi. Fyrra met nýgreindra var 123, en sá fjöldi greindist á mánudag og aftur á þriðjudag. 30.7.2021 10:59
112 greindust innanlands Í gær greindust 112 einstaklingar innanlands með Covid-19. Þar af voru 35 óbólusettir og tveir hálfbólusettir. 73 voru fullbólusettir. Áttatíu voru utan sóttkvíar við greiningu. 30.7.2021 10:46
María og Þór leiða lista sósíalista í Kraganum Sósíalistar hafa birt framboðslista flokksins í Suðvesturkjördæmi, Kraganum svokallaða, fyrir komandi Alþingiskosningar. María Pétursdóttir skipar fyrsta sæti listans og Þór Saari, fyrrverandi alþingismaður er í öðru sæti. 30.7.2021 10:07