Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Veltir því upp hvort kórónuveiran sé trójuhestur Hart var tekist á um bólusetningar á Sprengisandi í morgun. Tómas Guðbjartsson læknir og Arnar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður ræddu mörkin milli persónufrelsis og takmarkana vegna almannahættu. 19.12.2021 13:31
Sóttvarnarreglur brotnar á Baggalútstónleikum: „Talsverð ölvun á mannskapnum“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að sóttvarnarreglur hafi verið brotnar á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Þar megi meðal annars nefna tónleika Baggalúts í Háskólabíói í gærkvöldi. 19.12.2021 12:52
Gamla fólkið á Höfn látið bíða inn á baðherbergi á meðan herbergisfélaginn deyr Íbúar á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn í Hornafirði þurfa að deila herbergi og salerni með öðrum. Þá geta íbúarnir ekki tekið á móti aðstandendum í herbergin sín því þau eru svo lítil og vilji íbúarnir komast í sturtu þarf að panta það fyrir fram. „Þegar við liggjum svo banaleguna er herbergisfélagi okkar færður inn á baðherbergi svo við getum átt næði síðustu ævistundirnar með okkar ástvinum,“ segja íbúarnir meðal annars í opnu bréfi til heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnarinnar. 19.12.2021 12:16
„Það er eitthvað mikið að gerast“ Prófessor í líftölfræði segir ótrúlegan vöxt í faraldrinum innanlands og að staðan sé tvísýn, einkum í ljósi þess að önnur stór bylgja drifin áfram af ómíkron-afbrigðinu gæti skollið á strax eftir áramót. Nýgengi smitaðra hefur aldrei verið hærra að sögn sóttvarnalæknis. 19.12.2021 12:09
Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður Viðreisnar segir það ekki á hendi einnrar aðildarþjóðar NATO að ákveða viðbrögð við mögulegri innrás Rússa í Úkraínu. Við ræðum við hana í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 19.12.2021 11:58
Vilja fá óháðan aðila til að taka út veitingu undanþága Þingmenn Pírata og Flokks fólksins hafa lagt fram beiðni um skýrslu frá innanríkisráðherra um undanþágur frá aldursákvæði hjúskaparlaga. Beiðnin varðar heimild til barna yngri en 18 ára til að ganga í hjónaband. 19.12.2021 10:14
Sprengisandur: Bólusetningarskylda, fjárlögin, kristin trú og blóðmerahald Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. 19.12.2021 09:44
200 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Tvö hundruð manns greindust með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt bráðabirgðatölum Almannavarna. Eins og síðustu daga var aðeins tæplega helmingur nýsmitaðra í sóttkví, eða 76 manns. 19.12.2021 09:28
Viðkvæmur hópur bólusettur á þriðjudag og aðrir beðnir um að koma annan dag Þriðjudaginn 21. desember stendur til að bólusetja viðkvæman hóp í Laugardalshöll og er fólk beðið um að koma frekar aðra daga í bólusetningu ef það mögulega getur. 19.12.2021 09:25
Upplýsingar á „óleyfilegu tungumáli“ og geymsluþolsmerkingum breytt Matvælastofnun varar neytendur við neyslu Samyang hot chicken flavor cup ramen, sem voru fluttar inn og seldar af Verslunin Álfheimar. Ofnæmis- og óþolsvaldar eru einungis merktar á „óleyfilegu tungumáli“, segir á vef MAST. 19.12.2021 09:13
Slökkviliðið biður fólk að passa sig á „covid fjandanum“ Nóg hefur verið að gera hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins síðasta sólarhringinn. Slökkviliðið biður fólk um að fara varlega og passa sig á „covid fjandanum.“ 19.12.2021 08:43
Enginn Emil í Kattholti Borgarleikhúsið hefur tekið ákvörðun um að fella niður sýningu á leikritinu Emil í Kattholti í dag. 19.12.2021 08:25
Börn og eiginkona fá bætur vegna húsleitar Landsréttur féllst á að greiða bæri konu, auk ólögráða barna hennar, bætur vegna húsleitar á heimili þeirra. Aðgerðir lögreglu beindust að eiginmanni konunnar en hann var þar að auki faðir barnanna, sem kröfðust bóta vegna aðgerða lögreglu. 19.12.2021 07:48
Grunur um brot á sóttvarnalögum í miðbænum Lögreglan stóð í ströngu í gærkvöldi og í nótt en 116 mál voru skráð á málaskrá. Þar af voru rúmlega tuttugu tilkynningar um hávaða. 19.12.2021 07:24
Sannarlega ekki slæmt að gera tilraunir á börnum Magnús Karl Magnússon, prófessor í lyfja- og eiturefnafræði við Læknadeild Háskóla Íslands, biðlar til foreldra að láta sér ekki niðurstöður úr tilraunum sem hafa verið gerðar á börnum með bóluefni sem vind um eyru þjóta. „Við erum svo heppin að hópur barna hefur nú þegar tekið að sér að taka þátt í tilraun og sýnt fram á gagnsemi,“ segir hann í færslu á Facebook. 18.12.2021 21:23
Ár frá hamförunum á Seyðisfirði: „Þetta var erfiður dagur í dag“ Í dag er ár liðið frá því að aurskriðurnar féllu á Seyðisfirði, sem rifu með tíu hús og skemmdu þrjú til viðbótar. Seyðfirðingar minntust atburðarins með fallegri athöfn í dag þar sem listaverk var afhjúpað sem sýnir húsin sem fóru með skriðunum máluð á litlar upplýstar glerkrukkur. 18.12.2021 21:16
Erfiðara að sitja í einangrun en að setja sig inn í fjárlögin Varaþingmenn Viðreisnar eru klárir í slaginn en þeir þurfa að kynna sér fjárlagafrumvarpið um helgina til að geta tekið þátt í umræðum á þinginu um það í næstu viku. Allir þingmenn Viðreisnar hafa greinst með kórónuveiruna. Það er einstakt í sögunni að svo stór þingflokkur sé alfarið skipaður varamönnum vegna veikinda. 18.12.2021 20:35
Fagna sigri gyðinga fyrir meira en tvö þúsund árum á ljósahátíðinni Á sama tíma og margir Íslendingar búa sig undir jólin er íslenska gyðingasamfélagið búið að halda upp á sína hátíð. Nokkur hundruð manns tilheyra samfélaginu en rabbíni segist þakklátur fyrir stuðningin sem yfirvöld og Íslendingar hafa veitt þeim. 18.12.2021 19:42
Í beinni: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar tvö förum við ítarlega í stöðuna á Alþingi vegna covidveikinda þingmanna. Við heyrum í konu sem segir starfsfólk Læknavaktarinar hafa afskrifað hana sem móðursjúka þegar hún leitaði þangað vegna veikinda barnungs sonar hennar en hann reyndist síðan með heilabæðingu. 18.12.2021 18:30
Með húmorinn að vopni við mótmæli gegn bólusetningum barna Andstæðingar bólusetninga og aðgerða stjórnvalda gegn heimsfaraldrinum virðast hafa þróað með sér örlítinn húmor og smekk fyrir orðaleikjum. Á annað hundrað manns tóku þátt í mótmælum gegn bólusetningum barna í dag og voru slagorð mótmælenda mörg í frumlegri kantinum. 18.12.2021 17:51
Keyrt á gangandi vegfaranda í miðbænum Keyrt var á gangandi vegfaranda á Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur rétt eftir klukkan fimm síðdegis í dag. 18.12.2021 17:17
Stjúpmóðir sökuð um að hafa haft stjúpbörn sín í nauðungarvinnu Kona hefur verið ákærð fyrir mannsal en hún er sökuð um að hafa haft fjögur stjúpbörn sín í þrælkunarvinnu. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrr í þessum mánuði, eftir ákæru héraðssaksóknara. 18.12.2021 15:49
Ákvörðun Persónuverndar hafi áhrif á skólastarf um land allt Reykjavíkurborg telur að ákvörðun Persónuverndar, sem varðar innleiðingu á upplýsingakerfinu Seesaw, muni hafa áhrif á skólastarf víða um land. Reykjavíkurborg leggur nú mat á réttarstöðu sína. 18.12.2021 14:59
„Hann öskraði að hann vildi deyja út af verkjum“ Móðir átta ára gamals drengs segist hafa mætt hroka og skilningsleysi á Læknavaktinni þegar hún hringdi inn vegna átta ára sonar síns, sem var þjakaður úr verkjum. Í ljós kom þegar drengurinn var fluttur á spítala að hann væri með heilablæðingu. 18.12.2021 14:16
Bjarni Harðar með 32 nýjar bækur fyrir jól „Það er ekki hægt að líka því saman hvað það er miklu skemmtilegra að vera bóksali heldur en alþingismaður“, segir Bjarni Harðarson á Selfossi en hann er að gefa út 32 titla af nýjum bókum fyrir jól. Bjarni, eða Bjarni Harðar eins og hann er alltaf kallaður, og Elín Gunnlaugsdóttir, eiginkona hans fengu í vikunni menningarverðlaun Árborgar fyrir árið 2021. 18.12.2021 14:00
„Þetta hefði getað farið mjög illa ef þetta hefði fengið að krauma lengur“ Eldur kom upp í bakhúsi á Frakkastíg í miðbæ Reykjavíkur rétt fyrir klukkan níu í morgun. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var að störfum fram eftir morgni en vel gekk að slökkva eldinn. Enginn var inni í húsinu þegar slökkviliðið kom á vettvang. 18.12.2021 13:00
Viðreisn undirlögð af veirunni Fjórir af fimm þingmönnum Viðreisnar hafa nú greinst með kórónuveiruna. Þingflokksformaðurinn bíður eftir niðurstöðu úr PCR-prófi en er ekki vongóð um að sleppa. 18.12.2021 12:15
Verkefni lögreglu fjölbreytt á Twitter-maraþon kvöldi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veitti almenningi innsýn í störf sín á Twitter í nótt, þar sem hún tísti um hvert verkefni og tilkynningu sem henni barst. Talsvert var um að vera og voru verkefnin samtals 73. Töluvert var um ölvun og ofbeldi. 18.12.2021 12:12
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar fjöllum við ítarlega um covid veikinidi alþingismanna og heyrum í nokkrum þeirra sem og forseta Alþingis. Nú eru miklar annir á þinginu við afgreiðslu fjárlaga fyrir áramót. 18.12.2021 11:45
Stálheppinn Þjóðverji vann tæpa ellefu milljarða Heppinn Þjóverji vann fyrsta vinning í EuroJackpot í gærkvöldi en vinningurinn hljóðaði upp á rúma 10,7 milljarða íslenskra króna. 18.12.2021 10:15
Öll saman í litlu herbergi og ekki hægt að komast hjá því að smitast Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar er annar þingmaður flokksins sem greinist með kórónuveiruna. Hann er slappur en nokkuð brattur þrátt fyrir það og er kominn í einangrun austur fyrir fjall, þar sem hann verður einn yfir jólin. 18.12.2021 10:08
186 greindust smitaðir af veirunni í gær Í gær greindust 186 smitaðir af kórónuveirunni innanlands. Alls voru 72 af þeim í sóttkví. 18.12.2021 09:41
Búið að slökkva í eldi í bakhúsi á Frakkastíg Eldur kom upp í viðbyggingu við hús á Frakkastíg 13 í miðbæ Reykjavíkur. Slökkvilið hefur nú lokið störfum og er að fara af vettvangi. 18.12.2021 08:51
Mest lesnu viðhorfspistlarnir 2021: Kynferðisofbeldi, faraldurinn, fiskeldi og Gísli Marteinn Mest lesnu viðhorfspistlar ársins varpa skýru ljósi á hvað var efst á baugi á árinu. 18.12.2021 08:01
Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir ítrekaðan ölvunarakstur Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára og tveggja mánaða fangelsi fyrir ítrekaðan ölvunarakstur þegar hann hafði auk þess verið sviptur ökuréttindum. Landsréttur dæmdi í málinu í gær og þyngdi dóm héraðsdóms talsvert. 18.12.2021 07:59
Tekinn á 170 km/klst og talinn Covid-smitaður Ökumaður sem var tekinn við hraðakstur af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær er grunaður um að hafa átt að vera í einangrun. 18.12.2021 07:32
Hvetur fólk til að fækka jólagjöfunum Sífellt fleirum er umhugað um kolefnisspor jólahátíðarinnar og getur reynst erfitt að halda í hófsemisstefnu þegar gjafakvíðinn fer að minna á sig. Finnst mörgum nógu erfitt að velja gjafir við hæfi fyrir vini og ættingja áður en loftslagsáhyggjurnar eru einnig teknar með inn í reikninginn. 18.12.2021 07:01
Sjálfstæðisflokkurinn þarf aðeins að stoppa Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hefur áhyggjur af sjálfstæði Íslands og segir að honum hafi til að mynda litist afskaplega illa á þriðja orkupakkann á sínum tíma. Sjálfstæðisflokkurinn þarf að doka við og spyrja sig fyrir hvað hann stendur, segir útgerðarmaðurinn. 18.12.2021 07:01
Slagorð úr vopnabúri hernaðarandstæðinga nýtt gegn bólusetningum barna Hernaðarandstæðingar eru afar ósáttir við að andstæðingar bólusetninga skuli nota þekkt slagorð úr þeirra vopnabúri. Boðað hefur verið til mótmæla þeirra sem gjalda varhug við bólusetningum undir yfirskriftinni Friðarganga. 17.12.2021 23:00
Þorgerður Katrín smituð af Covid: „Erfiðara að geta ekki verið með mínu allra besta fólki“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, greindist með Covid-19 í dag. Hún er komin í einangrun á Suðurlandi en segist búast við því að þrír skammtar af bóluefnum muni gera næstu daga bærilegri. 17.12.2021 22:15
„Vonandi eru þetta endalokin nú í desember 2021“ Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða tveimur sakborningum í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum 610 milljón krónur samanlagt í bætur. Ragnar Aðalsteinsson segir um áfellisdóm að ræða yfir íslenska ríkinu. 17.12.2021 22:00
Oddný með Covid: „Enginn vill vera í einangrun yfir jólin“ Oddný Harðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar, er ein þeirra þingmanna sem greinst hefur með Covid-19. Hún er komin í einangrun og segir það vægast sagt ekki gaman. Enginn vilji vera í einangrun um jólin. 17.12.2021 21:05
Ef þú brýtur af þér í kvöld endarðu á Twitter hjá löggunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að veita fólki innsýn í sín störf í nótt með beinni lýsingu á samfélagsmiðlinum Twitter. Þar birtast nú færslur með lýsingu á öllum útköllum og tilkynningum sem henni berast. 17.12.2021 20:29
Þriggja bíla árekstur við Sprengisand Þriggja bíla árekstur varð í mikilli umferð við Sprengisand undir kvöld. Lögreglan segir að tveir bílar hafi verið dregnir af vettvangi. 17.12.2021 20:22
„Þetta er búið að vera stórkostlegt líf“ Ég hef fengið mörg tækifæri til þess að gefast upp og það hafa komið fram margar raddir sem segja mér að hætta þessu, segir Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk fyrstur manna grædda á sig tvo handleggi fyrr á árinu. Hann segir uppgjöf hins vegar aldrei hafa verið inni í myndinni og horfir bjartsýnn fram á veginn. 17.12.2021 20:00