Innlent

Upplýsingar á „óleyfilegu tungumáli“ og geymsluþolsmerkingum breytt

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ofnæmis- og óþolsvaldar eru merktir á óleyfilegu tungumáli og þá hefur geymsluþolsmerkingum verið breytt.
Ofnæmis- og óþolsvaldar eru merktir á óleyfilegu tungumáli og þá hefur geymsluþolsmerkingum verið breytt.

Matvælastofnun varar neytendur við neyslu Samyang hot chicken flavor cup ramen, sem voru fluttar inn og seldar af Verslunin Álfheimar. Ofnæmis- og óþolsvaldar eru einungis merktar á „óleyfilegu tungumáli“, segir á vef MAST.

Þá segir að geymsluþolsmerkingum vörunnar hafi verið breytt.

Heilbrigðiseftirlitið hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum en um er að ræða Best fyrir dagsetninguna 25.1.2023 og strikamerið 8801073210776.

Neytendum sem keypta hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga.

Tilkynningin á vef MAST.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×