Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Réðust á einstakling vopnaðir kylfum og hníf Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í Kópavogi um klukkan 19.30. Árásarmenn virðast hafa verið fleiri en einn og eru grunaðir um að hafa beitt kylfum og hníf. 7.1.2022 06:04
Dagurinn sem fimm þjóðþekktir karlmenn stigu til hliðar Hún var hröð atburðarrásin í dag þegar fimm þjóðþekktir karlmenn ýmist létu af störfum eða fóru í leyfi í tengslum við ásakanir ungrar konu um að fjórir þeirra hafi brotið á henni á meðan hún átti í ástarsambandi við vin þeirra. 6.1.2022 23:30
Niðurstöður ÍE gætu reynst hjálplegar við ákvörðun sóttvarnaráðstafana Yfir þúsund manns greindust með kórónuveirunna innanlands í gær og metfjöldi á landamærunum. Sóttvarnalæknir er farinn að huga að tillögum um næstu sóttvarnaaðgerðir. Íslensk erfðagreining stefnir á að kanna raunverulega útbreiðslu veirunnar í næstu viku og segir sóttvarnalæknir að það muni reynast mjög hjálplegt. 6.1.2022 23:24
Segist saklaus en sjá eftir að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson segist saklaus af þeim ásökunum sem bornar hafa verið á hann um kynferðislegt ofbeldi í garð ungrar konu. Hann viðurkennir þó að hafa farið yfir mörk í einkalífi fólks með því að hafa farið inn í herbergi sem hann hafi ekki átt að fara inn í. 6.1.2022 22:38
„Gæsluvarðhald nauðsynlegt til þess að verja líf og limi samborgara“ Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um að maður skuli sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi vegna sex ætlaðra alvarlegra ofbeldisbrota. Maðurinn var nýlega handtekinn vopnaður haglabyssu og sveðju á Höfða í Reykjavík. 6.1.2022 22:05
Sláandi en ánægjuleg tíðindi leynist í Covid-tölum síðustu daga Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir ónæmisfræđideildar Landspítala og professor í ónæmisfræđi viđ læknadeild HÍ, segir að sláandi en ánægjuleg tíðindi birtist þegar rýnt er í Covid-19 tölfræði frá 29. desember til gærdagsins. 6.1.2022 22:00
„Ég þrái að lifa þann dag að ég þurfi ekki að standa í þessu máli“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að íslensk stjórnvöld muni una dómi héraðsdóms, sem gerir Erlu Bolladóttur kleift að höfða mál gegn ríkinu fyrir endurupptökudómstól. Erla gæti nú fengið tækifæri til að krefjast skaðabóta fyrir Hæstarétti, en hún var á sínum tíma fundin sek um rangar sakargiftir. 6.1.2022 21:25
Aftur með veiruna eftir að hafa smitast á Everest Heimir Fannar Hallgrímsson, lögfræðingur og fasteignasali sem kleif Everest með félaga sínum í fyrra, er kominn með kórónuveiruna – sem væri kannski ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Heimir er smitaður í annað sinn. Hann var í hlíðum Everest þegar hann sýktist í fyrra skiptið og aðstæður í einangruninni nú þess vegna nokkuð frábrugðnar því sem áður var. 6.1.2022 21:00
„Drullusokkar“ í Vestmannaeyjum Hann er stoltur af því að vera „Drullusokkur“ númer eitt en hér erum við að tala um Tryggva Sigurðsson, sem er einn af stofnendum bifhjólasamtakanna „Drullusokkar“ í Vestmannaeyjum. Tryggvi er líka mikill listasmiður þegar kemur að bátslíkönum. 6.1.2022 20:16
Á þriðja tug bótakrafna komnar fram vegna alvarlegra aukaverkana Sjúkratryggingum hefur þegar borist 23 bótakröfur vegna gruns um alvarlega aukaverkun í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. Lyfjastofnun hefur borist 35 tilkynningar um dauðsföll í kjölfar hennar. Forstjórinn segir að í einhverjum tilvikum sé hægt að tengja alvarlegar aukaverkanir við bóluefni. 6.1.2022 20:00
Tjón upp á tugi milljóna og annað flóð í aðsigi Tugmilljóna króna tjón varð í frystihúsi útgerðarinnar Vísis í Grindavík í dag þegar sjór flæddi inn í frystiklefann í óveðri. Viðbragðsaðilar dældu upp gífurlegu vatnsmagni og starfsfólk útgerðarinnar reyndi að bjarga því sem bjargað varð. 6.1.2022 20:00
Sjúklingar sendir heim af Vogi vegna hópsmits Sex sjúklingar og fjórir starfsmenn á sjúkrahúsinu Vogi greindust smitaðir af kórónuveirunni í hraðprófi í dag. Sjúklingarnir hafa verið sendir heim í sóttkví og yfirlæknir gerir ráð fyrir því að starfsemi á Vogi leggist niður á næstu dögum. 6.1.2022 19:53
Telur vendingar dagsins merki um að þolendum virðist trúað Tanja Ísfjörð, ein af stjórnarmeðlimum aðgerðarsinnahópsins Öfga, telur að sú atburðarrás sem fór af stað í dag þegar fimm þjóðþekktir einstaklingar stigu til hliðar eftir að hafa verið bendlaðir við mál ungra konu sem sakar þá um að hafa brotið á sér, séu merki um að fólk virðist trúa þolendum. 6.1.2022 19:29
Vill að Sindra verði gert að birta dóminn á Twitter Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, vill að forsendur dóms í máli gegn Sindra Þór Sigríðarssyni Hilmarssyni verði birtar á Twitter. Málið varðar meint ærumeiðandi ummæli Sindra um tónlistarmanninn en aðalmeðferð fer fram þann 18. janúar næstkomandi. 6.1.2022 19:03
Starfsmenn ráðuneytisins ekki með 0,5 prómill í blóðinu alla daga Kaup Fangelsismálastofnunar á tóbaki sem selt er áfram til fanga skýrir þá háu upphæð sem greint var frá í gær að hefði farið frá dómsmálaráðuneytinu í kaup á áfengi og tóbak á síðasta ári. Tæpar 25 milljónir fóru í kaup á tóbaki fyrir fangelsin en tóbaksnotkun fanga fer minnkandi milli ára. Dómsmálaráðuneytið sjálft keypti áfengi fyrir 163 þúsund krónur á síðasta ári. 6.1.2022 19:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Mál 24 ára konu sem kom fram í hlaðvarpsþættinum Eigin konur á þriðjudag og sakaði þrjá miðaldra menn um að hafa brotið á sér kynferðislega í sumarbústað árið 2020 hefur orðið til þess að tjéðir menn hafa látið af störfum sínum sem stjórnendur fyrirtækja og félaga. Að auki hafa tveir aðrir hætt störfum sínum, í það minnsta tímabundið. 6.1.2022 18:01
Logi Bergmann í leyfi frá K100 Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson, sem stjórnar Síðdegisþættinum á K100, segist ætla að fara í frí. Hann lýsti þessu yfir í upphafi þáttarins klukkan 16 núna síðdegis. 6.1.2022 17:18
Bóluefnin hvorki tilraunalyf né með neyðarleyfi Ekkert þeirra bóluefna sem notuð hafa verið gegn COVID-19 hér á landi er með neyðarleyfi eða skilgreint sem tilraunalyf. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Lyfjastofnun sem segir að bóluefnunum hafi verið veitt fullgilt markaðsleyfi. Leyfið sé háð vel skilgreindum skilyrðum og teljist því skilyrt markaðsleyfi. 6.1.2022 17:10
Kjörsókn yngri kjósenda minnkaði mest en jókst hjá þeim elstu Kosningaþátttaka dróst saman í öllum aldurshópum í síðustu alþingiskosningum miðað við kosningarnar 2017, að undanskildum tveimur elstu aldurshópunum. 6.1.2022 16:47
Þórður Már segir sig úr stjórn Festi vegna ásakana Þórður Már Jóhannesson, stjórnarformaður Festi, hefur óskað eftir því að láta af störfum sem stjórnarmaður í félaginu og um leið sem stjórnarformaður. Stjórnin féllst á það. 6.1.2022 16:06
Linda Dröfn kemur í stað Viðars Linda Dröfn Gunnarsdóttir hefur verið ráðin tímabundið í starf framkvæmdastjóra Eflingar og hóf störf þann 13. desember síðastliðinn. 6.1.2022 15:37
„Heilsustofnun hefur ekkert að fela“ Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunarinnar í Hveragerði segir stofnunina ekkert hafa að fela eftir að Kjarninn greindi frá úttekt eftirlitsdeildar Sjúkratrygginga Íslands, þar sem fram kom að Náttúrulækningafélag Íslands, eigandi stofnunarinnar, hefði með ólögmætum hætti tekið um 600 milljónir úr starfsemi Heilsustofnunarinnar. Þórir segir hverri einustu krónu hafa verið veitt til að þjónusta sjúklinga í samræmi við þjónustusamning. 6.1.2022 14:59
Arnar Grant farinn í tímabundið leyfi Arnar Grant, einkaþjálfari hjá World Class, er farinn í tímabundið leyfi frá störfum í kjölfar frásagnar ungrar konu um ástarsamband þeirra Arnars. Hún sakar vini hans um að hafa brotið á sér kynferðislega fyrir framan hann. 6.1.2022 14:47
Prófessor emeritus telur ásakanir Bergsveins hæpnar Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur leitað til Helga Þorlákssonar sagnfræðings vegna máls sem snýr að ásökunum Bergsveins Birgissonar sagnfræðings og rithöfundar um ritstuld. 6.1.2022 14:36
Hreggviður Jónsson stígur til hliðar vegna ásakana Hreggviður Jónsson, stjórnarformaður og aðaleigandi Veritas, stígur til hliðar úr stjórn Veritas og stjórnum tengdra fyrirtækja. 6.1.2022 14:23
Stjórnvöld ætla ekki að áfrýja Íslensk stjórnvöld ætla ekki að áfrýja ógildingu Héraðsdóms Reykjavíkur á úrskurði endurupptökunefndar í máli Erlu Bolladóttur. Það þýðir að hún geti farið með sitt mál fyrir nýjan endurupptökudómstól og þaðan í Hæstarétt. 6.1.2022 14:02
Fullbólusettur einstaklingur með ómíkron á gjörgæslu Fullbólusettur einstaklingur sem greindist smitaður af ómíkron afbrigði kórónuveirunnar er meðal þeirra sjö einstaklinga sem liggja nú á gjörgæslu með Covid-19 samkvæmt upplýsingum frá Landspítala. 6.1.2022 13:51
Hætt að svara fyrirspurnum um niðurstöðu raðgreininga Unnið er að því bæta aðgengi fólks sem greinst hefur með kórónuveiruna að niðurstöðu raðgreiningar og vonar embætti landlæknis að upplýsingarnar verði aðgengilegar á Heilsuveru á næstu dögum. 6.1.2022 13:30
Ari Edwald farinn í tímabundið leyfi vegna ásakana um kynferðisbrot Ari Edwald, framkvæmdastjóri Ísey útflutnings, dótturfélags Mjólkursamsölunnar, er kominn í tímabundið leyfi vegna ásakana um kynferðisofbeldi. Ari óskaði eftir að fara í leyfi sjálfur. 6.1.2022 13:10
Íslendingar að koma heim eftir hátíðirnar skýri metfjölda smitaðra Þriðja daginn í röð greindust yfir þúsund manns með kórónuveirunna innanlands í gær en metfjöldi greindist á landamærunum. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að um hálfgert einsdæmi hafi verið að ræða þar sem Íslendingar eru í miklum mæli að koma aftur heim eftir frí erlendis. 6.1.2022 13:01
600 milljóna ólögmæt úttekt úr rekstri Heilsustofnunarinnar í Hveragerði Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ), eigandi Heilsustofnunarinnar í Hveragerði, tók um 600 milljónir króna út úr stofnuninni á fimmtán árum með ólögmætum hætti. Þetta er niðurstaða úttektar eftirlitsdeildar Sjúkratrygginga Íslands á Heilsutofnuninni sem Kjarninn birtir ítarlega umfjöllun um í dag. 6.1.2022 12:54
Stórtjón hjá Vísi í Grindavík eftir sjóganginn Sjór hefur gengið á land í Grindavík frá því snemma í morgun en háflóð er á svæðinu. Viðbragðsaðilar hafa staðið í ströngu við að dæla því vatni sem borist hefur á land aftur á sinn stað en frystihús Vísis varð straumlaust og starfsemi liggur niðri vegna vatns sem flæðir um ganga þess. 6.1.2022 12:43
360 börn voru bólusett á Selfossi í gær Bólusetningar barna hófust á Selfossi í gær þegar um 360 börn voru bólusett. Heilbrigðisstofnanir um land allt undirbúa nú bólusetningu barna á aldrinum fimm til ellefu ára. 6.1.2022 12:30
Fylgstu með lægðinni í skjóli Djúp lægð gengur nú yfir landið og geisaði víða stormur af fullum þunga í nótt. Að sögn Veðurstofunnar er versta veðrið nú afstaðið en ekki er búist við því að lægðin taki að grynnast og fjarlægjast landið fyrr en seint í dag. 6.1.2022 11:47
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar á Bylgjunni tökum við stöðuna á flóðunum í Grindavík en þar hefur sjór gengið á land í allan morgun. 6.1.2022 11:40
Leigubílsstjórar telja Sigurð Inga hafa gengið á bak orða sinna Afar þungt hljóð er í leigubílsstjórum vegna frumvarps Sigurðar Inga Jóhannssonar ráðherra samgangna sem gengur í grófum dráttum út á að gefa starfsemi leigubílaaksturs frjálsa. 6.1.2022 11:00
1.063 greindust innanlands og metfjöldi á landamærum 1.063 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 44 prósent af sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu og 56 prósent utan sóttkvíar. 6.1.2022 10:54
Tveir karlmenn og kona ákærð fyrir amfetamínframleiðslu í Kjós Héraðssaksóknari hefur ákært tvo karlmenn og konu fyrir amfetamínframleiðslu í sumarbústað í Kjós. Mennirnir, Jónas Árni Lúðvíksson og Steingrímur Þór Ólafsson, eru báðir með dóma á bakinu; Jónas hlaut dóm í Papeyjarmálinu svokallaða árið 2009 og Steingrímur var framseldur til Íslands frá Venesúela í tengslum við VSK-málið svokallað. 6.1.2022 10:45
Allt á floti í Grindavík Mikill viðbúnaður er í Grindavík vegna flóðs og öldugangs. Búið er að loka hafnarsvæðið af og frystihúsið er óstarfhæft. Það er bæði straumlaust og sjór flæðir um gólf hússins. 6.1.2022 10:13
32 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19 32 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og fjölgar þeim um tvo milli daga. 6.1.2022 10:02
Sigríður Hulda vill fyrsta sætið hjá Sjálfstæðismönnum í Garðabæ Sigríður Hulda Jónsdóttir, bæjarfulltrúi í Garðabæ, varaformaður bæjarráðs og formaður skólanefndar, hefur ákveðið að bjóða sig fram í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðifélaganna í Garðabæ sem haldið verður 5. mars næstkomandi í tengslum við sveitarstjórnarkosningarnar í maí. 6.1.2022 07:56
Langflest verkefni björgunarsveitanna í nótt foktengd Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir að langflest verkefni björgunarsveitanna í nótt hafi verið foktengd. Ekki hafi verið mikið um útköll á hafnarsvæðum eða tengd sjó. 6.1.2022 07:50
Aðgerðastjórn virkjuð og um 70 útköllum sinnt vegna foktjóns Aðgerðastjórn var virkjuð um klukkan 22.45 í gærkvöldi vegna foktilkynninga en þrátt fyrir viðvaranir í fjölmiðlum í gær um yfirvofandi veðurofsa fóru viðbragðsaðilar í fjölda útkalla. 6.1.2022 06:31
„Þetta er mjög öflug lægð“ Veðurfræðingur á Veðurstofunni segir að lægðin fari af stað eins og við var að búast. Lægðin er þó ekki búin enn og veður mun líklega koma til með að ná hámarki á miðnætti. Appelsínugular og gular viðvaranir eru í gildi á Suðvesturhorninu í dag, og flestar í gildi til klukkan fimm eða sex í fyrramálið. 6.1.2022 00:01
Björgunarsveitirnar farnar að finna fyrir óveðrinu Kvöldið er svo sannarlega hafið hjá björgunarsveitum víðsvegar á landinu. Útköllum í tengslum við óveður sem nú gengur yfir Suðvesturland og Vesturland fer fjölgandi. Appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi á nær öllu Vesturlandi og Suðvesturhorni landsins. 5.1.2022 23:28
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent