Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óttast endurkomu Sólveigar Önnu Það er altalað innan verkalýðshreyfingarinnar að Sólveig Anna Jónsdóttir ætli að bjóða sig fram lista gegn A-lista Eflingar í komandi formannskosningum innan stéttafélagsins. Uggur er í starfsliði skrifstofu Eflingar en köldu andar enn á milli flestra þar inni og fyrrverandi formannsins eftir atburði vetursins sem leiddu til afsagnar Sólveigar og Viðars Þorsteinssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Eflingar. 16.1.2022 18:22
Mjög þungur dagur á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Mikið álag hefur verið á bráðamóttöku Landspítalans í dag vegna hálkuslysa. Yfirlæknir segir höfuðhögg og beinbrot vera algengustu meiðslin í kjölfar slysanna. 16.1.2022 15:55
Mikil bjartsýni fyrir ferðasumrinu 2022 Mikill hugur er í þeim sem stunda ferðaþjónustu í Mýrdalshreppi fyrir sumrinu enda verið að skipuleggja sumarið á fullum krafti með fjölbreyttri dagskrá. Oddviti sveitarfélagsins spáir góðu sumri í ferðaþjónustu. 16.1.2022 15:30
Einn til viðbótar smitaður á Landakoti eftir umfangsmiklar skimanir Einn sjúklingur á Landakoti greindist með kórónuveiruna í gær eftir umfangsmiklar skimanir þar og á hjartadeild spítalans. 16.1.2022 15:07
Faraldursstaðan í Evrópu: „Erfiðust grímuskyldan fyrir börn frá sex ára“ Faraldur kórónuveiru hefur sjaldan verið jafn hátt uppi og nú. Hér á Íslandi hafa aldrei fleiri greinst smitaðir af veirunni en undanfarnar vikur og sömu sögu má segja í mörgum öðrum Evrópuríkjum, þar sem faraldurinn er hvað verstur þessa dagana. 16.1.2022 15:00
Búið að segja Jóni Má upp á X-inu Jóni Má Ásbjörnssyni hefur verið sagt upp störfum á X-inu en hann hefur stýrt útvarpsþættinum Séra Jón um nokkurt skeið. 16.1.2022 14:35
Formaður FKA neitar að stíga frá borði Stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu fór fram á það á stjórnarfundi á fimmtudag að Sigríður Hrund Pétursdóttir myndi segja af sér sem formaður félagsins. Beiðnin kemur í kjölfar þess að Sigríður lækaði færslu Loga Bergmanns Eiðssonar þar sem hann kvaðst saklaus af ásökunum um kynferðisbrot. 16.1.2022 13:40
Konur í fyrsta skipti með hærri dagvinnulaun en karlar Dagvinnulaun félagsmanna Einingar-Iðju hafa hækkað að sögn formannsins og eru konur í fyrsta skipti með hærri dagvinnulaun en karlar. Meðallaun kvenna hækkuðu um rúmlega fimmtíu þúsund milli ára en karla um þrettán þúsund krónur. 16.1.2022 12:01
Vann 18 milljónir á Enska getraunaseðlinum Ónefndur Akureyringur datt í lukkupottinn í gær og vann heilar 18 milljónir króna þegar hann giskaði á þrettán rétta á Enska getraunaseðlinum. 16.1.2022 12:01
Ætla sér að toppa Anconcagua í dag Þeir Tolli Morthens, Arnar Hauksson og leiðsögumaður þeirra Sebastian Garcia eru á leið á topp hæsta fjalls Suður-Ameríku en samkvæmt ferðaáætlun verða þeir á toppnum síðar í dag. 16.1.2022 12:00
Ríkinu sennilega heimilt að setja á bólusetningarskyldu Prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík telur að ríkinu sé sennilega heimilt að setja á bólusetningarskyldu. Mannréttindasómstóllinn hafi kveðið á um að ríki hafi mikið svigrúm til þess að vernda líf og heilsu manna. 16.1.2022 11:42
1074 innanlandssmit greindust í gær Enn einn daginn greinast yfir þúsund kórónuveirusmit á einum sólarhring hér á landi en alls greindust 1.133 með veiruna í gær. 16.1.2022 11:08
Íslendingar „á leið út af sporinu“ segir Ragnar Freyr „Loksins sést til sólar,“ segir Ragnar Freyr Ingvarsson læknir á Facebook um stöðu Covid-19 faraldursins á hérlendis. Hann segir Íslendinga engu að síður „á leið út af sporinu“ og á þar við þær sóttvarnaaðgerðir sem voru boðaðar fyrir helgi. 16.1.2022 10:45
Bólusetningarskylda, borgarmál og hagkerfið í Sprengisandi Farið verður um víðan völl í Sprengisandi. Margrét Einarsdóttir sem er prófessor við Lagadeild Háskólans í Reykjavík ætlar að skiptast á skoðunum við Hönnu Katrínu Friðriksson alþingismann um rétt ríkisins til að skylda borgarana til að undirgangast bólusetningu í faraldri. 16.1.2022 10:13
Lögregla horfði á ökumann aka á ljósastaur Lögregla varð vitni að því í gær þegar ökumaður bifreiða ók beint á ljósastaur. Atvikið átti sér stað í Kópavogi en ökumaðurinn er grunaður um ölvunarakstur. 16.1.2022 08:02
Tvö ungmenni flutt á bráðadeild með áverka eftir flugeldaslys Tvö ungmenni voru flutt með sjúkrabifreið á Landspítala eftir flugeldaslys í gærkvöldi. Um var að ræða tvö aðskilin atvik. Þá voru afskipti höfð af tveimur öðrum ungmennum vegna vörslu fíkniefna, einnig í aðskildum atvikum. 16.1.2022 07:21
Slökktu eld í ruslatunnu við Mýrarhúsaskóla Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í kvöld vegna elds sem kom upp í russlatunnu fyrir utan Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi. 15.1.2022 23:32
Fjórir kiðlingar fæddir: Fyrstu vorboðarnir í sveitinni Fyrstu vorboðarnir hafa nú litið dagsins ljós á sveitabæ á Suðurlandi því fjórir kiðlingar voru að koma í heiminn þar við mikla ánægju heimilisfólksins. 15.1.2022 21:00
Fengu tiltal frá lögreglu vegna ruglingslegra sóttvarnareglna Lögreglan á Suðurlandi heimsótti Gróðurhúsið í Hveragerði fyrr í kvöld vegna sóttvarnareglna sem höfðu verið brotnar inni í mathöllinni á staðnum. Eigandi Gróðurhússins segir að bætt verði úr sóttvörnum á staðnum fyrir morgundaginn en reglur hafi verið óskýrar þegar þær breyttust á miðnætti í gær. 15.1.2022 20:19
Telur fjármálaráðherra grípa of seint til efnahagsaðgerða Þingmaður í stjórnarandstöðu segir efnahagsaðgerðir samhliða samkomutakmörkunum koma fram heldur seint og telur umhugsunavert að hlutabótaleiðin sé ekki á meðal aðgerða á meðan sakir standa. Hún veltir því fyrir sér hvar fjármálaráðherra sé nú þegar verið er að tilkynna íþyngjandi aðgerðir fyrir efnahagslífið. 15.1.2022 19:01
Einstaka „Íslandshjólið“ komið í leitirnar Hjól ofurhugans og ljósmyndarans Chris Burkard er komið í leitirnar eftir að því var stolið úr íbúð hans í Reykjavík í gær. Lögreglan skilaði hjólinu til Burkard í morgun við mikinn fögnuð ljósmyndarans. 15.1.2022 18:33
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þingmaður stjórnarandstöðu segir umhugsunarvert að hlutabótaleiðin verði ekki notuð í boðuðum efnahagsaðgerðum. Hún telur þær komnar seint fram. 15.1.2022 18:01
Heilbrigðisstarfsmenn Orkuhússins hlaupa undir bagga með Landspítala Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við Orkuhúsið um að útvega lækna og hjúkrunarfræðinga til að starfa á Landspítala og þannig styðja við þjónustu spítalans á þessum krefjandi tímum. 15.1.2022 17:33
Hinseginvika í Árborg Hinseginvika verður haldin í fyrsta skipti í Sveitarfélaginu Árborg í næstu viku. Tilgangur vikunnar er að auka fræðslu og skapa umræður, sem tengjast hinseginmálum. Sérstakar hinseginkökur verða bakaðar. 15.1.2022 14:06
Eðlileg krafa að ríkið greiði laun starfsmanna í einangrun Hertar sóttvarnaaðgerðir hafa gífurleg áhrif á daglega starfsemi margra fyrirtækja. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann kallar eftir frekari lausnum gagnvart fyrirtækjum sem verst verða fyrir barðinu á takmörkunum og telur eðlilegt að ríkið greiði laun starfsmanna í einangun. 15.1.2022 13:02
Hraðpróf hafa kostað 900 milljónir Hraðpróf við kórónuveirunni hafa verið vinsæl undanfarið og sérstakar hraðprófsstöðvar hafa víðsvegar skotið upp kollinum. Bæði heilsugæsla og einkaaðilar sjá um framkvæmd slíkra prófa og Sjúkratryggingar Íslands hafa greitt þeim aðilum tæpar 900 milljónir síðan í haust. 15.1.2022 12:30
Fella niður leikskólagjöld þeirra sem halda börnum heima vegna faraldursins Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hefur ákveðið að fella niður leikskólagjöld og gjöld vegna mötuneyta hjá þeim foreldrum sem halda börnum sínum heima vegna faraldurs kórónuveirunnar. Um 40 prósent starfsmanna Grunnskólans í Hveragerði er fjarverandi vegna veikinda. 15.1.2022 12:01
Gjörgæslusjúklingum fækkar Þeim fjölgar um tvo sem liggja inni á Landspítala með Covid-19 milli daga en fækkar á sama tíma um tvo sem liggja á gjörgæsludeild. 45 sjúklingar á spítalanum eru smitaðir. 15.1.2022 11:56
Hádegisfréttir Bylgjunnar Framkvæmdastjóri SA kallar eftir frekari lausnum gagnvart fyrirtækjum sem verst verða fyrir barðinu ásamkomutakmörkunum. 15.1.2022 11:45
1.143 greindust innanlands í gær 1.143 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 57 á landamærum. Það gera 1.200 í heildina. 15.1.2022 10:42
Fyrri hugmyndir um Janssen löngu úreltar Allar hugmyndir um góða virkni eins skammts af bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni úreltust um leið og ný afbrigði veirunnar, delta og ómíkron, tóku yfir. Gegn þeim virkar Janssen alveg eins og hin bóluefnin; einn skammtur af Janssen verndar mun minna en tveir skammtar af öðrum efnum og því ákvað heilbrigðisráðuneytið að líta það sömu augum og hin bóluefnin þegar það breytti reglum um sóttkví þríbólusettra. 15.1.2022 08:52
Áfall að vera enn á þeim stað að loka börum Stjórnarmaður í Samtökum fyrirtækja í veitingarekstri segir hertar samkomutakmarkanir mikið áfall. Þrátt fyrir umfangsmiklar bólusetningar virtust Íslendingar á sama stað og áður. 14.1.2022 23:35
Ríkið ekki skaðabótaskylt vegna djammbanns Hið opinbera er ekki skaðabótaskylt vegna lokunar skemmtistaða og bara hér á landi sökum faraldurs kórónuveirunnar. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem opinberuð var í dag en í úrskurðinum segir meðal annars að smit þrjú þúsund þeirra sextán þúsund sem smituðust í fjórðu bylgjunni hafi mátt rekja til eins skemmtistaðar. 14.1.2022 22:42
Fjórðungur nemenda fjarverandi Skólastjórnendur hafa margir hverjir staðið í ströngu undanfarna daga við að rekja kórónuveirusmit innan skólanna. Skólastjóri Árbæjarskóla hefur fimm sinnum á einni viku þurft að fara í smitrakningu. Fjórðungur nemenda skólans var fjarverandi í dag þar sem margir voru í sóttkví og einangrun. 14.1.2022 22:00
Kennarar ósáttir við Katrínu Stjórn Kennarasambands Íslands er gagnrýnin á ummæli Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, frá því í dag um skólastarf og konur í vinnu. Þá segir stjórnin ummæli Katrínar um að frá upphafi faraldurs kórónuveirunnar hafi alltaf staðið til að halda skólum opnum séu röng. 14.1.2022 20:17
Kallar eftir aldurskvóta á listamannalaun Rithöfundur telur að koma ætti á einhvers konar aldurskvóta við úthlutun listamannalauna. Hann óttast að ungir og efnilegir listamenn leiti á önnur mið, verði kerfið ekki endurskoðað. 14.1.2022 19:30
Einstöku „Íslandshjóli“ stolið af miklum Íslandsvini Hjóli ofurhugans og ljósmyndarans Chris Burkard var stolið úr íbúð hans í Reykjavík í dag. Gluggi var spenntur upp á íbúð hans og það eina sem innbrotsþjófurinn tók var hjól sem var sér hannað fyrir Ísland. Einungis tvö svona hjól eru til. 14.1.2022 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Einar hörðustu aðgerðir frá upphafi kórónuveirufaraldursins taka gildi á miðnætti. Aðeins tíu manns mega koma saman. Sóttvarnalæknir vildi þó ganga lengra. Við förum yfir aðgerðirnar í fréttatímanum okkar á samtengdum Rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan 18:30. 14.1.2022 18:01
Vegfarandi stöðvaði ofurölvi ökumann Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í morgun tilkynning um rásandi aksturlag og mögulegan ölvunarakstur. Sá sem lét lögregluna vita stoppaði sjálfur akstur ökumannsins er hann stoppaði á rauðu ljósi. 14.1.2022 17:36
Lagði til að öllu yrði skellt í lás í tíu daga Til greina kemur að beita víðtækum lokunum í samfélaginu sem ná til fyrirtækja, stofnana og skóla í takmarkaðan tíma til að ná fjölda kórónuveirutilfella hratt niður, að mati sóttvarnalæknis. Gætu slíkar lokanir til að mynda staðið í tíu daga og í kjölfarið verið aflétt í skrefum. 14.1.2022 14:48
Fá svigrúm til að greiða aukalega næstu fjórar vikurnar Ríkisstjórnin hefur ákveðið að tryggja Landspítala svigrúm sem gerir kleift að greiða starfsfólki sérstaklega fyrir viðbótarvinnuframlag næstu fjórar vikurnar. Talið er að þannig megi betur tryggja mönnun við erfiðar aðstæður meðan mesti þunginn í faraldrinum gengur yfir. 14.1.2022 13:44
Mun algengara að konan sé heima með börnin þegar skólum er lokað Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að það sé bæði prinsipp- og jafnréttismál, að halda skólum opnum eins og hægt er, í gegnum kórónuveirufaraldurinn. 14.1.2022 13:08
Stjórnvöld taka á móti 35 til 70 manns til viðbótar frá Afganistan Ríkisstjórnin hefur samþykkt að taka á móti 35 til 70 manns frá Afganistan til viðbótar við þann hóp sem tekið var á móti í haust. Ákvörðunin var tekin í ljósi þeirrar ólgu og upplausnar sem ríkir í landinu í kjölfar valdatöku talibana. 14.1.2022 12:58
Listi með Ólöfu og Agniezsku í fararbroddi samþykktur af trúnaðarráði Trúnaðarráð Eflingar samþykkti í gærkvöld A-lista stjórnar Eflingar með Ólöfu Helgu Adolfsdóttur í formannssætinu. Agniezska Ewa Ziólkowska, starfandi formaður, verður varaformaður. Guðmundur Jónatan Baldursson vinnur nú að því að setja saman lista og ætlar í formannsslag. 14.1.2022 12:04
Tíu mega koma saman Sóttvarnaraðgerðir verða hertar og taka þær gildi á miðnætti. Heilbrigðisráðherra segir að sóttvarnalæknir hafi lagt fram þrjár leiðir: Óbreyttar aðgerðir, færa samkomutakmarkanir úr tuttugu manns í tíu, eða lokun á samfélaginu í tíu daga. Ríkisstjórnin hafi valið leið tvö. 14.1.2022 12:03