Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Landspítalinn telur tímabært að fara að endurskoða viðbragð sitt í heimsfaraldrinum með tilliti til vægari veikinda. Vatnaskil hafi orðið og því komi til greina að fækka fjölda starfsmanna á hvern Covid-sjúkling. Þá sé ástæða til að íhuga að létta á sóttvarnaaðgerðum. 18.1.2022 18:01
Líf gefur áfram kost á sér í oddvitasætið Líf Magneudóttir gefur aftur kost á sér í oddvitasæti Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Líf hefur verið borgarfulltrúi flokksins og áður varaborgarfulltrúi frá árinu 2014. 18.1.2022 17:26
Örmagna göngumanni bjargað við Keili Björgunarsveitarfólk kom göngumanni til bjargar norðvestur af Keili eftir hádegið í dag eftir neyðarkall hans vegna þreytu. Viðkomandi hringdi í Neyðarlínuna klukkan 13 og var hann kominn upp í björgunarsveitarbíl þremur og hálfri klukkustund síðar. 18.1.2022 16:50
Starfsfólk SÁÁ telur illa að sér vegið Starfsfólk SÁÁ hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að það telur með málsmeðferð Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegið að starfsheiðri, trúverðugleika og trausti starfsmanna sem og allri starfsemi SÁÁ. 18.1.2022 16:34
Segir ekki standa til að stækka starfsemi Ísteka þrátt fyrir leyfi Umhverfisstofnunar Framkvæmdastjóri Ísteka segir að þau hafi engin áform um stækkun starfseminnar þrátt fyrir að nýútgefið starfsleyfi Umhverfisstofnunar geri ráð fyrir því. Hann hafnar því að Ísteka stefni á að allt að fjórfalda starfsemi sína og segir það ekki raunhæft á þessum tíma. 18.1.2022 13:30
Stytta biðtímann eftir örvunarsprautu niður í fjóra mánuði Ákveðið hefur verið að stytta tímann á milli annars bólusetningarskammts og örvunarskammts úr fimm til sex mánuðum og niður í fjóra mánuði. 18.1.2022 13:28
Gripið til aðgerða fyrir veitingahús og tónlistarfólk Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp um aðgerðir til að bæta veitingastöðum tekjutap vegna sóttvarnaaðgerða. Styrkirnir miðaðst við stöðugildi og geta hæstir orðið tólf milljónir króna. Þá eru aðgerðir í undirbúningi vegna tekjutaps fólks í sviðslistum. 18.1.2022 13:15
Læknar með gjörólíka sýn á faraldurinn takast á í Pallborðinu Gamlir vinir og samstarfsmenn á Landspítala mætast í Pallborðinu klukkan 14:30 í beinni hér á Vísi og Stöð 2 Vísi í dag til að ræða heimsfaraldurinn og leiðir út úr honum. Fylgst er með gangi mála í textalýsingu í vaktinni hér að neðan. 18.1.2022 12:09
Börn upp undir helmingur smitaðra Börn sextán ára og yngri voru upp undir helmingur þeirra sem greindust með kórónuveiruna í gær, en aðeins einu sinni frá upphafi faraldursins hafa fleiri greinst smitaðir. Sóttvarnalæknir segir að nýtt spálíkan um fjölda innlagna á Landspítala sé öllu svartsýnna en það fyrra, þó ekki megi lesa of mikið í líkindaspár. 18.1.2022 11:54
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um nýjar aðgerðir sem kynntar voru að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun og eiga að bæta veitingastöðum sem gert hefur verið að loka upp tjónið með styrkjum. 18.1.2022 11:35
Gerir ekki athugasemd við fríið hans Bjarna Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og staðgengill Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, gerir engar athugasemdir við að hann hafi verið í fríi í útlöndum síðustu daga. 18.1.2022 11:03
Inniliggjandi með Covid-19 fækkar á milli daga Þeim sem liggja inn á Landspítala með Covid-19 fækkaði um sex á milli daga, þar af fækkaði inniliggjandi með Covid-19 á gjörgæslu um þrjá. 18.1.2022 10:44
1.383 greindust innanlands 1.383 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 66 á landamærum. 18.1.2022 10:21
Vinstri græn efna til forvals um þrjú efstu sætin Vinstri græn hafa ákveðið að efna til forvals um þrjú efstu sætin á lista flokksins fyrir borgarstjórnarkostningarnar í vor. Þetta var ákveðið á félagsfundi VG í gærkvöldi. 18.1.2022 10:11
Bjarni Haraldsson á Sauðárkróki er látinn Bjarni Haraldsson, verslunarmaður á Sauðárkróki, er látinn, 91 árs að aldri. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki aðfaranótt gærdagsins. 18.1.2022 09:57
Almar vill leiða lista Sjálfstæðismanna í Garðabæ Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri hefur ákveðið að bjóða sig fram í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ sem fram fer 5. mars næstkomandi. 18.1.2022 08:56
Vill verða formaður á ný og segir fjármál félagsins mögulega lögreglumál Guðmundur Ragnarsson, fyrrverandi formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns en hann segir að unnið sé að því án vitundar félagsmanna að leggja félagið niður með samruna við annað félag. 18.1.2022 08:51
Skjálfti 3,3 að stærð í grennd við Húsafell Enn skelfur jörð í grennd við Húsafell en í nótt, tíu mínútur fyrir tvö, reið skjálfti yfir sem mældist 3,3 stig 18.1.2022 08:46
Framkvæmdastjórn SÁÁ segist slegin Framkvæmdastjórn SÁÁ segist sleginn yfir yfir því að Sjúkratryggingar Íslands hafi sent kæru til embættis héraðssaksóknara vegna starfshátta SÁÁ. 18.1.2022 08:40
Biðla til landsmanna um að láta skrá erlendar bólusetningar Landlæknisembættir biður einstaklinga sem búsettir eru hér á landi en hafa þegið bólusetningu gegn Covid-19 erlendis að láta skrá bólusetningarnar formlega í innlend kerfi, ef það hefur ekki gert það nú þegar. 18.1.2022 07:50
Segir mál meðhöndlarans hafa skemmt mikið fyrir systur sinni Systir brotaþola í fimmta nauðgunarmáli ákæruvaldsins á hendur meðhöndlaranum Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni kom fram sem vitni við aðalmeðferð málsins í síðustu viku. Þar bar hún meðal annars um hrakandi líðan systur sinnar eftir að meint ofbeldi átti sér stað og sagðist sem læknir ekki vita til þess að það sem Jóhannesi er gefið að sök geti talist vera meðferð við þeim verkjum sem brotaþoli ætlaði að fá Jóhannes til að meðhöndla. 18.1.2022 07:01
Opið þinghald í kynferðisbrotum sé almannahagsmunamál „Það skiptir máli fyrir samfélagið að almenningur hafi eftirlit með dómstólum, þar á meðal fjölmiðlar. Þegar málsmeðferð er lokað algjörlega í heilum málaflokki þá erum við búin að fjarlægja allt eftirlit almennings með þeim málaflokki.“ 18.1.2022 06:55
Vilja einnig falla frá þéttingu við Háaleitis- og Miklubraut Sjálfstæðismenn í Reykjavík vilja að fallið verði frá þéttingu byggðar við Bústaðaveg, Miklubraut og Háaleitisbraut með formlegum hætti. Borgarfulltrúar flokksins munu leggja fram tillögu þess efnis á borgarstjórnarfundi í dag. 18.1.2022 06:22
Æddi niður að brú þar sem hans beið geysilegt sjónarspil Byggingartæknifræðingurinn Orri Jónsson var í eftirlitsferð vegna vegaframkvæmda í Þverárhlíð í Borgarfirði í dag þegar hann varð vitni að miklu ísstífluflóði. 17.1.2022 23:32
„Hann hefur meiri áhuga á að vera í fríi“ Tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar eru afar gagnrýnir á Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra, sem var staddur erlendis í fríi þegar Alþingi kom saman í dag. Fyrsta mál á dagskrá þingsins á árinu er fumvarp hans til stuðnings fyrirtækjum í veitingarekstri, vegna áframhaldandi óvissu vegna kórónuveirufaraldursins. Þingmennirnir segja að ráðherrann mætti sýna verkefninu meiri áhuga. 17.1.2022 22:01
Um einn af hverjum hundrað fær óljósa niðurstöðu Um tíu prósent þeirra sem fá jákvæða niðurstöðu úr hraðprófi hjá heilsugæslunni fá annað svar úr PCR-prófi strax í kjölfarið. Þetta hlutfall hefur farið lækkandi en í upphafi voru um það bil helmingur PCR-prófa neikvæður eftir jákvætt hraðpróf. 17.1.2022 21:50
Sexhyrndur athyglissjúkur hrútur Hrúturinn Sexi er engin venjulegur hrútur því hann er sexhyrndur og þrílitur. Sexi elskar athygli enda stendur hann alltaf upp í stíunni sinni með framfæturna upp í garðanum þegar gestir koma í fjárhúsið á Ósabakka í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. 17.1.2022 21:03
Kerfið hafi ekki bolmagn til þess að sinna heimilislausum sem þurfa í sóttkví Velferðarkerfið hefur ekki bolmagn til þess að halda utan um hóp þeirra sem þurfa í sóttkví en eru heimilislausir eða eiga við vímuefnavanda að stríða. Þetta segir verkefnastýra Frú Ragnheiðar sem segir jafnframt að mikið álag sé á athvörfum fyrir heimilislausa. 17.1.2022 20:00
Magnús Guðmundsson er látinn Magnús Guðmundsson er látinn, 88 ára að aldri. Hann var einn þekktasti íþróttamaður Akureyringa. Hann lést á heimili sínu í Montana í Bandaríkjunum í gær. 17.1.2022 19:54
Um þriðjungur Covid-smitaðra á Landspítala ekki inni vegna Covid Um þriðjungur þeirra sem liggja inni á Landspítala í einangrun með Covid-19 eru þar vegna annarra veikinda eða meiðsla. Nýtt spálíkan er væntanlegt frá spítalanum sem gæti orðið til þess að sóttvarnalæknir endurskoði samkomutakmarkanir. 17.1.2022 19:31
Meintir tilhæfulausir reikningar SÁÁ metnir saknæmir Svo virðist sem SÁÁ hafi reynt að beita Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) stórfelldum blekkingum og undanbrögðum vegna tilhæfulausa reikninga sem samtökin sendu SÍ. 17.1.2022 18:27
Þingmanna að tilkynna forföll til skrifstofu Alþingis Nafn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra var ekki á skrá yfir fjarvistir þingmanna þegar Alþingi var sett í dag, og sætti það gagnrýni stjórnarandstöðuþingmanna. Forseti Alþingis segir skýringuna einfalda: Skráin byggi alfarið á tilkynningum hvers og eins þingmanns um fjarvistir sínar. 17.1.2022 18:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Um þriðjungur þeirra sem liggja inni á Landspítala með Covid-19 eru þar vegna annarra veikinda eða meiðsla. Innlagnarhlutfall á spítala og gjörgæslu er á niðurleið og sóttvarnalæknir segir að fylgst verði með þróuninni sem gefi mögulega tilefni til tilslakana. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 17.1.2022 18:00
Hluti nemenda fær að mæta í Seljaskóla á morgun Seljaskóli opnar aftur á morgun að hluta en tilkynnt var síðastliðinn fimmtudag að skólanum yrði lokað fram á mánudag vegna fjölda kennara og nemenda sem höfðu smitast. Fimm árgangar fá að mæta aftur á morgun en aðrir þurfa að vera heima. Staðan verður metin aftur á morgun. 17.1.2022 17:33
Kæra starfshætti SÁÁ til héraðssaksóknara Embætti héraðssaksóknara hefur borist kæra frá eftirlitsdeild Sjúkratrygginga Íslands vegna máls sem varðar starfshætti SÁÁ. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við Vísi en kæran barst embættinu í seinustu viku. 17.1.2022 17:23
Brjáluð vegna skíðaferðar Bjarna Benediktssonar Stjórnarandstaðan gagnrýndi harðlega fjarveru Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra við upphaf Alþingis í dag. Þing kom saman í dag í fyrsta sinn á árinu og var Bjarni hvergi sjáanlegur. Kröfðust þingmenn svara við því hvort Bjarni væri í fríi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Bjarni fjarverandi vegna skíðaferðar. 17.1.2022 16:25
Tæplega 3500 börn á aldrinum 5-11 ára greinst en ekkert lagst inn Hér á landi hafa 6.578 börn á aldrinum 0–16 ára greinst með COVID-19 frá upphafi faraldursins til 2. janúar 2022, þar af eru 3.449 börn á aldrinum 5–11 ára. 17.1.2022 15:35
Yngstu börnin sleppa við að fá pinna upp í nefið Í ljósi þess hversu mörg börn eru nú að mæta í sýnatökur hefur verið ákveðið að taka megi PCR-sýni hjá börnum yngri en átta ára með munnstroku. Forstjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að ástæðan fyrir breytingunni sé fyrst og fremst að bæta upplifun barnanna en einnig til að stytta tímann sem það tekur að taka sýni. 17.1.2022 15:22
Sótti brotaþola í nuddið: „Ég var ekki til staðar fyrir hana“ Vinkona ungrar konu sem segir Jóhannes Tryggva Sveinbjörnsson hafa brotið á sér í meðferðartíma á stofu hans segist hafa brugðist vinkonu sinni. Hún sótti hana í tímann en segist ekki hafa vitað hvernig ætti að bregðast við. Eftir á að hyggja hefði átt að tilkynna málið til lögreglu. 17.1.2022 15:00
Þetta er hrúturinn sem gjörbreytir baráttunni gegn riðuveiki „Þetta er stórkostlegur gleðidagur,“ segir Eyþór Einarsson, hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, um þau tíðindi að verndandi arfgerðin ARR hafi fundist í fyrsta skipti í íslenskum hrút. Fundurinn stóreykur líkurnar á því að hægt sé að útrýma riðuveiki í íslensku sauðfé á næstu árum og áratugum. 17.1.2022 14:26
Kristín Ýr vill þriðja sætið hjá Sjálfstæðismönnum í Mosfellsbæ Kristín Ýr Pálmarsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ sem fer fram 5. febrúar næstkomandi. 17.1.2022 13:54
Domus-barnalæknar fluttir í Kópavog: „Bílastæðavandinn er eiginlega úr sögunni“ „Það var þannig á gamla staðnum að fólk var iðulega að koma of seint í bókaðan tíma þar sem það fann hvergi stæði. Bílastæðavandamálið er eiginlega úr sögunni.“ 17.1.2022 13:44
Getur enn ekki sagt til um hversu alvarlegt ómíkron sé Allt bendir til að ómíkron-afbrigði veirunnar sé talsvert vægara en menn hafa reiknað með. Gjörgæsluinnlögnum fækkar dag frá degi á meðan fjöldi smitaðra stendur í stað. Sóttvarnalæknir vill þó enn stíga varlega til jarðar og segist ekki hafa nægar upplýsingar frá Landspítalanum um alvarleika veikinda. 17.1.2022 13:12
„Þetta er bara spurning um tíma“ Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, hefur áhyggjur af viðvarandi snjóflóðahættu og segir það ekki spurningu um hvort heldur hvenær illa fer. Ítrekað hafi verið bent á nauðsyn þess að leggja jarðgöng að en íbúar tali fyrir daufum eyrum stjórnvalda. 17.1.2022 13:09
Ármann hættir sem bæjarstjóri í vor Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins og bæjarstjóri Kópavogs, mun ekki sækjast eftir endurkjöri í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Hann segir tímabært að einhver annar taki við keflinu. 17.1.2022 12:34