Innlent

Gerir ekki athugasemd við fríið hans Bjarna

Tryggvi Páll Tryggvason og Heimir Már Pétursson skrifa
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Vilhelm

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og staðgengill Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, gerir engar athugasemdir við að hann hafi verið í fríi í útlöndum síðustu daga.

Bjarni var harðlega gagnrýndur af þingmönnum stjórnarandstöðunnar í gær á Alþingi. Kröfðust þau svara við því hvort Bjarni væri í fríi eða ekki þegar í ljós kom að hann var fjarverandi.

Upplýst var við upphaf þingfundar í gær að Þórdís myndi mæla fyrir frumvarpi Bjarna til stuðnings fyrirtækja í veitingarekstri vegna áframhaldandi óvissu í atvinnulífi vegna Covid-19 faraldursins, sem snýr að frestun allt að tveggja greiðslna á afdreginni staðgreiðslu launa og tryggingagjalds sem eru á gjalddaga 1. janúar til og með 1. júní á árinu 2022.

Von á Bjarna á næstu dögum

Samkvæmt heimildum fréttastofu er Bjarni fjarverandi vegna skíðaferðar. Heimir Már Pétursson fréttamaður náði tali af Þórdísi að loknum ríkisstjórnarfundi í dag þar sem hann spurði hana út í gagnrýni á fjarveru Bjarna.

Hún gerir ekki athugasemdir við fjarveru hans.

„Þetta frumvarp í gær var ekki mjög flókið í sniðum. Þetta snerist um að fresta ákveðnum gjalddögum. Var vissulega dagsetningarmál þar sem eindaginn var í gær. Þingið leysti það farsællega. Ég geri engar sérstakar athugasemdir við það, hvort sem það eru ráðherrar, fjölmiðlafólk, stjórnarandstöðuþingmenn eða aðrir taki sér nokkra daga frí með fjölskyldu sinni erlendis. Það er mín skoðun.“

Hann er náttúrulega oddviti eins af þremur flokkum í ríkisstjórn sem er að glíma við faraldur og þarf að huga vel að honum frá degi til dags?

„Já, og það höfum við gert núna í bráðum tvö ár,“ sagði Þórdís.

Aðspurð að því hvenær hún ætti von á Bjarna aftur til landsins sagði Þórdís reikna með að hann kæmi aftur á næstu dögum.

„Ég er bara ekki alveg klár á því en ég held að það séu bara einhverjir örfáir sólarhringar. Ég bara veit það ekki hvort það er á morgun eða hinn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×