Síðustu daga hafa rúmlega 40 legið inni á Landspítala með Covid-19. Sá fjöldi hefur haldist nokkuð stöðugur síðustu vikuna.
Margir sjúklinganna eru þó annað hvort búnir að afplána einangrun sína eða liggja hreinlega inni á spítalanum vegna annarra kvilla.
Af þeim 45 sem lágu inni á spítalanum í morgun voru aðeins 31 með virkt smit en 14 sem höfðu lokið einangrun og voru enn að jafna sig á sýkingunni.
10 liggja þar smitaðir inni annarra veikinda en Covid og fjórir eru þar sem erfitt er að greina hvort séu beinlínis veikir vegna veirunnar eða af öðrum ástæðum.
17 liggja svo inni á spítalanum með virkt smit, beinlínis vegna Covid-veikinda sinna.
7 eru á gjörgæslu, þar af 2 í öndunarvél. Fimm þeirra hafa þegar lokið einangrun sinni.
Gildi einu hvort sjúklingur í einangrun sé Covid-veikur eða ekki
„Við erum að reyna að finna bestu leið til að setja fram upplýsingarnar þannig þær gagnist og það er auðvitað aðaltilgangur þeirra að vera gagnlegar til ákvarðanatöku,“ segir Hildur Helgadóttir, verkefnastjóri farsóttanefndar Landspítala.
Hún segir þó í raun gilda einu fyrir spítalann hvort sjúklingur sem liggi þar inni sé þar vegna Covid-veikinda sinna eða af öðrum ástæðum ef hann er á annað borð smitaður.
„Nú er fólk bara að koma inn á bráðamóttöku út af alls konar málum allan sólarhringinn og er síðan að greinast við innlögn eða skömmu eftir innlögn. Það er þá á alls konar deildum sem hafa aldrei þurft að sýsla með Covid-sjúklinga sem þurfa þá að gera það. Og það er mjög mikið aukaálag,“ segir Hildur.
Þannig þurfi tvöfaldan fjölda starfsmanna til að sinna fólki í einangrun á spítalanum og það geti verið enn erfiðara að sinna þeim vandamálum sem ollu innlögn þeirra þegar spítalastarfsmenn verði að sinna þeim í þar til gerðum hlífðarfatnaði og passa vel að smit berist ekki frá sjúklingnum annað á spítalann.
Geti ekki byggt tillögur á orðrómi
Sóttvarnalæknir segir að hann sé enn að átta sig á misræminu í tölum spítalans og eigi eftir að fá betri mynd af hversu alvarlegt ómíkron-afbrigðið sé í raun.
„Það er það sem við erum að skoða. Og ég get ekki svarað því fyrr en ég fæ þessar tölur frá spítalanum. Það er svona ýmiss orðrómur í gangi en það er bara ekki nægilegt til að fara eitthvað að ræða um áætlanir og áform sem að byggja á því,“ segir Þórólfur Guðnason.
Hann tekur mið af tölum og spám spítalans þegar hann semur tillögur sínar að sóttvarnatakmörkunum.
Innlagnahlutfall á spítala og gjörgæslu hefur farið niður á við síðustu vikur og er von á nýju spálíkani frá spítalanum í kvöld eða á morgun.
Og sýni það mun skárri spá en síðasta líkan gæti Þórólfur lagt til að slakað yrði á takmörkunum á næstu dögum.