Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stálheppinn tippari vann 104 milljónir króna Hæsti vinningur í sögu Íslenskra getrauna vannst í gær þegar íslenskur tippari búsettur í Kópavogi fékk þrettán rétta á Enska getraunaseðilinn og varð 104 milljónum króna ríkari. 3.4.2022 17:15
Guðmundur Ari leiðir lista Samfylkingar og óháðra á Seltjarnarnesi Guðmundur Ari Sigurjónsson verkefnastjóri og bæjarfulltrúi mun leiða framboðslista Samfylkingarinnar og óháðra í sveitarstjórnarkosningum á Seltjarnarnesi. Í öðru sæti listans er Sigurþóra Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Bergsins. 3.4.2022 16:45
Hjálmar harmar skerta þjónustu strætó Strætó skerðir í dag þjónustu sína við farþega með því að draga úr tíðni ferð á nokkrum leiðum og hætta akstri þeirra fyrr á kvöldin. Stjórnarformaður skilur ósætti farþega vel og vonast til að skert þjónusta verði aðeins tímabundin. 3.4.2022 16:01
Skiluðu púltunum og pökkuðu loks saman eftir seinasta fund Smitrakningateymi almannavarna og landlæknis var formlega lagt niður síðasta fimmtudag en alls hafa 112 starfað við rakningu frá því faraldurinn hófst hér á landi. Öll aðstaða fyrir upplýsingafundi hefur nú verið tekin niður en samskiptastjóri almannavarna segir best að sleppa yfirlýsingum um seinasta upplýsingafundinn að fenginni reynslu. 3.4.2022 15:20
Snarpir jarðskjálftar í Grindavík Jarðskjálfti 3,3 að stærð mældist rétt norðaustur af Grindavík nú klukkan tuttugu mínútur yfir tvö. Fjöldi skjálfta hefur mælst við Grindavík núna um hádegi en þetta er sá stærsti. 3.4.2022 15:03
Netverjar mótmæla niðurskurði hjá Strætó: „Á hvaða brengluðu tímalínu lifi ég?“ Netverjar eru síður en svo sáttir með breytta ferðaáætlun Strætó sem var kynnt í gær. Strætómál og leigubílaleysi hefur verið til mikillar umræðu, til að mynda á Twitter, og segja netverjar um öryggismál að ræða. 3.4.2022 14:15
„Það stenst enginn þetta augnaráð“ Það mun vanta sjö leiðsöguhunda fyrir blinda og sjónskerta á landinu á næstu árum. Við hittum Kela, eiganda leiðsöguhunds, í miðbæ Reykjavíkur í gær sem lýsti afar nánu sambandi sínu við besta vin sinn - Gaur. 3.4.2022 13:28
Nýtt í Sundhöll Selfoss – Klór úr salti Nýtt klórframleiðslukerfi hefur verið tekið í notkun í Sundhöll Selfoss, sem er miklu umhverfisvænna og hagkvæmara í rekstri heldur en aðkeypti klórinn og kolsýran sem var keyptum áður fyrir laugina. Nýi búnaðurinn framleiðir klór úr salti. 3.4.2022 13:03
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Mannréttindasamtök saka Rússa um stríðsglæpi í Úkraínu. Hræðilegar sögur berast frá svæðum sem Rússar hafa horfið frá. Við segjum frá helstu vendingum stríðsins í Úkraínu í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 3.4.2022 11:53
„Hann tók ákvörðun og hann braut á mér“ Kona sem kærði kynferðisbrot til lögreglu í október segir að mál hennar hafi verið sett neðst í málabunka kynferðisbrotadeildar vegna þess að hún hafi ekki kært málið fyrr en þremur dögum eftir að brotið var framið gegn henni. Fimm og hálfur mánuður hafi liðið frá því að hún kærði brotið þar til meintur ofbeldismaður hennar var boðaður í skýrslutöku af lögreglu. 3.4.2022 10:01
Úkraína, salan á Íslandsbanka og staða öryrkja á vinnumarkaði í Sprengisandi Staða fólks á vinnumarkaðnum með skerta starfsgetu, ástandið í Úkraínu og sala ríkisins á hlutum í Íslandsbanka er meðal þess sem verður til umræðu í Sprengisandsþætti dagsins. 3.4.2022 09:34
„Þetta er ekki bara vinna heldur líka það að vera innan um fólk“ Maður á áttræðisaldri sem fékk vinnu á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur segir það ljótt af vinnuveitendum að segja fólki upp sökum aldurs. Hann segir mikinn félagsskap fólginn í vinnu og hlakkar til að takast á við ný verkefni. 3.4.2022 09:01
Á fáum stöðum betra að rækta sauðfé á Íslandi en á Ströndum „Það er harðduglegt fólk hérna, er með góð sauðfjárbú og afurðirnar góðar,“ segir réttarstjórinn Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir, bóndi á Kollsá í Hrútafirði, þegar við hittum hana í Hvalsárrétt, aðalréttum Bæhreppinga, eins og íbúar Bæjarhrepps hins forna voru jafnan kallaðir. 3.4.2022 05:55
Tómas Ellert leiðir lista Miðflokks og sjálfstæðra í Árborg Tómas Ellert Tómasson, formaður bæjarráðs Árborgar og Ari Már Ólafsson leiða lista Miðflokksins og sjálfstæðra í Árborg fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 2.4.2022 23:21
Vesturbæingar sjá um hundrað flóttamönnum á Hótel Sögu fyrir nauðsynjum Tæplega eitt hundrað úkraínskir flóttamenn, konur og börn, hafa fengið þak yfir höfuðið í Bændahöllinni, þar sem Hótel Saga var þar til nýlega. Svo virðist sem fólkið fái ekki mikið meira en þak yfir höfuðið enda hafa íbúar Vesturbæjar tekið það á sig að verða fólkinu úti um helstu nauðsynjar. 2.4.2022 23:03
Galin pæling að leggja niður heiðurslaun listamanna Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja leggja niður heiðurslaun listamanna á Íslandi. Þeim finnst þau úrelt og ekki þjóna neinum tilgangi. Galin pæling, segir talsmaður listamanna. 2.4.2022 21:15
Úkraínsk börn dönsuðu þjóðdansa til fjáröflunar Glatt var á hjalla í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi í dag þar sem haldin var fjáröflun til styrktar fjölskyldum sem komnar eru hingað til lands frá Úkraínu. 2.4.2022 21:11
Harpa Ósk kjörin nýr skátahöfðingi Harpa Ósk Valgeirsdóttir var í gær kjörin nýr skátahöfðingi Íslands. Hún var sjálfkjörin enda vilja skátar ekki það vesen sem fylgir kosningaslag og eru samstíga, að sögn Hörpu Óskar. 2.4.2022 20:56
Sýknaður af ákæru um nauðgun vegna ósamræmis í framburði brotaþola Karlmaður á þrítugsaldri var í gær sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað konu sem hann kynntist á skemmtistaðnum B5 árið 2019. Í niðurstöðum héraðsdóms segir að ekki hafi önnur niðurstaða verið tæk en að sýkna manninn vegna þess að framburður hans var talinn trúverðugari en meints brotaþola. 2.4.2022 19:39
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Úkraínumenn saka Rússa um að hafa gert sprengjuárásir á friðsæl mótmæli í sunnanverðri Úkraínu í dag. Stjórnvöld vara við hörðum átökum á svæðinu næstu daga. Frans páfi var óvenjuharðorður í garð Rússlandsforseta í ávarpi í dag. Farið verður yfir stöðuna í Úkraínu í kvöldfréttum. 2.4.2022 18:21
Vilhelm tók mynd ársins og fréttamynd ársins Ljósmyndari Vísis, Vilhelm Gunnarsson, hreppti tvö af sjö verðlaunum sem veitt voru í Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrir bestu myndir ársins 2021 í dag. Mynd Vilhelms af eldgosinu í Geldingadölum var valin mynd ársins og mynd hans af nýmyndaðri ríkisstjórn í roki og rigningu var valin fréttamynd ársins. 2.4.2022 17:39
Segir Rússa hafa rænt áhrifavaldinum sem lifði af árásina á fæðingarspítalann Fréttaritarinn Thomas van Linge segir að úkraínsku konunni, sem lifði af árás Rússa á fæðingarspítala í Maríupól, hafi verið rænt af Rússum. Hún sé ein þeirra mörgu flóttamanna sem Rússar hafi beint frá Maríupól til Rússlands þvert á samninga. 2.4.2022 16:46
Vonar að atvinnurekendur taki flóttafólkinu opnum örmum Móttaka flóttamanna hér á landi fer vel af stað og hafa herbergi á Hótel Sögu meðal annars verið tekin undir þá. 2.4.2022 16:20
Sjálfboðaliðar fjarlægja dúk Hamarshallarinnar í Hveragerði Fjöldi sjálfboðaliða er nú við störf í Hveragerði þar sem loftborna íþróttahúsið Hamarshöllin var en hún fauk í miklu óveðri 22. febrúar síðastliðinn. Hlutverk sjálfboðaliðanna er að fjarlægja dúkinn, sem er um sex þúsund fermetrar. 2.4.2022 14:04
Erla hefur farið fram á endurupptöku Erla Bolladóttir, einn sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, hefur farið fram á endurupptöku máls síns. Verði fallist á endurupptökubeiðnina verður mál hennar flutt að nýju í Hæstarétti. Þetta staðfestir Ragnar Aðalsteinsson lögmaður Erlu í samtali við fréttastofu. 2.4.2022 13:32
Meinað að drekka kaffi, reykja og fara út Samtökin Geðhjálp segja ljóst að daglega sé brotið á mannréttindum fólks inni á geðdeildum landsins. Fólki er sums staðar meinað að drekka kaffi, fara í símann, reykja sígarettu eða rölta út undir bert loft. 2.4.2022 12:05
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Rauði krossinn reynir í dag að bjarga fólki úr hinni stríðshrjáðu Mariupol í Úkraínu. Flóttamenn hér á landi hafa meðal annars fengið inni á Hótel Sögu. Við fjöllum um stöðuna á stríðinu í Úkraínu í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 2.4.2022 11:52
Breyta Strætóleiðum sem aka nú styttra eða með lengra millibili Breytingar hafa verið gerðar á kvöldferðum Strætóleiða númer 7, 11, 12, 15, 19, 22, 23, 28, 35 og 36. Breytingarnar spara rúmlega 200 milljónir í rekstri Strætó sem hefur verið mjög þungur á tímum heimsfaraldurs. 2.4.2022 11:24
Vara við fuglaflensu sem berist líklega til landsins með vorinu Ekkert lát er á útbreiðslu skæðrar fuglaflensu í Evrópu, bæði í alifuglum og villtum fuglum. Sérstakar reglur um tímabundnar varnaraðgerðir til að fyrirbyggja að flensan berist í íslenska fugla hafa verið setttar í gildi. 2.4.2022 10:48
Röskun á umferð í Reykjavík vegna Netflix-myndar Víðtækar vegalokanir eru í Reykjavík um helgina, bæði fyrir akandi og gangandi vegfarendur, í tengslum við kvikmyndatökur á myndinni Heart of Stone. Gal Gadot, Jamie Dornan og fleiri stórstjörnur leika í Netflix-myndinni og verða við störf í miðbæ Reykjavíkur næstu daga. 2.4.2022 10:17
Tæplega þúsund börn farið oftar en fjórum sinnum í sóttkví Alls hafa 989 börn þurft að fara oftar en fjórum sinnum í sóttkví hér á landi frá upphafi kórónuveirufaraldursins fram til 10. febrúar. Þar af eru 243 börn á aldrinum 0 til 5 ára og 548 á aldrinum 6 til 12 ára. 2.4.2022 09:20
Létu ekki duga að flýja lögreglu á bíl Lögreglumenn hófu stutta eftirför á þriðja tímanum í nótt þegar ökumaður í miðbæ Reykjavíkur hlýddi ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. 2.4.2022 08:43
Óttast að ný Blöndulína í lofti þrengi að byggingarlandi bæjarins Bæjaryfirvöld á Akureyri óttast að hugmyndir Landsnets um lagningu Blöndulínu sem loftlínu alla leið til bæjarins þrengi að framtíðarbyggingarlandi hans. 1.4.2022 22:02
Hornafjörður ekki bótaskyldur vegna meints tjóns upp á hundruð milljóna Landsréttur vísaði hluta krafna Ice Lagoon ehf. á hendur Hornafirði frá dómi í dag og sýknaði bæjarfélagið af öðrum kröfum. Félagið taldi Hornafjörð hafa valdið sér tjóni upp á hundruði milljóna króna með ólögmætum stjórnvaldsákvörðunum. 1.4.2022 21:56
Strætó miður sín vegna Klapp-vandamála Nýtt greiðslukerfi Strætó hefur farið brösuglega af stað og mörgum verið meinaður aðgangur að vögnum vegna bilunar í kerfinu. Strætó lofar miklum betrumbótum strax í næstu viku. 1.4.2022 20:30
Vill húsnæðissáttmála á höfuðborgarsvæðinu Borgarstjóri kallar eftir því að ríki og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu geri með sér sérstakan húsnæðissáttmála til að leysa stöðuna á húsnæðismarkaði. Borgin ætlar að tvöfalda árlegt lóðaframboð sitt næstu fimm árin. 1.4.2022 19:06
Sitjandi formaður misnoti sjóði félaga í persónulegum hefndarleiðangri Fyrrverandi framkvæmdarstjóri Eflingar sakar sitjandi formann félagsins um að misnota sjóði félaga Eflingar persónulegum hefndarleiðangri gegn sér og Sólveigu Önnu Jónsdóttur. 1.4.2022 19:06
Fyrri áfallasaga rauður þráður hjá föngum Alvarleg áföll sem leiddu til vímuefnavanda og neyslutengdra afbrota er rauður þráður í reynslu íslenskra kvenfanga samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn. Geðhjúkrunarfræðingur segir það koma heim og saman við sambærilegar rannsóknir erlendis. 1.4.2022 19:01
Hver einasta frásögn hitti starfsfólk fæðingarþjónustu í hjartastað Starfsfólk fæðingarþjónustu Landspítala hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna mikillar samfélagsumræðu undanfarið um störf þeirra. 1.4.2022 18:32
Sunna Karen verðlaunuð fyrir umfjöllun ársins Sunna Karen Sigurþórsdóttir fréttamaður á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi hlaut nú síðdegis Blaðamannaverðlaun Íslands fyrir umfjöllun ársins. Hún fjallaði um tilefnislausar lífslokameðferðir af hálfu læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. 1.4.2022 18:19
Hækka félagsgjald til að efla vinnudeilusjóð Sameykis Félagsfólk Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu samþykkti á aðalfundi í gær að hækka félagsgjald í þeim tilgangi að efla vinnudeilusjóð félagsins. Tillagan var samþykkt með miklum meirihluta. 1.4.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá því hvernig Reykjavíkurborg ætlar að tvöfalda árlegt lóðaframboð sitt næstu fimm árin til að svara þeim eftirspurnarvanda sem nú er á húsnæðismarkaði. Borgin skorar á nágrannasveitarfélög sín og ríkið að gera með sér húsnæðissáttmála. 1.4.2022 18:00
Gæsluvarðhald vegna gruns um brot gegn sautján stúlkum framlengt Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karlmaður á sjötugsaldri skuli sæta gæsluvarðhaldi til 25. apríl vegna gruns um að hann hafi brotið kynferðislega gegn sautján stúlkum. 1.4.2022 17:29
Kveðst hafa verið sagt upp á Fréttablaðinu af pólitískum ástæðum Helgi Vífill Júlíusson, fráfarandi fréttastjóri Markaðarins, segir það hafa komið sér verulega í opna skjöldu þegar honum var sagt upp störfum með minna en tveggja daga fyrirvara. Greinilegt sé að pólitísk, frekar en fagleg sjónarmið hafi ráðið för. 1.4.2022 16:50
Réðst á konu eftir aðgerð og veittist svo að föður hennar Karlmaður á Norðurlandi eystra sætir þriggja mánaða nálgunarbanni en hann er grunaður um að hafa beitt konu ofbeldi eftir að hún gekkst undir aðgerð. Þegar faðir konunnar reyndi að tala um fyrir manninum er hann sagður hafa veist að föðurnum. 1.4.2022 15:56