Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gefa ekkert upp um hvort Ísland sé hulduríkið sem hjálpaði Pussy Riot Hvorki forsætisráðherra né fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins hafa viljað tjá sig um hvort íslensk stjórnvöld hafi komið að því að liðka fyrir brottför Maríu Alyokhinu, liðsmanni rússnesku andófshljómsveitarinnar Pussy Riot, frá Hvíta-Rússlandi til Litáen. 11.5.2022 20:31
Gæti verið brot á kosningalögum og jafnvel hegningarlögum Framboð E-listans í Reykjavík kemur til með að standa þó að einn frambjóðandi telji að undirskrift hennar við framboð hafi verið fölsuð. Forsvarsmenn listans kannast ekki við neina fölsun en frambjóðandinn gagnrýnir að þeir gangist ekki við broti sínu. Yfirkjörstjórn í Reykjavík mun vísa málinu til Héraðssaksóknara og fela þeim að kanna hvort um sé að ræða brot á kosningalögum eða jafnvel hegningarlögum. 11.5.2022 20:00
Samfylkingin stærsti flokkurinn í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu Samfylkingin er stærsti flokkurinn í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna en Sjálfstæðisflokkurinn fylgir þar fast á eftir. Meirihluti flokkanna fjögurra sem mynda meirihluta í borgarstjórn heldur. 11.5.2022 19:02
Grunaður um nauðgun, ránstilraunir og líkamsárásir Karlmaður á fertugsaldri sem grunaður er um mörg brot á undanförnum vikum, þar á meðal nauðgun, ránstilraunir og líkamsárásir, var í dag úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald til 8. júní, að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 11.5.2022 18:57
Mótorhjólaslys í Laugardal Minnst einn slasaðist í mótorhjólaslysi nærri Pylsuvagninum í Laugardal upp úr klukkan sex í kvöld. 11.5.2022 18:49
Harmar að forsvarsmenn E-listans sjái ekki að sér og gangist við brotinu Fyrrverandi þingmaðurinn Birgitta Jónsdóttir segir að yfirkjörstjórn hafi engin lagaleg úrræði til að fella nafn hennar af E-listanum, Reykjavík - besta borgin. Hún segir ljóst að laga þurfi verklag og ferla hjá kjörstjórnum. 11.5.2022 18:45
Maður lést við Hengifoss Lögregla, sjúkralið og björgunarsveitir voru kallaðar út að Hengifossi í norðanverðum Fljótsdal á öðrum tímanum í dag þegar tilkynning barst um veikan mann. 11.5.2022 18:18
Ólíklegt að skýrsla um Íslandsbankasölu verði tilbúin fyrir þinglok Útlit er fyrir að skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka verði ekki tilbúin fyrr en Alþingi er komið í sumarfrí. Stofnunin á að leggja mat á hvort salan hafi samrýmst lögum og stjórnsýsluháttum. 11.5.2022 18:13
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sérfræðingur í vinnumarkaðsrannsóknum segir stjórnvöld verða að setja einhverjar hömlur á hækkun leiguverðs. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar í nýju áliti við kerfisáhættu hjá bönkunum vegna óeðlilegra húsnæðisverðshækkana. Fjallað er um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 11.5.2022 18:00
N4 slaufar kosningaumfjöllun eftir að Kattaframboð neitar að borga fyrir þátttöku Til stóð að akureyrska sjónvarpsstöðin N4 yrði með sérstakan kosningaþátt eða þætti en babb kom í bátinn þegar Snorri Ásmundsson og Kattaframboðið gerðu athugasemd við að borga þyrfti fyrir þátttöku. Nú hefur alfarið verið fallið frá þeim fyrirætlunum stöðvarinnar að vera með kosningaumfjöllunina. 11.5.2022 17:14
Dæmdur í fimmtán mánuði fyrir sérstaklega hættulega hnífstunguárás Karlmaður á fertugsaldri hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir hótun og sérstaklega hættulega líkamsárás. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn einnig til að greiða brotaþola 600 þúsund krónur í miskabætur. 11.5.2022 16:26
Kappræður í borginni í beinni á Stöð 2 klukkan 18:55 Oddvitar níu framboða í Reykjavík mætast í kappræðum á Stöð 2 klukkan 18:55 í kvöld. Við sama tilefni verður greint frá niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu fyrir fréttastofu um fylgið í borginni. 11.5.2022 15:54
Sjö starfsmönnum HSN sagt upp: „Þarna er verið að ráðast á tekjulægsta fólkið“ Stéttarfélagið Framsýn mótmælir harðlega útboði á ræstingum og þrifi hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands, sem leitt hefur til þess að sjö félagsmenn Framsýnar hafa misst starfið hjá stofnuninni. Forstjórn HSN telur líklegt að fólkinu bjóðist störf hjá stofnuninni á næstu misserum. 11.5.2022 15:42
Undirskriftamálið á borð héraðssaksóknara Yfirkjörstjórnin í Reykjavík mun vísa undirskriftarmáli E-listans, Reykjavík – besta borgin, til héraðssaksóknara en stjórnin komst að þessari niðurstöðu að loknum fundi í dag. 11.5.2022 15:19
Mun leiða starfshóp um forvarnir og viðbrögð við áföllum í lífi barna Brynja Dan Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri og varaþingmaður Framsóknarflokksins, mun leiða sérstakan starfshóp Ásmundar Einars Daðasonar mennta- og barnamálaráðherra um forvarnir og viðbrögð við áföllum í lífi barna. 11.5.2022 14:23
Aron notar rödd „Karls“ til að tjá sig á hverjum degi Hinn níu ára gamli Aron Gauti Arnarsson er með fjórlömun, sem er tegund af Cerebral Palsy, sem er algengasta tegund hreyfihömlunar barna. Móðir hans segist hafa mikla trú á íslenskum leikjaiðnaði og veðjar á að lausnir á því sviði muni koma til með að bæta líf barna með fötlun til muna. 11.5.2022 13:17
Ekki fyrsta aðvörunin en styttist í að hún gæti orðið sú síðasta Formaður Loftslagsráðs segir alvarlegt að meðalhiti jarðarinnar gæti hækkað um eina og hálfa gráðu á næstu árum. Heimsbyggðin þurfi að gera miklu meira, miklu hraðar, til að bregðast við. Þetta sé ekki fyrsta aðvörunin sem að mannkynið fær en það styttist mögulega í að þetta verði sú síðasta. 11.5.2022 13:01
Ákærður fyrir að hafa keypt kynlífstæki fyrir fimm stúlkur og svo nauðgað þeim Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum, sumum oftar en einu sinni, ítrekað og beitt þær allar, auk þeirrar fimmtu, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreiti. Aðalmeðferð í málinu er lokið fyrir Héraðsdómi Reykjaness og er dómsuppsaga á dagskrá 19. maí næstkomandi. Þinghald í málinu er lokað. 11.5.2022 12:50
Huld skipuð í embætti forstjóra Tryggingastofnunar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur skipað Huld Magnúsdóttur í embætti forstjóra Tryggingastofnunar frá og með 1. júní næstkomandi. Hún hefur síðustu ár starfað sem framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. 11.5.2022 11:46
„Leiðinlegt ef gamall bæjarstjóri er mættur til þess eins að fella mig“ Hafnfirðingar sviku ekki í kappræðum um bæjarstjórnarmálin í kappræðum á Vísi í gær og buðu uppá hressileg skoðanaskipti. Átta framboð keppast um hituna og flugu skeytin milli oddvita. 11.5.2022 11:43
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um álit Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á stöðu efnahagsmála hér á landi en sjóðurinn hefur nú lokið reglulegri heimsókn sinni til landsins. 11.5.2022 11:36
Lilja heimsótti Pussy Riot Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hitti meðlimi hljómsveitarinnar Pussy Riot á æfingu sveitarinnar í Reykjavík. Hljómsveitin undirbýr tónleikaröð sína um Evrópu hér á landi og hefur verið við æfingar undanfarna daga í Þjóðleikhúsinu. Sveitin flaug af landi brott í morgun. 11.5.2022 10:31
Páll Vilhjálmsson fór bónleiður til búðar frá umboðsmanni Hinn umdeildi Páll Vilhjálmsson, kennari við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og bloggari, sendi umboðsmanni Alþingis erindi þar sem hann taldi fyrirliggjandi að Kristinn Þorsteinsson skólameistari hafi reist tjáningarfrelsi sínu skorður. Umboðsmaður tekur ekki undir það með Páli. 11.5.2022 09:34
Kom að ótrúlegum flótta liðskonu Pussy Riot Svo virðist sem að listamaðurinn Ragnar Kjartansson hafi leikið lykilhlutverk í ótrúlegum flótta Maríu Alyokhinu, liðsmanni Pussy Riot, á flótta hennar frá Rússlandi á dögunum. Er hann sagður hafa sannfært ónefnt ríki í Evrópu um að útvega henni vegabréf sem gerði henni kleift að komast yfir til Litháens frá Hvíta-Rússlandi. 11.5.2022 09:14
„Bensl-Geir“ gaf sig fram eftir mynd af skemmdarverkum Hjólreiðamaður sem hefur stundað að bensla bremsur rafhlaupahjóla gaf sig fram við framkvæmdastjóra Hopp eftir að myndir birtust af honum við iðju sína. Framkvæmdastjórinn segir þau hafa náð sáttum en maðurinn vildi mótmæla illa lögðum rafhlaupahjólum með gjörningi sínum. 11.5.2022 09:08
Hæstbjóðendur komi til baka á hnjánum Guðmundur Árni Stefánsson oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði segir markmiðið að fella núverandi meirihluta í Hafnarfirði og koma jafnaðarmönnum aftur til valda í bænum. Oddvitar átta framboða í Hafnarfirði mættu til kappræðna í beinni útsendingu á Vísi í gær. 11.5.2022 09:00
„Þetta snýst um að eiga lifandi dóttur eða látinn son“ Foreldrar Bjarkar Lárusdóttur fylgdu henni út til Tælands í kynleiðréttingaraðgerð í apríl síðastliðnum, eftir að hafa fengið veð í húsi sínu til að fjármagna ferlið. Þau hafa stutt dóttur sína frá fyrsta degi og lýsa Tælandsferðinni sem ævintýri, þar sem bæði féllu saknaðar- og gleðitár. 11.5.2022 09:00
Samfylking á siglingu í Hafnarfirði og meirihlutinn fallinn Meirihlutinn í Hafnarfirði, sem Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur mynda, er fallinn, ef marka má nýja könnun sem Prósent gerir fyrir Fréttablaðið. 11.5.2022 08:05
„Þetta er ekki boðlegt eins og þetta er í dag“ Ef nægt rafmagn verður ekki tryggt til Súðavíkur á næstu tveimur árum mun stærsta kalkþörungaverksmiðja landsins sem á að rísa þar keyrð á jarðefnaeldsneyti. Sveitarstjóri segir ríkið verða að bæta raforkumál svæðisins, annað væri galið. Orkumálaráðherra segir ljóst að forgangsraða þurfi verkefnum til að flýta fyrir orkuskiptum. Allt verði gert til að koma í veg fyrir að brenna jarðefnaeldsneyti. 11.5.2022 07:31
Segjast ekki í aðstöðu til að meta fullyrðingar um fölsun undirskriftar Ábyrgðarmenn framboðsins, Reykjavík – besta borgin, sem býður fram í komandi borgarstjórnarkosningum segjast harma þá umræðu sem komin sé upp um óánægju Birgittu Jónsdóttur, sem skipar heiðurssæti listans án þess að hafa gefið fyrir því leyfi. 11.5.2022 07:19
Átök um hvort byggja eigi í hrauninu Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir mikla ásókn í lóðir og því sé verið að kanna möguleika á að fjarlægja hluta af hrauni við hafnarsvæðið og byggja þar. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Viðlagasjóðs segir of marga vankanta á hugmyndinni. 10.5.2022 23:01
Ráðherra vill bíða með nýjan kennslu- og æfingaflugvöll Níu árum eftir að ríkið skrifaði upp á samkomulag um að finna kennslu- og einkaflugi nýjan stað eins fljótt og verða mætti bólar ekkert á efndum. Borgin þrýstir á að fá Fluggarða í Vatnsmýri undir aðrar húsbyggingar en innviðaráðherra segist vilja bíða eftir niðurstöðum Hvassahraunsnefndar. 10.5.2022 22:22
Kynleiðréttingaraðgerð í Tælandi varð henni lífsbjörg Kona sem er nýkomin heim úr kynleiðréttingaraðgerð í Tælandi telur að hún hefði ekki lifað af áralanga bið eftir aðgerðinni á Íslandi. Hún vill að aðgerðirnar verði flokkaðar sem lífsnauðsynlegar en á þriðja tug transkvenna eru nú á biðlista hér heima. 10.5.2022 21:00
Telja Hjalteyrarhjón hafa byrlað börnum ólyfjan í Garðabæ Starfsmaður Hjalteyrarhjónanna sem ráku leikskóla í Garðabæ lýsir tveimur atvikum árið 2007 þar sem þau hafi beitt börn ofbeldi. Þá telja foreldri og einstaklingur sem var hjá þeim í vistun að börnunum þar hafi verið byrlað ólyfjan svo þau svæfu, jafnvel allan daginn. 10.5.2022 20:00
„Ég hef hvergi getað leitað réttlætis eða úrvinnslu“ Ekkert eftirlit er með óhefðbundnum heilunar- og sjálfshjálparaðferðum og lítið gert nema þolendur verði fyrir alvarlegum lögbrotum. Kona sem hefur ítrekað orðið fyrir ofbeldi og misbeitingu í andlega heiminum kallar eftir vettvangi til að tilkynna brot. 10.5.2022 18:31
Aðeins eitt sem kemst að hjá Súðvíkingum fyrir kosningar Það er aðeins eitt sem Súðvíkingar vilja á næsta kjörtímabili - göng. Sveitarfélagið segir skilið við flokkakerfið og velur í kosningum þá fimm í sveitarfélaginu sem eru best til þess fallnir að stjórna bænum og fá ríkið til að leggja göngin. 10.5.2022 18:25
Gísli Hauksson játaði brot í nánu sambandi Gísli Hauksson, einn stofnenda fjárfestingasjóðsins GAMMA, játaði í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að hafa í maí árið 2020 ráðist á þáverandi sambýliskonu sína. 10.5.2022 18:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segjum við frá því að starfsmaður Hjalteyrarhjónanna sem ráku leikskóla í Garðabæ lýsir tveimur atvikum frá árinu 2007 þar sem þau hafi beitt börn ofbeldi. Þá telja foreldri og einstaklingur sem var hjá þeim í vistun að börnunum þar hafi verið byrlað ólyfjan svo þau svæfu. 10.5.2022 18:00
Sorpa og Reykjavíkurborg undirrita makaskiptasamning Tveir samningar voru undirritaðir í dag, annars vegar um lóðarvilyrði fyrir umhverfisvæna byggingu við Ártúnshöfða. Hins vegar var undirritaður samningur um makaskiptasamning á lóðum milli Reykjavíkurborgar og SORPU bs. 10.5.2022 17:47
Þrettán Færeyingar sæmdir riddarakrossi Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi í dag þrettán Færeyinga riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir hugrekki og þrautseigju við björgunarstörf eftir flugslysið á Mykinesi þann 26. september árið 1970. 10.5.2022 17:15
„Þetta er óásættanleg staða og mjög alvarleg“ Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að það sé óásættanlegt og mjög alvarlegt að í dag sé ekki hægt að manna þyrlu Landhelgisgæslunnar fyrir bráðaútköll en á tólfta tímanum í dag þurfti að flytja alvarlega slasaðan ökumann landleiðina því ekki tókst að leysa af veikan flugstjóra. Útlit sé fyrir að ekki muni rætast úr mönnunarstöðu hjá gæslunni fyrr en í fyrramálið. 10.5.2022 16:59
Aðalsteinn frá Byggðastofnun í skrifstofustjóra Sigurðar Inga Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur skipað Aðalstein Þorsteinsson í embætti skrifstofustjóra sveitarfélaga og byggðamála hjá innviðaráðuneytinu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins. 10.5.2022 16:22
Aðeins tímaspursmál að þyrla yrði ekki til taks Það var ekki spurning um hvort heldur hvenær sú staða kæmi upp að ekki væri hægt að manna þyrlu Landhelgisgæslunnar fyrir útkall líkt og gerðist í dag, að sögn formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna. 10.5.2022 15:31
Enginn flugstjóri fæst á vakt hjá Landhelgisgæslunni í dag Enginn flugstjóri er á vakt til að fljúga þyrlum Landhelgisgæslunnar í dag. Fyrir vikið er þyrlan ekki til taks. Verið er að flytja einstakling landleiðina sem slasaðist alvarlega undir Eyjafjöllum í morgun. 10.5.2022 13:24
Þjóðvegur 1 lokaður eftir bílslys undir Eyjafjöllum Þjóðvegur 1 er nú lokaður undir Eyjafjöllum eftir að fólksbíll hafnaði utan vegar skammt vestan Efra Bakkakots. Verið er að flytja ökumanninn á sjúkrahús. 10.5.2022 12:52
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent