Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Aukafréttatími eftir æsilega kosninganótt Framsóknarflokkurinn vann ótrúlegan sigur í borgarstjórnarkosningunum í ár og er í lykilstöðu við myndum nýs meirihluta í borginni. Dramatíkin var víða í sveitarstjórnum landsins. 15.5.2022 11:00
Mikil endurnýjun á Akureyri og margar leiðir að meirihluta í boði Á Akureyri hefur frá 2020 verið svokölluð samstjórn í bæjarstjórn. Það er að bæjarfulltrúar allra flokka sem náðu inn manni í kosningunum 2018 hafa haldið sameiginlega um stjórn þessa höfuðbóls manna á Norðurlandi. 15.5.2022 09:55
Björg áfram bæjarstjóri í Grundarfirði eftir sigur D-lista D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra vann sigur og hélt meirihluta sínum í sveitarstjórn í Grundarfirði í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í gær. 15.5.2022 09:39
Jakob Björgvin áfram bæjarstjóri eftir sigur H-lista H-listi Framfarasinna vann sigur í kosningum til sveitarstjórnar í sameinuðu sveitarfélagi Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar í gær. 15.5.2022 09:18
Bein útsending: Dramatísk kosninganótt gerð upp á Sprengisandi Það er óhætt að segja að kosninganóttin hafi verið dramatísk þar sem tölurnar létu bíða eftir sér víða og staðfest úrslit þar með um leið. 15.5.2022 09:01
Sjálfstæðismenn áfram í meirihluta í Snæfellsbæ D-listi Sjálfstæðisflokks hélt meirihluta sínum í sveitarstjórn Snæfellsbæjar í sveitarstjórnarkosningunum í gær. 15.5.2022 08:47
Konum fækkar í borgarstjórn en eru enn í meirihluta Körlum í nýkjörinni borgarstjórn Reykjavíkur fjölgar um þrjá frá lokum síðasta kjörtímabils. Konur verða engu að síður áfram í meirihluta þar en þær eru þrettán af tuttugu og þremur borgarfulltrúum. 15.5.2022 08:41
Sjálfstæðismenn misstu meirihluta sinn í Bolungarvík K-listi Máttar meyja og manna vann sigur í sveitarstjórnarkosningunum í Bolungarvík í gær og tryggði sér fjóra bæjarfulltrúa. Sjálfstæðismenn náðu inn þremur mönnum og er því ljóst að flokkurinn hefur misst meirihluta sinn í sveitarstjórn. 15.5.2022 08:29
Víða rigning en dregur smám saman úr vætu þegar líður á daginn Nú er suðaustan kaldi og víða rigning eða súld, en í dag dregur smám saman úr vætu og seinni partinn léttir jafnvel til norðaustanlands. 15.5.2022 07:32
Skvetti bjór og byrjaði að berja dyravörð Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir tilkynnt var um konu sem hafði ráðist á dyravörð veitingastaðar í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan 22 í gærkvöldi. 15.5.2022 07:22
Stórsigur Framsóknar setur Einar í bílstjórasætið Borgarstjórnarmeirihlutinn er fallinn og Framsóknarflokkurinn er í lykilstöðu fyrir myndun nýs meirihluta. Flokkurinn náði fjórum fulltrúum inn í borgarstjórn en Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn töpuðu tveimur fulltrúum hvor. 15.5.2022 06:39
Lokatölur úr Árborg: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn bættir við sig tveimur fulltrúum í sveitarfélaginu Árborg og er nú með hreinan sex fulltrúa meirihluta. Framsókn bættir sömuleiðis við einum fulltrúa og hefur nú tvo. Miðflokkurinn missir sinn eina bæjarfulltrúa en Samfylking og Áfram Árborg halda sínum mönnum. 15.5.2022 05:34
Lokatölur í Vestmannaeyjum: Meirihlutinn hélt velli Allt er óbreytt í Vestmannaeyjum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í ár. Meirihluti Eyjalistans og Fyrir Heimaey hélt velli í kosningunum, hefur nú fimm fulltrúa af níu en hafði áður fjóra af sjö. 15.5.2022 05:04
Lokatölur í Reykjavík: Meirihlutinn fallinn og stórsigur Framsóknar Framsóknarflokkurinn er þriðji stærsti flokkurinn í Reykjavík eftir ótrúlegan árangur í kosningunum í nótt. Flokkurinn sem hafði engan borgarfulltrúa undanarin fjögur ár náði fjórum mönnum inn. Meirihlutinn í borginni er fallinn. 15.5.2022 04:50
Lokatölur í Hafnarfirði: Samfylkingin vann mikinn sigur Samfylkingin bætti við sig tveimur bæjarfulltrúum í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum. Flokkurinn er á pari við Sjálfstæðisflokkinn en hvor flokkur er með fjóra bæjarfulltrúa. 15.5.2022 04:31
Lokatölur frá Akureyri: Bæjarlistinn í lykilstöðu Bæjarlistinn er í lykilstöðu þegar kemur að myndun meirihluta eftir kosningarnar. Flokkurinn bætir við sig fulltrúa og er stærstur í bæjarstjórn með þrjá fulltrúa. 15.5.2022 04:20
Lokatölur úr Ísafjarðarbæ: Ísafjarðarlistinn með hreinan meirihluta Ísafjarðarlistinn kom, sá og sigraði í sveitarstjórnarkosningunum í Ísafirði þetta árið. Flokkurinn náði fimm fulltrúum af níu og náði þar með meirihlutanum með því að stela fulltrúa af Sjálfstæðisflokknum. 15.5.2022 04:17
Lokatölur í Múlaþingi: Tveir flokkar fengu þrjá fulltrúa Tveir flokkar fengu þrjá fulltrúa kjörna í fyrstu sveitarstjórnarkosningunum í Múlaþingi. 15.5.2022 04:13
Lokatölur í Kópavogi: Meirihlutinn hélt og Vinir Kópavogs náðu inn tveimur Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn halda sex fulltrúa meirihluta í Kópavogi að loknum sveitarstjórnarkosningunum í nótt. Vinir Kópavogs, nýtt framboð, náði inn tveimur bæjarfulltrúum. 15.5.2022 04:07
Lokatölur úr Fjarðabyggð: Meirihlutinn heldur Meirihluti Fjarðalistans og Framsóknar og óháðra heldur. Framsókn bætir við sig einum en Fjarðalistinn missir tvo. 15.5.2022 03:50
Lokatölur úr Garðabæ: Áfram hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokks Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta í Garðabæ þrátt fyrir að tapa einum fulltrúa. Flokkurinn hefur sjö fulltrúa af ellefu að loknum kosningum. 15.5.2022 03:39
Lokatölur úr Mosfellsbæ: Ótrúlegt gengi Framsóknar Framsóknarflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í Mosfellsbæ. Flokkurinn átti ekki fulltrúa í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili en fékk fjóra fulltrúa í kosningunum í nótt. 15.5.2022 03:34
Lokatölur úr Reykjanesbæ: Meirihlutinn styrkti stöðu sína Meirihlutinn í Reykjanesbæ styrkti stöðu sína að loknum sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin fær þrjá fulltrúa, Framsókn sömuleiðis og Bein leið einn. Alls sjö fulltrúa af ellefu. 15.5.2022 03:20
Opin fyrir samstarfi með Framsóknarflokknum Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, segist vera opin fyrir því að starfa með Framsókn í borgarstjórn ef núverandi samstarfsflokkar missa meirihluta sinn. Samkvæmt fyrstu tölum er meirihluti Samfylkingarinnar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna fallinn en Píratar bæta þó við sig manni. 15.5.2022 03:16
„Þetta er klárlega ekki það sem við stefndum að“ Skúli Helgason og Heiða Björg Hilmisdóttir, frambjóðendur Samfylkingarinnar í Reykjavík, útiloka ekki meirihlutasamstarf með Sósíalistaflokknum eða Framsóknarflokknum. Fyrstu tölur séu ekki það sem stefnt var að en tækifærin eru mörg. 15.5.2022 03:05
Segir félagslegt húsnæði skilyrði og útilokar Viðreisn Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokks Íslands, segist ekki geta hugsað sér að vinna í meirihlutasamstarfi með Viðreisn og hún setur aukið félagslegt húsnæði sem skilyrði. 15.5.2022 02:45
Ekki úrslitaatriði að halda í borgarstjórastólinn Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar, lagði áherslu á það að nóttin væri enn ung þegar hann talaði við stuðningsmenn sína eftir fyrstu tölur í Reykjavík. 15.5.2022 02:40
Lokatölur úr Fjallabyggð: Nýr meirihluti í pípunum Sjálfstæðisflokkurinn missir einn fulltrúa frá síðustu kosningum og nær tveimur inn en Jafnaðarfólk og óháðir nældu í þrjá fulltrúa. 15.5.2022 02:35
Lokatölur frá Sveitarfélaginu Hornafirði: Meirihluti Framsóknar fallinn Framsókn missir tvo fulltrúa og Sjálfstæðisflokkur bætir við sig einum í Sveitarfélaginu Hornafirði. 15.5.2022 02:30
Lokatölur úr Norðurþingi: Meirihlutinn heldur Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Samfylkingar heldur í Norðurþingi. 15.5.2022 02:20
Lokatölur frá Grindavík: Miðflokkurinn nær flestum inn Miðflokkurinn nær þremur fulltrúum inn í Grindavík. 15.5.2022 02:10
Hildur hæstánægð með fyrstu tölur í Reykjavík „Meirihlutinn í Reykjavík er fallinn. Og það sem meira er, Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í Reykjavík,“ sagði Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, við mikil fagnaðarlæti eftir að fyrstu tölur voru kynntar í Reykjavík. 15.5.2022 02:09
Í-listinn með hreinan meirihluta samkvæmt fyrstu tölum Í- listi Ísafjarðarbæjar hlýtur skínandi góða kosningu samkvæmt fyrstu tölum og eru með hreinan meirihluta. Nóttin er auðvitað ung og endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir. 15.5.2022 02:09
Lokatölur frá Ölfusi: Meirihlutinn heldur Á kjörskrá í Ölfusi 1.811. Sjö bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn. 15.5.2022 02:00
Meirihlutinn fallinn og Einar í skýjunum Miðað við fyrstu tölur í Reykjavík er meirihlutinn fallinn. Samkvæmt sömu tölum er Framsóknarflokkurinn ótvíræður sigurvegari kosninganna. 15.5.2022 01:58
Lokatölur úr Skagafirði: Meirihlutinn heldur Fimm fulltrúa meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar heldur í Skagafirði. 15.5.2022 01:50
Gríðarleg stemning og eftirvænting hjá Pírötum Oddviti Pírata í Reykjavík segir stemninguna á kosningavöku flokksins vera gríðarlega. Biðin eftir fyrstu tölum í Reykjavík sé þó erfið. 15.5.2022 01:40
Lokatölur frá Seltjarnarnesi: Sjálfstæðisflokkur tryggði sér áframhaldandi meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn á Seltjarnarnesi tryggði sér fjóra fulltrúa, líkt og í síðustu kosningum. 15.5.2022 01:30
Útskýrir tafirnar á fyrstu tölum í Reykjavík Eva B. Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík, segir ýmsar ástæður fyrir miklum töfum á fyrstu tölum úr Reykjavík en upphaflega var gert ráð fyrir því að þær yrðu tilkynntar um miðnætti. 15.5.2022 01:12
Lokatölur úr Borgarbyggð: Framsókn komin með hreinan meirihluta Lokatölur eru komnar úr Borgarbyggð og er Framsóknarflokkurinn með hreinan meirihluta. 15.5.2022 01:10
Telur talsverðar líkur á því að meirihlutinn falli Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og forseti Alþingis, telur það vera fimmtíu prósent líkur á að meirihlutinn falli í Reykjavík. Hann skilur ekki töf á fyrstu tölum í kjördæminu þegar talningin virðist ekki vera vandi annars staðar á landinu. 15.5.2022 01:06
Óttast ekki að Framsókn snúi við sér baki Miðað við fyrstu tölur missir Sjálfstæðisflokkurinn einn mann úr bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Oddviti listans segir þó að um varnarsigur sé að ræða. 15.5.2022 01:02
Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks heldur Framsókn missir einn fulltrúa í Dalvíkurbyggð en meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks heldur. 15.5.2022 00:50
Lokatölur úr Hveragerði: Sjálfstæðisflokkur missir meirihlutann Lokatölur eru komnar úr Hveragerði og Sjálfstæðisflokkurinn tapar tveimur fulltrúum. 15.5.2022 00:40
Spennan magnast hjá Samfylkingunni í biðinni löngu Heiða Björg Hilmisdóttir, sem skipar annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir stemninguna á kosningavöku flokksins í Iðnó vera góða. 15.5.2022 00:34