Fleiri fréttir „Hægt að treysta því að verðbólga verður ekki viðvarandi hér“ Skörp vaxtahækkun var nauðsynleg til að ná tökum á verðbólgunni að sögn seðlabankastjóra en stýrvextir voru í dag hækkaðir um eitt prósentustig. Með þessu séu einnig send skýr skilaboð inn í komandi kjaraviðræður um að verðbólga verði ekki viðvarandi hér á landi. 22.6.2022 11:45 Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ástandið sem verið hefur í norðurbæ Hafnarfjarðar síðan í morgun. 22.6.2022 11:36 Töskurnar fóru með út en komust ekki í hendur farþega Allur farangur sem farþegar tóku með sér í flug Icelandair til Amsterdam á mánudag fylgdi þeim út. Vegna manneklu á Schipol-flugvelli komst farangurinn hins vegar ekki til farþega að flugi loknu. 22.6.2022 11:32 Ingó áfrýjar til Landsréttar Ingólfur Þórarinsson mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll 30. maí síðastliðinn. Héraðsdómur sýknaði Sindra Þór Sigríðarson Hilmarsson af stefnu Ingólfs um meiðyrði. 22.6.2022 11:20 Umsátursástand eftir skotárás í Hafnarfirði Lögreglumenn reyna nú að ræða við karlmann á sjötugsaldri sem er grunaður um að skjóta á kyrrstæðan bíl fyrir utan fjölbýlishús við Miðvang í Hafnarfirði í morgun. Vopnaðir sérsveitarmenn eru á vettvangi og mikil viðbúnaður en grunaði byssumaðurinn er í íbúð í blokkinni. 22.6.2022 09:29 Stjórnvöld hyggjast flokka öll gögn í öryggisflokka Í samráðsgátt stjórnvalda liggur nú skjal þar sem lögð eru drög að flokkkun gagna ríkisaðila í öryggisflokka. Flokkarnir segja til um hvers konar varnir og ráðstafanir þarf að viðhafa fyrir gögn í umræddum flokki en engin samræmd öryggisflokkun hefur verið viðhöfð þar til nú. 22.6.2022 07:44 „Hvað á að gera þegar þessir menn fara á eftirlaun?“ Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir þungt hljóð í heilbrigðisstarfsmönnum víða á landinu. Ástandið sé ekki síður erfitt þar heldur en á Landspítalanum. 22.6.2022 06:57 Sá ekki börnin koma aðvífandi á rafmagnshlaupahjólum Það var heldur rólegt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt, fyrir utan tilkynningu sem barst um klukkan hálf ellefu þar sem greint var frá umferðarslysi í Kópavogi. 22.6.2022 06:41 Fátt um svör hjá Icelandair eftir að allur farangurinn týndist Farþegar flugsins FI506 á vegum Icelandair til Schiphol flugvallar í Hollandi hafa ekki enn fengið farangurinn sinn afhentan síðan þau lentu um hádegi síðastliðinn mánudag. Farþegar hafa lítil svör fengið frá Icelandair þrátt fyrir að hafa reynt að hafa samband símleiðis og með netspjalli. 21.6.2022 23:52 Anna Hildur endurkjörin formaður SÁÁ Anna Hildur Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður SÁÁ nú fyrr í kvöld og Þráinn Farestveit varaformaður sömuleiðis. Núverandi stjórn félagasamtakanna hélt velli þrátt fyrir mótframboð. 368 einstaklingar sóttu fundinn og fór hann vel fram að sögn varaformanns. 21.6.2022 22:22 Sammála um að ljúka uppsetningu viðvörunarkerfis í Reynisfjöru Samráðsfundur stjórnvalda með landeigendum í Reynisfjöru var haldinn í kvöld. Þeir sem sóttu fundinn voru sammála um að ljúka ætti uppsetningu viðvörunarkerfis í fjörunni. Samráðshópur hefur fengið það verkefni að útbúa tímasetta aðgerðaráætlun til að efla öryggi á svæðinu. 21.6.2022 21:53 Hvalveiðimenn gera klárt til að hefja hvalvertíð á morgun Stefnt er að því að hvalveiðiskip Hvals hf. hefji hvalvertíð á morgun, þá fyrstu í fjögur ár. Áhafnir hvalbátanna Hvals 8 og Hvals 9 voru í óðaönn í dag að undirbúa brottför. 21.6.2022 21:30 „Þetta virðist vera stjórnlaust ástand“ Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn segir að ástandið á húsnæðismarkaði sé stjórnlaust. Hann vonast til þess að fyrstu aðgerðir til að flýta úthlutun lóða í borginni komist á koppinn í sumar. 21.6.2022 20:30 Nýr sóttvarnarlæknir vonast eftir meiri ró í embætti Guðrún Aspelund, nýr sóttvarnarlæknir mætti í Reykjavík síðdegis í dag. Guðrún er sérhæfð í almennum barnaskurðlækningum og vann á sóttvarnasviði áður en hún sótti um embætti sóttvarnarlæknis. Hún vonast eftir meiri ró í starfi en Þórólfur. 21.6.2022 19:49 Telur Íslendinga á undan öðrum þjóðum í greiningum á ADHD Formaður ADHD samtakanna fagnar því að rannsaka eigi tengsl geðrofa og örlyndis og örvandi ADHD-lyfja. Hann telur Íslendinga fimm árum á undan öðrum þjóðum þegar kemur að greiningum á ofvirkni og athyglisbresti. 21.6.2022 19:01 Holtavörðuheiðinni lokað vegna hjólhýsis Holtavörðuheiði var lokað í tvær klukkustundir í dag vegna umferðaróhapps. 21.6.2022 18:20 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sögulegar verðhækkanir hafa orðið á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu síðasta árið. Íslandsbanki býst við að verð haldi áfram að hækka næstu mánuði og gerir ráð fyrir stýrivaxtahækkun á morgun. 21.6.2022 18:00 Banaslys á Djúpavogi Erlendur ferðamaður á sjötugsaldri lést á Djúpavogi í dag. 21.6.2022 17:21
Sjá næstu 50 fréttir
„Hægt að treysta því að verðbólga verður ekki viðvarandi hér“ Skörp vaxtahækkun var nauðsynleg til að ná tökum á verðbólgunni að sögn seðlabankastjóra en stýrvextir voru í dag hækkaðir um eitt prósentustig. Með þessu séu einnig send skýr skilaboð inn í komandi kjaraviðræður um að verðbólga verði ekki viðvarandi hér á landi. 22.6.2022 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um ástandið sem verið hefur í norðurbæ Hafnarfjarðar síðan í morgun. 22.6.2022 11:36
Töskurnar fóru með út en komust ekki í hendur farþega Allur farangur sem farþegar tóku með sér í flug Icelandair til Amsterdam á mánudag fylgdi þeim út. Vegna manneklu á Schipol-flugvelli komst farangurinn hins vegar ekki til farþega að flugi loknu. 22.6.2022 11:32
Ingó áfrýjar til Landsréttar Ingólfur Þórarinsson mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll 30. maí síðastliðinn. Héraðsdómur sýknaði Sindra Þór Sigríðarson Hilmarsson af stefnu Ingólfs um meiðyrði. 22.6.2022 11:20
Umsátursástand eftir skotárás í Hafnarfirði Lögreglumenn reyna nú að ræða við karlmann á sjötugsaldri sem er grunaður um að skjóta á kyrrstæðan bíl fyrir utan fjölbýlishús við Miðvang í Hafnarfirði í morgun. Vopnaðir sérsveitarmenn eru á vettvangi og mikil viðbúnaður en grunaði byssumaðurinn er í íbúð í blokkinni. 22.6.2022 09:29
Stjórnvöld hyggjast flokka öll gögn í öryggisflokka Í samráðsgátt stjórnvalda liggur nú skjal þar sem lögð eru drög að flokkkun gagna ríkisaðila í öryggisflokka. Flokkarnir segja til um hvers konar varnir og ráðstafanir þarf að viðhafa fyrir gögn í umræddum flokki en engin samræmd öryggisflokkun hefur verið viðhöfð þar til nú. 22.6.2022 07:44
„Hvað á að gera þegar þessir menn fara á eftirlaun?“ Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir þungt hljóð í heilbrigðisstarfsmönnum víða á landinu. Ástandið sé ekki síður erfitt þar heldur en á Landspítalanum. 22.6.2022 06:57
Sá ekki börnin koma aðvífandi á rafmagnshlaupahjólum Það var heldur rólegt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt, fyrir utan tilkynningu sem barst um klukkan hálf ellefu þar sem greint var frá umferðarslysi í Kópavogi. 22.6.2022 06:41
Fátt um svör hjá Icelandair eftir að allur farangurinn týndist Farþegar flugsins FI506 á vegum Icelandair til Schiphol flugvallar í Hollandi hafa ekki enn fengið farangurinn sinn afhentan síðan þau lentu um hádegi síðastliðinn mánudag. Farþegar hafa lítil svör fengið frá Icelandair þrátt fyrir að hafa reynt að hafa samband símleiðis og með netspjalli. 21.6.2022 23:52
Anna Hildur endurkjörin formaður SÁÁ Anna Hildur Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður SÁÁ nú fyrr í kvöld og Þráinn Farestveit varaformaður sömuleiðis. Núverandi stjórn félagasamtakanna hélt velli þrátt fyrir mótframboð. 368 einstaklingar sóttu fundinn og fór hann vel fram að sögn varaformanns. 21.6.2022 22:22
Sammála um að ljúka uppsetningu viðvörunarkerfis í Reynisfjöru Samráðsfundur stjórnvalda með landeigendum í Reynisfjöru var haldinn í kvöld. Þeir sem sóttu fundinn voru sammála um að ljúka ætti uppsetningu viðvörunarkerfis í fjörunni. Samráðshópur hefur fengið það verkefni að útbúa tímasetta aðgerðaráætlun til að efla öryggi á svæðinu. 21.6.2022 21:53
Hvalveiðimenn gera klárt til að hefja hvalvertíð á morgun Stefnt er að því að hvalveiðiskip Hvals hf. hefji hvalvertíð á morgun, þá fyrstu í fjögur ár. Áhafnir hvalbátanna Hvals 8 og Hvals 9 voru í óðaönn í dag að undirbúa brottför. 21.6.2022 21:30
„Þetta virðist vera stjórnlaust ástand“ Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn segir að ástandið á húsnæðismarkaði sé stjórnlaust. Hann vonast til þess að fyrstu aðgerðir til að flýta úthlutun lóða í borginni komist á koppinn í sumar. 21.6.2022 20:30
Nýr sóttvarnarlæknir vonast eftir meiri ró í embætti Guðrún Aspelund, nýr sóttvarnarlæknir mætti í Reykjavík síðdegis í dag. Guðrún er sérhæfð í almennum barnaskurðlækningum og vann á sóttvarnasviði áður en hún sótti um embætti sóttvarnarlæknis. Hún vonast eftir meiri ró í starfi en Þórólfur. 21.6.2022 19:49
Telur Íslendinga á undan öðrum þjóðum í greiningum á ADHD Formaður ADHD samtakanna fagnar því að rannsaka eigi tengsl geðrofa og örlyndis og örvandi ADHD-lyfja. Hann telur Íslendinga fimm árum á undan öðrum þjóðum þegar kemur að greiningum á ofvirkni og athyglisbresti. 21.6.2022 19:01
Holtavörðuheiðinni lokað vegna hjólhýsis Holtavörðuheiði var lokað í tvær klukkustundir í dag vegna umferðaróhapps. 21.6.2022 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sögulegar verðhækkanir hafa orðið á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu síðasta árið. Íslandsbanki býst við að verð haldi áfram að hækka næstu mánuði og gerir ráð fyrir stýrivaxtahækkun á morgun. 21.6.2022 18:00
Stal tæplega 20 þúsund lítrum af bensíni Karlmaður var í gær dæmdur í 90 daga skiloðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt með því að hafa fyrir stolið tæplega 20 þúsund lítrum lítrum af eldsneyti, að andvirði 3,6 milljónum króna. 21.6.2022 17:05
Fær ekki líftryggingu eftir að hafa leitað sér hjálpar vegna þunglyndis Stefán Árnason hefur fengið synjun á umsókn um líftryggingu frá tveimur vátryggingafélögum. Þau hafa synjað umsóknum hans af þeim ástæðum einum að hann sé þunglyndur og hafi leitað sér hjálpar vegna þess. 21.6.2022 16:46
Felldu tillögu minnihlutans: „Þau vilja halda þessu í útlendingafrumvarpinu til að réttlæta ógeðið“ Á síðasta þingfundi löggjafarþingsins felldu stjórnarliðar tillögu minnihlutans um að veita Úkraínumönnum, sem komið hafa til landsins vegna stríðsins, atvinnuleyfi samhliða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þingkona Pírata telur að brögð séu í tafli og að stjórnarliðar hafi viljað halda sambærilegu ákvæði í útlendingalögum til að réttlæta ýmis önnur ákvæði í því frumvarpi. 21.6.2022 16:14
Of veikur listi umsækjenda sendur til Mannréttindadómstólsins Íslenska ríkið þarf að hefja umsóknarferli um dómarastöðu við Mannréttindadómstól Evrópu að nýju eftir að tveir af þremur umsækjendum, sem tilnefndir voru af íslenska ríkinu, drógu umsókn sína til baka í kjölfar viðtala. 21.6.2022 14:46
Sjóvá fær að áfrýja máli háseta sem fékk hærri bætur vegna fyrirvara Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hefur fengið beiðni um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar samþykkta vegna dóms Landsréttar í máli háseta sem hlaut varanlega örorku þegar hann slasaðist á sjó árið 2014. 21.6.2022 14:27
Mikil aðsókn í opna húsið Í dag hófst aftur opið hús í bólusetningar gegn Covid-19 fyrir áttatíu ára og eldri og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma. Yfirmaður hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu segir að mun fleiri hafi mætt en búist var við. 21.6.2022 14:04
Ekki auðvelt að feta í fótspor Þórólfs Það verður ekki auðvelt að fylla í það skarð sem Þórólfur Guðnason skilur eftir. Þetta segir Guðrún Aspelund nýráðinn sóttvarnalæknir. Starfið sé krefjandi en hún kveðst treysta sér í verkefnið. Það sem sé mest aðkallandi nú sé að hvetja aldraða og fólk í áhættuhópum til að fara í bólusetningu gegn COVID-19. 21.6.2022 13:10
Lítur ætluð brot Eimskips alvarlegum augum Rannsókn héraðssaksóknara á meintum brotum Eimskips á lögum um meðhöndlun úrgangs er umfangsmikil og kallað hefur verið eftir gögnum erlendis frá. Forstjóri Umhverfisstofnunar lítur málið alvarlegum augum og framkvæmdastjóri hjá Eimskip er með réttarstöðu sakbornings. 21.6.2022 11:52
Góður gangur í rannsókn manndrápsins í Barðavogi Rannsókn manndrápsins í Barðavogi miðar vel að sögn fulltrúa hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 21.6.2022 11:40
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um meint brot Eimskips um meðhöndlun úrgangs en rannsóknin, sem varðar förgun á tveimur skipum félagsins er sögð umfangsmikil. 21.6.2022 11:34
Engum verið fylgt úr landi enn sem komið er Í lok síðasta mánaðar stóð til að vísa alls 197 hælisleitendum úr landi, þar af 44 til Grikklands. Stoðdeild Ríkislögreglustjóra ákvað að byrja á hópnum sem senda átti til Grikklands en enn sem komið er hefur engum verið fylgt þangað. 21.6.2022 11:05
400 millilítrar: Breytingar á stærð bjórglasa ekki samsæri Efnahagsmálin voru til umræðu í Íslandi í dag, þar sem Jón Mýrdal veitingamaður sat fyrir svörum. Allt hefur hækkað – þar á meðal bjór, en bjórinn fæst nánast hvergi ódýrari en á um 1.300 krónur þessa dagana. 21.6.2022 09:26
Guðrún Aspelund tekur við af Þórólfi sem sóttvarnalæknir Guðrún Aspelund hefur verið ráðin sóttvarnalæknir frá og með 1. september. Guðrún starfar nú sem yfirlæknir á sviði sóttvarna hjá embætti landlæknis. Hún var eini umsækjandinn um starfið. 21.6.2022 09:23
Unnið að friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs Unnið verður að friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs eftir að jörðin Heiði skipti um eigendur. 21.6.2022 09:08
Búið er að opna veginn milli Ísafjarðar og Hnífsdals eftir aurskriðu Vegurinn á milli Hnífsdals og Ísafjarðar hefur verið opnaður á ný eftir að hafa verið lokað í morgun eftir að aurskriða féll niður Eyrarhlið og niður á veginn. 21.6.2022 07:37
Stjórnvöld nýttu ekki forkaupsréttinn á Fjaðrárgljúfri Íslensk stjórnvöld nýttu sér ekki forkaupsrétt sem þau höfðu á Fjaðrárgljúfri en frestur til að nýta slíkan rétt er nú runninn út. 21.6.2022 06:52
Lögregla kölluð út vegna elds í tveimur bifreiðum við Esjustofu Verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru nokkuð fjölbreytt í gærkvöldi og nótt en hún var meðal annars kölluð á vettvang vegna elds í tveimur bifreiðum við Esjustofu rétt fyrir klukkan þrjú í nótt. 21.6.2022 06:41
„Fallegt samfélagslegt verkefni sem að gerir borgina betri“ Reykvíkingar ársins 2022 segja það hafa komið á óvart að þau hafi orðið fyrir valinu en þau komu á fót fyrsta íslenska frískápnum. Formaður borgarráðs segir þau vel að nafnsbótinni komin þar sem þau hafa fengið aðra Reykvíkinga með sér í lið til að bæta samfélagið. 20.6.2022 21:00
Glæný nálgun í öldrunarþjónustu Ný öldrunarþjónusta sem á að gera fólki kleift að búa lengur heima og minnka svokallaðan fráflæðisvanda Landspítala var kynnt á Sólvangi í dag. Heilbrigðisráðherra segir um tímamót að ræða sem muni draga úr innlögnum á spítala. 20.6.2022 20:01
Loftslagsráð gagnrýnir aðgerðaáætlun íslenskra stjórnvalda Á 55. fundi Loftslagsráðs þann 9. júní síðastliðinn samþykkti ráðið álit tileinkað íslenskum stjórnvöldum í ljósi skýrslu IPCC. Loftslagsráð segir markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 óljós og sé þörf á frekari útskýringum á markmiðum. 20.6.2022 18:41
„Samfélagið er að svíkja þessi börn í stað þess að breyta kerfinu“ Sífellt fleiri börn fá ADHD-lyf hér á landi. Í dag fær um einn af hverjum sjö strákum slík lyf og um ein af hverjum tíu stelpum. Prófessor í sálfræði segir þetta óeðlilega þróun og úr takti við nálganir annarra norrænna samfélaga. 20.6.2022 18:30
Björn lagði ríkið og fær milljónir í bætur Íslenska ríkið þarf að greiða Birni Þorlákssyni, fyrrverandi upplýsingafulltrúa Umhverfisstofnunar tæpar sjö milljónir vegna uppsagnar hans á síðasta ári, þar af þrjár milljónir í miskabætur. 20.6.2022 18:18
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sífellt fleiri börn fá ADHD-lyf hér á landi. Í dag fær um einn af hverjum sjö strákum slík lyf og um ein af hverjum tíu stelpum. Prófessor í sálfræði segir þetta óeðlilega þróun og úr takti við nálganir annarra norrænna samfélaga. 20.6.2022 18:01
Fjölgun á hegningarlagabrotum milli mánaða Í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að 716 hegningarlagabrot voru skráð í maí og fjölgaði þeim á milli mánaða. Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða en tilkynningum um innbrot fækkaði. 20.6.2022 17:40
Burðardýr dæmt í fimmtán mánaða fangelsi Kvenmaður var í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í héraðsdómi Reykjaness fyrir innflutning á rúmu kílói af sterku kókaíni. Efnin voru ætluð til söludreifingar hér á landi. 20.6.2022 16:20
Aftanákeyrsla á Hellisheiði Bílslys varð á Hellisheiði fyrir skömmu er bifreið ók aftan á aðra bifreið. Einhver slys urðu á fólki en ekki er vitað um líðan þeirra. Ekki þurfti að notast við klippur til að koma farþegum úr bifreiðunum að sögn Halldórs Ásgeirssonar, aðalvarðstjóra hjá Brunavörnum Árnessýslu. 20.6.2022 15:38
Þrjár alvarlegar líkamsárásir um helgina Nokkur erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um helgina en tuttugu og þrjár líkamsárásir voru tilkynntar, þar af þrjár alvarlegar. Þá fór lögregla í fjórtán útköll vegna heimilisofbeldis. 20.6.2022 15:19