Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Skiptar skoðanir eru á þeirri ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum að banna börnum undir tólf ára aldri að fara á gossvæðið í Meradölum. Landsbjörg segir ákvörðunina auðvelda starf björgunarsveita til muna, en aðrir telja að treysta eigi foreldrum til að meta aðstæður hverju sinni. Fjallað verður ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 9.8.2022 18:12
Mikilvægt að undirbúa sig undir að gosið standi yfir í langan tíma Á fundi Vísindaráðs almannavarna í morgun var farið yfir nýjustu gögn og mælingar um eldgosið í Meradölum. Gosvirknin hefur haldist nokkuð stöðug síðustu daga og er það mikilvægt að undirbúa sig undir að gosið gæti staðið yfir í nokkuð langan tíma. 9.8.2022 17:21
Sum börn séu betur til þess fallin að ganga að gosinu en fullorðið fólk Í dag bárust fregnir af því að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefði tekið þá ákvörðun að börn undir tólf ára aldri væru ekki velkomin að eldgosinu í Meradölum. Mikið ósætti virðist ríkja meðal fólks vegna ákvörðunarinnar en lögreglustjórinn, Úlfar Lúðvíksson segir að verið sé að „tryggja hagsmuni barna“ með þessari ákvörðun. 9.8.2022 17:15
Reyndi að bjarga strönduðum dróna með dróna í Stuðlagili Hún heppnaðist ekki, björgunaraðgerð drónaflugmanns sem kom auga á strandaðan dróna á syllu í Stuðlagili í sumar. 9.8.2022 15:29
Tengivagn á hliðina á hringtorgi Tengivagn sem dreginn var af fóðurbíl fór á hliðina á hringtorgi á mótum Vesturlandsvegs og Ásavegs í Mosfellsbæ skömmu fyrir hádegi í dag. 9.8.2022 14:23
Hraunið nánast komið út í enda Meradala Lítið er að frétta af þróun eldgossins í Meradölum en ekki hefur verið hægt að fara í mælingarflug yfir svæðið frá því á fimmtudag vegna veðurs. Órói er nú stöðugur og hefur dregið úr skjálftavirkni. 9.8.2022 14:20
Mestar áhyggjur af mistökum í spennuþrungnum aðstæðum Heræfingar Kínverja við Taívan tengjast vaxandi samkeppni þeirra við Bandaríkin, sem á eftir að verða ráðandi þáttur í heimsmálunum á næstu áratugum, að mati sérfræðings í utanríkismálum. Helstu áhyggjurnar lúti að því að mistök verði gerð í spennuþrungnum aðstæðum. 9.8.2022 13:10
Leikskólinn byrjaður og sautján mánaða gömul börn sitja heima Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Móðir sautján mánaða barns sem fær ekki leikskólapláss í haust líkir leikskólamálum borgarinnar við frumskóg. 9.8.2022 13:01
Alvarlega slasaður eftir umferðarslys á Akureyri Ekið var á gangandi vegfaranda á Strandgötu á Akureyri klukkan tæplega ellefu í morgun, meiðsli vegfarandans eru talin alvarleg. Slysið varð skammt frá Bifreiðastöð Oddeyrar. 9.8.2022 13:00
Eiríkur Guðmundsson látinn Eiríkur Guðmundsson útvarpsmaður og rithöfundur er látinn aðeins 52 ára að aldri, hann fæddist þann 28. september 1969 í Bolungarvík. 9.8.2022 12:36
Boðar bráðaaðgerðir í iðnnámi Menntamálaráðherra heitir því að stjórnvöld muni gera það sem hægt er til að tryggja að sem flestir fái aðgang að verknámi sem það vilja. Komið hefur fram að mun færri komast að en vilja í slíkt nám, en ráðherra segir hugsanlegt að ekki verði hægt að bregðast við öllum sem vilja komast að. 9.8.2022 11:55
Heimilt að sekta fólk sem ekki virðir lokanir á gosstöðvum Lögreglan á Suðurnesjum hefur heimildir til að sekta fólk sem virðir ekki lokanir lögreglu við gosstöðvarnar í Meradölum. Það er þó ekki til skoðunar sem stendur. Svæðið er lokað öllum í dag, vegna veðurs, og verður framvegis alfarið lokað börnum yngri en tólf ára. 9.8.2022 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Eldgos, leikskólapláss í Reykjavík og spennan í samskiptum Kína og Taívan eru á meðal þess sem fjallað verður um í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 9.8.2022 11:30
Eldgosið bannað börnum yngri en tólf ára Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að meina börnum yngri en tólf ára aðgangi að eldgosinu í Meradölum. Öflugri gæsla verður á svæðinu í dag en í gær. 9.8.2022 10:55
Gosstöðvarnar verða áfram lokaðar Tekin hefur verið ákvörðun um að áfram verði lokað inn á gosstöðvarnar í dag, þriðjudag, vegna veðuraðstæðna. 9.8.2022 09:05
Tíu prósent heimila safni skuldum eða gangi á sparifé Um tíu prósent landsmanna safna skuldum eða þurfa að ganga á sparifé til að ná endum saman, ef marka má niðurstöður nýrrar rannsóknar Prósents sem greint er frá í Fréttablaðinu í dag. 9.8.2022 07:47
Munu ekki geta staðið við fyrirheit um pláss fyrir öll 12 mánaða börn Ekki er útlit fyrir að öll tólf mánaða gömul börn í Reykjavík fái leikskólapláss í haust, eins og stefnt var að. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs borgarinnar, segir nokkur pláss laus eins og er en ekki endilega í þeim hverfum þar sem eftirspurnin er mest. 9.8.2022 07:16
Gosstöðvar að öllum líkindum opnaðar aftur þrátt fyrir vonskuveður Gönguleiðir að gosstöðvunum verða opnaðar aftur klukkan tíu að öllu óbreyttu. Það verður þó mjög blautt og mælt með því að bíða með ferðir fram yfir hádegi, að minnsta kosti. Gosórói helst óbreyttur. 9.8.2022 07:11
Vill gera rekstur Samtakanna '78 fyrirsjáanlegri Forsætisráðherra hyggst beita sér fyrir því að stærri hluti framlaga ríkisins til Samtakanna '78 verði gerður varanlegur - til þess að tryggja fyrirsjáanleika í rekstrinum. Vinna þurfi gegn mismunun með aukinni fræðslu. 9.8.2022 07:01
Vilja ekki greiða fyrir notkun ganga sem uppfylla ekki öryggiskröfur Líkt og greint hefur verið frá síðustu vikur stefnir innviðaráðuneytið á að hefja gjaldtöku í öllum göngum landsins til þess að fjármagna Fjarðarheiðargöng. Formaður bæjarráðs Fjallabyggðar setur spurningamerki við aðferðafræðina. 8.8.2022 22:45
Þrefalt fleiri nemendur á örfáum árum Sprenging hefur orðið í umsóknum um verknám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, einkum í húsasmíðum og rafvirkjun. Skólameistarinn segir þróunina hafa verið hraðari en fólk átti von á - þannig að færri komast að en vilja. Þetta er líka staðan um allt land, þar sem 20% umsækjenda um verknám fá höfnun. 8.8.2022 22:06
Miklu meiri aðsókn í Vök en reiknað var með Um tvö hundruð þúsund gestir hafa heimsótt Vök baths við Egilsstaði frá því að staðurinn opnaði fyrir tæpum þremur árum. Það er miklu meiri aðsókn en eigendur staðarins þorðu nokkurn tímann að vona. Bjórinn á staðnum er bruggaður upp úr jarðhitavatni svæðisins. 8.8.2022 21:06
Gígar farnir að byggjast upp í Meradölum Við upphaf eldgossins í Meradölum opnaðist ein löng sprunga sem hraun vall upp úr. Nú virðist sem sprungan sé farin að skiljast að og gígar farnir að byggjast upp líkt og í eldgosinu í fyrra. Sérfræðingur segir gosið svipað því sem var í Geldingadölum í fyrra. 8.8.2022 20:50
„Þessir biðleikir eru ekki í þágu þjóðarinnar“ Um þrír fjórðu hlutar þjóðarinnar hafa áhyggjur af samþjöppun í íslenskum sjávarútvegi, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Formaður Viðreisnar segir niðurstöðurnar ekki koma á óvart. Auka þurfi traust til sjávarútvegsins, en það verði ekki gert öðruvísi en með breytingum á regluverki. 8.8.2022 20:14
Tveir Íslendingar í gæsluvarðhaldi í Danmörku Tveir Íslendingar eru í gæsluvarðhaldi í Danmörku eftir að hafa ráðist á annan íslenskan mann um helgina. Maðurinn liggur þungt haldinn á Háskólasjúkrahúsinu í Álaborg. 8.8.2022 18:55
Um tíu manns bjargað úr Meradölum Tveimur hópum ferðamanna, sem töldu um tíu manns, var bjargað af björgunarsveitarfólki við gosstöðvurnar fyrr í kvöld. Að sögn björgunarsveitarfólks voru ferðamennirnir kaldir og hraktir. 8.8.2022 18:55
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Björgunarsveitir voru kallaðar út í dag vegna hópa fólks sem villtust við gosstöðvarnar, þrátt fyrir að lokað sé inn á svæðið. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verðum við í beinni frá gossvæðinu þar sem umfangsmikil leit hefur staðið yfir. 8.8.2022 18:15
Vægasti skammtur melatóníns verði ekki lyfseðilsskyldur Melatónín í lægri styrk en eitt milligramm á dag verður ekki lengur flokkað sem lyf heldur fæðubótarefni samkvæmt svari Lyfjastofnunar við álitsbeiðni Matvælastofnunar (MAST). Melatónín í hærri styrk en það verður áfram flokkað sem lyf. 8.8.2022 17:30
Nokkrir hópar taldir villtir við gosstöðvarnar Búið er að kalla út nokkrar björgunarsveitir af suðvesturhorni vegna hópa fólks sem taldir eru vera villtir á svæðinu við gosstöðvarnar við Meradali. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg er vitað um minnst tvo hópa sem eru týndir og er vitað af fleirum á svæðinu. 8.8.2022 16:32
Hörður dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum Hörður Sigurjónsson, fyrrverandi lögreglumaður, var í síðustu viku sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn fjölmörgum börnum og dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar. Hann hefur verið nefndur snapchatperrinn í fjölmiðlum enda nálgaðist hann börnin á samfélagsmiðlinum Snapchat. 8.8.2022 16:29
Vill að tilmæli verði gefin út um göngu barna að gosinu Borgarfulltrúi Flokks fólksins mælist til þess að yfirvöld gefi út sérstök tilmæli til foreldra að þeir taki fyrirmælum um að fara ekki með ung börn sín að eldgosinu í Meradal alvarlega. 8.8.2022 15:33
Gul viðvörun á Suðurlandi vegna rigningar Gul veðurviðvörun vegna talsverðrar eða mikillar rigningar er í gildi á Suðurlandi frá klukkan 15 í dag til hádegis á morgun. 8.8.2022 14:55
Íslendingarnir hafi forðast sendinefnd Namibíu Þeir Íslendingar sem sendinefnd namibískra stjórnvalda vildi ræða við hér á landi fyrr í sumar eru sagðir hafa forðast það með öllum ráðum að ræða við nefndina. Nefndin var send hingað til lands til þess að ræða framsal þriggja Íslendinga sem áttu hlut að meintum mútugreiðslum til áhrifamanna í sjávarútvegi í Namibíu. 8.8.2022 13:42
Margfalt fleirum hafnað um nám í starfsnámi Gögn frá Menntamálastofnun sýna að margfalt fleirum er hlutfallslega hafnað um skólavist í starfsnámi í framhaldsskóla en í bóknámi á Íslandi. Um þriðjungur umsækjenda í Tækniskólanum var hafnað í haust. Verzlunarskólinn er vinsælasti bóknámsskólinn, en hann er alveg sprunginn á plássi. 8.8.2022 12:46
Flakkari á siglingu um hrauntjörnina Það kennir ýmissa grasa þegar eldgos eiga í hlut. Eitt af því eru fyrirbæri sem minnir á fljótandi borgarísjaka í hrauntjörninni og hefur fengið heitið flakkari hér á landi. 8.8.2022 12:09
Sjö sóttu um tvö dómaraembætti Sjö umsækjendur sóttu um embætti veggja héraðsdómara, annars vegar með starfstöð við Héraðsdóm Reykjaness og hins vegar með starfstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur. 8.8.2022 11:51
Björgunarsveitarmenn fái illt í hjartað þegar börn eru dregin að gosinu Svæðið við gosstöðvarnar verður áfram lokað í dag vegna veðuraðstæðna. Vegna lokunar verður tækifærið nýtt og gönguleið að gosstöðvunum lagfærð til að auðvelda aðkomu að þeim. 8.8.2022 11:37
Hádegisfréttir Bylgjunnar Eldgos, framhaldsskólar og húsnæðisverð verður meðal þess sem við fjöllum um í hádegisfréttum á Bylgjunni. 8.8.2022 11:31
„Ömurlegt að fá svona kvikindi inn í sín híbýli“ Einhver gæti kallað það glæp gegn mannkyni en þjófahyski gerði sér lítið fyrir og braust inn í geymslu Gunnars V. Andréssonar ljósmyndara og stálu myndavélum hans eins og þær lögðu sig. 8.8.2022 10:35
Gosstöðvarnar áfram lokaðar í dag Tekin hefur verið ákvörðun um að lokað verði inn á gosstöðvarnar í Meradölum í dag vegna veðuraðstæðna en útlit er fyrir slæmt veður á svæðinu. 8.8.2022 09:23
Vinna við erfiðasta kaflann á vinsælustu gönguleiðinni hefst í dag Í dag er áætlað að unnið verði að því að lagfæra erfiðasta kaflann á svokallaðri A-gönguleið að eldgosinu í Meradölum. 8.8.2022 09:14
Í sjálfheldu þar sem þýskur ferðamaður lést nýverið Björgunarsveitir á Norðurlandi voru kallaðar út um miðja nótt eftir að tilkynning barst frá manni sem var í sjálfheldu í fjalllendi. Upphafleg staðsetning hans var talin vera á Stráfjalli og hófst leit þar um klukkan fjögur í nótt sem skilaði ekki árangri. 8.8.2022 08:33
Eldur logaði við Lækjarskóla Eldur logaði í rusli á bak við Lækjarskóla í Hafnarfirði í gærkvöldi. Fram kemur í dagbók lögreglu að tilkynnt hafi verið um eld í gámi í hverfinu klukkan 21:57. 8.8.2022 07:37
Segja of snemmt að útiloka byggingu flugvallar í Hvassahrauni Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segja báðir rétt að bíða eftir niðurstöðum áhættumats Veðurstofu Íslands vegna flugvallar í Hvassahrauni; of snemmt sé að útiloka þann möguleika. 8.8.2022 07:25
Patman nýr sendiherra á Íslandi Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi tillögu Joes Biden um að skipa Carrin F. Patman í embætti sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. 8.8.2022 06:49