Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ölvaður maður slasaðist í rafhjólaslysi Maður var fluttur á bráðadeild Landspítalans eftir að hafa misst stjórn á rafhjóli sínu þar sem hann var að hjóla í Grafarvogi í Reykjavík um klukkan 17 í gær. 23.11.2022 06:14
Neitaði að yfirgefa íbúðina Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við að vísa óvelkomnum manni úr íbúð í hverfi 105 í Reykjavík um klukkan þrjú í nótt. 23.11.2022 06:06
Neyðarástand í fangelsismálum og umhverfi hættulegt fangavörðum Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segir fangelsismálin í algjörum ólestri og lýsir yfir neyðarástandi í málaflokknum. Dómsmálaráðherra segir ástandið alvarlegt. Gríðarlegt álag sé á fangelsin, samanborið við fyrri ár, sem skapi ófyrirséðan kostnað. 22.11.2022 23:30
Fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vörslu barnakláms Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa aflað sér og haft í vörslum sínum tæki sem innihéldu mikið magn af barnaklámi. Maðurinn játaði brot sín skýlaust en dómur yfir honum var kveðinn við héraðsdóm Reykjavíkur fyrr í mánuðinum. 22.11.2022 22:47
Segir Þorláksskóga stærsta skógræktarverkefni á Íslandi Þorláksskógar gætu orðið vinsæll áningarstaður og útvistarperla í framtíðinni. Ráðamenn Ölfuss segja það langstærsta skógræktarverkefnið á Íslandi, þar verði þeirra Heiðmörk. 22.11.2022 22:11
Klórslys í Grafarvogslaug Minni háttar klórslys varð í Grafarvogslaug skömmu fyrir klukkan níu í kvöld. Slökkviliðið hefur lokið störfum á vettvangi. Nokkrir voru fluttir á bráðamóttöku til aðhlynningar. 22.11.2022 21:09
Myndband sýnir hnífaárásina á Bankastræti Club Myndbönd úr öryggismyndavélum Bankastræti Club frá því að hnífstunguárás var framin þar á aðfaranótt föstudags eru í dreifingu. Þar má sjá að árásin tók ekki meira en mínútu frá því að fyrstu menn ruddust inn þar til allir voru búnir að hlaupa út. 22.11.2022 20:50
Snarpur skjálfti í Mýrdalsjökli Skjálfti upp á 3,9 varð í Mýrdalsjökli klukkan 19:55 í kvöld. Að minnsta kosti tveir aðrir yfir þremur að stærð hafa mælst í kjölfarið. Skjálftarnir eru þeir stærstu sem mælst hafa síðan í júlí. 22.11.2022 20:36
Fyrsta matvælastefna stjórnvalda í fæðingu Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti drög að fyrstu heildstæðu matvælastefnu Íslands á þingi um málið í Hörpu í dag. Þar væru tengd saman helstu markmið í landbúnaði, sjávarútvegi, fiskeldi og öðrum greinum matvælaframleiðslu. 22.11.2022 20:01
Segir borgina illa upplýsta: „Mér finnst ekki skrítið að það verði slys“ Íbúar í Reykjavík furða sig á því hve dimmt er í borginni og telja borgina ekki nógu vel upplýsta. Atvinnurekandi í miðbænum segist ekki hissa á að slys verði í umferðinni vegna myrkurs og ástandið sé ömurlegt. 22.11.2022 19:54
Réðst á þroskaskertan mann vegna ágreinings um almenningsbekk Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast þroskaskertan mann vegna ágreinings um almenningsbekk. Hann var sakfelldur fyrir að hafa sparkað fótunum undan manninum með þeim afleiðingum að hann féll í jörðina og axlarbrotnaði. 22.11.2022 19:54
Sanna Marin segir Úkraínu verða að sigra stríðið án þess að tapa landsvæðum Forsætisráðherra Finnlands segir skipta öllu máli að Vesturlönd hjálpi Úkraínu að vinna stríðið gegn Rússum og gefi þar ekkert eftir. Vinni Rússar stríðið væri það ávísun á enn frekari hernað þeirra gegn öðrum Evrópuríkjum. 22.11.2022 19:20
Biðjast afsökunar á óviðeigandi orði í orðarugli Ritstjórn Morgunblaðsins hefur beðist velvirðingar á því að fyrir slysni hafi orðið „hópnauðgun“ verið hluti af orðarugli blaðsins í gær. Orðið hafi átt að vera fjarlægt fyrir birtingu. 22.11.2022 18:06
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Lögreglan verður með stóraukinn viðbúnað í miðbænum um helgina. Skilaboð um yfirvofandi hefndarárás vegna átaka í undirheimunum eru litin alvarlegum augum. 22.11.2022 18:01
Þrjú og hálft ár fyrir að hafa þríhöfuðkúpubrotið vinnufélaga Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann sló tvo vinnufélaga sína með hamri í júní síðastliðnum og annar þeirra þríhöfuðkúpubrotnaði. Ákæruvaldið fór fram á fimm ára fangelsi. 22.11.2022 17:37
Þessi sóttu um tíu stöður framkvæmdastjóra á Landspítalanum Í nýju skipuriti Landspítala sem tekur gildi þann 1. janúar næstkomandi er gert ráð fyrir ellefu framkvæmdastjórum en áður voru þeir átta talsins. Nýlega var auglýst í stöðu tíu framkvæmdastjóra og var listinn birtur á heimasíðu Landspítalans í dag. 22.11.2022 17:33
Valur floginn út og inn flögrar eiginkona eigandans Verulegar breytingar standa fyrir dyrum á fjölmiðlinum Grapevine, sem gefinn er út á Íslandi en á ensku og hefur notið mikilla vinsælda undanfarin árin og áratugina reyndar. Valur Grettisson lætur af störfum eftir fimm ára setu í ritstjórastóli. 22.11.2022 17:04
Stóraukinn viðbúnaður í miðborginni um helgina Lögregla verður með stóraukinn viðbúnað í miðborginni um helgina í kjölfar hnífstunguárásar á skemmtistað í síðustu viku og hótana sem hafa farið víða á samfélagsmiðlum í dag. Engu að síður efast lögreglan um sannleiksgildi hótananna. 22.11.2022 16:47
Lögregla telur sig vita uppruna skilaboða sem eru í mikilli dreifingu Skilaboð um yfirvofandi hefndarárás vegna átaka í undirheimunum ganga nú manna á milli á samfélagsmiðlum. Fjölmargir hafa haft samband við fréttastofu vegna skilaboðanna. Fréttastofu er ekki kunnugt um uppruna skilaboðanna en í þeim er fólk varað við því að fara í miðbæinn næstu helgi vegna mögulegrar árása. 22.11.2022 14:41
Sjá mörg tækifæri til frekari samvinnu ríkjanna Sanna Marin og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherrar Finnlands og Íslands, segjast sjá mörg tækifæri til nánara samstarfs ríkjanna tveggja á hinum ýmsu sviðum. Sanna Marin kom til íslands í vinnuheimsókn í dag og fundaði með Katrínu. 22.11.2022 14:27
Breikkun Reykjanesbrautar milli Straumsvíkur og Hvassahrauns boðin út eftir áramót Breikkun Reykjanesbrautar á 5,6 kílómetra kafla milli Krýsuvíkurafleggjara og Hvassahrauns verður boðin út eftir áramót. Frá þessu greindi Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra í þættinum Bítið á Bylgjunni. Með verkinu lýkur tvöföldun leiðarinnar milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur. 22.11.2022 12:30
Frumvarp Jóns um lögreglu afgreitt úr ríkisstjórn Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögreglulögum, sem felur meðal annars í sér heimildir til forvirkra rannsókna og vopnaburð lögreglu, var afgreitt af ríkisstjórn í morgun. Ráðherranna telur raunhæft að frumvarpið verði að lögum fljótlega eftir áramótin. 22.11.2022 12:10
Sýknaður af kynferðisbroti gegn 14 ára stúlku Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur sýknað karlmann sem ákærður var fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku í kjölfar samskipta þeirra á stefnumótaforritinu Tinder. Maðurinn játaði að hafa átt í kynferðislegum samskiptum við stúlkuna en staðhæfði að hann hefði ekki vitað réttan aldur stúlkunnar fyrr en eftir á. Ágreiningur um sönnun í málinu var því afmarkaður við vitneskju mannsins um réttan aldur stúlkunnar. 22.11.2022 12:08
Bein útsending: Hádegisspjall Katrínar og Sönnu Hádegisspjall Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra Íslands, og Sönnu Marinar, forsætisráðherra Finnlands fer fram í dag klukkan 12:30 og verður sýnt frá því í beinni útsendingu hér á Vísi. Saman munu þær ræða um stjórar áskoranir og tækifæri samtímans. 22.11.2022 12:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Breytingar á lögreglulögum, ný matvælastefna, mikill fjöldi gæsluvarðhaldsfanga og breytingar á Eurovision verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar. 22.11.2022 11:42
Veitingamenn óttast að launakröfur ríði bransanum á slig Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT), segir ískyggilegar horfur í greininni ef kröfur verkalýðshreyfinganna Eflingar og Matvís gangi eftir. 22.11.2022 11:19
Slökkvilið kallað út vegna elds í þaki í Lönguhlíð Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í þaki húss við Lönguhlíð í Reykjavík á ellefta tímanum í morgun. 22.11.2022 10:33
Bein útsending: Matvælaþing 2022 Matvælaþing 2022 fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag. Það er Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra sem boðar til þingsins sem hefst klukkan 9:15 og stendur til 15:45. 22.11.2022 08:46
Turninn á Litla-Hrauni verður rifinn: „Liður í því að gera umhverfið minna þrúgandi“ Ásýnd Litla-Hrauns mun taka miklum breytingum á næstu árum og mun hinn einkennandi turn fangelsisins brátt heyra sögunni til. Til stendur að ráðast í umfangsmiklar endurbætur á fangelsinu og segir fangelsismálastjóri að breytingarnar séu meðal annars liður í því að gera allt umhverfið manneskjulegra og minna þrúgandi. 22.11.2022 08:40
Sextíu sæta gæsluvarðhaldi og kerfið þolir ekki meira Sextíu einstaklingar sæta nú gæsluvarðhaldi en fjöldinn er að jafnaði um tuttugu. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir fjöldann mega rekja til stórra mála sem komið hafa upp á síðustu vikum; fíkniefnamál, ofbeldismál og nú síðast hópárásin á Bankastræti Club síðastliðinn fimmtudag. 22.11.2022 07:01
Karlmenn sem stunda kynlíf með karlmönnum fá mögulega að gefa blóð eftir áramót Karlmenn sem stunda kynlíf með öðrum karlmönnum munu mögulega fá að gefa blóð eftir áramót, ef marka má svör heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ingu Bjarkar Margrétar Bjarnadóttur, varaþingmanns Samfylkingarinnar, um breytingar á reglugerð um blóðgjafir. 22.11.2022 06:47
Fleiri telja Ísland veita of mörgum flóttamönnum hæli en of fáum Fleiri telja nú að Ísland veiti of mörgum flóttamönnum hæli en of fáum. Afstaða landsmanna til málsins hefur harðnað nokkuð milli kannanna. 22.11.2022 06:34
Ökumaður í vímu velti bílnum, ók á ljósastaur og á húsvegg Tilkynnt var um tvö umferðarslys í Reykjavík í gærkvöldi og í nótt þar sem ökumenn sem óku undir áhrifum áfengis eða fíkniefna komu við sögu. 22.11.2022 06:16
Ekki eins vongóður eftir loftslagsþingið Deildar meiningar eru þann árangur sem náðist á COP27 loftslagsþinginu sem lauk í Egyptalandi í gær. Samþykkt um stofnun loftslagshamfarasjóðs þykir mikil tímamót en vonbrigðum hefur verið lýst yfir með samþykktir um samdrátt í losun og notkun á jarðefnaeldsneyti. 21.11.2022 23:15
Bæjarstjóri Ölfuss spáir því að íbúar verði tíu þúsund innan fimmtán ára Bæjarstjóri Ölfuss spáir því að íbúafjöldi sveitarfélagsins geti fimmfaldast á næstu fimmtán árum og Þorlákshöfn orðið tíu þúsund manna bær. Lykillinn er stækkun hafnarinnar en hafnarframkvæmdirnar þar eru þær mestu í landinu um þessar mundir. 21.11.2022 22:50
Tæplega þrjátíu verið handtekin en tveggja enn leitað Lögreglan hefur handtekið 27 manns í tengslum við rannsókn á hnífstunguárás á Bankastræti Club á aðfaranótt föstudags í síðustu viku. Tíu þeirra hefur verið sleppt úr haldi en lögreglan leitar enn að tveimur einstaklingum. 21.11.2022 22:44
Hætta við uppboð á beinagrind grameðlu vegna efa um sanngildi Uppboðshúsið Christie's hefur hætt við að bjóða upp beinagrind grameðlu eftir að upp kom efi um hvort hún væri ekta eða eftirlíking. Talið var að beinagrindin myndi seljast á allt að 3,6 milljarða króna. 21.11.2022 21:30
Lögreglan kalli ekki eftir forvirkum rannsóknarheimildum Dómsmálaráðherra hefur boðað stríð gegn skipulagðri brotastarfsemi. Meðal aðgerða í stríðinu er að auka forvirkar rannsóknarheimildir og skoða aukinn vopnaburð, til dæmis með tilkomu rafbyssa. Þingmaður Samfylkingarinnar segir lögreglumenn ekki kalla eftir því sem dómsmálaráðherra vill veita þeim. 21.11.2022 21:08
Spilar á 20 kílóa hljóðfæri í tveimur lúðrasveitum Það er heilmikil vinna og fyrirhöfn hjá 15 ára strák í Kópavogi að koma sér á lúðrasveitaæfingu í þeim tveimur lúðrasveitum, sem hann spilar með, því hljóðfærið hans er það allra stærsta í lúðrasveitum, eða túba. Hljóðfærið vegur um 20 kíló. 21.11.2022 20:05
Hæsti stigabíll landsins „algjör bylting“ Hæsti stigabíll landsins var tekin í notkun á Akranesi og Hvalfjarðarsveit í haust. Stigi bílsins nær upp í 42 metra hæð og er sá fyrsti sem nær upp í hæstu byggingar bæjarfélagsins. Slökkviliðsstjórinn segir tækið algjöra byltingu. 21.11.2022 20:01
Nemendur Grandaborgar færðir öðru sinni vegna myglu í bráðabirgðahúsnæði Foreldri barns á leikskólanum Grandaborg, þar sem mygla fannst í sumar, segist orðið þreytt á endalausu hringli og loðnum svörum frá borginni. Mygla er í bráðabirgðahúsnæði sem hluti nemenda var færður í en færa á þá enn annað í byrjun desember. 21.11.2022 19:31
Ákærðir fyrir brot á vopnalögum eftir átök í Borgarholtsskóla Fimm hafa verið ákærðir fyrir sinn þátt í vopnuðum slagsmálum sem áttu sér stað í og við Borgarholtsskóla þann 13. janúar í fyrra. Hnífur, hafnaboltakylfa og ljósapera voru meðal þess sem beitt var í átökunum. 21.11.2022 19:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rúðubrot á heimili þriggja barna þungaðrar móður og alvarleg líkamsárás á 17 ára dreng eru á meðal afleiðinga stigvaxandi átaka tveggja hópa í undirheimum. Dómsmálaráðherra segir átökin grafalvarleg og boðar stríð gegn skipulagðri glæpastarfsemi. 21.11.2022 18:00
Hlaut viðurkenningu fyrir óbilandi trú sína á ungu fólki Össur Geirsson, skólastjóri Skólahljómsveitar Kópavogs hlaut í dag viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2022. Um er að ræða árlega viðurkenningu sem veitt er fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra í tengslum við afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þann 20. nóvember. 21.11.2022 17:49
Sagðist í fyrstu skýrslutöku hafa átt að fá greiddar 30 milljónir Karlmaður á sjötugsaldri sem sætir ákæru í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar viðurkenndi í fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu að hann hefði átt að fá þrjátíu milljónir króna fyrir sinn hlut í innflutningnum. Í næstu yfirheyrslum dró hann úr framburði sínum og sagði óljóst hve há greiðslan hefði átt að vera. 21.11.2022 16:52