Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Þjóðargersemin“ Kafteinn Moore verður aðlaður Hinn 100 ára gamli Tom Moore, sem barðist í seinni heimsstyrjöldinni sem kafteinn í breska hernum og safnaði tæpum sex milljörðum króna til styrktar Heilbrigðisstofnunar Bretlands (NHS) í apríl mánuði, verður aðlaður af Elísabetu II Bretadrottningu og fær því heiðursriddaranafnbót. 19.5.2020 21:47
„Bóluefni má ekki bara vera fyrir þau ríku“ Bóluefnið verður að vera aðgengilegt fyrir alla. Við getum ekki látið stöðuna verða þá að eingöngu þau ríku geti verið bólusett vegna þess að eitt fyrirtæki eigi réttinn að framleiðslu bóluefnisins,“ sagði Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York á blaðamannafundi sínum vegna faraldurs kórónuveirunnar. 19.5.2020 21:03
Samdráttur í losun í faraldrinum sagður fordæmalaus Losun mannkynsins á gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum hrundi um sautján prósent á milli ára vegna kórónuveiruheimsfaraldursins þegar mest lét í fyrri hluta apríl samkvæmt nýrri greiningu vísindamanna. Samdrátturinn er talinn verða skammvinnur og umtalsvert minni fyrir árið í heild. 19.5.2020 15:54
Fyrrverandi yfirmaður danska hersins dæmdur í fangelsi Dómstóll í Viborg í Danmörku hefur dæmt Hans-Christian Mathiesen í sextíu daga óskilorðsbundið fangelsi fyrir valdamisnotun. 19.5.2020 14:23
Barcelona opnar strendurnar á ný Fólk sem býr innan við kílómetra frá baðströndum Barcelona á Spáni verður heimilt að snúa aftur á strendurnar til að baða sig í sólinni frá og með morgundeginum. 19.5.2020 14:00
Eftirlitsmaður sem Trump rak var að rannsaka vopnasölu til Sáda Demókratar á Bandaríkjaþingi segja að innri endurskoðandi utanríkisráðuneytisins sem Donald Trump forseti rak skyndilega á föstudagskvöld hafi verið við það að ljúka rannsókn á mögulegu misferli við umfangsmikla vopnasölu Bandaríkjastjórnar til Sádi-Arabíu. Áður hefur komið fram að endurskoðandinn hafi verið að kanna möguleg brot utanríkisráðherrans í embætti. 19.5.2020 13:36
Segir að „sjúklega offeitur“ Trump ætti ekki að taka inn malaríulyfið Nancy Pelosi, demókrati og forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, kveðst hafa áhyggjur af Donald Trump Bandaríkjaforseta eftir að hann sagðist taka inn malaríulyf gegn kórónuveirunni. 19.5.2020 12:36
Macron missir meirihlutann á þinginu Þingmenn sem hafa sagt sig úr þingflokki LREM, flokki Emmanuel Macron Frakklandsforseta, hafa tekið höndum saman og stofnað nýjan flokk á franska þinginu. 19.5.2020 08:38
Lögðu hald á gríðarlegt magn fíkniefna í Mjanmar Efnin fundust í nokkrum aðgerðum mjanmarska hersins í Shan-héraði. 19.5.2020 07:57
Tveimur milljónum manna gert að yfirgefa heimili sín vegna fellibylsins Amphan Indverjar og Bangladessar búa sig undir komu fellibylsins Amphan sem nálgast nú landi. 19.5.2020 07:41
Trump setur WHO afarkosti Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að Bandaríkin hætti fjárframlögum til Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um ókomna tíð vegna viðbragða stofnunarinnar við faraldri kórónuveiru. 19.5.2020 06:50
Merkel gefur eftir og samþykkir styrkveitingar Emmanuel Macron, forseti Frakklands, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tilkynntu í kvöld að þau hefðu komist að samkomulagi um drög að 500 milljarða evra neyðarsjóð, sem nota á til að aðstoða þau ríki sem hafa orðið hvað verst úti vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. 18.5.2020 23:41
Ekki hefur verið sýnt fram á virkni lyfs sem Trump hefur tekið til varnar gegn veirunni Bandaríkjaforseti, Donald Trump, sagði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag að hann hafi undanfarna eina og hálfa viku tekið inn malaríulyfið Hydroxychloroquine til varnar gegn faraldri kórónuveirunnar. 18.5.2020 23:25
Býst hvorki við að Obama né Biden verði rannsakaðir Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna býst hvorki við því að Barack Obama, fyrrverandi forseti, né Joe Biden, fyrrverandi varaforseti og líklegt forsetaefni demókrata, verði rannsakaðir þrátt fyrir ítrekaðar fullyrðingar Donalds Trump forseta um óljóst samsæri þeirra. Gaf hann þó í skyn að „aðrir“ gætu verið sóttir til saka. 18.5.2020 16:50
Xi varði viðbrögð Kína við faraldrinum, WHO lofar rannsókn Kínversk stjórnvöld eru opin fyrir óháðri úttekt á viðbrögðum við kórónuveirufaraldrinum eftir að ríkjum tekst að hafa hemil á honum. Xi Jinping, forseti Kína, varði viðbrögð ríkisstjórnar sinnar á fundi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í dag þar sem forstjóri stofnunarinnar lofaði rannsókn eins fljótt og auðið yrði. 18.5.2020 14:04
Pompeo sagður hafa látið ríkisstarfsmann ganga með hundinn og útrétta fyrir sig Innri endurskoðandi bandaríska utanríkisráðuneytisins var byrjaður að kanna ásakanir um að Mike Pompeo, utanríkisráðherra, hafi látið pólitískt skipaðan starfsmann sinna persónulegum viðvikum eins og fara út að ganga með hundinn sinn, sækja föt í hreinsun og fleira þegar Donald Trump forseti rak endurskoðandann skyndilega á föstudag. Pompeo er sagður hafa hvatt Trump til að reka eftirlitsmanninn. 18.5.2020 13:18
Slakað á takmörkunum í Evrópu Ítalíu og Spánn eru á meðal þeirra Evrópuríkja sem slökuðu frekar á takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins í dag. Leyft verður að opna flest fyrirtæki eins og bari, veitingastaði og hárgreiðslustofur á Ítalíu. Faraldurinn virðist í rénun í báðum löndum sem eru á meðal þeirra sem hafa orðið verst úti í heiminum. 18.5.2020 10:32
Óttast að spítalar Sao Paulo verði yfirfullir innan tveggja vikna Bruno Covas, borgarstjóri Sao Paulo stærstu borgar Brasilíu og einnar stærstu borgar heims, segir að heilbrigðiskerfi borgarinnar sé á barmi þrots en kórónuveiran herjar nú á borgarbúa af miklum móð. 18.5.2020 06:59
Sjóræningjar skutu á norskt olíuflutningaskip Sjóræningjar skutu á norska olíuflutningaskipið Stolt Apal sem var á siglingu í Adenflóa, suður af Jemen, fyrr í dag. 17.5.2020 23:09
Heilbrigðisstarfsfólk í Belgíu sneri baki í forsætisráðherrann Starfsmenn Saint-Pierre sjúkrahússins í belgísku höfuðborginni Brussel ákváðu að snúa baki í forsætisráðherrann Sophie Wilmès og bílalest hennar þegar hún mætti í heimsókn þangað í gær. 17.5.2020 22:25
Fjörutíu ár frá hamfaragosinu í St Helens Gosið er það mannskæðasta í sögu Bandaríkjanna, en alls fórust 57 manns í hamförunum í Washington-ríki þann 18. maí 1980. 17.5.2020 21:00
Fjölmennasta ríkisstjórn í sögu Ísraels tók við völdum í dag Í nýju ríkisstjórninni sem Likud-bandlagið og Bláhvíta bandalagið mynda ásamt minni flokkum sitja 36 ráðherrar og sextán vararáðherrar. 17.5.2020 20:51
Brasilía tekur fram úr bæði Spáni og Ítalíu Landið skipar nú fjórða sæti á lista yfir þau þar sem flest smit hafa komið upp. 17.5.2020 19:15
Ghani og Abdullah ná loks samkomulagi um að deila völdum Pattstaða hefur verið í afgönskum stjórnmálum eftir forsetakosningarnar í landinu á síðasta ári. 17.5.2020 17:41
Blaðamaður myrtur í Mexíkó Blaðamaðurinn Jorge Armenta var myrtur í árás í norðurhluta Mexíkó samkvæmt yfirvöldum þar í landi. 17.5.2020 15:55
Skilur að fólk sé pirrað á flóknum reglum Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands segir skiljanlegt að fólk sé pirrað á nýjum reglum yfirvalda þar í landi, en ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir flókna reglusetningu í kórónuveirufaraldrinum. 17.5.2020 11:38
Hvetja einhleypa til að finna sér „kynlífsfélaga“ Hollensk stjórnvöld hafa gefið út sérstakar viðmiðunarreglur fyrir einhleypt fólk í leit að nánd meðan á samfélagslegum höftum vegna kórónuveirufaraldursins stendur. Þar er fólk hvatt til þess að finna sér „kynlífsfélaga.“ 17.5.2020 11:27
Næstum tvö hundruð í sóttkví eftir mæðradagsmessu Yfir 180 kirkjugestum var skipað að fara í sóttkví eftir að smitaður einstaklingur reyndist hafa verið í sömu messu. 17.5.2020 10:58
Ekki mikið um smit hjá framlínustarfsfólki í New York Nýjustu tilfelli smita af kórónuveirunni sem veldur Covid-19 í New York eru að stærstum hluta fólk sem hefur farið út úr húsi í ýmsum erindagjörðum. 17.5.2020 10:43
Dauðsföll færri en hundrað í fyrsta sinn í tvo mánuði 87 dauðsföll urðu af völdum kórónuveirunnar sem veldur Covid-19 á Spáni síðasta sólarhringinn. 17.5.2020 09:57
Sendiherra Kína í Ísrael fannst látinn Sendiherrann fannst látinn í íbúð sinni í úthverfi Tel Aviv. 17.5.2020 08:38
Obama gagnrýnir enn viðbrögð Trump-stjórnarinnar við faraldrinum Obama segir embættismenn í ríkisstjórn Donalds Trump ekki hafa fyrir því að þykjast vera við stjórnvölinn. 17.5.2020 07:40
Orban kveðst hætta að stýra með tilskipunum síðar í mánuðinum Forsætisráðherra Ungverjalands segist búast við að afsala sér þeim neyðarvöldum sem honum voru falin vegna kórónuveirunnar síðar í þessum mánuði. 16.5.2020 23:30
Jöfnuðu kæliturna þýsks kjarnorkuvers við jörðu í leyni Tveir risakæliturnar kjarnorkuversins Philippsburg í Þýskalandi voru sprengdir og jafnaðir við jörðu í leyni síðastliðinn fimmtudag. 16.5.2020 22:43
Ljósmyndari Bítlanna er látinn Astrid Kirchherr, þýskur ljósmyndari sem mikið myndaði Bítlana á fyrstu starfsárum þeirra, er látin, 81 árs að aldri. 16.5.2020 22:00
Einn af lykilmönnum þjóðarmorðsins í Rúanda handtekinn Lögregla í Frakklandi hefur handtekið Félicien Kabuga, einn af lykilmönnum þjóðarmorðsins í Rúanda á tíunda áratugnum. Kabuga hefur verið leitað um margra ára skeið. 16.5.2020 17:31
Skoða frekari aðstoð til flugfélaga Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir það í skoðun hvernig hægt sé að hjálpa flugfélögum þegar ferðalög milli landa liggja nánast niðri. 16.5.2020 16:52
Tengja tvö dauðsföll barna í Evrópu við nýja barnasjúkdóminn 230 börn hafa veikst af nýjum dularfullum barnasjúkdómi og tvö hafa látist í Evrópu. 16.5.2020 16:24
Óttast að útgöngu- og samkomubann leiði til „flóðbylgju geðkvilla“ Geðlæknar í Bretlandi óttast að takmarkanir á samkomum og útgöngubann víða um heim geti leitt til mikillar aukningar í geðsjúkdómum og aðgerðirnar til þess að sporna við kórónuveirufaraldrinum muni hafa verulega neikvæðar afleiðingar á andlega heilsu fólks. 16.5.2020 15:42
Koma Johnny Depp til varnar vegna ásakana um ofbeldi Leikkonurnar Vanessa Paradis og Winona Ryder buðu fram jákvæðar umsagnir um leikarann Johnny Depp í meiðyrðamáli hans gegn breska götublaðinu The Sun. 16.5.2020 11:23
Allir farþegar þyrlunnar létust af völdum höggáverka Á meðal þeirra sem létust voru feðginin Kobe Bryant og 13 ára dóttir hans Gianna. 16.5.2020 10:39
Óttast aðra bylgju vegna mikils fjölda í sýnatökum Íbúar í kínversku borginni Wuhan óttast að umfangsmiklar sýnatökur í borginni geti valdið annarri bylgju kórónuveirusmita vegna þess fjölda sem kemur saman við sýnatökur. 16.5.2020 10:05
Trump lætur enn einn háttsetta embættismanninn fjúka Steve Linick, aðaleftirlitsmaður í utanríkisráðuneytinu, er sagður hafa staðið að rannsókn á mögulegum embættisbrotum Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. 16.5.2020 09:12
Jóhanna af Örk dýrlingur í hundrað ár Hundrað ár eru liðin í dag frá því Benedikt 15. páfi gerði hina frönsku Jóhönnu af Örk að dýrlingi kaþólsku kirkjunnar. Þetta var engin geðþóttaákvörðun. Áratugalangt ferli var að baki ákvörðuninni enda var Jóhanna þessi ein helsta þjóðhetja Frakka. 16.5.2020 09:00
Ákærð fyrir morð eftir að líkamsleifar fundust í ferðatöskum Bresk kona hefur verið ákærð fyrir morð eftir að líkamsleifar konu fundust í tveimur ferðatöskum í Forest of Dean á suðvestur Englandi. 16.5.2020 08:12