Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Minnst fjórir látnir og tíu særðir í Madríd Minnst fjórir eru látnir og minnst tíu særðir eftir mikla sprengingu í Madríd í gær. Sprengingin varð þegar verið var að gera við gaskerfi sjö hæða húss í Puerta de Toledo, nærri miðborg Madrídar, og olli hún gífurlegum skemmdum. 21.1.2021 09:29
Biden og Harris taka við embætti: Dagurinn í myndum Fánar blöktu þar sem venjulega stendur fólk, þjóðvarðliðar í þúsundatali gengu fylktu liði um Washington-borg og fráfarandi forseti var ekki viðstaddur þegar nýr forseti tók við embætti Bandaríkjaforseta í dag. Dagurinn var fyrir margar sakir sögulegur, ekki hvað síst vegna þess að í fyrsta sinn í sögu Bandaríkjanna er kona orðin varaforseti. 21.1.2021 00:34
Kamala Harris nú með oddaatkvæðið í öldungadeildinni Hinn 33 ára gamli Jon Ossoff, varð í dag yngsti þingmaðurinn í öldungadeild Bandaríkjaþings en hann er jafnframt yngsti Demókratinn til að taka sæti í öldungadeildinni síðan Joe Biden varð öldungadeildarþingmaður árið 1973, þá 30 ára gamall. 20.1.2021 22:57
Biden þegar byrjaður að snúa við ákvörðunum Trumps Joe Biden skrifaði undir sínar fyrstu forsetatilskipanir í dag, fljótlega eftir að hann steig í fyrsta sinn inn á skrifstofu forseta í Hvíta húsinu eftir að hafa tekið við embætti forseta. Hann sagði tilskipanirnar vera „djarfar“ og að þær snúist um að uppfylla loforð hans gagnvart Bandarísku þjóðinni. 20.1.2021 22:47
Þrettán meðlimir Trump-fjölskyldunnar njóta áfram verndar leyniþjónustunnar Þrettán meðlimir Trump-fjölskyldunnar munu áfram njóta þjónustu leyniþjónustu Bandaríkjanna, sem áfram mun annast öryggisgæslu fjölskyldunnar, nú eftir að Donald Trump hefur lokið tíð sinni í embætti forseta Bandaríkjanna. 20.1.2021 21:11
Biden mættur í Hvíta húsið Joe Biden gekk nú fyrir nokkrum mínútum inn um hliðið og í Hvíta húsið í fyrsta sinn sem forseti Bandaríkjanna. Biden gekk síðasta spölinn í stórri skrúðgöngu, sem fram fór að lokinni innsetningarathöfn, ásamt fjölskyldu sinni og er nú mættur í Hvíta húsið. Þetta er þó sannarlega ekki í fyrsta sinn sem hann kemur í Hvíta húsið enda var hann varaforseti í tíð Baracks Obama. 20.1.2021 21:04
„Lýðræðið hefur sigrað“ „Þetta er dagur Ameríku. Þetta er dagur lýðræðis. Dagur sögunnar og vonar,“ sagði Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, við upphaf fyrstu ræðu sinnar eftir að hann sór formlega eið að embættinu við hátíðlega athöfn í dag. „Í dag fögnum við sigri, ekki sigri frambjóðenda, heldur sigri málstaðar. Málstaðar lýðræðis,“ sagði forsetinn ennfremur. 20.1.2021 17:46
Joe Biden er 46. forseti Bandaríkjanna Joe Biden sór rétt í þessu embættiseið og er nú forseti Bandaríkjanna. Kamala Harris er varaforseti, fyrst kvenna og fyrst svartra Bandaríkjamanna. Fráfarandi forseti var ekki viðstaddur athöfnina en varaforsetinn Mike Pence mætti ásamt eiginkonu sinni. 20.1.2021 16:50
Hver verða skilaboð Trump til Biden? Reagan fyrstur til að skilja eftir bréf til næsta forseta Donald Trump hefur yfirgefið Hvíta húsið í hinsta sinn og fregnir þess efnis að hann hafi ekki skilið eftir skilaboð til Biden verið dregnar til baka. 20.1.2021 15:03
Minnst þrír látnir í sprengingu í Madríd Mikil sprenging átti sér stað í Madríd á Spáni í dag og eru minnst þrír látnir. Útlit er fyrir að sprenginin hafi orðið vegna gasleka. 20.1.2021 14:31
Eigendum Tiger King dýragarðsins gert að afhenda tígrishvolpana Nýjum eigendum dýragarðsins í Oklahoma, sem var sögusvið þáttanna Tiger King, hefur verið gert að afhenda fulltrúum alríkisstjórnar Bandaríkjanna alla tígrishvolpa og tígrisynjum garðsins. 20.1.2021 13:07
Trump fjarri góðu gamni: Hvað verður um kjarnorkufótboltann og kexið? Ef Donald Trump verður ekki viðstaddur þegar Joe Biden sver embættiseiðinn, hvernig mun þá fara með svokallaðan „kjarnorkufótbolta“, sem á að skiptast um hendur á nákvæmlega sama tíma? 20.1.2021 11:47
Vaktin: Innsetningardagur Bidens Joe Biden sór embættiseið og tók við völdum sem 46. forseti Bandaríkjanna í dag. Það gerir hann í skugga gífurlegrar öryggisgæslu vegna árásarinnar á þinghúsið í byrjun mánaðarins og faraldurs nýju kórónuveirunnar. 20.1.2021 11:01
Ma sendi frá sér stutt myndband en sást síðast í október Kínverski auðjöfurinn Jack Ma ávarpaði hóp kennara í Kína í myndbandi sem birt var í morgun og var það í fyrsta sinn sem hann sést opinberlega frá því í október. Við það hækkuðu hlutabréf í félagi hans, Alibaba, verulega. 20.1.2021 09:35
Svona er dagskráin á innsetningardegi Bidens og Harris Demókratinn Joe Biden sver í dag embættiseið sem 46. forseti Bandaríkjanna. Innsetningarathöfnin fer venju samkvæmt fram í Washington-borg en hún verður með nokkuð óvenjulegu sniði, bæði vegna kórónuveirufaraldursins og árásarinnar á þinghúsið í borginni fyrr í mánuðinum. 20.1.2021 09:00
Trump náðaði Steve Bannon Eitt af síðustu embættisverkum Donalds Trumps sem forseti Bandaríkjanna var að náða Steve Bannon sem var einn helsti ráðgjafi Trumps í kosningabaráttunni 2016 og á fyrstu mánuðum hans í Hvíta húsinu. 20.1.2021 06:45
Sakar Kínverja um þjóðarmorð daginn fyrir stjórnarskiptin Mike Pompeo, fráfarandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Kína hafa framið þjóðarmorð með aðgerðum sínum gegn Úígúrum og öðrum þjóðarbrotum múslima í Kína. Anthony Blinken, verðandi utanríkisráðherra, kveðst sammála þeirri staðhæfingu. 19.1.2021 23:46
Nefndi Biden aldrei á nafn í síðasta ávarpinu sem forseti Donald Trump, sem lætur af embætti forseta Bandaríkjanna á morgun, segist munu „biðja fyrir velgengni“ Joes Biden, sem tekur við embættinu af honum á morgun. Hvíta húsið birti kveðjuávarp Trumps nú fyrir skömmu. 19.1.2021 21:57
Washington „eins og herstöð“ í aðdraganda embættistöku Washington svipar til herstöðvar vegna aukinnar öryggisgæslu, segir íslensk kona sem er búsett í borginni. 25 þúsund þjóðvarðliðar eru þar við störf vegna embættistöku Joes Biden á morgun. 19.1.2021 18:31
Gagnrýna WHO og Kínverja fyrir hægagang í upphafi faraldursins Sérfræðingaráð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem skipað var í vor til að kanna viðbrögðin við faraldri nýju kórónuveirunnar gagnrýnir Kína og stofnunina sjálfa fyrir að ekki hafi verið brugðist nógu snemma við. 19.1.2021 16:46
Nei, Boris blundar ekki Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands blundar ekki á vinnutíma. Þetta sagði fjölmiðlafulltrúi Johnson á daglegum blaðamannafundi í dag. 19.1.2021 15:48
500 ára málverk fannst í skáp og enginn vissi að því hefði verið stolið Lögregluþjónar hafa handtekið mann á Ítalíu eftir að 500 ára gamalt málverk fannst í eldhússkáp hans. Málverkinu hafði verið stolið af safni en starfsmenn þess vissu þó ekki af þjófnaðinum. 19.1.2021 15:18
Átján af 27 íbúum hjúkrunarheimilis létust af völdum Covid-19 Átján af 27 íbúum hjúkrunarheimilis í Lincoln-skíri á Bretlandseyjum létust af völdum Covid-19 í aðdraganda jóla. Flestir voru á tíræðisaldri en sá yngsti var 79 ára og sá elsti 99 ára. 19.1.2021 14:23
Pútín ekki hræddur við Navalní Talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, segir að forsetinn óttist ekki stjórnarandstæðinginn Alexei Navalní, sem var úrskurðaður í 30 daga gæsluvarðhald í gær. Þá þykir líklegt að yfirvöld Rússlands muni koma í veg fyrir áætluð mótmæli vegna handtöku Navalní um helgina. 19.1.2021 14:22
Skilur eftir sig „djúpríki“ Trump-liða Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, mun skilja eftir sig mikinn fjölda opinberra starfsmanna sem voru upprunalega pólitískt skipaðir í störf sín. Erfitt mun vera fyrir ríkisstjórn Joe Biden að koma þessum mönnum frá. 19.1.2021 12:20
Dæmd í 43 ára fangelsi fyrir að móðga konungsfjölskylduna Tælensk kona hefur verið dæmd í 43 ára fangelsi fyrir að móðga konungsfjölskyldu landsins. Er það lengsti dómur sem hefur verið veittur varðandi brot sem þetta í landinu. Lögin í kringum konungsfjölskyldu Taílands þykja einkar ströng og hefur ákærum á grundvelli þeirra farið fjölgandi. 19.1.2021 11:20
Hafa áhyggjur af fjölgun afbrigða Með sífellt aukinni dreifingu nýju kórónuveirunnar hefur nýjum afbrigðum veirunnar sem veldur Covid-19 fjölgað. Hvert smit gefur vírusnum tækifæri á að stökkbreytast og verður líklegra að afbrigði líti dagsins ljós sem geti gert skimun og meðferð erfiðari og jafnvel afbrigði sem núverandi bóluefni virki ekki gegn. 19.1.2021 10:19
Enn einn harmleikurinn við K2 Alex Goldfarb, Bandaríkjamaður sem hugðist klífa fjallið Broad Peak í grennd við K2 nú í janúar, fannst látinn í gær eftir umfangsmikla leit. Íslendingurinn John Snorri Sigurjónsson var á meðal þeirra sem tóku þátt í leitinni. 19.1.2021 09:07
Sögð hafa stolið tölvu Pelosi og ætlað að afhenda hana Rússum Alríkislögreglan í Bandaríkjunum hefur handtekið konu á þrítugsaldri sem grunuð er um að hafa ætlað að reyna að selja Rússum tölvu í eigu Nancy Pelosi, leiðtoga fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. 19.1.2021 08:18
Öflugur jarðskjálfti í Argentínu Öflugur jarðskjálfti 6,8 stig að stærð reið yfir í Argentínu í gærkvöldi. Í kjölfarið fylgdu að minnsta kosti fimm öflugir eftirskjálftar. 19.1.2021 08:04
Biden hyggst framlengja ferðabannið Joe Biden verðandi Bandaríkjaforseti ætlar að framlengja ferðabann sem hefur hindrað komu nærri allra farþega án bandarísks ríkisfangs sem hafa á síðustu 14 dögum verið í Brasilíu, Bretlandi, Írlandi eða þeim 26 ríkjum sem tilheyra Schengen-svæðinu. Ísland er þeirra á meðal. 19.1.2021 06:35
Trump muni aflétta banni við komu farþega frá Evrópu Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hyggst fella úr gildi ferðabann sem hamlar komu erlendra ríkisborgara frá Brasilíu og Evrópu til Bandaríkjanna þann 26. janúar næstkomandi. Þetta herma heimildir Reuters-fréttastofunnar sem hefur þetta eftir ónefndum ráðamönnum innan Hvíta hússins. 18.1.2021 23:47
Ójöfn dreifing bóluefnis „siðferðilegt stórslys“ Það er ósanngjarnt að yngra og heilbrigðara fólk í ríkari þjóðum heimsins sé bólusett við kórónuveirunni áður en viðkvæmir hópar í fátækari löndum fá bólusetningu. Þetta segir Tedros Adhanom Ghebreyesus, forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, sem er afar gagnrýninn á það hvernig bóluefni hefur verið dreift. 18.1.2021 21:02
Vill Navalní úr haldi tafarlaust Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní var úrskurðaður í 30 daga gæsluvarðhald í dag. Utanríkisráðherra fer fram á að honum verði tafarlaust sleppt úr haldi. 18.1.2021 19:00
Fox krafðist þagnar um sáttina fram yfir kosningar Forsvarsmenn Fox News gerðu það að skilyrði sáttar þeirra við foreldra Seth Rich, sem var myrtur árið 2016, að ekki mætti segja frá sáttinni fyrr en eftir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember. 18.1.2021 16:38
Breskir útgerðarmenn brjálaðir vegna Brexit Forsvarsmenn skoskra skelfisksfyrirtækja mótmæltu aðstæðum á mörkuðum þeirra með því að leggja fjölda flutningabíla við þingið í London og ráðuneyti. Þeir segja úrgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu, og skilyrði sem því fylgja vera að kæfa fyrirtækin og kalla eftir breytingum. 18.1.2021 15:08
Navalní úrskurðaður í gæsluvarðhald Alexei Navalní hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. febrúar. Það er í takt við kröfur saksóknara og verður hann í gæsluvarðhaldi á meðan ákveðið er fyrir öðrum dómstól hvort dæma eigi hann til fangelsisvistar fyrir að rjúfa skilorð. 18.1.2021 14:08
Bæði Bezoz og Branson sendu geimför út í geim Undanfarna daga hafa nokkrar vendingar átt sér stað í þróun geimferða. Tvö einkafyrirtæki gerðu mikilvægar tilraunir með því að skjóta tveimur geimförum út í geim og Geimvísindastofnun Bandaríkjanna kveikti í fyrsta sinn á hreyflum eldflauga sem eiga að skjóta geimförum til tunglsins og jafnvel lengra. 18.1.2021 12:06
Lögmaður Navalní fékk mínútu fyrirvara um réttarhöld sem standa nú yfir á lögreglustöð Réttarhöld gegn Alexei Navalní standa nú yfir í lögreglustöð í Moskvu, þangað sem hann var fluttur eftir að hann var handtekinn í gær. Ráðgjafar hans segjast ekki hafa fengið að hitta hann í um fimmtán klukkustundir og að lögmaður hans hafi fengið tilkynningu um réttarhöldin einni mínútu áður en þau hófust. 18.1.2021 10:42
Selja aðgang að Trump til auðugra glæpamanna sem vilja náðun Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er að íhuga að náða eða fella niður dóma rúmlega hundrað manns á síðustu klukkustundum forsetatíðar sinnar. Meðal annarra er forsetinn sagður íhuga að veita sjálfum sér, börnum sínum og ráðgjöfum náðanir. 18.1.2021 10:09
Rannsaka bakgrunn þúsunda þjóðvarðliða Bandaríska alríkislögreglan, FBI, rannsakar nú bakgrunn þeirra 25 þúsund þjóðvarðliða sem væntanlegir eru til Washington-borgar í vikunni til þess að gæta öryggis þegar Joe Biden sver embættiseið sinn sem forseti Bandaríkjanna. Innsetningin verður á miðvikudag. 18.1.2021 09:05
Tólf kínverskir námumenn enn á lífi en innilokaðir á 600 metra dýpi Björgunarsveitir í Kína segja að tólf kínverskir námamenn sem hafa verið innilokaðir í gullnámu eftir að sprenging lokaði námumunanum séu enn á lífi en sprengingin varð fyrir viku síðan. 18.1.2021 07:40
Bjó á flugvellinum í Chicago í þrjá mánuði Aditya Singh, 36 ára gamall maður frá Kaliforníu, var handtekinn um helgina á O‘Hare-alþjóðaflugvellinum í Chicago og ákærður fyrir ýmis brot, meðal annars þjófnað og að hafa farið í leyfisleysi inn á lokað svæði á vellinum. 18.1.2021 07:21
Mun færri mótmæla en búist var við Mun færri hafa mótmælt í höfuðborgum Bandaríkjanna í dag en búist var við. Lögregluyfirvöld hafa verið í viðbragðsstöðu um helginna vegna viðbúinna mótmæla í höfuðborgum ríkjanna 50. 17.1.2021 22:25
Kalla eftir því að Navalní verði sleppt úr haldi Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, segir sér brugðið vegna handtöku stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní við komuna til Rússlands í dag. Hann hvetur rússnesk yfirvöld til að láta Navalní lausan án tafar. Þetta skrifar Guðlaugur á Twitter. 17.1.2021 21:00