Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stöðva tímabundið bóluefnarannsóknir á börnum Vísindamenn AstraZeneca og Oxford-háskóla hafa stöðvað tímabundið bólusetningar barna með bóluefni sínu gegn Covid-19. Ákveðið hefur verið að bíða á meðan breska lyfjastofnunin (MHRA) rannsakar tengsl bóluefnsisins við sjaldgæfa blóðtappa. 7.4.2021 07:56
Inuit Ataqatigiit vann mikinn sigur í grænlensku kosningunum Inuit Ataqatigiit (IA) vann mikinn sigur í grænlensku þingkosningnunum sem fram fóru í gær. Flokkurinn fékk um 37 prósent atkvæða og má því telja langlíklegast að formaðurinn, hinn 34 ára Múte B. Egede, verði næsti forsætisráðherra Grænlands og taki þar með við af Kim Kielsen sem hefur þegar viðurkennt ósigur. 7.4.2021 07:45
Líkja faraldrinum í Brasilíu við „líffræðilegt Fukushima“ Útlit er nú fyrir að Brasilía gæti tekið fram úr Bandaríkjunum sem það ríki þar sem flestir hafa látið lífið í kórónuveirufaraldrinum. Brasilískur læknir líkir ástandinu í heimalandi sínu við kjarnaofn sem bræðir úr sér. 6.4.2021 23:49
Banna meðferð fyrir transbörn Ríkisþing Arkansas í Bandaríkjunum ógilti neitunarvald ríkisstjórans og samþykkti bann við læknismeðferð fyrir transbörn í ríkinu. Með lögunum verður læknum bannað að veita transbörnum yngri en átján ára hormónameðferð eða skera þau upp. 6.4.2021 21:28
Nýskilinn, aleinn og við það að drekka sig í hel Hunter Biden, sonur Joe Biden Bandaríkjaforseta, ræddi glímu sína við áfengis- og kókaínfíkn í ítarlegu viðtali við breska ríkisútvarpið BBC í gær. Þá var hann einnig spurður út í gagnrýni sem hann og faðir hans sættu vegna stjórnarsetu þess fyrrnefnda í úkríanska orkufyrirtækinu Burisma. 6.4.2021 15:04
Banna umfjöllun um konunglegar deilur í Jórdaníu Ríkissaksóknaraembættið í Jórdaníu hefur lagt bann við alla umfjöllun fjölmiðla þar í landi um deilur milli Abdúlla II konungs og Hamza, hálfbróður hans og fyrrverandi krónprins. 6.4.2021 14:22
Netanjahú falið að mynda nýja stjórn Reuven Rivlin Ísraelsforseti hefur veitt Benjamín Netanjahú, starfandi forsætisráðherra landsins, umboð til að mynda nýja ríkisstjórn. 6.4.2021 11:34
Segja bresku lyfjastofnunina vera að íhuga að endurskoða notkun bóluefnisins frá AstraZeneca Breska lyfjastofnunin (MHRA) segir enga ákvörðun hafa verið tekna varðandi breytingar á notkun Covid-19 bóluefnisins frá AztraZeneca en Channel 4 News greindi frá því í gær að verið væri að skoða að hætta notkun bóluefnisins í yngri aldurshópum. 6.4.2021 09:16
Sakar Markle og Harry um „lygar á alheimsskala“ Piers Morgan heldur fast í þær fullyrðingar sínar að Meghan Markle og Harry Bretaprins hafi logið í viðtali við Opruh Winfrey á dögunum og segist njóta stuðnings verulegs meirihluta bresku þjóðarinnar. 6.4.2021 07:59
Mikið manntjón vegna fellibylsins Seroja Að minnsta kosti 157 eru látin og tuga er enn saknað eftir að fellibylurinn Seroja gekk yfir Indónesíu og nágrannaríkið Tímor-Leste á sunnudag. 6.4.2021 07:49
Ætla ekki að taka þátt í Ólympíuleikunum vegna kórónuveirunnar Norður-Kórea ætlar ekki að senda lið á Ólympíuleikana sem haldnir verða í Tókýó, höfuðborg Japans, í sumar. Breska ríkisútvarpið segir að norðanmenn gefi þá ástæðu að ekki sé óhætt að senda bestu íþróttamenn landsins til Japans vegna kórónuveirufaraldursins. 6.4.2021 07:05
„Hefði átt að hætta um leið og Floyd hætti að berjast á móti“ Lögreglustjórinn í Minneapolis sagði í vitnastúku í dag að Derek Chauvin, fyrrverandi lögreglumaðurinn sem er ákærður fyrir að hafa myrt George Floyd, hafi brotið reglur lögreglunnar um valdbeitingu við handtökuna á Floyd. 5.4.2021 23:30
Weinstein áfrýjar kynferðisbrotadómum Lögmenn Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðanda sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot og nauðgun, hafa áfrýjað dómunum. 5.4.2021 20:43
Pútín gæti verið forseti til 2036 Vladimír Pútín, forseti Rússlands, staðfesti í dag lög sem formlega heimila honum að halda forsetaembætti til ársins 2036. Haldi Pútín völdum út tímabilið verður hann sá leiðtogi Rússlands sem mun hafa verið lengst við völd frá valdatíð Péturs mikla. 5.4.2021 18:05
Saksóknari segir Netanyahu hafa misbeitt valdi sínu Saksóknari í máli gegn Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísrael segir hann hafa misbeitt valdi sínu með því að hafa þegið jákvæða umfjöllun frá fjölmiðlarisum í skiptum fyrir lagabreytingar sem voru þeim í hag. Forsætisráðherrann er einnig ákærður fyrir að hafa þegið gjafir í skiptum fyrir persónulega greiða fyrir valdamikla menn í viðskiptalífinu. 5.4.2021 09:55
Aldrei fleiri greinst á einum degi Yfir 100 þúsund greindust með kórónuveiruna á Indlandi í gær og hafa aldrei fleiri greinst í landinu á einum degi. Indland er því annað landið í heiminum þar sem yfir 100 þúsund smit greinast á einum degi. 5.4.2021 08:48
Tvö ókeypis Covid-próf á viku Allir íbúar í Bretlandi munu fá tvö ókeypis Covid-próf á viku í þeirri von um að hefta frekari útbreiðslu veirunnar. Prófin sem um ræðir gefa niðurstöðu á um það bil hálftíma og verða aðgengileg íbúum meðal annars í apótekum og á skimunarstöðvum, en fólk getur tekið þau heima hjá sér. 5.4.2021 08:06
Kosningar á Grænlandi: Innanflokksátök, erlendar fjárfestingar og stórveldakapphlaup Ný forysta grænlenska stjórnmálaflokksins Siumuts ákvað á síðustu stundu að skipta Kim Kielsen, fyrrverandi formanni flokksins og forsætisráðherra Grænlands, út sem fulltrúa flokksins í sjónvarpskappræðum sem fram fóru á föstudaginn dag í tengslum við þingkosningarnar sem fram fara á Grænlandi á þriðjudaginn. 5.4.2021 00:06
Lagði áherslu á mikilvægi þess að fátækar þjóðir verði bólusettar Annað árið í röð var páskaguðsþjónustu að mestu streymt á netinu. Í páskaávarpi sínu lagði Frans páfi áherslu á mikilvægi þess að fátækustu þjóðir heims yrðu bólusettar. 4.4.2021 20:46
Upplýsingar Íslendinga í stórum gagnaleka hjá Facebook Persónuupplýsingar 533 milljóna notenda Facebook frá 106 löndum hafa verið birtar á netinu. Í gögnunum má meðal annars finna nöfn, símanúmer, staðsetningagögn, fæðingardaga og netföng. Þar er ekki að finna lykilorð eða skilaboð. 4.4.2021 00:22
Hafa loksins leyst úr mestu flækjunni við Súesskurðinn Loks hefur endanlega tekist að leysa úr mestu flækjunni sem skapaðist í og við Súesskurðinn þegar flutningaskipið Ever Given festist þversum í skipaskurðinum. Yfir fjögur hundruð skip sátu föst á meðan unnið var að því að losa Ever Given sem festist í skurðinum þann 23. mars og sat fast í nokkra daga. 3.4.2021 16:47
Bóluefni virðast örugg og veita bæði móður og barni vörn Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að það sé bæði öruggt og áhrifaríkt að bólusetja þungaðar konur. Þá benda þær til þess að bólusetning veiti barninu einnig vörn gegn Covid-19. 3.4.2021 13:19
Minna en helmingur Bandaríkjamanna segist tilheyra trúarsöfnuði Minna en helmingur fullorðinna Bandaríkjamanna segist tilheyra kirkju, sýnagógu eða mosku, samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Könnunin leiddi í ljós að aðeins 47 prósent tilheyra trúarsöfnuði en hlutfallið var 70 prósent rétt fyrir aldamót. 3.4.2021 11:52
Árásin í gær vekur spurningar um stöðu öryggismála við þinghúsið Árásin sem gerð var við bandaríska þinghúsið í Washington DC í gær, þar sem einn lögreglumaður lést og annar særðist, hefur vakið nýjar spurningar um stöðu öryggismála við þinghúsið. Aðeins þrír mánuðir eru liðnir síðan æstur múgur gerði atlögu að þinghúsinu en þá létust fimm og enn fleiri særðust. 3.4.2021 11:42
Ítalir skella í lás yfir páska: Um 20 þúsund greinast á degi hverjum Ítalía er eldrauð þegar kemur að kórónuveirufaraldrinum og hefur allt verið sett í lás í þrjá daga til að koma í veg fyrir enn meiri fjölgun tilvika yfir páska. Um 20 þúsund ný tilfelli Covid-19 greinast nú á degi hverjum. 3.4.2021 10:23
Tugþúsundir heilbrigðisstarfsmanna þjást af langvarandi Covid Að minnsta kosti 122 þúsund starfsmenn opinberu heilbrigðisþjónustunnar (NHS) þjást af langvarandi áhrifum Covid-19, samkvæmt hagstofu Bretlands. Stjórnendur NHS eru uggandi vegna áhrifa þessa á mönnun. 3.4.2021 08:58
Bandaríkjamenn og Íranir hefja viðræður um kjarnorkusamning Óformlegar viðræður milli Bandaríkjanna og Íran til þess að endurvekja kjarnorkusamning ríkjanna frá 2015 munu hefjast á þriðjudag í Vín. Yfirvöld í Teheran hafa neitað að setjast formlega við samningsborðið en Bandaríkin segja fundinn marka jákvætt skref. 2.4.2021 23:33
Biden býður Úkraínu „óhagganlegan stuðning“ gegn Rússlandi Joe Biden Bandaríkjaforseti hringdi í dag í fyrsta sinn í Volodymyr Zelenskiy, forseta Úkraínu á embættistíð sinni. Hann nýtti símtalið til að lýsa yfir stuðningi Bandaríkjanna við Úkraínu í deilunum við Rússa. 2.4.2021 21:31
Lögreglumaður drepinn í árásinni á þinghúsið William Evans, lögreglumaður hjá bandaríska þinghúsinu, var drepinn í árás sem gerð var fyrir utan þinghúsið í dag. Hann, ásamt öðrum lögreglumanni, varð fyrir bíl sem ekið var á þá við öryggistálma fyrir utan þinghúsið í dag. 2.4.2021 20:47
Bandarískar hersveitir í Evrópu í viðbragðsstöðu vegna Rússa Rússar hafa varað NATO við því að senda hersveitir til hjálpar Úkraínu en fregnir hafa nú borist af því að hersveitir Rússa safnist nú saman við landamærin að Úkraínu. Talsmaður Kreml sagði í dag að Rússland myndi grípa til frekari ráðstafana sendi NATO hersveitir til þess að mæta Rússum. 2.4.2021 17:54
Þinghúsi Bandaríkjanna lokað vegna árásar Þinghúsi Bandaríkjanna og aðliggjandi svæði í Washington DC hefur verið lokað eftir að bifreið var ekið á tvo lögreglumenn við öryggistálma fyrir utan þinghúsið. Hinn grunaði var skotinn af lögreglumönnum eftir að hann steig út úr bifreiðinni með kuta á lofti. 2.4.2021 17:47
Tugir látnir og um tvö hundruð sitja föst eftir lestarslys Minnst 41 hefur látist og hátt í tvö hundruð eru föst í lestargöngum í Taívan eftir að hraðlest fór út af sporinu þar í gær. Tugir eru slasaðir og björgunarfólk reynir hvað það getur að komast að fólkinu. 2.4.2021 09:10
Floyd var dáinn þegar bráðaliðar komu á staðinn Tveir bráðaliðar, sem fóru á vettvang þegar lögreglumaðurinn Derek Chauvin banaði George Floyd, sögðu í vitnastúku í Minneapolis í dag að hvorki hafi fundist púls né andardráttur hjá Floyd þegar þeir mættu á vettvang. 1.4.2021 23:42
Meira en 40 börn hafa látist í átökunum í Mjanmar Minnst 43 börn hafa verið drepin af mjanmarska hernum frá 1. febrúar síðastliðnum, þegar herinn rændi völdum í landinu. Frá valdaráninu hafa stuðningsmenn lýðræðislega kjörinnar ríkisstjórnar landsins og herinn tekist á og hundruð dáið í átökunum. 1.4.2021 17:44
Létu þriggja og fimm ára stúlkubörn falla niður fjögurra metra háan landamæravegg Bandaríska landamæragæslan birti í gær myndband sem sýnir hvar tvö börn eru látin detta yfir rúmlega fjögurra metra háan vegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Börnin tvö eru systkini frá Ekvador og talið er að smyglarar hafi verið að verki. 1.4.2021 16:24
WHO: Dreifing bóluefna í Evrópu „óásættanlega hæg“ Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) gagnrýnir harðlega bólusetningar í Evrópu, sem stofnunin segir ganga „óásættanlega hægt.“ Stofnunin hefur áhyggjur af þróun kórónuveirufaraldursins í álfunni. 1.4.2021 14:26
Verður sviptur riddaratign vegna barnaníðs Einn þekktasti viðskiptamaður Nýja-Sjálands, Ron Brierley, hefur gengist við því að hafa haft barnaníðsefni í fórum sínum. Myndefnið sýndi börn allt niður í tveggja ára gömul. Vinna er hafin við að svipta Brierley riddaratign vegna málsins. 1.4.2021 09:36
Barn meðal látinna í þriðju fjöldaskotárásinni á innan við mánuði Fjögur létust, þar af eitt barn, í skotárás á skrifstofubyggingu í úthverfi Los Angeles í Bandaríkjunum í gær. Hinn grunaði særðist í skotbardaga við lögregluna og hefur verið handtekinn. 1.4.2021 08:26
Sýndu nýjar myndir af handtöku Floyds Ákæruvaldið í réttarhöldunum yfir Derek Chauvin, fyrrverandi lögreglumanninum sem ákærður hefur verið fyrir að hafa banað George Floyd þegar hann kraup á hálsi hans í meira en níu mínútur, sýndi kviðdómi í gær myndbönd af handtöku og dauða Floyds sem tekin voru á búkmyndavélar lögreglumanna á vettvangi. 1.4.2021 07:59