Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ætlaði að beita rafbyssu: „Hver þremillinn. Ég skaut hann“ Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í úthverfi Minneapolis í Bandaríkjunum, annað kvöldið í röð eftir að svartur maður var skotinn til bana af lögregluþjóni. Umræddur lögregluþjónn ætlaði að taka upp rafbyssu sína en tók fyrir mistök upp alvöru byssu. 13.4.2021 09:47
Hyggjast losa kælivatnið úr Fukushima Daiichi í sjóinn eftir tvö ár Stjórnvöld í Japan hyggjast hefja losun meðhöndlaðs geislamengaðs vatns úr Fukushima Daiichi-kjarnorkuverinu í sjóinn eftir tvö ár. Losuninni hefur verið frestað ítrekað, meðal annars vegna mótmæla veiðimanna á svæðinu og nágrannaríkja. 13.4.2021 08:35
Einn þekktasti lögfræðingur Noregs myrtur í Osló Norski lögfræðingurinn Tor Kjærvik var myrtur í íbúð í hverfinu Røa í höfuðborginni Osló í gærkvöldi. Karlmaður á fertugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um verknaðinn. 13.4.2021 07:43
Þéttsetinn djammbekkur í kjölfar afléttinga Það var mikið um fögnuð og glaum á Englandi í gær þegar veitingastöðum og öldurhúsum var aftur heimilt að taka á móti kúnnum og bera í þá mat og drykk utandyra. 13.4.2021 07:11
Eldfimt ástand í Minnesota Útgöngubanni var aflétt í morgun í borginni Brooklyn Center í Minnesota í Bandaríkjunum eftir að lögreglu og mótmælendum lenti saman í nótt. Reiði ríkir á meðal borgarbúa vegna ásakana um að lögregla hafi skotið svartan karlmann til bana. 12.4.2021 19:00
Veitingamenn í átökum við lögreglu Ítalskir veitingamenn tókust á við óeirðalögreglu í Róm í dag og kröfðust þess að fá að opna staði sína á nýjan leik. 12.4.2021 16:01
Skaut mann ítrekað fyrir utan sjúkrahús í París Lögreglan í París letar manns sem hóf skothríð fyrir utan sjúkrahús í borginni í dag. Hann skaut einn til bana og særði konu alvarlega, áður en hann flúði af vettvangi á mótorhjóli. 12.4.2021 15:37
Segja Pútín hunsa viðræðubeiðni Ráðamenn í Úkraínu segja að Vladímír Pútín, forseti Rússlands, hafi ekki svarað beiðni um að ræða við Vólódómír Selenskí, forseta Úkraínu. Úkraínumenn hafi beðið um að fá að ræða við forsetann rússneska vegna gífurlegrar hernaðaruppbyggingu Rússa við landamæri Úkraínu. 12.4.2021 14:22
Sextíu ár síðan Gagarín var skotið út í geim Í dag eru sextíu ár liðin frá því Júrí Gagarín varð fyrsti maðurinn til að fara út í geim. Honum var skotið á loft frá Sovétríkjunum þann 12. apríl 1961 og varði 108 mínútum í geimnum. 12.4.2021 12:38
Kallaði McConnell heimskan tíkarson Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, jós úr skálum reiði sinnar yfir Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings um helgina. Það gerði Trump í ræðu á ráðstefnu íhaldsmanna í sveitaklúbbi hans í Flórída á laugardagskvöldið. 12.4.2021 11:35
Saka Ísraela um skemmdarverk og heita hefndum Yfirvöld í Íran sökuðu í morgun Ísraela um að hafa framið skemmdarverk á kjarnorkurannsóknarstöðinni Natanz á sunnudaginn. Þar voru nýjar skilvindur, sem notaðar eru til að auðga úran, skemmdar í líklegri tölvuárás og heita Íranar því að þeir muni hefna sín. 12.4.2021 09:47
Brestir í „bláa veggnum“ „Að leggja hann í jörðina, með andlitið niður og setja hnéð á hálsinn á honum í þetta langan tíma er algjörlega óréttlætanlegt,“ sagði einn lögreglumaður. „Þetta er ekki það sem við æfum,“ sagði annar. 12.4.2021 08:47
Harry kominn til Bretlands og mun dvelja í sóttkví fram að útför Harry Bretaprins er sagður vera kominn til Englands til að sækja útför afa síns. Filippus prins lést 9. apríl síðastliðinn en útför hans mun fara fram í kapellu St. Georgs við Windsor-kastala laugardaginn 17. apríl. 12.4.2021 07:39
Átök brutust út eftir að lögregla skaut svartan mann til bana Til átaka kom í úthverfi bandarísku borgarinnar Minneapolis í gærkvöldi eftir að lögreglumenn skutu ungan svartan mann til bana eftir að þeir höfðu stöðvað för hans. 12.4.2021 07:00
Bretar fá að heimsækja krár að nýju Búðir, hárgreiðslustofur, líkamsræktarstöðvar og krár munu opna dyr sínar fyrir gestum í Englandi á morgun. Þetta tilkynnti Boris Johnson, forsætisráðherra, í gær. Hann sagði um stórt skref í átt að „frelsi undan oki takmarkana vegna faraldursins“ að ræða. 11.4.2021 23:12
Spennan í kanslarakapphlaupinu magnast Spenna færðist í kapphlaupið um embætti kanslara Þýskalands í dag þegar Markus Söder, ríkisstjóri Bæjarlands og formaður Kristilegra demókrata í Bæjarlandi (CDS), tilkynnti framboð sitt til embættisins í dag. Armin Laschet, formaður Kristilegra demókrata (CDU), hefur þegar gefið kost á sér í embættið. 11.4.2021 21:36
Segja hryðjuverkaárás hafa verið gerða á kjarnorkuver í Íran Kjarnorkustofnun Íran segir að Natanz kjarnorkuverið hafi orðið fyrir hryðjuverkaárás í dag, aðeins tæpum sólarhring eftir að nýjar skilvindur, sem notaðar eru til þess að auðga úran, voru teknir í notkun í verinu. 11.4.2021 19:15
Lýsa blóðbaði þegar stjórnaherinn skaut sprengjum á mótmælendur Fleiri en áttatíu manns féllu þegar öryggissveitir herforingjastjórnarinnar í Búrma skutu sprengjum á mótmælendur nærri Yangon á föstudag. Nákvæm tala látinna liggur ekki fyrir þar sem herinn safnaði líkunum saman í herstöð og girtu svæðið af. 11.4.2021 12:03
Fresta fyrsta þyrlufluginu á Mars Ákveðið hefur verið að fresta fyrstu tilraunaflugferð þyrilvængjunnar Ingenuity á reikistjörnunni Mars. Til stóða að fljúga henni í fyrsta lagi í dag en eftir að hnökrar komu í ljós við undirbúning á föstudag var ákveðið að seinka því. 11.4.2021 11:11
Rafmagns- og vatnslaust eftir aðra sprengingu í eldfjallinu Meirihluti eyjunnar Sankti Vinsent í Karíbahafi er án rafmagns eftir að önnur sprenging varð í eldfjallinu La Soufriere. Þá er búið að loka fyrir vatn vegna öskufalls. 11.4.2021 10:03
Bóluefni Pfizer kunni að virka verr gegn suðurafríska afbrigðinu Virkni bóluefnis Pfizer gegn svokölluðu suðurafrísku afbrigði kórónuveirunnar virðist nokkru minni en gegn öðrum afbrigðum, ef marka má niðurstöður ísraelskrar rannsóknar á bóluefninu. Útbreiðsla afbrigðisins er þó lítil í Ísrael og niðurstöður rannsóknarinnar hafa ekki verið ritrýndar. 11.4.2021 09:57
Fyrrum forsætisráðherrann stofnar nýjan flokk Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, ætlar að stofna nýjan stjórnmálaflokk sem á að vera á miðju danskra stjórnmála. Hann sagði skilið við flokkinn Vinstri fyrr á þessu ári. 11.4.2021 08:25
Telja virkni kínverskra bóluefna gegn veirunni litla Æðsti embættismaður sóttvarna í Kína viðurkennir að virkni bóluefna sem hafa verið þróuð þar gegn kórónuveirunni sé lítil. Yfirvöld íhugi af þessum sökum að blanda efnunum saman til þess að freista þess að auka virknina. 11.4.2021 08:04
Þeldökkum hermanni ógnað af lögreglumönnum: „Þú ættir að vera hræddur“ Þeldökkum bandarískum hermanni, sem stöðvaður var af lögreglu við umferðareftirlit og ógnað með byssum, segist hafa verið logandi hræddur við að stíga út úr bílnum. Lögreglumennirnir svöruðu honum: „þú ættir að vera það,“ eins og sést á upptökum úr búkmyndavélum lögreglumannanna og símaupptöku mannsins. 10.4.2021 23:35
Fóru út að borða og fá 2,3 milljóna króna sekt Meira en 100 gestir á veitingastað í París hafa verið sektaðir fyrir að hafa brotið sóttvarnareglur. Þá hefur veitingastjórinn á staðnum verið handtekinn vegna málsins. 10.4.2021 22:49
Saknar pabba síns og þakkar fyrir kveðjurnar Karl Bretaprins ávarpaði í dag bresku þjóðina vegna fráfalls föður hans, Filippusar prins, sem lést í gærmorgun 99 ára að aldri. Hann segir viðbrögðin hreyfa við fjölskyldunni sem sé þakklát öllum þeim sem minnist prinsins. 10.4.2021 17:33
Rassía á heimili blaðamanns sem afhjúpaði vellystingar Kremlarvina Rússneska lögreglan handtók þekktan rannsóknarblaðamann og lagði hald á síma, raftæki og gögn í rassíu á heimili hans. Dagblað sem hefur birt umfjallanir blaðamannsins segir að lögregluaðgerðin sé hefnd vegna rannsókna hans á áhrifafólki sem tengist stjórnvöldum í Kreml. 10.4.2021 14:45
Segir „ögranir“ Rússa geta leitt til átaka Varnarmálaráðherra Úkraínu segir að stjórnarherinn gæti dregist inn í harðari átök í austurhluta landsins vegna ögrana Rússa. Vaxandi spenna er nú í Úkraínu vegna vaxandi vígbúnaðar Rússa nærri landamærunum. 10.4.2021 14:12
Kanna hvort þingmaður hafi sýnt nektarmyndir í þingsal Siðanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings kannar nú ásakanir um að Matt Gaetz, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Flórída, hafi sýnt myndir af nöktum konum í þingsal, framið kynferðisbrot og neytt ólöglegra lyfja. Dómsmálaráðuneytið rannsakar einnig hvort að Gaetz hafi greitt fyrir kynlíf og stundað mansal. 10.4.2021 12:38
Klúður í Tyrklandsheimsókn rænir forseta leiðtogaráðsins svefni Charles Michel, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, segist missa svefn vegna þess að hann lét hjá líða að mótmæla því að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnarinnar, fengi ekki sæti með þeim Recep Erdogan, forseta Tyrklands, í heimsókn þeirra í vikunni. 10.4.2021 10:31
Afhending á bóluefnum til snauðra ríkja nær stöðvast Nær ekkert hefur verið afhent af bóluefni gegn kórónuveirunni til fátækustu ríkja heims frá því á mánudag og nú stefnir í að allt að sextíu ríki geti ekki gefið seinni skammt af bóluefni fyrr en í júní. Forstjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar gagnrýnir harðlega misskiptingu í bólusetningum á milli ríkra þjóða og snauðra. 10.4.2021 10:02
Eðlisfræðingar spenntir yfir niðurstöðum sem storka staðallíkani Niðurstöður úr tveimur ólíkum tilraunum með svonefndar mýeindir eru sagðar gefa vísbendingar um mögulegt frávik frá staðallíkani öreindafræðinnar og hugsanlegt nýtt náttúruafl. Íslenskur eðlisfræðingur segir niðurstöðurnar spennandi en að of snemmt sé að tala um nýja og áður óþekkta víxlverkun. 10.4.2021 09:00
Telja að gagnrýnandi Pútín hafi verið kyrktur Nikolai Glushkov, rússneskur athafnamaður og gagnrýnandi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta, er talinn hafa verið kyrktur í London í mars árið 2018. Að mati dánardómstjóra í Bretlandi eru vísbendingar um að morðingi Glushkov hafi reynt að láta dauða hans líta út fyrir að hafa verið sjálfsvíg. 10.4.2021 08:08
Rússar óttast að borgarstríð brjótist út í Úkraínu Yfirvöld í Rússlandi segjast óttast það að átök muni brjótast út af fullum krafti að nýju í austurhluta Úkraínu. Rússar segjast þegar hafa hafið undirbúning á því að vernda rússneskan almenning á svæðinu. 9.4.2021 23:22
„Aðgerðir lögreglumannanna leiddu til dauða Floyds“ Aðgerðir lögreglu voru það sem leiddu George Floyd til dauða. Þetta sagði réttarmeinafræðingur í vitnastúku í réttarhöldunum gegn lögregluþjóninum Derek Chauvin í dag. 9.4.2021 21:42
Drottningarmaður í tæp sjötíu ár Filippus Bretaprins lést í morgun, 99 ára að aldri. Margir syrgja prinsinn, sem var giftur Elísabetu drottningu í 73 ár. 9.4.2021 20:00
Malta borgar ferðamönnum til að koma í sumar Yfirvöld í Möltu stefnir á að greiða erlendum ferðamönnum, sem halda til á eyjunni í meira en þrjá daga í sumar, allt að 200 evrur, sem eru um 30 þúsund íslenskar krónur. Þau segja aðgerðirnar til þess gerðar að koma ferðaþjónustu eyjunnar á réttan kjöl en atvinnugreinin hefur tekið dýfu niður á við vegna kórónuveirufaraldursins. 9.4.2021 19:26
Meintur mannræningi handtekinn á Íslandi Pólskur karlmaður sem var handtekinn á Íslandi um páskana hefur samþykkt að vera framseldur til Noregs. Maðurinn er grunaður um aðild að alræmdu mannráns- og líkamsárásmáli í Noregi fyrir sex árum. 9.4.2021 15:38
Sprengigos hafið á eyjunni Sankti Vinsent Sprengigos er hafið í eldfjallinu La Soufrière á eyjunni Sankti Vinsent í Karíbahafi. Mikið öskufall er á nærliggjandi svæði en ekki hafa borist tilkynningar um manntjón. 9.4.2021 15:00
Grófu glataða gullaldarborg upp úr sandinum í Egyptalandi Fornleifafræðingar í Egyptalandi tilkynntu í dag að þeir hefðu fundið þrjú þúsunda ára gamla borg sem hefur legið grafið undir sandi. Fundurinn er sagður einn sá stærsti frá því að gröf Tútankamons faraós fannst á fyrri hluta 20. aldar. 9.4.2021 14:00
Kanna tilkynningar um blóðtappa eftir Janssen-bólefni Lyfjastofnun Evrópu rannskara nú tilkynningar um sjaldgæfa tegund blóðtappa hjá fólki sem fékk bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni. Ekki er ljóst hvort að orsakasamhengi sé á milli bóluefnisins og blóðtappanna. 9.4.2021 12:42
Filippus prins er látinn Filippus prins, eiginmaður Elísabetar Bretadrottningar er látinn. Hann lést í morgun í Windsor-kastala að því er segir í tilkynningu frá bresku konungshöllinni. Hann varð 99 ára. 9.4.2021 11:09
Óeirðirnar á Norður-Írlandi halda áfram enn eina nóttina Til átaka kom á milli ungmenna og lögreglu í Belfast á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Köstuðu ungmennin steinum og flugeldum að lögreglumönnum sem svöruðu með háþrýstivatnsbyssum. Óeirðir hafa brotist út daglega frá því um páskana. 9.4.2021 10:43
15 prósent Breta nota gæludýranöfn sem aðgangsorð Milljónir Breta nota nöfn gæludýra sem aðgangsorð ef marka má nýja könnun National Cyber Security Centre (NCSC). Könnunin leiddi í ljós að um 15 prósent nota gæludýranöfn sem leyniorð, 14 prósent nafn fjölskyldumeðlims og 13 prósent einhverja markverða dagsetningu. 9.4.2021 09:19
Solberg gert að greiða 300 þúsund króna sekt fyrir sóttvarnabrotin Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, hefur verið gert að greiða 20 þúsund norskra króna sekt, um 300 þúsund íslenskar, vegna sóttvarnabrota í skíðabænum Geilo í lok febrúar. 9.4.2021 08:17
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent