Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvetja Breta til að sýna biðlund Vísindalegur ráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar segir landsmenn þurfa að vera þolinmóða í aðdraganda næstu tilslakana þar sem enn eigi eftir að bólusetja töluverðan fjölda. Þrátt fyrir góðan gang í bólusetningum er ekki útilokað að ný bylgja geti farið af stað. 1.5.2021 14:49
Hafa borið kennsl á 32 hinna látnu Kennsl hafa verið borin á 32 þeirra sem létust í átroðningi á fjölmennri trúarhátíð í Ísrael í fyrrakvöld. Minnst 45 létust í slysinu og á annað hundrað særðust. 1.5.2021 13:48
Leita enn að móður ungbarns sem fannst yfirgefið í almenningsgarði Lögreglan í Birmingham á Englandi hefur birt myndir af ungbarninu sem fannst yfirgefið í almenningsgarði í borginni fyrir helgi. Það var almennur borgari sem var á göngu með hunda í Kings Norton almenningsgarðinum í Birmingham sem fann litla drenginn vafinn inn í teppi síðdegis þann 22. apríl. 1.5.2021 12:51
Sjá fram á skort á bóluefni og súrefni samhliða versnandi stöðu faraldursins Tæplega 3.600 létust af völdum Covid-19 á Indlandi síðastliðinn sólarhring. 400 þúsund greindust með veiruna á einum degi, en er það í fyrsta skipti sem það gerist í einu landi. Indland hefur farið einna verst út úr kórónuveirufaraldrinum, en rúmlega 19 milljónir hafa greinst með veiruna þar í landi frá upphafi faraldursins. 1.5.2021 12:32
Berlusconi útskrifaður af sjúkrahúsi og dvelur í lúxusvillu sinni Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið útskrifaður eftir 24 daga dvöl á sjúkrahúsi. Berlusconi útskrifaðist á föstudag en þá hafði hann dvalið á San Raffaele sjúkrahúsinu síðan 6. apríl hvar hann undirgekkst fjölda rannsókna. 1.5.2021 11:35
Sakar Marilyn Manson um kynferðisofbeldi og líkamsmeiðingar Leikkonan Esmé Bianco hefur kært söngvarann Marilyn Manson fyrir kynferðisofbeldi og líkamsmeiðingar. Leikkonan, sem er hvað frægust fyrir hlutverk sitt í Game of Thrones, segir söngvarann hafa neytt hana til samfara árið 2011 með því að þvinga í hana eiturlyf og beita hana valdi. 1.5.2021 09:45
Mæla með að bóluefni Moderna fái neyðarheimild Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur mælt með því að bóluefni Moderna gegn kórónuveirunni fái neyðarheimild til notkunar. Moderna hefur sagst ætla að stórauka framleiðslugetu sína þannig að fyrirtækið geti framleitt allt að þrjá milljarða skammta á næsta ári. 30.4.2021 23:47
Rannsaka atlögu Giuliani að sendiherranum í Kænugarði Bandarísk alríkisyfirvöld rannsaka nú hlut Rudys Giuliani, persónulegs lögmanns Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í því að ryðja sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu úr vegi árið 2019. Húsleit var gerð á heimili og skrifstofu Giuliani vegna rannsóknarinnar í vikunni. 30.4.2021 22:15
Námsmenn á meðal þrjátíu látinna í bílsprengjuárás Þrjátíu manns féllu þegar bílsprengja sprakk við gistiheimili í borginni Pul-e-Alam í austanverðu Afganistan í dag. Á meðal þeirra látnu voru framhaldsskólanema sem voru í borginni til að þreyta inntökupróf í háskóla. 30.4.2021 19:35
Takmarka ferðalög frá Indlandi til Bandaríkjanna Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að takmarka ferðalög frá Indlandi til Bandaríkjanna vegna mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar þar í landi í næstu viku. Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna er sögð hafa mælt með aðgerðunum til að koma í veg fyrir að smit berist til Bandaríkjanna. 30.4.2021 18:45
Skortur á bóluefnum í héruðum Indlands Nokkur ríki Indlands eru uppiskroppa með bóluefni, degi áður en bólusetningarátak á að hefjast í landinu. Samkvæmt opinberum tölum hafa 7,7 milljónir manna fengið Covid-19 í síðustu tveimur mánuðum. Áður tók það nærri því hálft ár að greina 7,7 smitaða á Indlandi. 30.4.2021 15:50
Pence stígur aftur á svið og fer fögrum orðum um Trump Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hélt sína fyrstu pólitísku ræðu í gær eftir að ríkisstjórn Donalds Trump, fyrrverandi forseta, lét af völdum í upphafi árs. Þrátt fyrir að samband þeirra beið verulega hnekki undir lok ríkisstjórnarinnar og að stuðningsmenn Trumps kölluðu eftir því að Pence yrði myrtur, fór hann fögrum orðum um fyrrverandi yfirmann sinn. 30.4.2021 13:38
Þjóðarsorg eftir versta slys í sögu Ísraels Minnst 44 eru látin eftir að fjöldi tróðst undir á fjölmennri trúarhátíð í Ísrael í gærkvöldi. Á annað hundrað slasaðist. 30.4.2021 13:16
Vinur Gaetz vildi náðun og viðurkenndi kynlíf með sautján ára stúlku Joel Greenberg, kjörinn fulltrúi í Flórída og vinur þingmannsins umdeilda Matt Gaetz, skrifaði í bréfi til Rogers Stone, fyrrverandi ráðgjafa Donalds Trump, fyrrverandi forseta, að hann og Gaetz hefðu greitt fyrir kynlíf með mörgum konum, þeirra á meðal sautján ára stúlku. 30.4.2021 12:09
Lögmaður samtaka Navalnís handtekinn í Moskvu Ívan Pavolv, lögmaður and-spillingarsamtaka Alexeis Navalní, hefur verið handtekinn. Hann er sakaður um að hafa lekið upplýsingum um rannsókn og var handtekinn nokkrum klukkustundum áður en hann átti að mæta í dómsal þar sem hann er verjandi fyrrverandi blaðamanns sem hefur verið sakaður um landráð. 30.4.2021 10:34
Tvær mögulegar „örbylgjuárásir“ til skoðunar í Hvíta húsinu Talsmenn Hvíta hússins segja tvö „óútskýrð heilbrigðistilvik“ til rannsóknar en greint hefur verið frá því að tveir embættismenn í Washinton hafi skyndilega upplifað einkenni á borð við þau sem þjáð hafa einstaklinga sem unnu í sendiráðinu á Kúbu. 30.4.2021 10:11
Grjótkast varð að snörpum átökum Yfirvöld í Kirgistan segja að minnst þrettán manns hafa fallið í átökum við hermenn Tadsíkistan. Þá hafi vel yfir hundrað manns særst, þar af tveir í alvarlegu ástandi. 30.4.2021 09:41
Fimm ákærð vegna árásarinnar á aðstoðarmann Lady Gaga Fimm hafa verið handteknin og ákærð vegna árásar á aðstoðarmann Lady Gaga í febrúar og hafa þau verið ákærð fyrir morðtilraun og aðild að morðtilraun. Þrír voru handteknir á þriðjudaginn og eru þeir sakaðir um morðtilraun. Í kjölfarið voru tvö handtekin til viðbótar og ákærðir fyrir aðild að morðtilraun. 30.4.2021 08:24
Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna bannar sölu mentól sígaretta Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur ákveðið að banna sölu mentól sígaretta. Mannréttinda- og heilbrigðissamtök hafa löngum barist fyrir banninu, þar sem mentól sígarettur valda hlutfallslega meiri skaða meðal svartra Bandaríkjamanna. 30.4.2021 08:08
150 milljónir smitast af Covid-19 á heimsvísu Rúmlega hundrað og fimmtíu milljónir manna á heimsvísu hafa nú smitast af kórónuveirunni ef marka má samantekt AFP fréttastofunnar en sömu sögu er að segja ef litið er á teljara Johns Hopkins háskólans sem frá upphafi faraldursins hefur haldið utan um tölur um smitaða. 30.4.2021 07:48
Drottningin látin fáeinum vikum eftir lát konungsins Shiyiwe Mantfombi Dlamini Zulu, drottning Súlúmanna í Suður-Afríku, er látin, 65 ára að aldri. Hún lést einungis fáeinum vikum eftir að eiginmaður hennar, Goodwill Zwelithini konungur, lést. 30.4.2021 07:42
Tugir látnir á fjölmennri trúarhátíð í Ísrael Að minnsta kosti fjörutíu og fjórir eru látnir á fjölmennri trúarhátíð í norðausturhluta Ísraels. Tugir eru slasaðir að auki en fólkið tróðst undir í mannmergðinni. Um árlega samkomu er að ræða sem haldin er í hlíðum Meron fjalls. 30.4.2021 06:49
Óttast að óhefðbundin endurtalning grafi undan trausti Yfirmenn kjörstjórna í Bandaríkjunum óttast að ákvörðun repúblikana í Arizona um að láta telja aftur atkvæði í stærstu sýslu ríkisins frá því í kosningunum í nóvember verði að fordæmi sem grafi undan trú kjósendur á kosningum í framtíðinni. Donald Trump, fyrrverandi forseti, er sagður haldinn þráhyggju fyrir niðurstöðu endurtalningarinnar. 29.4.2021 23:57
Stefna brasilískum yfirvöldum fyrir meiðyrði vegna Spútnik V Framleiðandi rússneska kórónuveirubóluefnisins Spútnik V ætlar að stefna brasilísku heilbrigðiseftirlitsstofnuninni sem hafnaði beiðni nokkurra ríkja um að flytja efnið inn fyrir meiðyrði. Stjórnendur stofnunarinnar vísa ásökununum um meiðyrði á bug. 29.4.2021 23:17
Vilja gefa unglingum bóluefni Pfizer Lyfjafyrirtækin Pfizer og BioNTech ætla að óska eftir leyfi til að gefa unglingum á aldrinum tólf til fimmtán ára kórónuveirubóluefni sitt í Evrópu í sumar. Tilraunir standa einnig yfir með bóluefnið í börnum. 29.4.2021 22:25
Þýsk loftslagslög talin brjóta á rétti ungs fólks Stjórnlagadómstóll Þýskalands komst að þeirri niðurstöðu í dag að loftslagslög þýsku ríkisstjórnarinnar gangi ekki nægilega langt og brjóti gegn grundvallarréttindum fólks með því að koma því á herðar yngri kynslóða að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Stjórnvöld þurfa að endurskoða lögin fyrir lok árs. 29.4.2021 21:27
Horaður Navalní lokar skrifstofum til að forða bandamönnum Alexei Navalní, rússneski stjórnarandstöðuleiðtoginn, var krúnurakaður og lítið meira en skinn og bein þegar hann kom fram opinberlega í fyrsta skipti frá því að hann var fangelsaður í dag. Á sama tíma tilkynnti náinn samverkamaður hans að skrifstofum samtaka hans víða um Rússland yrði lokað til að vernda félaga og bandamenn. 29.4.2021 18:18
Bandaríkjamönnum sagt að koma sér frá Indlandi Bandaríkjastjórn hvetur borgara sína til þess að yfirgefa Indland eins fljótt og mögulegt er vegna kórónuveirufaraldursins sem geisar nú sem aldrei fyrr í landinu. Sendiráð Bandaríkjanna á Indlandi segir að aðgangur að hvers kyns heilbrigðisþjónustu sé að vera verulega takmarkaður. 29.4.2021 17:32
Telur Kínverja undirbúa innrás Utanríkisráðherra Taívans sagði í dag að útlit væri fyrir að Kínverjar væru að undirbúa innrás á eyjuna. 29.4.2021 17:30
NATO byrjar brottflutning frá Afganistan Atlantshafsbandalagið er byrjað að flytja hermenn og búnað frá Afganistan, samhliða Bandaríkjunum. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti nýverið að aðkomu Bandaríkjanna að stríðinu í Afganistan verði lokið fyrir 11. september, á tuttugu ára afmæli árásarinnar á Tvíburaturnana. 29.4.2021 16:06
Búlgarar bendla Rússa við sprengingar þar í landi Utanríkisráðuneyti Búlgaríu tilkynnti í dag að ríkisstjórn landsins ætlaði að vísa einum rússneskum erindreka úr landi, til viðbótar við þá tvo sem voru reknir úr landi fyrir njósnir í síðasta mánuði. 29.4.2021 15:05
Afglæpavæða þungunarrof í kjölfar nauðgunar Stjórnlagadómstóll Ekvador hefur komist að þeirri niðurstöðu að lagaákvæði sem banni þungunarrof í kjölfar nauðgunar brjóti gegn stjórnarskrá landsins. Sjö dómarar voru á þessu máli, gegn tveimur en rætur þess má rekja til baráttu kvennréttindasamtaka í Ekvador. 29.4.2021 11:51
Sagði lýðræðið þurfa að sanna sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lagði línurnar í nótt að umfangsmiklum breytum á velferðarkerfi Bandaríkjanna og umsvifum alríkisins á hagkerfið. Þetta sagði hann í fyrsta ávarpi sínu fyrir báðum deildum Bandaríkjaþings í nótt. 29.4.2021 08:59
Framkvæmdastjóri NRA harðlega gagnrýndur fyrir misheppnaða tilraun til að drepa fíl Myndbandsupptökur sem sýna framkvæmdastjóra hagsmunasamtaka bandarískra skotvopnaeigenda (NRA) skjóta fíl ítrekað án þess að takast að drepa skepnuna hafa verið harðlega gagnrýndar. 29.4.2021 07:37
Ákærðir fyrir hatursglæp vegna morðsins á Ahmaud Arbery Þrír hvítir karlmenn í Georgíu í Bandaríkjunum hafa verið ákærðir fyrir hatursglæp og tilraun til frelsissviptingar í tengslum við morðið á Ahmaud Arbery, svörtum skokkara, í fyrra. Feðgar sem eltu Arbery eru ákærðir fyrir að hafa myrt hann. 28.4.2021 23:52
Biden boðar von um betri tíð eftir faraldur og kreppu Efnahagsbati eftir kórónuveirufaraldurinn verður efst á baugi í fyrsta ávarpi Joes Biden Bandaríkjaforseta fyrir báðum deildum Bandaríkjaþings í kvöld. Í ávarpinu ætlar forsetinn að lýsa því hvernig Bandaríkin eru „komin aftur af stað“ og hvernig hann sér fyrir sér að alríkisstjórnin geti bætt líf landsmanna. 28.4.2021 23:31
Læstist inni í matvöruverslun eftir lokun Kona nokkur í norska bænum Lillestrøm, skammt austur af höfuðborginni Osló, kallaði eftir aðstoð lögreglu í kvöld eftir að hafa læsts inni í matvöruverslun eftir lokun. Konan hafði verið að versla í búðinni en svo virðist sem starfsfólk hafi ekki verið meðvitað um veru konunnar í versluninni þegar henni var skellt í lás. 28.4.2021 23:09
Brasilía hafnar rússneska bóluefninu Lyfjayfirvöld í Brasilíu synjuðu nokkrum þarlendum ríkjum um heimild til þess að flytja inn rússneska bóluefnið Spútnik V gegn kórónuveirunni. Þau telja trúverðug gögn um virkni bóluefnisins skorta og vísa til galla á tilraunum með það. Rússar segja pólitík búa að baki synjuninni. 28.4.2021 21:54
Bretar panta aukaskammta af bóluefni og hyggjast gefa þriðju sprautuna Bresk yfirvöld hafa pantað sextíu milljón aukaskammta af bóluefni Pfizer-BioNTech gegn covid-19 sem ætlunin er að nota til að bólusetja fólk með þriðju sprautunni af bóluefninu í haust. Þetta þýðir að Bretar hafa í heildina pantað hundrað milljónir skammta af bóluefni Pfizer. 28.4.2021 20:48
Leiðtogi norðurírsku heimastjórnarinnar segir af sér Arlene Foster, oddviti heimastjórnar Norður-Írlands, sagði af sér vegna innanflokksátaka í Lýðræðislega sambandsflokksins (DUP) um útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu í dag. Hún ætlar jafnframt að stíga til hliðar sem leiðtogi flokksins. 28.4.2021 19:37
Húsleit gerð á heimili Rudys Giuliani Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar gerðu húsleit á heimili og skrifstofu Rudys Giuliani, fyrrverandi borgarstjóra New York og persónulegs lögmanns Donalds Trump fyrrverandi forseta, á Manhattan í dag. Leitin er sögð liður í rannsókn á því hvort að Giuliani hafi starfað fyrir erlend ríki á laun. 28.4.2021 18:32
Þriðji Apollo 11-geimfarinn látinn Michael Collins, flugmaður stjórnhylkisins Columbia sem flaug með þeim Neil Armstrong og Buzz Aldrin til tunglsins árið 1969, er látinn, níræður að aldri. Ólíkt félögum sínum tveimur steig Collins aldrei fæti á tunglið. 28.4.2021 17:48
Boris í bobba: Rannsaka hvort kosningasjóðir hafi verið notaðir ólöglega Yfirkjörstjórn Bretlands tilkynnti í dag að hefja ætti formlega rannsókn sem snýr að Boris Johnson, forsætisráðherra. Rannsóknin snýr að því hvort Johnson hafi notað kosningasjóði til að gera endurbætur á íbúð sinni við Downing-stræti. 28.4.2021 15:54
Selunum sigað á Kína og Rússland Yfirmenn herafla Bandaríkjanna hafa ákveðið að gera töluverðar breytingar á einhverjum frægust herdeildum sérsveitarmanna í heiminum. Með breytingunum eiga svokallaðir Selir að leggja minni áherslu á stríðið gegn hryðjuverkum og meiri áherslu á átök milli ríkja. 28.4.2021 15:07
Fögnuðu sigri gegn Covid en vöknuðu upp við vondan draum Tvö hundruð þúsund hafa nú látist af völdum kórónuveirunnar á Indlandi. Fleiri hafa einungis látist í Bandaríkjunum, Brasilíu og Mexíkó en ástandið hefur versnað hratt á Indlandi síðustu vikur. 28.4.2021 14:45