Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Átta látnir eftir eldsvoða í Ríga Átta manns hið minnsta eru látnir og níu slasaðir eftir að mikill eldur kom upp í húsnæði sem hefur verið lýst sem ólöglegu farfuglaheimili í lettnesku höfuðborginni Ríga í morgun. 28.4.2021 09:02
Mikill meirihluti þingmanna samþykkir fríverslunarsamninginn við Breta Evrópuþingið hefur staðfest nýjan fríverslunarsamning milli Evrópusambandsins og Bretlands í kjölfar Brexit. Samningurinn hefur verið í gildi frá því í janúar en var samþykktur í morgun með 660 atkvæðum. 28.4.2021 09:01
Kona skotin til bana á götu úti í Osló Kona var skotin til bana á götu úti í Frogner-hverfi í vesturhluta norsku höfuðborgarinnar Osló í morgun. Lögregla hefur handtekið mann sem grunaður er um verknaðinn. 28.4.2021 08:13
Dæmdur fyrir að níða og taka myndskeið af deyjandi lögreglumönnum Ástralskur maður hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa myndað og talað niður til lögreglumanna þar sem þeir lágu fyrir dauðanum. Hinn 42 ára Richard Pusey hefur setið um 300 daga í gæsluvarðhaldi og verður líklega sleppt á næstu dögum. 28.4.2021 07:43
Fleiri en 200 þúsund látið lífið af völdum Covid-19 á Indlandi Kórónuveirufaraldurinn er enn í mikilli útbreiðslu á Indlandi en á síðustu sjö dögum hafa fleiri greinst smitaðir þar en í nokkru öðru landi. 28.4.2021 06:47
Maxwell neitað um lausn gegn tryggingu enn eina ferðina Bandarískur áfrýjunardómstóll hefur hafnað beiðni Ghislaine Maxwell, sem ákærð er fyrir mansal og hlutdeild í kynferðisglæpum barnaníðingsins Jeffrey Epstein, um að geta losnað úr varðhaldi gegn tryggingu. 27.4.2021 23:48
Covid-pakki ESB í óvissu vegna erja á finnska stjórnarheimilinu Deilur innan finnsku ríkisstjórnarinnar tefla nú efnahagsaðgerðapakka Evrópusambandsins vegna kórónuveirufaraldursins í tvísýnu. Öll aðildarríkin þurfa að samþykkja pakkann en finnska stjórnin er sögð ramba á barmi falls. 27.4.2021 23:40
Meina bólusettum kennurum að hitta nemendur Stjórn skóla nokkurs í Miami í Bandaríkjunum hefur hvatt starfsfólk sitt til að láta ekki bólusetja sig gegn Covid-19 og bannar bólusettum kennurum að vera í samskiptum við nemendur. 27.4.2021 22:58
Rannsaka viðbrögð Bolsonaro við faraldrinum Brasilíska þingið rannsakar nú viðbrögð ríkisstjórnar Jairs Bolsonaro forseta við kórónuveirufaraldrinum sem hefur orðið að minnsta kosti 391.000 manns að bana í landinu. Bolsonaro segist engar áhyggjur hafa af rannsókninni jafnvel þó að hún gæti leitt til þess að hann yrði sviptur embætti. 27.4.2021 22:21
Bólusettir geti verið grímulausir utandyra Þeir sem hafa þegar verið fullbólusettir gegn kórónuveirunni þurfa ekki að nota grímur utandyra nema þeir séu í stórum hópi ókunnungs fólks samkvæmt nýjum leiðbeiningum Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC). Óbólusettir geta líka sleppt grímum utandyra við ákveðnar aðstæður. 27.4.2021 20:57
Indverskar bálstofur ráða ekki við álagið Indverskar bálstofur anna ekki eftirspurn vegna versnandi kórónuveirufaraldurs. Tæplega 2.800 létust af völdum veirunnar í landinu í gær. 27.4.2021 20:01
Kreml vængstífir samtök Navalní Samtökum Alexeis Navalní gegn spillingu var bannað að koma upplýsingum á framfæri á netinu eða í gegnum fjölmiðla, skipuleggja viðburði, taka þátt í kosningum eða nota bankareikninga með úrskurði dómstóls í Moskvu í dag. Yfir samtökunum vofir einnig að vera lýst öfgasamtök. 27.4.2021 18:57
Grískur Evrópuþingmaður sviptur friðhelgi og handtekinn Belgíska lögreglan handtók Ioannis Lagos, grískan Evrópuþingmann, sem var sakfelldur fyrir aðild að hægriöfgaflokknum Gullinni dögun í heimalandi sínu í dag. Lagos á yfir höfði sér þrettán ára fangelsisvist. 27.4.2021 17:44
Handsprengjan reyndist hjálpartæki ástarlífsins Þegar ung kona á skokki í skógi nærri borginni Passau í Þýskalandi kíkti í grunsamlegan poka brá henni heldur í brún. Þar sá hún handsprengju sem hún taldi úr seinni heimsstyrjöldinni og dreif hún sig til að hringja í lögregluna. 27.4.2021 15:53
Lögreglukonan sem fór íbúðarvillt vill losna úr fangelsi fyrir að skjóta nágranna sinn Lögmaður lögreglukonunnar fyrrverandi Amber Guyger munu í dag færa rök fyrir því að snúa eigi við sakfellingu hennar fyrir morð. Hún skaut nágranna sinn í Dallas í Texas til bana árið 2018 eftir að hún fór fyrir mistök inn í íbúð hans en ekki sína. 27.4.2021 14:26
Fólkið færist til suðurs og vesturs og þingsætin fylgja Nýjasta manntal Bandaríkjanna sýnir að Bandaríkjamönnum fjölgaði um einungis 7,4 prósent milli 2010 og 2020 og teljast þeir nú 331 milljón. Það sýnir einnig að sú þróun að íbúar færist til suðurs og vesturs heldur áfram. 27.4.2021 12:30
Bretar gera sig breiða og sigla flota um höf Asíu Bretar munu í næsta mánuði senda herflota á siglingu um Asíu og Kyrrahaf. Um stærsta flota Bretlands í áraraðir er að ræða og verður nýja flugmóðurskipið HMS Queen Elizabeth í flotanum. Það er annað flugmóðurskip Bretlands og stærsta herskip sem ríkið hefur sett á flot. 27.4.2021 10:18
Englendingar 42 ára og eldri geta nú skráð sig í bólusetningu Frá og með gærdeginum gátu Englendingar 44 ára og eldri skráð sig í bólusetningu vegna Covid-19 en nú hefur aldurinn verið lækkaður og skráning stendur opin öllum 42 ára og eldri. 27.4.2021 09:35
Lífseigu samstarfi í geimnum að ljúka og keppt til tunglsins Í rúma tvo áratugi hafa geimvísindamenn og geimfarar Rússlands og Bandaríkjanna unnið náið saman, samhliða því að samskipti ríkjanna tveggja hafa beðið verulega hnekki. Þó viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum hafi verið beitt á báða bóga hefur geimurinn verið sér á báti. Sá tími er nú liðinn. 27.4.2021 09:15
Æfir yfir ímynduðum takmörkunum Bidens á kjötneyslu Repúblikanar hafa lýst yfir miklum áhyggjum undanfarna daga af því að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, ætli að banna fólki að borða hamborgara. Hann ætli að skera neyslu kjöts niður um 90 prósent fyrir árið 2030. 27.4.2021 09:06
Sænskir hægsjónvarpsáhorfendur fylgdust með fyrstu elgunum þvera fljótið Sænskir sjónvarpsáhorfendur fengu loks að sjá fyrstu elgina synda yfir Ångermanfljót í norðurhluta landsins í gær. Sænska ríkisútvarpið hefur síðustu ár verið með sjónvarpsútsendingu, svokallað hægsjónvarp, á vorin frá þeim stað þar sem elgirnir þvera alla jafna fljótið á leið sinni norður á bóginn. 27.4.2021 07:57
„Leyfið líkunum að hrannast upp í þúsundatali!“ Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, sætir nú auknum þrýstingi eftir að breskir miðlar greindu frá því í gær að hann hefði sagt að hann vildi frekar sjá þúsundir líka hrannast upp en að grípa aftur til harðra sóttvarnaðgerða. 27.4.2021 07:37
Nálgast það að 200 þúsund manns hafi látist vegna Covid-19 Indverjar nálgast nú hraðbyri þann sorglega áfanga að þar hafi 200 þúsund manns látið lífið af völdum kórónuveirunnar, svo staðfest sé. 27.4.2021 07:09
Ætla að gefa 60 milljónir skammta af bóluefni AstraZeneca Bandarísk stjórnvöld hyggjast deila 60 milljón skömmtum af bóluefni AstraZeneca með öðrum ríkjum á næstu mánuðum. Bóluefninu verður dreift til annarra landa um leið og nægar byrgðir eru til af því að sögn Hvíta hússins. 26.4.2021 21:27
Koma Indverjum til aðstoðar Fjöldi ríkja kemur nú Indverjum til aðstoðar en kórónuveirufaraldurinn er í hæstu hæðum í þessu næstfjölmennasta landi heims. 26.4.2021 20:01
Nepomniachtchi og Carlsen tefla um heimsmeistaratitilinn í nóvember Rússneski stórmeistarinn Ian Nepomniachtchi sigraði í dag skákmót Alþjóðaskáksambandsins Candidate tournament og mun því mæta Norðmanninum og heimsmeistaranum Magnúsi Carlsen í Dubai í nóvember næskomandi. 26.4.2021 18:52
Ráðherra fékk hníf með rauðum slettum í pósti Ferðamálaráðherra Spánar fékk hníf með rauðum slettum sendan í pósti en nokkrir stjórnmála- og embættismenn hafa fengið líflátshótanir undanfarna daga. Stjórnmálaflokkar af öllu pólitíska litrófinu hafa fordæmt hótanirnar sem eru til rannsóknar lögreglu. 26.4.2021 15:45
ESB í mál við AstraZeneca Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sagðist í dag hafa höfðað mál gegn lyfjaframleiðandanum AstraZeneca vegna vanefnda á samningum. 26.4.2021 15:01
Kremlverjar láta loka skrifstofum samtaka Navalní Rússnesk yfirvöld létu loka skrifstofu samtaka Alexeis Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu á meðan beðið er úrskurðar dómstóls um hvort að samtökin verði skilgreind sem öfgasamtök og bönnuð í dag. Samtök Navalní berjast gegn spillingu í Rússlandi. 26.4.2021 14:04
35 ár frá sprengingunni í Tsjernobyl 35 ár eru liðin frá því að einn kjarnakljúfur orkuversins í Tsjernobyl bræddi úr sér og sprakk í loft upp. Þarna varð annað tveggja stærstu kjarnorkuslysa heimsins. 31 starfsmaður og slökkviliðsmaður dó í slysinu sjálfu og strax í kjölfar þess. Þar af flestir vegna mikillar geislavirkni. 26.4.2021 13:00
Bush sakar flokk sinn um einangrunarhyggju og andúð á innflytjendum Repúblikanaflokkurinn í Bandaríkjunum hefur gefið sig á vald einangrunarhyggju og verndarstefnu, að mati George W. Bush, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Hann hefur sérstakar áhyggjur af orðræðu flokkssystkina sinna í garð innflytjenda. 26.4.2021 11:04
Ingenuity flaug hærra og lengra en áður Tilraunir með þyrilvængjuna Ingenuity á reikistjörnunni Mars héldu áfram um helgina. Þá fór litla þyrlan í þriðju tilraunaflugferð sína og sveif hærra og lengra en hún hafði nokkru sinni gert áður. Verkfræðingar leiðangursins ætla Ingenuity enn djarfari ferðir á næstunni. 26.4.2021 09:25
Neita að ræða við uppreisnarmennina sem felldu forsetann Herráð Tjad mun ekki hefja viðræður við uppreisnarmennina sem felldu Idriss Deby, forseta landsins til þrjátíu ára. Eykur það líkurnar á því að uppreisnarmennirnir láti verða af hótunum sínum og ráðist á höfuðborg landsins, í samráði við aðra hópa sem eru ósáttir við að sonur Deby, Magamat, hafi tekið völdin í Tjad. 26.4.2021 08:42
Þúsundir mótmæltu ákvörðun um að rétta ekki yfir morðingja konu af gyðingaættum Þúsundir hafa mótmælt í París og víðar í Frakklandi þeirri ákvörðun dómstóls að rétta ekki yfir manni sem myrti 65 ára gamla konu. Dómstólar höfðu áður komist að þeirri niðurstöðu að um hatursglæp hefði verið að ræða en fórnarlambið var gyðingur. 26.4.2021 08:09
350.000 greindust með Covid-19 á Indlandi í gær og 2.500 létust Bretar, Bandaríkjamenn og Evrópusambandið undirbúa nú aðstoð til handa Indverjum en kórónuveirufaraldurinn er nú á háalvarlegu stigi í landinu. Tæplega þrjúhundruð og fimmtíuþúsund manns greindust smituð þar í gær og um 2.500 létust. 26.4.2021 07:30
Forsetinn segir ekki ljóst að Rússar beri ábyrgð á sprengingunni Milos Zeman, forseti Tékklands, sagði í dag að enn sé ekki víst hvort að rússneskir leyniþjónustumenn hafi borið ábyrgð á sprengingu sem varð í vopnageymslu landinu árið 2014. Hann sagði einnig möguleika á því að sprengingin hafi aðeins verið slys og ekki megi skjóta loku fyrir þá kenningu. 25.4.2021 14:02
Kafbáturinn fundinn, brotinn í að minnsta kosti þrjá búta Kafbátur indónesíska sjóhersins sem hvarf á miðvikudag með 53 manna áhöfn innanborðs er fundinn, brotinn í sundur í að minnsta kosti þrjá hluta. Indónesíski herinn greindi frá þessu á blaðamannafundi fyrr í dag en í gær hafði þegar fundist nokkuð brak úr kafbátnum auk persónulegra muna frá áhöfninni. 25.4.2021 13:32
Bernie segir fæðingarorlof á Íslandi aðeins 13 vikur Bernie Sanders, fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum, birti í gær færslu á Facebook þar sem hann gagnrýnir bandarísk stjórnvöld fyrir að hafa ekki tryggt foreldrum fæðingarorlof. Ber hann þar saman fæðingarorlofsréttindi foreldra í ýmsum löndum, þar á meðal Íslandi, og virðist ekki hafa kynnt sér málið nógu vel. 25.4.2021 11:52
Minnst 82 látin eftir eldsvoða á sjúkrahúsi fyrir Covid-19 sjúklinga Minnst 82 eru látin og meira en 100 særð eftir eldsvoða á sjúkrahúsi nokkru í Bagdad, höfuðborg Íraks, sem sérstaklega hafði verið útbúinn til að sinna covid-19 sjúklingum. Upptök eldsvoðans eru rakin til sprengingar súrefniskúts á sjúkrahúsinu. 25.4.2021 10:43
Boða til viðræðna milli stríðandi fylkinga í Mjanmar Leiðtogar Sambands Suðaustur-Asíuríkja, Asean, komust í gær að niðurstöðu um áætlun til að binda endi á ofbeldið sem skekið hefur Mjanmar undanfarna mánuði. Þetta gerðu þeir í samráði við Min Aung Hlaing, æðsta herforingja Mjanmar. 25.4.2021 08:22
Biden viðurkennir þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Joe Biden Bandaríkjaforseti varð í gær fyrsti forseti Bandaríkjanna til þess að formlega lýsa fjöldamorðunum á Armenum árið 1915 sem þjóðarmorði. Morðin áttu sér stað í þá deyjandi Ottómanveldinu þar sem nú er Tyrkland. 25.4.2021 07:47
Stendur ekki við gefin loftslagsloforð Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, samþykkti í dag niðurskurð í fjárveitingum til umhverfismála þrátt fyrir að hafa lofað auknum fjármunum í málefnið á loftslagsráðstefnu í gær. 24.4.2021 15:19
Danir byrja að sparka sýrlenskum flóttamönnum úr landi Ríkisstjórn sósíaldemókrata í Danmörku er byrjuð að svipta suma sýrlenska flóttamenn sem fengu hæli vegna borgarastríðsins í heimalandinu landsvistarleyfi með þeim rökum að öruggt sé fyrir þá að snúa heim. Sérfræðingar vísa því mati danskra stjórnvalda á bug. 24.4.2021 15:01
Fundu brak úr kafbátnum og persónulega muni áhafnarinnar Kafbáturinn sem hvarf á miðvikudaginn með 53 manna áhöfn innanborðs úti fyrir ströndum Balí er sokkinn að sögn indónesíska sjóhersins. 24.4.2021 13:34
Segja faraldrinum lokið í Bretlandi en staðan aldrei verri á Indlandi Þriðja daginn í röð var slegið vafasamt met í fjölda dauðsfalla af völdum covid-19 á Indlandi. Á sama tíma hafa sérfræðingar lýst því yfir að faraldrinum sé lokið á Bretlandi. 24.4.2021 13:01