Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Saka Navalní um að brjóta á réttindum fólks Rússnesk yfirvöld hafa lagt fram nýjar ákærur á hendur Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem allt að þriggja ára fangelsisdómur liggur við. Félagasamtök sem Navalní stofnuðu eiga að hafa „brotið á réttindum“ fólks, að sögn yfirvalda. 11.8.2021 15:53
Stærstu gróðureldar á jörðinni loga í Síberíu Gróðureldar sem nú loga á þúsundum ferkílómetra lands í Síberíu eru stærri en allir aðrir gróðureldar sem loga á jörðinni. Rússnesk yfirvöld berjast nú við fleiri en 190 skógarelda en tugir annarra elda fá að loga óáreittir fjarri mannabyggð. 11.8.2021 14:53
Breti handtekinn í Þýskalandi fyrir að njósna fyrir Rússa Lögreglan í Þýskalandi hefur handtekið breskan mann sem vann í sendiráði Breta í Berlín. Maðurinn er sakaður um að hafa njósnað fyrir Rússa. 11.8.2021 13:11
Minnst 65 fórust í umfangsmiklum eldum í Alsír Minnst 65 dóu vegna umfangsmikilla skógarelda í Alsír í gær. Þar á meðal voru 28 hermenn sem voru að hjálpa við slökkvistarf og brottflutning íbúa í Kabylie-héraði. Smærri eldar loga í minnst sextán öðrum héruðum landsins. 11.8.2021 10:59
Þúsundir fengu saltvatnslausn í stað bóluefnis Yfirvöld í norðurhluta Þýskalands hafa biðlað til fjölda einstaklinga um að þiggja viðbótarskammt af bóluefni gegn Covid-19 eftir að grunur vaknaði um að hjúkrunarfræðingur hefði sprautað þúsundir með saltvatnslausn í stað bóluefnis. 11.8.2021 08:58
Getur ekki falið sig á bakvið „auð og vald og hallarveggi“ Hertoginn af York getur ekki falið sig á bakvið „auð og hallarveggi“ og verður að svara þeim ásökunum sem á hann hafa verið bornar fyrir bandarískum dómstólum. Þetta segir lögmaður Virginiu Giuffre, sem hefur sakað Andrés Bretaprins um nauðgun. 11.8.2021 08:04
Kanadamaður dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir njósnir í Kína Kínverskur dómstóll dæmdi í gær Michael Spavor frá Kanada í ellefu ára fangelsi fyrir njósnir. Hann og samlandi hans Michael Kovrig hafa verið í gæsluvarðaldi í tvö ár. Dómur hefur enn ekki verið kveðinn upp yfir Kovrig. 11.8.2021 07:38
Dóttir Bernie Ecclestone sakar Sverri um svik og pretti Fyrirsætan Tamara Ecclestone fer ófögrum orðum um athafnamanninn Sverri Einar Eiríksson á Instagram, þar sem hún segir hann meðal annars hafa leigt fasteign af góðri vinkonu sinni en ekki greitt leigu í tíu mánuði. 11.8.2021 07:17
Facebook lokar áróðurssíðum gegn vestrænum bóluefnum Stjórnendur Facebook segja að hundruð reikinga eða notenda með tengsl við Rússlandi hafi verið fjarlægðir vegna herferðar þeirra gegn tilteknum bóluefnum og falsfrétta um þau. 11.8.2021 06:45
Biden segir Afgana þurfa að berjast fyrir landinu sínu Joe Biden forseti Bandaríkjanna segist ekki sjá eftir að hafa kallað herlið Bandaríkjamanna í Afganistan heim þótt Talibanar hafi að undanförnu náð hverri héraðshöfuðborg landsins á sitt vald. 11.8.2021 06:39
Cuomo hættir í skugga ásakana Andrew Cuomo hefur sagt af sér sem ríkisstjóri New York-ríkis. Það gerir hann eftir að ríkissaksóknari ríkisins birti skýrslu þar sem ríkisstjórinn er sakaður um áreitni í garð ellefu kvenna. 10.8.2021 16:14
Hver borgin fellur á fætur annarri Vígamenn Talibana hafa hert tök sín á yfirráðasvæðum þeirra í norðurhluta Afganistans og virðast þeir vera að undirbúa sig fyrir það að stjórna svæðum þessum til lengri tíma. Stjórnarher landsins á undir högg að sækja en Bandaríkjamenn segja það á ábyrgð Afgana sjálfra að verjast Talibönum. 10.8.2021 13:14
Óttast útrýmingu eftir svarta loftslagsskýrslu Fulltrúar fimmtíu þróunarríkja sem eru í einna mestri hættu vegna loftslagsbreytinga af völdum manna óttast að ríkin séu á barmi útrýmingar verði ekki gripið til aðgerða hratt. Í nýrri loftslagsskýrslu er gert ráð fyrir að markmið um takmörkun hlýnunar sem var sett til að vernda viðkvæm eyríki bresti líklega strax á næsta áratug. 10.8.2021 08:30
Sjálfsvígum fjölgar í Kenía Nærri 500 manns hafa tekið eigið líf í Kenía það sem af er ári en allt árið í fyrra nam fjöldinn 320. Yngsta manneskjan var níu ára og sú elsta 76 ára, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti landsins. 10.8.2021 08:07
Umferð stöðvaðist þegar stóð á Turnbrúnni Turnbrúin sögufræga í London festist í stöðu í nærri því hálfan sólarhring í gær með tilheyrandi umferðartöfum. Lögregla sagði að brúin hefði verið lokuð vegna „tæknilegrar bilunar“. 10.8.2021 07:24
Biðst afsökunar á því að gróðureldarnir geisi enn Kyriakos Mitsotakis, forsætisráðherra Grikklands, hefur beðist afsökunar á að ekki hafi tekist að ráða niðurlögum skógarelda í landinu. Jafnvel þótt allt hafi verið gert sem í mannlegu valdi standi til að kæfa eldana hafi það oft á tíðum ekki reynst nóg. 10.8.2021 07:13
Kínverskur áfrýjunardómstóll staðfestir dauðadóm yfir Kanadamanni Áfrýjunardómstóll í Kína hefur staðfest þyngingu á dómi yfir Kanadamanni úr fimmtán ára fangelsi í dauðadóm fyrir að hafa reynt að smygla tæplega 230 kílóum af metaamfetamíni frá Kína til Ástralíu árið 2014. 10.8.2021 06:42
Andrés prins kærður fyrir nauðgun Andrés prins, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi. Kærandi í málinu er Virginia Giuffre, sem segir brot Andrésar gegn sér hafa átt sér stað þegar hún var sautján ára gömul. 9.8.2021 22:34
Fjórtán greinst með Covid-19 þrátt fyrir þriðja skammtinn Fjórtán Ísraelsmenn hafa greinst með Covid-19 þrátt fyrir að hafa fengið þriðja skammtinn af bóluefni, samkvæmt upplýsingum frá ísraelska heilbrigðisráðuneytinu. 9.8.2021 17:07
Fyrrverandi aðstoðarkona Cuomo lýsir meintri kynferðisáreitni Fyrrverandi aðstoðarkona Andrews Cuomo, ríkisstjóra New York, sem hefur kært hann fyrir kynferðislega áreitni hefur stigið fram og lýst ofbeldinu í fyrsta sinn undir nafni. Konan er ein ellefu kvenna sem hafa sakað Cuomo um kynferðislega áreitni á tíma hans í embætti. 9.8.2021 15:55
Brennuvargur grunaður um að hafa myrt prest í Frakklandi Fertugur karlmaður, sem kveikti í dómkirkjunni í Nantes í Frakklandi í fyrra, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa orðið kaþólskum presti að bana í smábænum Saint-Laurent-sur-Sévre. 9.8.2021 15:17
Segir Tímanovskaju hafa flúið vegna erlendra áhrifa Forseti Hvíta-Rússlands heldur því fram að hvítrússneskur spretthlaupari og Ólympíufari hafi flúið til Póllands eftir að hafa orðið fyrir áhrifum erlendra afla. Að hans sögn hefði hann aldrei flúið annars. 9.8.2021 14:41
Hissa á stórfurðulegum leiðbeiningum frá danska Covid-teyminu Ungt íslenskt par, sem er nýflutt til Kaupmannahafnar, vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar starfsmaður danska Covid-teymisins tilkynnti þeim að vegna þess að þau væru bólusett þyrftu þau alls ekki að fara í einangrun. Þau gætu valsað um götur Kaupmannahafnar ef þau pössuðu bara vel að þvo sér um hendur. Fyrir algjöra tilviljun var þetta leiðrétt af öðrum starfsmanni teymisins og þeim sagt að fara í einangrun. 9.8.2021 14:27
Þúsundir flýja heimili sín vegna eldanna og losun koltvísýrings afar mikil Mörg þúsund hafa flúið heimili sín á grísku eyjunni Evia í gær og í dag þar sem ekkert lát er á einhverjum verstu gróðureldum í manna minnum. Eldar loga enn í Síberíu, Tyrklandi og Kaliforníu. Veðurfræðingur segir losun koltvísýrings vegna eldanna afar mikla. 9.8.2021 12:20
Fjöldahandtökur, ofbeldi og landflótti Í dag er liðið ár síðan umdeildar forsetakosningar í Hvíta-Rússlandi fóru fram. Síðan þá hefur mikil stjórnmálaóreiða ríkt í landinu með fjöldahandtökunum, landflótta og hremmingum. 9.8.2021 10:00
Lýsir loftlagsskýrslu sem rauðri viðvörun fyrir mannkynið Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að ný skýrslu loftslagsnefndar þeirra sé „rauð viðvörun“ fyrir mannkynið. Í skýrslunni kemur fram að metnaðarfyllra markmið Parísarsamkomulagsins gæti verið fyrir bí snemma á næsta áratug. 9.8.2021 09:55
Átta ára drengur í lífshættu eftir að hafa verið ákærður fyrir guðlast Átta ára drengur er nú undir öryggiseftirliti lögreglu í Pakistan, eftir að hafa verið handtekinn fyrir að pissa á mottu í íslömskum skóla. Drengurinn, hvers fjölskylda er hindúatrúar, er yngsta manneskjan í sögu landsins til að vera ákærð fyrir guðlast. 9.8.2021 08:51
Meiri vissa um alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytinga en lausnir mögulegar Framfarir í vísindum undanfarin ár hafa skotið enn fastari stoðum undir spár um hnattræna hlýnun og afleiðingar hennar. Meiri vissa er nú fyrir því en áður að aftakaatburðir verði tíðari og afdrifaríkari samkvæmt nýrri tímamótaskýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna. 9.8.2021 08:01
Bein útsending: Ný skýrsla Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna kynnt Ný skýrsla Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, sem sögð er fela í sér alvarlega aðvörun til stjórnvalda í ríkjum heims um að draga stórlega úr losun gróðurhúsalofttegunda, verður kynnt á blaðamannafundi sem hefst núna klukkan átta. 9.8.2021 07:43
Borgarstjóri Nagasaki biðlar til stórveldanna um afvopnun Borgarstjórinn í Nagasaki í Japan skoraði í morgun á stjórnvöld landsins, Bandaríkjamenn og Rússa að gera meira til að eyða kjarnorkuvopnum heimsins. 9.8.2021 07:36
Aðstoðarmaður Cuomo segir af sér Melissa DeRosa, aðstoðarmaður Andrew Cuomo, ríkisstjóra New York, hefur sagt upp störfum. Nafn DeRosa kemur fram 187 sinnum í skýrslu saksóknara um kynferðislega áreitni Cuomo í garð kvenna, þar sem hún er meðal annars sökuð um að hafa hylmt yfir með yfirmanni sínum og hótað að minnsta kosti einum þolanda. 9.8.2021 06:49
Skýrslu um loftslagsvána beðið með eftirvæntingu Eftir um klukkustund, klukkan átta, verður ítarlegasta skýrsla Sameinuðu þjóðanna til þessa um loftlagsbreytingar kynnt á fréttamannafundi. Skýrslan er sögð fela í sér alvarlega aðvörun til stjórnvalda ríkja heims um að draga stórlega úr losun gróðurhúsalofttegunda. 9.8.2021 06:41
Fylgjast grannt með nýjum afbrigðum Vísindamenn víða um heim vakta nú og fylgjast grannt með upplýsingum um ný afbrigði kórónuveirunnar. Reuters greinir frá. 8.8.2021 23:30
„Þetta er eins og í hryllingsmynd“ Ólétt kona sem flutt var á brott af eyjunni Evia í Grikklandi vegna mikilla gróðurelda sem þar geisa segir aðstæður á eyjunni líkjast hryllingsmynd. 8.8.2021 22:30
Suicide Squad-stjarna fær nálgunarbann gegn fyrirsætu sem sakar hann um nauðgun Sænski leikarinn Joel Kinnaman hefur fengið tímabundið nálgunarbann gegn sænsku fyrirsætunni Bella Davis, sem sakað hefur hann um að hafa nauðgað sér. Kinnamann sakar hana á móti um að hafa ætlað að kúga sig. 8.8.2021 21:51
„Það var nú líklega það versta að fá reykinn yfir borgina“ Íslendingur í Grikklandi segir þungt hljóð í heimamönnum vegna gróðureldanna sem hafa geisað í landinu að undanförnu. Þúsundir hafa flúið heimili sín vegna eldanna, sem stafa af mestu hitabylgju sem gengið hefur yfir landið í þrjátíu ár. 8.8.2021 18:50
Evrópusambandið er komið fram úr Bandaríkjunum í bólusetningarkapphlaupinu Þrátt fyrir að hafa byrjað töluvert hægar er Evrópusambandið nú búið að bólusetja stærri hluta íbúa en Bandaríkin. Sextíu prósent íbúa ESB hafa nú fengið einn skammt bóluefnis hið minnsta en einungis 58 prósent Bandaríkjamanna. 8.8.2021 16:33
Stærsti eldurinn í sögu Kaliforníu Dixie-eldurinn svokallaði, sem valdið hefur gífurlegu tjóni í Kaliforníu er orðinn stærsti staki gróðureldur í skráðri sögu ríkisins. Gróðureldurinn hefur logað í 23 daga en köld nótt virðist hafa hægt á útbreiðslu hans. 8.8.2021 14:22
Tveir handteknir fyrir að kveikja vísvitandi elda á Grikklandi Sumrinu á Grikklandi hefur verið líkt og martröð af forsætisráðherra landsins. Gróðureldar hafa leikið landið grátt í einhverri verstu hitabylgju sem gengið hefur yfir Grikkland á síðustu áratugum. 8.8.2021 12:45
Mánuði eftir morðið ræður óvissan ríkjum Mánuði eftir að Jovenel Moise, forseti Haítí, var myrtur á heimili sínu hefur enginn af þeim sem handteknir hafa verið vegna árásarinnar verið færður fyrir dómara. Dómarar og aðrir sem komið hafa að rannsókninni segjast hafa orðið fyrir þrýstingi um að breyta skýrslum og eru í felum vegna morðhótana. 8.8.2021 10:14
Fimm unglingspiltar létust í bílslysi Fimm piltar á aldrinum fimmtán til sextán ára létust í bílslysi í bænum Washdyke á Nýja-Sjálandi í nótt. Slysið er það versta í landinu í tvö ár. 8.8.2021 10:04
Talibanar taka tvær borgir til viðbótar Vígamenn Talibana segjast hafa náð tökum á borginni Kunduz, höfuðborg Kunduz-héraðs. Það er eftir harða bardaga í borginni en fregnir hafa einnig borist af falli borgarinnar Sar-e-Pul, sem er einnig höfuðborg héraðs með sama nafn. 8.8.2021 08:09
Ólympíukúlan virðist hafa haldið Svo virðist sem að sóttvarnarkúlan sem sett var upp í kringum ólympíuleikana í Tókýó í Japan hafi haldið. Fyrir leikana voru uppi miklar áhyggjur um Covid-19 myndi leika ólympíuleikana grátt. 7.8.2021 23:08
„Hvert eigum við að fara?“ Þúsundum íbúa og ferðamanna í grennd við Aþenu, höfuðborg Grikklands, hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín og dvalarstaði vegna mikilla gróðureldra sem þar geisa. 7.8.2021 20:27
Talibanar ná annarri höfuðborg Vígamenn Talibana hafa náð tökum á annarri héraðshöfuðborg í Afganistan. Borgin Sheberghan, höfuðborg Jawzjan-héraðs, er önnur höfuðborgin sem fellur í skaut Talibana á tveimur dögum. 7.8.2021 12:44