Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bandaríkin eiga hátt í fjögur þúsund kjarnavopn Hátt í fjögur þúsund kjarnavopn eru í vopnabúri Bandaríkjanna. Þeim hefur fækkað lítillega síðustu ár en þetta er í fyrsta skipti sem Bandaríkjastjórn hefur birt opinberar tölur um fjöldann frá því árið 2018. 5.10.2021 23:24
FBI-fulltrúar sem aðhöfðust ekkert vegna Nassar gætu verið ákærðir Bandaríska dómsmálaráðuneytið fer nú yfir ákvörðun sína um að ákæra ekki fulltrúa alríkislögreglunnar FBI sem létu hjá liggja að rannsaka ásakanir á hendur Larry Nassar, lækni bandaríska fimleikalandsliðsins. FBI hefur sætt harðri gagnrýni fyrir meðferð sína á málinu. 5.10.2021 22:45
Sonur fyrrverandi einræðisherrans býður sig fram til forseta Ferdinand Marcos yngri, sonur fyrrverandi einræðisherra Filippseyja, tilkynnti í dag að hann ætli sér að bjóða sig fram í forsetakosningunum í landinu á næsta ári. Marcos yngri hefur verið bandamaður Rodrigos Duterte, fráfarandi forseta. 5.10.2021 21:10
Facebook-uppljóstrarinn: „Mark verður að axla sína ábyrgð“ Stjórnendur samfélagsmiðlarisans Facebook virtu að vettugi ábendingar um að forritin þeirra væru skaðleg börnum og ælu á samfélagslegri sundrung. Þetta kom fram í vitnisburði Frances Haugen, fyrrverandi starfsmanns fyrirtækisins frammi fyrir nefnd bandarísku öldungadeildarinnar um neytendamál í dag. 5.10.2021 19:39
Fundu 2.700 ára gamalt klósett í Jerúsalem Ísraelskir fornleifafræðingar fundu nýverið rúmlega 2.700 ára gamalt einkaklósett í Jerúsalem. Slíkt var mjög sjaldgæft á þessum tíma og aðeins hinir ríkustu gátu verið með klósett heima hjá sér. 5.10.2021 16:34
Lögregluþjónn lýsti kerfisbundnum pyntingum og ofbeldi í Xinjiang Fyrrverandi lögregluþjónn sem flúði frá Kína segir úígúra hafa verið beitta kerfisbundnum pyntingum og ofsóknum í Xinjiang-héraði í Kína. Úígúrar og aðrir múslimar hafi verið teknir af heimilum sínum og færði í fangageymslur þar sem þau voru þvinguð með ofbeldi til að játa á sig glæp. 5.10.2021 15:51
Ríkisstjórn Rúmeníu fallin Meirihluti á rúmenska þinginu samþykkti í morgun tillögu um vantraust á hendur Florin Citu forsætisráðherra og minnihlutastjórn hans. 5.10.2021 14:24
Fleiri líkamshlutar finnast á Grænlandi Lögreglan á Grænlandi fann á laugardaginn líkamshluta við brennslustöð í bænum Ilulissat. Síðan þá hafa fleiri líkamshlutar fundist þar. 5.10.2021 13:48
Réðst á fyrrverandi eiginkonu sína með öxi og var skotinn John Wes Townley, fyrrverandi ökumaður í NASCAR, var skotinn til bana í Georgíu í Bandaríkjunum um helgina. Hann var skotinn eftir að hann réðst á fyrrverandi eiginkonu sína og annan mann með öxi. 5.10.2021 13:11
Tískuhúsið Givenchy gagnrýnt fyrir snöruhálsskraut Franska tískuhúsið Givenchy hefur sætt mikilli gagnrýni eftir að þrjár fyrirsætur birtust á sýningarpöllum á tískuvikunni í París með hálsmen sem litu út eins og snörur. Aðeins tvö ár eru síðan forsvarsmenn Burberry báðust afsökunar á áþekkum mistökum. 5.10.2021 12:22
Neitaði að stöðva aftöku manns með miklar heilaskemmdir Mike Parson, ríkisstjóri Missouri í Bandaríkjunum, neitaði í gær að fella niður dauðadóm fangans Ernest Johnson. Þúsundir höfðu skrifað undir áskorun um að dauðadómurinn yrði felldur niður, auk þess sem tveir þingmenn hefðu kallað eftir því og einnig páfinn. 5.10.2021 10:54
Á þriðja hundrað þúsund börn misnotuð af kaþólskum prestum Um það bil 216 þúsund börn hafa verið misnotuð af kaþólskum prestum í Frakklandi frá árinu 1950. Óttast er að fjöldi barna gæti náð 330 þúsund þegar misnotkun af hálfu annarra meðlima kirkjunnar er tekin inn í myndina. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknarskýrslu sem birt var í dag. 5.10.2021 10:16
Fá Nóbelinn í eðlisfræði fyrir loftslagsrannsóknir Bandaríkjamaðurinn Syukuro Manabe, Þjóðverjinn Klaus Hasselmann og Ítalinn Giorgio Parisi hafa fengið Nóbelsverðlaun í eðlisfræði í ár fyrir smíði líkana og loftslagsrannsóknir sínar. 5.10.2021 09:58
Leikkona og leikstjóri á leið til geimstöðvarinnar Rússneskri leikkonu, leikstjóra og geimfara var skotið af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar í morgun. Geimskotið heppnaðist vel og eru geimfararnir þrír á leið til geimstöðvarinnar þar sem þau Yulia Peresild og Klim Shipenko munu taka upp fyrstu kvikmyndina í geimnum. 5.10.2021 09:33
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár. 5.10.2021 09:16
Vann 699 milljónir dala í Powerball-lottóinu Stóri potturinn í bandaríska Powerball-lottóinu gekk loksins út í nótt. Þetta var í fyrsta sinn síðan 5. júní síðastliðinn þar sem potturinn gekk út og var hann kominn upp í heilar 699,8 milljónir dala, um 90 milljarða króna. 5.10.2021 08:24
Erfitt að opna íþróttirnar fyrir öllum og tryggja sanngirni á sama tíma Regnhlífasamtök íþróttahreyfinga á Bretlandseyjum hafa komist að þeirri niðurstöðu að líklega verða þau sem fara með boðvaldið yfir einstaka íþróttagreinum að ákveða hverju þau ætla að forgangsraða; sanngirni og öryggi eða að gera öllum kleift að taka þátt. 5.10.2021 07:35
Auðjöfrar festa kaup á dýrum fasteignum í gegnum aflandsfélög Pandóraskjölin halda áfram að leiða ýmislegt í ljós sem ekki lá fyrir áður, en um er að ræða milljónir skjala frá aflandseyjum víðsvegar um heiminn. 5.10.2021 07:26
Facebook komið aftur í loftið eftir verstu truflun í þrettán ár Þjónusta fimm miðla samfélagsmiðlarisans Facebook komst aftur í gang eftir um sex klukkustunda truflanir skömmu fyrir klukkan 22:00 i kvöld. Truflunin á þjónustunni var sú mesta á Facebook frá árinu 2008. 4.10.2021 21:08
Biden segir repúblikana í „rússneskri rúllettu“ með hagkerfið Repúblikanar á Bandaríkjaþingi bera ábyrgðina á því ef ríkissjóður Bandaríkjanna getur ekki staðið við skuldbindingar sínar síðar í þessum mánuði, að sögn Joes Biden Bandaríkjaforseta. Flokkarnir tveir deila enn hart um svonefnt skuldaþak sem verður að hækka ef Bandaríkin ætla ekki að lenda í sögulegum vanskilum. 4.10.2021 20:20
Kafteinn Kirk á leiðinni út í geim Leikarinn William Shatner verður meðal farþega í næstu geimferð Blue Origin en hann er á leiðinni út í geim þann 12. október næstkomandi. Shatner staðfesti fréttirnar sjálfur á Twitter í dag. 4.10.2021 16:53
Fólk með bælt ónæmiskerfi fái þriðja skammtinn fyrr Lyfjastofnun Evrópu, EMA, hefur nú hefur nú gefið það út að einstaklingar 18 ára og eldri geti fengið örvunarskammt af bóluefni Pfizer/BioNTech gegn Covid-19. Það er þó í höndum heilbrigðisyfirvalda í hverju landi fyrir sig að ákveða hverjir fá þriðja skammtinn. 4.10.2021 16:07
Boða rannsóknir vegna Pandóruskjalanna Yfirvöld í að minnsta kosti átta löndum víða um heim hafa tilkynnt að þau muni koma til með hefja rannsókn vegna upplýsinga í Pandóruskjölunum svokölluðu sem birt voru í gær. 4.10.2021 14:57
Mikill olíuleki veldur fiskidauða og umhverfisspjöllum í Kaliforníu Mikill olíuleiki hefur valdið fiskidauða og miklum umhverfisspjöllum í suðurhluta Kaliforníu. Bandarískir fjölmiðlar hafa sýnt myndir af fuglum sem þaktir eru í olíu og þá eru stór mýrasvæði nú sögð menguð. 4.10.2021 14:31
Siggi nýnasisti látinn Greint er frá andláti þýsks nýnasista í þýskum miðlum í dag, að nafni Siegfried Borchardt. Hann var landsþekktur sem „SS-Siggi“ og hefur löngum verið eitt helsta andlit þýskra nýnasista. 4.10.2021 13:01
Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvanir sínar um jónarásir Bandarísku vísindamennirnir David Julius og Ardem Patapoutian hafa hlotið Nóbelsverðlaun í lífefnafræði og læknisfræði fyrir uppgötvanir sínar þegar kemur jónarásum sem opnast eða lokast við hita eða þenslu. 4.10.2021 10:04
Allt bendir til að um slys hafi verið að ræða en ætla að leita af sér allan grun Lögregla í Svíþjóð segir allt benda til að um slys hafi verið að ræða þegar bíll með listamanninn Lars Vilks og tvo lögreglumenn um borð, rakst á vörubíl á hraðbraut í sænsku Smálöndunum í gær. Vilks og lögreglumennirnir sem gættu hans, létust í árekstrinum, en ökumaður vörubílsins var fluttur á sjúkrahús. 4.10.2021 09:42
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Nóbelsnefnd Karólínsku stofnunarinnar í Svíþjóð mun tilkynna innan skamms hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í lífeðlis- og læknisfræði. 4.10.2021 09:01
Kishida staðfestur í embætti forsætisráðherra Fumio Kishida hefur tekið við sem nýr forsætisráðherra Japans. Kishida var kjörinn formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins í síðustu viku og samþykkti meirihluti japanska þingsins Kishida svo sem forsætisráðherra í morgun. 4.10.2021 07:11
Minnst fimm eru látin: Mannskæðasta árásin í Kabúl frá brottför Bandaríkjahers Minnst fimm almennir borgarar létu lífið í sprengjuárás við mosku í Kabúl í dag. Um er að ræða mannskæðustu árásina í höfuðborg Afganistan síðan Bandaríkjaher yfirgaf landið í lok ágúst síðastliðins. 3.10.2021 23:52
Umdeildi listamaðurinn Lars Vilks lést í bílslysi Sænski listamaðurinn Lars Vilks lést í bílslysi í dag ásamt tveimur lögregluþjónum. Vilks hafði undanfarin ár notið verndar lögreglu vegna fjölda líflátshótana sem honum höfðu borist vegna teikninga hans af Múhameð spámanni. 3.10.2021 22:55
Átta létust þegar einkaþota brotlenti í Mílanó Einkaþota brotlenti á skrifstofubyggingu í Mílanó á Ítalíu í dag með þeim afleiðingum að allir átta um borð létust. Byggingin var mannlaus þegar flugslysið varð og engan sakaði á jörðu niðri. 3.10.2021 20:58
Kóreumenn hóta öryggisráðinu Ráðamenn í Norður-Kóreu hafa brugðist reiði við ályktunartillögu Frakka til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og hótuðu ráðinu í dag fyrir að gagnrýna eldflaugavopnaáætlun ríkisins. 3.10.2021 20:00
Pandóruskjölin afhjúpa auðæfi þjóðarleiðtoga Stærsti fjármálagagnaleki allra tíma afhjúpar leynileg auðæfi og fjármálagerninga margs valdamesta fólks heimsins. Þar á meðal Tonys Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, og konungs Jórdaníu. 3.10.2021 19:33
Einn þekktasti auðjöfur Frakklands er dáinn Bernard Tapie, einn af þekktustu auðjöfrum Frakklands og fyrrverandi ráðherra, er dáinn. Hann var 78 ára gamall og hafði barist við krabbamein undanfarin ár. 3.10.2021 17:05
Aukinn kraftur í eldgosinu á La Palma Tvær vikur eru frá því eldgosið hófst á La Palma á Kanaríeyjum en aukinn kraftur er í eldgosinu og er útlit fyrir að tvo ný gosop hafi opnast. Þá hefur jarðskjálftum einnig fjölgað. 3.10.2021 16:12
Segir Thicke hafa káfað á sér við tökur myndbands Blurred Lines Fyrirsætan Emily Ratajkowski segir tónlistarmanninn Robin Thicke hafa káfað á sér við tökur á frægu myndbandi lagsins Blurred Lines frá 2013. Í nýrri bók segir hún Thicke hafa gripið um ber brjóst hennar. 3.10.2021 11:50
Vill koma fleiri nauðgurum bakvið lás og slá Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sagði í dag að dómskerfi landsins hefði ekki reynst fórnarlömbum nauðgana vel. Johnson hét því að gera endurbætur svo fleiri nauðgarar enduðu bakvið lás og slá. 3.10.2021 11:07
Umfangsmikil mótmæli gegn Bolsonaro í Brasilíu Tugir þúsunda komu saman í stærstu borgum Brasilíu í gær til að mótmæla yfirvöldum landsins og kalla eftir því að Jair Bolsonaro, forseti landsins, verði vikið úr embætti. 3.10.2021 10:30
Kanadískur ISIS-liði fer fyrir dóm í Bandaríkjunum Kanadamaðurinn Mohammed Khalifa var nýlega fluttur frá Sýrlandi til Bandaríkjanna þar sem hann verður látinn svara til sakar fyrir þáttöku sína í voðaverkum Íslamska ríkisins. 2.10.2021 22:24
Duterte segist aftur ætla að setjast í helgan stein Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, tilkynnti í dag að myndi hætta afskiptum sínum af stjórnmálum þegar núverandi kjörtímabili hans lýkur. Hann hafði áður þegið tilnefningu um að vera varaforsetaefni flokks síns í forsetakosningum í maí næstkomandi. 2.10.2021 21:15
Hermenn fengnir til að flytja eldsneyti Ríkisstjórn Bretlands kallaði í dag út herlið til að tryggja dreifingu eldsneytis um landið. Bensíndælur víðsvegar um Bretland hafa verið tómar síðustu daga og langar raðir hafa myndast við dælurnar. 2.10.2021 19:20
Trump krefst þess að komast aftur á Twitter Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur höfðað mál gegn Twitter í Texas. Hann krefst þess að verða hleypt aftur inn á samfélagsmiðilinn eftir að hafa verið bannaður þar í kjölfar árásarinnar á þinghúsið í Bandaríkjunum þann 6. janúar. 2.10.2021 16:30
Taívan sakar Kína um yfirgang eftir að metfjölda flugvéla var flogið inn á loftvarnasvæði ríkisins Kínverjar flugu fjölda orrustuþota og sprengjuflugvéla inn í loftvarnasvæði Taívans í morgun. Fleiri flugvélum hefur aldrei verið flogið inn í loftvarnasvæðið en spennan milli Kína og Taívans hefur aukist til muna á undanförnum árum. 2.10.2021 10:07
„Undraverð“ uppgötvun rits ítalsks munks þar sem skrifað er um Norður-Ameríku 150 árum fyrir ferð Kólumbusar Þó víkingar hafi fundið Norður-Ameríku löngu áður en Kristófer Kólumbus fór vestur um höf ásamt föruneyti sínu, hafa flestir talið að fáir Evrópubúar hafi vitað af því. Nú hefur því hinsvegar verið haldið fram að ítalskur munkur hafi skrifað um tilvist heimsálfunnar hinu megin við Atlantshafið, um 150 árum fyrir ferð Kólumbusar. 2.10.2021 08:01