Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dæmdur morðingi Meredith Kercher laus allra mála Karlmaður sem var dæmdur fyrir morðið á Meredith Kercher, 21 árs gömlum breskum skiptinema, er nú laus allra mála eftir að hafa afplánað þrettán ár af sextán ára fangelsisdómi. Morðið vakti heimsathygli en Amanda Knox, sambýliskona Kercher, og kærasti hennar sátu í fangelsi í fjögur ár áður en þau voru sýknuð. 23.11.2021 15:03
Lýðræði talið fara hnignandi í Bandaríkjunum í fyrsta sinn Bandaríkin eru í fyrsta skiptin talin á meðal ríkja þar sem lýðræði fer hnignandi í skýrslu norrænnar hugveitu um stöðu lýðræðis í heiminum. Meiri en helmingur ríkja heims er talinn í sömu sporum og Bandaríkin. 23.11.2021 13:13
Hefja árslangt ferðalag sem endar á brotlendingu Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið skjóta DART-geimfarinu á loft á fimmtudagsmorgun (24. nóv). Geimfarið á að brotlenda á smástirni í um ellefu milljóna kílómetra fjarlægð eftir tæpt ár. Markmiðið er að kanna getu jarðarbúa til að breyta stefnu smástirnis ef ske skyldi að slíkt stefndi að jörðinni. 23.11.2021 12:05
Þrír taldir af eftir flugslys í Noregi Þrír eru taldir hafa látið lífið þegar lítil flugvél hrapaði til jarðar fyrir utan bæinn Larvik í Noregi í morgun. 23.11.2021 11:50
Höfðar mál eftir að hafa verið ranglega vistaður á geðdeild í tæp þrjú ár Joshua Spriestersbach, var handtekinn fyrir mistök á Honolúlú árið 2017 og vistaður á geðdeild í nærri því þrjú ár, því lögreglan fór mannavillt. Hann hefur nú höfðað mál gegn yfirvöldum á Havaí-eyjum, lögregluþjónum, lögmönnum og læknum sem að máli hans komu. 23.11.2021 10:42
Katarar létu njósna um forystumenn FIFA Bandarískur fyrrverandi leyniþjónustumaður njósnaði um forystumenn Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA) fyrir Katar þegar smáríkið sóttist eftir að halda heimsmeistaramótið sem fer fram á næsta ári. Njósnarinn var einnig látinn fylgjast með gagnrýnendum Katar. 23.11.2021 10:18
Seinka skoti stærsta geimsjónauka heims Ákveðið hefur verið að seinka geimskoti James Webb-geimsjónaukans, þess stærsta í sögunni, um nokkra daga eftir uppákomu við undirbúning þess. Honum verður nú skotið á loft í fyrsta lagi tveimur dögum fyrir jól. 23.11.2021 08:45
Ein ötulasta baráttukona fyrir réttindum hinsegin fólks á Norðurlöndum látin Hin norska Kim Friele, ein ötulasta baráttukonan fyrir réttindum hinsegin fólks á Norðurlöndum, er látin, 86 ára að aldri. 23.11.2021 08:37
Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu er látinn Chun Doo-hwan, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, lést í morgun, níutíu ára að aldri. 23.11.2021 07:33
Spacey dæmdur til að greiða framleiðendum House of Cards fjóra milljarða Gerðardómur hefur ákveðið að leikarinn Kevin Spacey eigi að greiða MRC kvikmyndaverinu 31 milljón dala í skaðabætur fyrir að hafa brotið gegn ákvæðum samnings síns við framleiðslu á þáttunum House of Cards, sem sýndir voru á Netflix. 23.11.2021 07:31
Að minnsta kosti 45 látnir eftir rútubruna í Búlgaríu Að minnsta kosti 45 létu lífið í rútuslysi í Búlgaríu í nótt. Slysið varð á hraðbraut í vesturhluta landsins en rútan er sögð hafa ekið á vegrið með þeim afleiðingum að mikill eldur kom upp í henni. 23.11.2021 06:51
Átti í heimiliserjum rétt áður en hann varð fimm að bana Ökumaður sem varð fimm að bana þegar hann ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum í gær hafði nýlega átt í heimiliserjum þegar atvikið átti sér stað. 22.11.2021 23:46
Í lok vetrar verði Þjóðverjar „bólusettir, búnir að ná sér af Covid eða látnir“ Heilbrigðisráðherra Þýskalands, Jens Spahn, undirstrikaði í dag mikilvægi þess að landar hans létu bólusetja sig. Það gerði hann á afar beinskeyttan hátt, þegar hann ræddi við fréttamenn á fundi í Berlín í dag. 22.11.2021 22:37
„Dömur og herrar, notið almenna skynsemi“ Enginn af þremenningunum sem eltu og sátu fyrir Ahmaud Arbery höfðu tilefni til að framkvæma borgaralega handtöku eftir að þeir sáu blökkumanninn í hverfi þeirra í Brunswick í Georgíu í fyrra. Þeir ákváðu að elta hann „vegna þess að hann var blökkumaður á hlaupum eftir götum þeirra“. 22.11.2021 15:53
Rússneskur aðmíráll segir kafbát NATO hafa verið siglt á Kursk Vyachselav Popov, fyrrverandi aðmíráll í Rússlandi, heldur því fram að kafbátur frá ríki í Atlantshafsbandalaginu hafi valdið því að rússneski kafbáturinn Kursk hafi sokkið árið 2000. Eigin rannsókn Rússa leiddi í ljós að kafbáturinn sökk eftir sprengingu vegna gallaðs tundurskeytis. 22.11.2021 15:19
Biden vill Powell áfram sem seðlabankastjóra Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Jerome Powell seðlabankastjóra Bandaríkjanna til að gegna embættinu annað skipunartímabil. 22.11.2021 14:59
Kanna hvort ökumaðurinn hafi verið á flótta eftir glæp Lögregluþjónar í Waukesha í Wisconsin í Bandaríkjunum rannsaka hvort maðurinn sem ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í gær hafi verið að flýja vettvang glæps. Minnst fimm dóu og rúmlega fjörutíu er slasaðir eftir að maðurinn ók inn í þvögu fólks. 22.11.2021 14:05
Tilnefnir Andersson sem næsta forsætisráðherra Forseti sænska þingsins hefur tilnefnt Magdalenu Andersson, fjármálaráðherra og nýkjörinn formann sænska Jafnaðarmannaflokksins, sem næsta forsætisráðherra landsins. 22.11.2021 13:05
Segir ofbeldishneigða fávita nýta sér mótmæli Mark Rutte, fráfarandi forsætisráðherra Hollands, segir ofbeldishneigða fávita hafa valdið ofbeldi á óeirðum í landinu um helgina. Ofbeldisfull mótmæli gegn neyðaraðgerðum vegna Covid-19 voru haldin i Hollandi um helgina og kom til ofbeldis milli mótmælenda og lögreglu. 22.11.2021 12:03
Grænlensku „tilraunabörnin“ krefjast bóta frá danska ríkinu Hópur Grænlendinga hefur krafið danska ríkið um skaðabætur vegna félagslegrar tilraunar sem þau voru hluti af sem börn árið 1951. 22.11.2021 11:50
SÞ ítrekað hundsað beiðnir um afhendingu gagna vegna sprengingarinnar í Beirút Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað hundsað beiðnir fjölskyldna þeirra, sem fórust í sprengingunni í Beirút í fyrra, um afhendingu upplýsinga sem myndu hjálpa til við rannsókn málsins. 219 fórust í sprengingunni í ágúst í fyrra og hundruð til viðbótar slösuðust. 22.11.2021 11:50
Unnusta Khashoggi biður Bieber að hætta við tónleika í Sádi-Arabíu Hatice Cengiz, unnusta Jamals Khashoggi sem var myrtur hrottalega af útsendurum krónprins Sádi-Arabíu, hefur biðlað til tónlistarmannsins Justins Bieber að hann blási af tónleika sína í Sádi-Arabíu í næsta mánuði. 22.11.2021 10:28
Þörf á annarri umferð í forsetakosningunum í Chile Enginn hlaut hreinan meirihluta í fyrri umferð forsetakosninganna sem fram fór í Chile í gær og mun því önnur umferð fara fram í næsta mánuði. 22.11.2021 07:40
Fjöldi mótmælir nýjum og ströngum sóttvarnaaðgerðum Nýjar samkomutakmarkanir tóku gildi í Austurríki á miðnætti vegna kórónuveirufaraldursins og er öllum landsmönnum gert að halda sig heima næstu tíu dagana hið minnsta. 22.11.2021 07:00
Fimm látnir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu Fimm eru látnir og rúmlega fjörutíu slasaðir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum. Atburðurinn átti sér stað í borginni Waukesha sem er í grennd við Milwaukee. 22.11.2021 06:40
Einn handtekinn grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng Maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, í dag. Hann er grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng í gær. 21.11.2021 23:31
Áttu hálftíma langt símtal við Peng Shuai Forsvarsmenn Alþjóðaólympíunefndarinnar ræddu við kínversku tenniskonuna Peng Shuai í gegn um myndbandssímtal í hálftíma í dag. Ekkert hafði spurst til hennar í þrjár vikur frá því að hún birti færslu á kínverska samfélagsmiðlinum Weibo þar sem hún sakaði Zhang Gaoli, fyrrverandi varaforseta Kína, um að hafa nauðgað sér. 21.11.2021 22:54
Eiginmaður myrti konu sína með kóbraslöngu Móðir hinnar indversku Uthra fann hana hreyfingarlausa í rúmi sínu. Á vinstri handlegg hennar var blóð og krufning leiddi í ljós að dánarorsök hafi verið snákabit. 21.11.2021 16:51
„Auðvitað er þetta svikamylla“ Sérfræðingur í málefnum Austur-Evrópu segir Hvít-Rússa beita „nýju vopni“ í átökum á landamærunum. Dr. Hilmar Þór Hilmarsson var í viðtali á Sprengisandi í morgun og segir ástandið slæmt. Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, hefur verið sakaður um að nota flótta- og farandfólk sem „peð“ í deilum við Evrópusambandið. 21.11.2021 15:00
Meina ferðamönnum aðgang að eyju á Ítalíu vegna gosóróa Bæjarstjóri eyjarinnar Vulcano, sem er í eyjaklasa í námunda við Sikiley á Ítalíu, hefur beðið fólk að yfirgefa ákveðið svæði á eyjunni vegna gosoróa. Um hundrað og fimmtíu manns búa á svæðinu og ferðamönnum hefur verið meinaður aðgangur að eyjunni allri. 21.11.2021 14:49
Óðagot þegar peningum rigndi yfir hraðbrautina Seðlum hreinlega rigndi á hraðbraut í Kaliforníu í Bandaríkjunum í gær, sem olli því að hraðbrautin lokaðist þegar ökumenn námu staðar og freistuðu þess að ná sér í skjótfenginn gróða. Peningarnir komu úr sendiferðabíl sem virðist ekki hafa verið nægilega vel lokaður. 21.11.2021 14:17
Ekkert lát á Covid-mótmælum í Evrópu Víða hefur verið mótmælt í Evrópu vegna samkomutakmarkana. Þúsundir hafa streymt út á götur í Austurríki, Króatíu og á Ítalíu og mótmælt aðgerðum vegna faraldursins. Í Hollandi var mótmælt bæði á föstudag- og laugardagskvöld. 21.11.2021 11:34
Sýknu í máli Rittenhouse mótmælt víða um Bandaríkin Lögreglan í borginni Portland í Oregon í Bandaríkjunum lýsti því yfir í gærkvöldi að mótmæli í borginni, sem voru til komin vegna sýknu Kyle Rittenhouse, væru orðin að óeirðum. 21.11.2021 08:58
Segja Peng Shuai hafa verið á tennismóti tæpum þremur vikum eftir hvarf hennar Kínverska tenniskonan Peng Shuai, sem ekkert hafði spurst til eftir að hún sakaði fyrrverandi varaforseta Kína um nauðgun fyrr í þessum mánuði, er sögð hafa verið viðstödd tennismót í Kína í dag. Alþjóðlega tennissamfélagið hafði kallað eftir því að kínversk stjórnvöld sýndu fram á að hún væri örugg og á lífi eftir að hún setti ásakanirnar fram á samfélagsmiðlum. 21.11.2021 08:03
Fyrsta andlát af völdum Covid í Grænlandi Eldri maður lést af völdum Covid-19 á Grænlandi í vikunni en hann er sá fyrsti sem deyr vegna veirunnar í landinu. 20.11.2021 23:07
Kominn tími til að ræða skyldubólusetningar af alvöru Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gríðarlegar áhyggjur af mikilli uppsveiflu faraldursins í Evrópu síðustu vikurnar. Svæðisstjóri stofnunarinnar varar við því að 500 þúsund manns geti látist vegna veirunnar í Evrópu fyrir fyrsta ársfjórðung næsta árs og segir tíma til kominn að taka umræðuna um skyldubólusetningar út frá lagalegu og samfélagslegu samhengi. 20.11.2021 22:20
Hundruð Teslu-eigenda sátu fastir vegna bilunar í smáforriti Bilun í smáforriti rafbílaframleiðandans Teslu varð til þess að hundruð Teslu-eigenda gátu ekki startað bílum sínum í gær. 20.11.2021 18:45
Fjórtán ára drengur skotinn í Eskilstuna 14 ára drengur var skotinn í í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af Stokkhólmi, í dag. 20.11.2021 18:07
Sautján látnir og fleiri slasaðir eftir úrhelli á Indlandi Að minnsta kosti sautján eru látnir og fleiri slasaðir eftir gífurlega rigningu í ríkinu Andhra Pradesh á Suður-Indlandi. Úrhelli hefur verið í ríkinu síðan á fimmtudaginn, sem valdið hefur flóðum og hrint af stað aurskriðum. 20.11.2021 11:25
Börn bjartsýnni á betri heim en fullorðnir Niðurstöður nýrrar könnunar UNICEF og Gallup sýna að börn séu bjartsýnni á betri heim en fullorðnir. 21.000 manns, börn og fullorðnir, tóku þátt í könnuninni en hún var framkvæmd í tuttugu og einu landi. 20.11.2021 09:30
Lögregla skaut á Covid-mótmælendur Mótmælendur í hollensku borginni Rotterdam særðust þegar lögregla skaut á þá. Mótmælin í borginni, sem voru til komin vegna fyrirætlana stjórnvalda um að gera atvinnurekendum kleift að meina óbólusettum aðgang að ákveðnum svæðum, breyttust í óeirðir. 20.11.2021 08:42
Biden segist reiður yfir sýknu Rittenhouse Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst reiður yfir því að táningurinn Kyle Rittenhouse hafi verið sýknaður af öllum ákæruliðum á hendur sér í gær. Rittenhouse varð tveimur að bana og særði þann þriðja í óeirðum í borginni Kenosha á síðasta ári, og hafði verið ákærður fyrir morð. 20.11.2021 07:58
Líkti samstöðufundi við aftöku án dóms og laga Kevin Gough, verjandi eins mannanna sem sakaðir eru um að myrða Ahmaud Arbery, sagði samstöðufund sem haldin var fyrir utan dómshúsið í Brunswick í Georgíu vera álíka aftöku mannanna þriggja. 19.11.2021 23:00
Krefjast svara um Peng Shuai Alþjóðatennissamband kvenna krefst þess að kínversk stjórnvöld bregðist við ásökunum tenniskonunnar Peng Shuai og að þau leggi fram sannanir um að hún sé örugg og á lífi. Að öðrum kosti muni sambandið ekki mæta til leiks á kínverskri grundu. 19.11.2021 19:21
Rittenhouse sýknaður af öllum ákærum Kyle Rittenhouse hefur verið sýknaður af því að skjóta tvo menn til bana og særa þann þriðja. Kviðdómur í Kenosha í Bandaríkjunum lýsti þessu yfir nú fyrir skömmu. 19.11.2021 18:18
Spenna í Kraganum: Þórdís leggur framtíðina að veði og brotthvarf Guðmundar Árna vekur upp spurningar Innlent