Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir Maxwell hafa tekið þátt í kynferðislegum athöfnum Kona sem sakar Jeffrey Epstein um að misnotað sig kynferðislega þegar hún var unglingur bar vitni um að Ghislaine Maxwell hefði tekið þátt í sumum kynferðislegum athöfnum þeirra fyrir dómi í New York í dag. 30.11.2021 23:55
Skaut þrjá samnemendur sína til bana og særði átta Fimmtán ára nemandi í framhaldsskóla í úthverfi Detroit í Bandaríkjunum skaut þrjá til bana og særði átta í skólanum í dag. Drengurinn var handtekinn af lögreglu og var hald lagt á hálfsjálfvirka skammbyssu sem hann notaði við árásina. 30.11.2021 23:43
Reikna með óvenjuhlýjum vetri á norðurskautinu vegna áhrifa La niña Reiknilíkön benda til þess að óvenjuhlýr vetur verði nyrst og norðaustast á norðurskautinu og í Asíu vegna La niña-veðurfyrirbrigðisins í Kyrrahafi. Þó að La niña tengist yfirleitt tímabundinni lækkun meðalhita jarðar er reiknað með að hiti verði víða yfir meðaltali vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. 30.11.2021 23:20
Eiginkona „þess stutta“ dæmd í þriggja ára fangelsi Emma Coronel Aispuro, eiginkona mexíkóska fíkniefnajöfursins Joaquín „þess stutta“ Guzmán var dæmd í þriggja ára fangelsi í Bandaríkjunum í dag. Hún játaði sig seka um að hafa aðstoðað Sinaloa-fíkniefnahringinn alræmda. 30.11.2021 20:23
Fyrsta trans manneskjan til að gegna ráðherraembætti í Svíþjóð Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun, daginn eftir að sænska þingið samþykkti hana sem forsætisráðherra landsins. 30.11.2021 13:13
Hafa aldrei fundið eins náið par risasvarthola svo nálægt jörðu Par risasvarthola sem hópur stjörnufræðinga fann nýlega er það þéttasta og nálægasta jörðinni sem fundist hefur til þessa. Stjörnufræðingar telja að svarholin tvö muni sameinast í náinni framtíð á stjarnfræðilegan mælikvarða. 30.11.2021 13:00
Bein útsending: Málþing um ofbeldi og morð á konum í Mexíkó Íslandsdeild Amnesty International stendur að málþingi um stöðu kvenna í Mexíkó í dag milli klukkan 12 og 13. 30.11.2021 11:30
Óskaarftaki Duterte hættir við forsetaframboð Christopher „Bong“ Go, öldungadeildarþingmaðurinn sem Rodrigo Duterte forseti Filippseyja vildi að tæki við af sér hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram til forseta. Nú er því enginn í framboði sem núverandi ríkisstjórn styður. 30.11.2021 09:43
Myndband virðist sýna herþotu hrapa í sjóinn örskömmu eftir flugtak Myndband sem virðist sýna eina af F-35 herþotu breska hersins hrapa í sjóinn eftir flugtak af flugmóðurskipinu HMS Queen Elizabeth hefur verið birt á samfélagsmiðlum. 30.11.2021 09:10
„Donald Trump Frakklands“ býður sig fram til forseta Franski sjónvarpsmaðurinn Eric Zemmour, sem þekktur er fyrir hægri öfgaskoðanir sínar, hyggst bjóða sig fram til forseta í Frakklandi í kosningunum á næsta ári. 30.11.2021 08:02
Barbados slítur tengsl við bresku krúnuna og verður lýðveldi Eyríkið Barbados er orðið lýðveldi. Á miðnætti á staðartíma, eða klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma sleit Barbados öll tengsl við Elísabetu Englandsdrottningu og er hún því ekki lengur þjóðhöfðingi landsins. 30.11.2021 07:28
Segir ekki tilefni til að grípa til harðra aðgerða í bili Joe Biden Bandaríkjaforseti segir nýtt afbrigði kórónuveirunnar, Omíkron, tilefni til varúðar en ekki hræðslu. Þá segir hann ekki nauðsynlegt að grípa til harðra aðgerða á borð við útgöngubanns, að því gefnu að fólk sinni því að bera grímu og láta bólusetja sig. 30.11.2021 06:56
Sagði Maxwell gerða að blóraböggli fyrir slæma hegðun Epstein Verjandi Ghislaine Maxwell sagði að hún væri gerð að blóraböggli fyrir slæma hegðun karlmanns líkt og fjölmargar aðrar konur í mannkynssögunni. Saksóknari sagði Maxwell meðseka í kynferðisofbeldi Jeffreys Epstein gegn ungum stúlkum. 29.11.2021 23:30
Biðja hæstarétt að snúa ógildingu dóms yfir Bill Cosby við Saksóknarar í máli Bills Cosby hafa beðið Hæstarétt Bandaríkjanna að snúa ákvörðun Hæstaréttar Pennsylvaníu, um að ógilda fangelsisdóm yfir honum, við. 29.11.2021 23:28
Magdalena Andersson forsætisráðherra aftur á ný Magdalena Andersson, formaður sænskra Jafnaðarmanna, var endurkjörin í dag í embætti forsætisráðherra en hún sagði af sér á dögunum eftir að hafa fyrst kvenna aðeins setið í embætti í sjö klukkustundir. Andersson sagði af sér í síðustu viku í kjölfar þess að Græningjar ákváðu að ganga úr ríkisstjórn. 29.11.2021 12:59
Réttarhöld hefjast yfir Ghislaine Maxwell Réttarhöld hefjast í dag á Manhattan í New York yfir Ghislaine Maxwell, sem sökuð er um að hafa aðstoðað milljarðamæringinn Jeffrey Epstein við glæpi sína. 29.11.2021 07:02
Handtóku par sem flúði af sóttkvíarhóteli Ómíkrón greindra Lögreglan í Hollandi handtók í gær par sem hafði flúið af sóttkvíarhóteli í Amsterdam. Fólkið var handtekið um borð í flugvél á Schiphol-flugvelli, sem var við það að taka á loft þegar lögreglu bar að garði. 29.11.2021 06:49
Japanir loka landamærum sínum og heilbrigðisráðherrar G7 funda Heilbrigðisráðherrar G7-ríkjanna munu funda í dag um Ómíkrón-afbrigði kórónuveirunnar, sem hefur nú fundist í nokkrum löndum. Japanir hafa bæst í hóp þeirra þjóða sem hafa ákveðið að loka landamærum sínum vegna afbrigðisins. 29.11.2021 06:39
Veitti stjórnarmyndunarumboð innan úr glerkassa Milos Zeman, forseti Tékklands, veitti Petr Fiala umboð til ríkisstjórnarmyndunar í dag. Það þurfti hann að gera innan úr glerkassa þar sem hann er smitaður af kórónuveirunni. 28.11.2021 20:11
Frumrannsóknir bendi til aukinnar hættu á endursýkingu vegna Ómíkron Fyrstu vísbendingar benda til þess að auknar líkur séu á að fólk, sem þegar hefur smitast af kórónuveirunni, smitist aftur af Ómíkron-afbrigði hennar, að sögn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. 28.11.2021 18:51
Ómíkron greinist í Ástralíu og WHO gagnrýnir auðugri þjóðir heims Yfirvöld í Ástralíu hafa staðfest að tveir íbúar eru smitaðir af ómíkron-afbrigði Covid-19. Báðir voru að koma til landsins erlendis frá og eru fullbólusettir. Fólkið er nýkomið frá Suður-Afríku og greindist smitað í sóttkví í Sydney, höfuðborg Ástralíu. 28.11.2021 12:00
Hjólaði á spítalann til að eignast barn Nýsjálenska þingkonan Julie Anne Genter hefur vakið nokkra athygli síðasta sólarhringinn eða svo. Hún eignaðist sitt annað barn aðeins klukkutíma eftir að hún hjólaði á spítalann. 28.11.2021 08:28
Engum nema Ísraelum hleypt til Ísrael vegna Ómíkrons-afbrigðisins Yfirvöld í Ísrael munu banna öllum útlendingum að koma til landsins næstu tvær vikurnar vegna Ómíkrons-afbrigðis kórónuveirunnar, að því er miðlar þar í landi halda fram. 28.11.2021 07:38
Bretar herða tökin vegna tveggja tilfella Ómíkron Boris Johnson tilkynnti hertar sóttvarnaraðgerðir í Bretlandi á fjölmiðlafundi í dag. Ástæðan er sú að tveir greindust smitaðir af Ómíkron-afbrigði kórónuveirunnar þar í landi í gær. 27.11.2021 18:00
Ómíkron-afbrigðið komið til Bretlands Tveir einstaklingar hafa greinst með Ómikron-afbrigði kórónuveirunnar í Bretland að því er heilbrigðisyfirvöld þar í landi greina frá. 27.11.2021 14:42
„Afganska stúlkan“ með grænu augun flytur til Ítalíu Mynd af Sharbat Gulla í flóttamannabúðum í Pakistan fór eins og eldur í sinu um heiminn. Gulla var líklega tólf ára gömul þegar ljósmyndarinnar Steve McCurry tók myndina árið 1984 og hún rataði á forsíðu National Geographic í júní 1985. 27.11.2021 12:37
Vísindamenn í Suður-Afríku áhyggjufullir Vísindamenn í Suður-Afríku óttast hraða útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis Covid-19 meðal ungs fólks þar í landi. Í gær höfðu 2.828 greinst smitaðir af afbrigðinu en það hve ungt fólk virðist smitast hratt hefur valdið áhyggjum. 27.11.2021 10:26
Stephen Sondheim látinn Tónskáldið og lagahöfundurinn Stephen Sondheim er látinn, 91 árs að aldri. Sondheim lést í gær á heimili sínu í Bandaríkjunum. 27.11.2021 07:34
Nýja kórónuveiruafbrigðið fær nafnið Ómíkron Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gefið nýjasta afbrigði kórónuveirunnar heiti gríska bókstafsins Ómíkron. Stofnunin gefur einungis afbrigðum sem hún hefur teljandi áhyggjur af nafn. 26.11.2021 20:11
Sagði rússneska menn hafa ætlað að fremja valdarán í Úkraínu Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komist hafi upp um tilraun til valdaráns þar í landi. Til hafi staðið að fella ríkisstjórn hans í næstu viku og að aðilar frá Rússlandi hafi náðst á upptöku reyna að fá ríkasta auðjöfur Úkraínu til að taka þátt í valdráninu. 26.11.2021 17:00
Telja Kína græða á deilum Bandaríkjanna og Marshall-eyja Marshall-eyjar hafa um árabil verið ötulir bandamenn Bandaríkjanna. Nú hafa hins vegar komið upp miklar deilur milli ríkjanna og bandarískir þingmenn óttast að Kínverjar stígi inn í tómarúmið og nái fótfestu á eyjunum sem eru staðsettar í miðju Kyrrahafinu. 26.11.2021 14:10
Fjórir táningar handteknir fyrir að berja tólf ára stúlku til dauða Lögreglan í Liverpool hefur handtekið fjóra táningsdrengi vegna gruns um að þeir hafi myrt tólf ára stúlku. Ráðist var á stúlkuna í kjölfar rifrildis í gærkvöldi og dó hún i kjölfarið vegna mikilla meiðsla sem hún hlaut. 26.11.2021 10:40
ESB boðar flugbann og WHO fundar um nýja afbrigðið Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, greindi frá því á Twitter í morgun að framkvæmdastjórnin myndi leggja til, í samráði við aðildarríki sambandsins, að banna flug frá suðurhluta Afríku. 26.11.2021 10:31
Öryggisfulltrúar handteknir eftir námuslysið í Síberíu Lögreglumenn í Síberíu handtóku tvo öryggisfulltrúa sem eru grunaðir um glæpsamlega vanrækslu eftir að fleiri en fimmtíu manns fórust í kolanámu í Kemerovo-héraði í gær. Slysið er eitt það versta sinnar tegundar frá því á tímum Sovétríkjanna. 26.11.2021 09:19
Ástralskir lögreglumenn skerast í leikinn á Salómonseyjum Útgöngubanni hefur verið komið á yfir nótt á Salómonseyjum í Kyrrahafi þar sem óeirðir hafa geisað undanfarna þrjá daga. Ástralskir lögreglumenn sem voru sendir til að aðstoða stjórnvöld á eyjunum hafa tekið sér stöðu á lykilstöðum í höfuðborginni Honiara. 26.11.2021 08:40
Flugmaður sakaður um morð á tveimur Áströlum í gæsluvarðhald Flugmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna morða á eldri manni og eldri konu sem voru á tjaldferðalagi í Ástralíu og hurfu sporlaust fyrir tæpum tveimur árum. 26.11.2021 08:07
Frakkar aflýsa flóttamannafundi með Bretum vegna bréfs Johnsons Innanríkisráðherra Frakka hefur aflýst fyrirhuguðum fundi með kollega sínum frá Bretlandi þar sem ræða átti flóttamannamálin á Ermarsundi. Ástæðan mun vera bréf sem Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, sendi Emmanuel Macron Frakklandsforseta þar sem þess er krafist að Frakkar taki aftur við því fólki sem kemst yfir Ermarsundið til Bretlands. 26.11.2021 07:57
Bretar bregðast við nýju afbrigði kórónuveirunnar Yfirvöld í Bretlandi hafa ákveðið að setja takmarkanir á ferðamenn frá ákveðnum löndum í Suður-Afríku vegna ótta við nýtt afbrigði kórónuveirunnar. Flug frá tilgreindum löndum til Bretlands verður lagt niður. 25.11.2021 23:15
Rúmlega fimmtíu námuverkamenn í Síberíu taldir af Að minnsta kosti fjórtán eru látnir og tugir eru taldir af eftir eldsvoða í námu í Síberíu. Yfirvöld í Rússlandi hafa hætt leit vegna hættu á sprengingu í námunni. 25.11.2021 20:30
Fleiri fóru yfir Ermarsundið í dag og tala látinna hækkar Fleiri Farand- og flóttamenn hafa lagt leið sína yfir Ermarsundið við erfiðar aðstæður í dag. Það er degi eftir að minnst 27 drukknuðu eftir að loftið fór úr slöngubát þeirra á Ermarsundinu. Meðal þeirra sem dóu voru ólétt kona og minnst þrjú börn. 25.11.2021 16:38
Telja ekki ástæðu til að fagna þakkargjörðarhátíðinni Bandarískir frumbyggjar ætla að minnast þakkargjörðarhátíðarinnar í dag með því að koma saman í bænum Plymouth í Massachusetts þar sem enskir landtökumenn tóku fyrst land. Þar ætla þeir að syrgja aldalanga kynþáttahyggju og ofbeldi sem þeir hafa mátt þola. 25.11.2021 15:39
Ætla að banna helstu mannréttindasamtök Rússlands Rússneskir saksóknarar kröfðust þess í dag að hæstiréttur leysti upp ein helstu mannréttindasamtök landsins. Þau afhjúpuðu meðal annars voðaverk hersins í Téténíustríðunum og rannsaka kúgun andófsfólks í Sovétríkjunum. 25.11.2021 14:55
Tilnefnir Andersson á nýjan leik Forseti sænska þingsins hefur aftur tilnefnt Magdalenu Andersson, formann sænskra Jafnaðarmanna, sem nýjan forsætisráðherra landsins. Atkvæðagreiðslan mun fara fram í sænska þinginu næsta mánudag. 25.11.2021 14:41
Losun í Kína dróst saman í fyrsta skipti eftir efnahagsbatann Koltvísýringslosun í Kína dróst lítillega saman á þriðja ársfjórðungi en það er í fyrsta skipti sem það gerist eftir að efnahagslífið tók við sér eftir kórónuveiruheimsfaraldurinn. Samdrátturinn er rakinn að hluta til minni byggingaframkvæmda og kolaskorts. 25.11.2021 14:21
Morðingjarnir hefðu líklega aldrei verið handteknir án myndbandsins Feðgarnir Greg og Travis McMichael og nágranni þeirra William Bryan voru í gær dæmdir sekir um morð. Það er fyrir að hafa elt og setið fyrir hinum 25 ára gamla Ahmaud Arbery í febrúar í fyrra. 25.11.2021 13:00