Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Átök Rússlands og vesturveldanna ná út í geim Rússar hyggjast slíta sig frá samstarfinu um Alþjóðlegu geimstöðina árið 2024 og byggja upp sína eigin geimstöð. Yuri Borisov, nýr yfirmaður rússnesku geimferðastofnunarinnar Roskosmos, segir Rússar ætla að efna allar skuldbindingar sínar fram að því en þeir hafa átt í samstarfi við Bandaríkin og fleiri ríki um rekstur Alþjóðlegu geimstöðvarinnar frá árinu 1998. 26.7.2022 16:08
Lufthansa aflýsir nær öllum flugferðum frá Frankfurt og München Lufthansa mun þurfa að aflýsa næstum öllum flugferðum sínum frá Frankfurt og München á miðvikudag vegna verkfalls þýskra flugvallarstarfsmanna. Flugfélagið ætlar að aflýsa 1.023 flugferðum sem þýðir að rúmlega hundrað þúsund ferðalangar munu verða fyrir áhrifum. 26.7.2022 11:38
Meira en 70 ferkílómetrar orðið eldunum við Yosemite að bráð Slökkviliðsmönnum í Kaliforníu hefur tekist að hægja verulega á útbreiðslu skógarelda í nágrenni við Yosemite þjóðgarðinn. Nú hafa 55 mannvirki orðið eldunum að bráð og þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín. 26.7.2022 10:43
Segja niðurstöður rannsóknar á grameðlum rangar Rannsókn frá jarðvísindadeild Edinborgarháskóla sýnir fram á að þeir steingervingar sem hafa fundist af grameðlum komi ekki frá þremur tegundum eðlunnar líkt og greint var frá í tímaritinu Evolutionary Biology í mars á þessu ári. Steingervingarnir sem voru rannsakaðir komi vissulega frá misstórum dýrum en eðlurnar voru, rétt eins og við mannfólkið, til í fleiri stærðum og gerðum en einni. 26.7.2022 10:26
Ólöglega bruggað áfengi varð 28 að bana Að minnsta kosti 28 eru látin og um sextíu alvarlega veik eftir að hafa drukkið ólöglega bruggað áfengi sem búið var að blanda með óþekktum efnum í Gujarat-fylki. 26.7.2022 10:11
Nóbelsverðlaunahafinn David Trimble er látinn Norður-Írinn David Trimble er látinn. Trimble hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1998 ásamt John Hume fyrir þeirra þátttöku í gerð Good Friday-sáttmálans. 26.7.2022 08:11
Sprengjum rigndi í Odesa, Kharkiv og Mykolaiv í nótt Rússar hafa látið sprengjum rigna víða í Úkraínu í nótt. Fregnir hafa borist af árásum á Kharkiv, Mykolaiv og hafnarborgina Odesa. Árásir á Odessa hafa sérstaklega verið gagnrýndar en ekki liðu nema nokkrir klukkutímar frá samkomulagi um kornútflutning frá Úkraínu uns sprengjum var skotið á borgina, þvert á hið nýgerða samkomulag. 26.7.2022 07:38
Reglulegir lúrar tengdir við aukna hættu á heilablóðfalli og háum blóðþrýstingi Fólk sem fær sér oft lúr er líklegra til þess að þróa með sér háan blóðþrýsting og fá heilablóðfall, ef marka má niðurstöður nýrrar umfangsmikillar rannsóknar. Aðstandendur hennar segja niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að horfa til svefns þegar kemur að því að leggja mat á áhættuna. 25.7.2022 20:25
Þrjú látin eftir skotárás í Langley í Kanada Þrjú eru látin eftir skotárás í borginni Langley í Bresku-Kólumbíu, árásarmaðurinn með talinn. 25.7.2022 19:30
Sveppahringur slær heimsmet Indverska fyrirtækið SWA Diamonds hefur skráð sig í heimsmetabók Guinness fyrir flesta demanta á einum hring. Á nýjasta hring þeirra eru 24.679 demantar. 25.7.2022 16:08
Minnst einn látinn í röð skotárása í Kanada Skotið var á nokkurn fjölda einstaklinga í röð skotárása í borginni Langley í Bresku-Kólumbíu í morgun að sögn kanadísku lögreglunnar. Minnst einn lést í árásunum og hefur karlmaður verið handtekinn grunaður um aðild að þeim. Langley er staðsett rétt utan við Vancouver, um 40 kílómetra suðaustur af borginni. 25.7.2022 15:21
Árásargjarni innbrotsapinn hættir ekki og gæti átt sér vitorðsapa Árásargjarn api sem hefur brotist inn til fólks í borginni Yamaguchi í Japan hefur ekki enn náðst og halda árásir hans áfram. Alls hafa 42 lent í klóm apans á síðustu vikum. 25.7.2022 14:10
Lavrov ferðast um Afríku til að styrkja tengslin Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands flaug til Kongó-Brazzaville í morgun en hann er á ferðalagi um álfuna í von um að styrkja tengslin við önnur ríki en í Evrópu. Afríkuríki hafa ekki tekið þátt í viðskiptaþvingunum gegn Rússum vegna Úkraínustríðsins og vonast Rússar til að góðvilji sé til staðar til að styrkja tengslin enn frekar. 25.7.2022 13:58
Stjórnarandstæðingur handtekinn í Rússlandi Rússneski stjórnmálamaðurinn Leonid Gozman var í dag handtekinn af lögregluþjónum í Moskvu. Gozman er leiðtogi stjórmálaflokksins Bandalag hægriafla. 25.7.2022 12:45
Sex ára stúlka og foreldrar hennar skotin til bana á tjaldstæði Sex ára gömul stúlka var skotin til bana ásamt foreldrum sínum í Iowa í Bandaríkjunum fyrir helgi. Fjölskyldan var í útilegu í Maquoketa Caves þjóðgarðinum þegar voðaverkið átti sér stað. 25.7.2022 12:03
Framkvæmdastjórn ESB gefur notkun bólusóttarbóluefni gegn apabólu grænt ljós Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur samþykkt að bóluefni fyrir bólusótt verði notað gegn apabólunni. Von er á 1.400 slíkum skömmtum til Íslands í haust. 25.7.2022 11:48
Björguðu fjórtán ára strák frá drukknun með aðstoð dróna Lífvörðum á strönd borgarinnar Gandia á Spáni tókst að bjarga fjórtán ára strák frá drukknun með því að notast við dróna. Drengurinn var sendur á spítala eftir atvikið en var útskrifaður þaðan innan við sólarhring seinna. 25.7.2022 11:10
Seglfiskur stakk konu í Flórída Kona var stungin af kyrrahafsseglfisk við strendur Flórída-ríkis í Bandaríkjunum í síðustu viku. Konan var stunginn í nárann er hún stóð við hliðina á veiðimanni sem var með fiskinn á línunni. Líðan konunnar er stöðug. 25.7.2022 10:16
Þrír skotnir til bana við útskriftarathöfn í Filippseyjum Þrír voru skotnir til bana við úrskriftarathöfn úr háskólanum Ateneo de Manila á höfuðborgarsvæði Filippseyja í gær. Árásarmaðurinn var handtekinn eftir eftirför lögreglu en hann hafði reynt að flýja vettvang. 25.7.2022 07:38
Stjórnlausir eldar í Kaliforníu Slökkviliðsmönnum í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur ekkert gengið í baráttunni við skógareldinn sem brennur í Mariposa sýslu 25.7.2022 07:29
Baráttufólk dæmt til dauða í Mjanmar Herforingjastjórnin í Mjanmar hefur tekið fjóra baráttumenn fyrir auknu lýðræði af lífi en dauðarefsingum hefur ekki verið beitt í landinu í rúma fjóra áratugi, opinberlega í það minnsta. Þeir dauðadæmdu voru fyrrverandi þingmaður, rithöfundur og tveir aðgerðasinnar. 25.7.2022 07:18
Bolsonaro sækist eftir endurkjöri en fylgið dvínar Jair Bolsonaro forseti Brasilíu hóf kosningabaráttu sína fyrir endurkjöri í gær á kosningafundi Frjálslynda flokksins í Rio de Janeiro. Í ræðu sinni lagði Bolsonaro áherslu á guð, byssur og fjölskylduna. Hann freistar nú þess að höggva á forskot helsta keppinautar síns, sósíalistann og forsetann fyrrverandi Lula da Silva sem nýtur mun meira fylgis. 25.7.2022 06:48
Vesturlönd sníði reglur sínar eftir hentugleika Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, þvertekur fyrir það að Rússar hafi valdið hungursneyð um allan heim. Hann segir Vesturlönd vera að reyna að sýna fram á að þau séu sterkari en aðrar þjóðir. 24.7.2022 23:04
Tekinn af lífi fyrir að kveikja í fyrrverandi eiginkonu sinni í beinu streymi Kínverskur karlmaður var í gær tekinn af lífi í heimalandi sínu fyrir að myrða fyrrverandi eiginkonu sína með því að hella yfir hana bensíni og kveikja í henni. Konan var í beinu streymi þegar morðið átti sér stað. 24.7.2022 20:51
Eldgos hafið í Japan Eldfjallið Sakurajima hóf að gjósa í dag en fjallið er sunnarlega á eyjunni Kyusu sem tilheyrir Japan. Búið er að rýma nærliggjandi byggð og hæsta viðbúnaðarstig sett á. 24.7.2022 18:08
Skákvélmenni fingurbraut sjö ára barn Skákvélmenni fingurbraut sjö ára dreng í Moskvu í síðustu viku. Sergey Lazarev, formaður rússneska skáksambandsins, segir atvikið ekki vera gott. 24.7.2022 17:44
Dularfull dauðsföll rússneskra auðmanna Tæpur tugur rússneskra milljarðamæringa hefur látist við grunsamlegar aðstæður frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Í sumum tilfellum hefur öll fjölskylda milljarðamæringanna verið myrt. 24.7.2022 14:31
Úkraínski herinn sækir fram í hernumdu héraði Úkraínuforseti segir hersveitum sínum hafa orðið ágengt í Kherson héraði „skref fyrir skref“. 24.7.2022 12:20
Tækluð vegna umhverfisgjörnings Umhverfissinnar á Ítalíu gerðu tilraun til þess að líma hendur sínar við málverkið „Primavera“ eftir Botticelli. 24.7.2022 11:01
Neyðarástand vegna skógarelda í Kaliforníu Neyðarstigi hefur verið lýst yfir vegna skógarelda í Kaliforníu en eldarnir nálgast nú Yosemite þjóðgarðinn. 24.7.2022 08:39
Árásirnar sýni að Rússum sé ekki treystandi Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um villimennsku í kjölfar árása á hafnir Odessa, sem gerðar voru örfáum klukkutímum eftir undirritun samnings um útflutning á korni frá landinu. 24.7.2022 07:50
Handtekinn fyrir að hjálpa gyðingi að komast til Mecca Sádiarabískur karlmaður var í dag handtekinn fyrir að aðstoða ísraelskan fréttamann við að komast inn í heilögu borgina Mecca. Einungis múslimar mega fara inn í borgina. 23.7.2022 23:50
Leyfa norðurkóreskt sjónvarp í Suður-Kóreu Yfirvöld í Suður-Kóreu stefna á að afnema bann við almenningsaðgengi að norðurkóreskum sjónvarpsstöðvum, dagblöðum og öðrum fjölmiðlum. Vonast þeir eftir því að nágrannar þeirra geri slíkt hið sama. 23.7.2022 23:11
Lýsa yfir alþjóðlegu neyðarástandi vegna apabólu Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur lýst yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna útbreiðslu apabólu. Þetta var tilkynnt í dag í kjölfar annars fundar neyðarnefndar vegna málsins. 23.7.2022 16:13
Synjað um líknardauða Dómari hefur synjað manni sem lamaðist í skotbardaga við lögregluna, um líknardráp á Spáni, eftir að hann hafði áður fengið leyfi til þess að deyja. Maðurinn lamaðist í byssubardaga við lögreglu eftir að hafa reynt að drepa fyrrverandi samstarfsmenn sína. 23.7.2022 14:32
Önnur beinagrindin sem finnst í heilu lagi Bein nokkurra hermanna sem féllu í orrustunni við Waterloo árið 1815 hafa nú fundist. Fundurinn er talinn stórmerkilegur enda bardaginn einn sá sögulegasti í Evrópu á síðustu öldum en hann markaði endalok Napóleonsstyrjaldanna. 23.7.2022 14:29
Sprengjum varpað á höfnina klukkutímum eftir undirritun samningsins Rússar vörpuðu sprengjum á höfn úkraínsku borgarinnar Odessa í dag, aðeins degi eftir að hafa skrifað undir samning við Úkraínumenn um að hleypa kornútflutningi aftur af stað þaðan. 23.7.2022 12:42
Gagnsókn í Kherson og vopnahlé kemur ekki til greina Minnst þrjú eru látin eftir að þrettán flugskeytum var skotið á herstöð úkraínska hersins og lestarstöðina í Kirovohrad í morgun. Úkraínuforseti segir vopnahlé ekki koma til greina og enn er hart barist um borgina Kherson. 23.7.2022 09:32
Verð á korni lækkar í það sem var fyrir stríð Eftir að samningar náðust um útflutning á Úkraínsku korni hefur verð á korni í heiminum lækkað snarlega og hefur ekki verið jafn lágt síðan fyrir innrás Rússa í Úkraínu. 23.7.2022 08:53
Segir Rússa ræna börnum frá Úkraínu Toria Nuland, starfsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, segir Rússa ræna börnum frá Úkraínu og láti rússneskar fjölskyldur ættleiða þau. Hún segir Rússa hafa alls rænt allt að þúsund börnum. 22.7.2022 23:35
Bannon sekur um vanvirðingu gegn þinginu Steve Bannon, fyrrverandi aðstoðarmaður Donald Trump, hefur verið dæmdur sekur um vanvirðingu gegn bandaríska þinginu. Hann gæti þurft að sitja í fangelsi í allt að tvö ár. 22.7.2022 19:09
Þjófar skiluðu stolnu úri þegar þeir föttuðu að það væri eftirlíking Þjófar í Napolí á Ítalíu skiluðu manni úri sem þeir stálu af honum þegar þeir áttuðu sig á því að úrið væri eftirlíking. Atvikið átti sér stað fyrir utan veitingastað í borginni og náðist á myndband af öryggismyndavélum. 22.7.2022 17:59
Guterres segir samninginn það mikilvægasta sem hann hafi gert hjá SÞ Fulltrúar Úkraínu, Rússlands, Tyrklands og Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafa undirritað samning sem mun greiða fyrir langþráðum útflutningi á korni frá Úkraínu. Samningurinn gerir Úkraínu kleift að flytja út um 20 milljón tonn af korni sem hafa lengi verið föst í höfnum landsins. 22.7.2022 15:22
Tilfelli lömunarveiki greindist í New York ríki Tilfelli lömunarveiki hefur greinst í New York ríki í Bandaríkjunum en þetta er í fyrsta skipti síðan 2013 sem sjúkdómurinn greinist þar í landi. 22.7.2022 14:44
Vitnisburður staðfesti aðgerðarleysi Trump Seinustu réttarhöld vegna árásarinnar á þinghús Bandaríkjanna í Washington D.C. þangað til í september voru haldin í gær. Þingnefndin nýtti réttarhöldin til þess að sýna fram á aðgerðarleysi Trump þegar það kom að árás stuðningsfólks hans á þinghúsið. Einblínt var á þær 187 mínútur sem liðu milli þess að Trump hvatti stuðningsfólk sitt til að ráðast að þinghúsinu og þegar hann sagði þeim að fara heim. 22.7.2022 11:40