Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skattsvikamál Shakiru fyrir dóm á Spáni Kólumbísku poppstjörnunni Shakiru hefur mistekist að ná dómsátt með spænskum saksóknurum og mun mál hennar vegna meintra skattsvika því fara fyrir dómstóla. Shakira mun þar halda fram sakleysi sínu. 31.7.2022 16:30
Hótar að bregðast við á leifturhraða „Rússneski sjóherinn getur brugðist við á leifturhraða og mætir hverjum þeim sem reynir að ganga á fullveldi og frelsi Rússlands með hörku,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti í ávarpi í Sankti Pétursborg fyrr í dag. 31.7.2022 13:34
Skotinn til bana í Örebro Karlmaður á þrítugsaldri var skotinn til bana í sænsku borginni Örebro í gærkvöldi. Fjölmennt lögreglulið vinnur að rannsókn málsins en enginn hefur verið handtekinn. 31.7.2022 08:21
Rauða krossinum meinaður aðgangur að særðum stríðsföngum Stríðsfangelsi í bænum Olenivka í Donetsk-héraði sem er á valdi Rússa varð fyrir loftárás á föstudag með þeim afleiðingum að 53 úkraínskir stríðsfangar létust og 75 særðust. Rauði krossinn segir yfirvöld ekki enn hafa orðið við beiðni samtakanna um að heimsækja fangelsið. 31.7.2022 00:03
Indiana leggur nær algjört bann við þungunarrofi Lagafrumvarp sem leggur nær algjört bann við þungunarrofi í Indiana-ríki í Bandaríkjunum var samþykkt af þingmönnum ríkisins í dag með lægsta atkvæðafjölda sem þurfti til að hleypa því í gegn. Einungis verði hægt að rjúfa þungun í tilfelli nauðgana eða sifjaspells. 30.7.2022 21:39
Biden aftur með Covid Joe Biden, Bandaríkjaforseti, mældist aftur jákvæður fyrir Covid-19 í dag. Hann þarf því að fara í fimm daga einangrun að nýju, aðeins þremur dögum eftir að hann fékk neikvætt próf og yfirgaf einangrun. 30.7.2022 20:27
Vann rúman milljarð Bandaríkjadala í lottói Stakur lottómiði fékk allan vinninginn, 1,337 milljarð Bandaríkjadala, í lottóinu Mega Millions í Bandaríkjunum á föstudag. Miðinn var keyptur á bensínstöð í úthverfi Chicago og fær eigandi hans stóra vinninginn sem er sá þriðji stærsti í sögu Bandaríkjanna. 30.7.2022 18:00
Handtekinn grunaður um að hafa stungið stúlkuna til bana Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður hefur verið handtekinn grunaður um að hafa stungið níu ára stúlku til bana í miðbæ Boston í Lincolnskíri í Bretlandi í vikunni. 30.7.2022 16:47
Rússar vilja hengja hermennina Rússar vilja hengja hermenn úr Azov-herdeildinni. Þeir segja hermennina eiga skilið niðurlægjandi dauðdaga en Úkraínumenn segja ummælin viðurstyggileg. 30.7.2022 16:11
Sakfelldur fyrir að bana unglingi sem hann hitti aldrei Rúmlega sextugur karl hefur verið sakfelldur í Katalóníu á Spáni fyrir að hafa banað 17 ára unglingi. Maðurinn hitti unglinginn aldrei og þeir höfðu einungis átt í samskiptum í einn sólarhring. 30.7.2022 14:31
Útilokar ekki að setjast í helgan stein Frans páfi segir ekki útilokað að hann muni setjast í helgan stein vegna heilsubrests. Hann kveðst ekki tilbúinn að kveðja embættið strax en möguleikann þurfi hann að íhuga. 30.7.2022 11:28
Tala látinna fer hækkandi og umfangsmikil leit stendur yfir Að minnsta kosti nítján hafa látist í flóðum í Appalachiafjöllum í Bandaríkjunum, þar á meðal sex börn. Ríkisstjóri Kentucky-héraðs gerir ráð fyrir því að tala látinna fari hækkandi og umfangsmikil leit stendur enn yfir. 30.7.2022 10:12
„Fjöldamorð á úkraínskum stríðsföngum“ Rússar og Úkraínumenn saka hvorir aðra um að hafa orðið fimmtíu manns að bana í sprengjuárás á stríðsfangelsi í Donetsk héraði. Úkraínuforseti kallar árásina stríðsglæp og kallar eftir rannsókn Sameinuðu þjóðanna og Rauða krossins. 30.7.2022 08:51
Sagðir hafa óskað óformlega eftir njósnara í stað Griner og Whelan Rússnesk yfirvöld eru sögð hafa beðið um njósnarann Vadim Krasikov auk vopnasalans Viktor Brut í skiptum fyrir Brittney Griner og Paul Whelan í óformlegum viðræðum um fangaskipti við bandarísk yfirvöld. 29.7.2022 23:49
Úkraínuforseti birtist óvænt á stuttermabol á höfninni í Odessa Forseti Úkraínu heimsótti óvænt hafnarborgina Odessa ásamt sendiherrum sjö ríkja í dag til að kynna sér undirbúning fyrir útflutning á milljónum tonna af korni frá Úkraínu. Vonir eru bundnar við að útflutningurinn geti hafist í dag eða á morgun. 29.7.2022 20:01
Nafn stúlkunnar sem var stungin til bana í Boston birt Stúlkan sem stungin var til bana í miðbæ Boston í Lincolnskíri í Bretlandi í gær heitir Lilia Valutyte. Hún var aðeins níu ára gömul og fannst látin á sjöunda tímanum í gærkvöldi. 29.7.2022 16:34
Börn meðal látinna vegna mikilla flóða í Appalachia Umfangsmikil leit stendur yfir eftir fólki sem er saknað eftir að mikil flóð þurrkuðu út heilu samfélögin í Appalachiafjöllum. Björgunarsveitir hafa með hjálp þjóðvarðliðsins leitað fólks í allan dag en að sögn ríkisstjóra Kentucky hafa minnst fimmtán farist í flóðunum. 29.7.2022 14:51
Talið að níu ára stúlka hafi verið stungin til bana í Boston Grunur leikur á um að níu ára stúlka hafi verið stungin til bana í miðbæ Boston í Lincolnskíri í Bretlandi. Lögreglan rannsakar málið sem hugsanlegt morð en atvikið átti sér stað klukkan 18:20 að staðartíma í gær. 29.7.2022 14:40
Reyndu að færa lík Johns Snorra í tvær klukkustundir Jarðneskar leifar Johns Snorra Sigurjónssonar liggja á einum erfiðasta staðnum á fjallinu K2 og illa hefur gengið að færa þær af gönguleiðinni. Nýfallinn snjór skapar snjóflóðahættu á umræddu svæði og hamlar aðgerðum. 29.7.2022 13:54
Putin heldur áfram að ofsækja fjölmiðla Rússnesk stjórnvöld halda áfram að ofsækja fréttamenn og fjölmiðla sem voga sér að lýsa andstöðu við innrás Rússa í Úkraínu og kalla hana stríð en ekki sérstaka hernaðaraðgerð. Fjölmiðlaráð Rússlands hefur krafist þess að Hæstiréttur landsins afturkalli starfsleyfi vefútgáfu eina frjálsa dagblaðsins í landinu. 29.7.2022 13:13
Tvöfölduðu tígrisdýrastofninn á tíu árum en glíma nú við tíðari árásir Stjórnvöldum í Nepal hefur tekist að tvöfalda tígrisdýrastofn sinn á tíu árum. Nú glíma landsmenn þó við tíðari árásir frá dýrunum. 29.7.2022 11:34
Fær að nefna risaeðluna eftir að hann keypti beinagrindina Beinagrind gogrónueðlu seldist á uppboði hjá uppboðshúsinu Sotheby‘s í gær á sex milljónir dollara, rúmlega átta hundruð milljónir íslenskra króna. Venjan er að fornleifafræðingarnir sem finna beinin nefni eðluna sem þau tilheyrðu en þessi hefur enn ekki verið skírð. Því er það í verkahring kaupandans að sjá um það. 29.7.2022 10:18
Tvær ágengar tegundir valdi langmestum skaða í heiminum Amerískur bolafroskur og brúnn trjásnákur hafa kostað heiminn alls 16 milljarða Bandaríkjadala, tvö þúsund milljarði íslenskra króna, með því að skemma uppskerur, rafmagnssnúrur og fleira. Engin ágeng tegund er jafn skaðleg fyrir heiminn og þessar tvær. 29.7.2022 08:54
Varaði Biden við því að styðja Taívan Forsetar Bandaríkjanna og Kína ræddust við í gegnum fjarfundarbúnað í gærkvöldi þar sem aðalumræðuefnið var Taívan og sú viðkvæma staða sem nú er uppi. 29.7.2022 07:48
Risaskjár féll á dansara á tónleikum í Hong Kong Risaskjár sem hékk fyrir ofan dansara á tónleikum cantopop-hljómsveitarinnar Mirror losnaði og datt í Hong Kong í gær. Tveir voru lagðir inn á spítala eftir slysið. 29.7.2022 07:24
Vörpuðu sprengjum á háskólabyggingu í Kharkív Næst stærsta borg Úkraínu, Kharkív, varð fyrir sprengjuárásum í nótt og í morgun. Borgarstjórinn Ihor Terekhov segir að sprengjur hafi lent í norðuaustuhluta borgarinnar á tveggja hæða húsi og á háskólabyggingu. 29.7.2022 07:02
Úkraína ætlar að útvega Evrópu rafmagn Almenningur í Þýskalandi er byrjaður að undirbúa sig undir kaldan vetur vegna þess að Rússar hafa meira og minna skrúfað fyrir gasflutninga til landsins. Í Köln er hiti lækkaður í mörgum fjölbýlishúsum yfir nóttina til að spara gasið. 28.7.2022 21:47
Íbúar fari í kaldar sturtur til þess að spara gas Stjórnvöld í þýsku borginni Hannover hafa skrúfað fyrir heitt vatn í byggingum sem opnar eru almenningi til þess að spara gas en Þjóðverjar hafa kvartað yfir skertu flæði á gasi frá Rússlandi. 28.7.2022 18:43
Fimm drepnir og 25 særðir í árás Rússa á Kropyvnytskyi Fimm voru drepnir og 25 særðust í loftárás Rússa á Kropyvnytskyi fyrr í dag. Rússar halda áfram loftárásum sínum í suðri og austri Úkraínu en eru auk þess farnir að beina sjónum sínum aftur að Kænugarði í fyrsta skiptið í margar vikur. 28.7.2022 15:58
Lögsækja skemmtigarð vegna rasisma starfsmanna Fjölskylda í Baltimore sakar starfsmenn skemmtigarðsins Sesame Place í Fíladelfíu um rasisma og hefur kært skemmtigarðinn fyrir kynþáttamismunun í garð fimm ára svartrar stúlku og annarra þeldökkra gesta. 28.7.2022 12:09
Bólusetti þrjátíu einstaklinga með sömu sprautunni Yfirvöld í Indlandi rannsaka nú heilbrigðisstarfsmann í fylkinu Madhya Pradesh en hann er talinn hafa bólusett þrjátíu einstaklinga gegn Covid-19 með sömu sprautunni. 28.7.2022 11:56
Stærsti bleiki demanturinn í þrjú hundruð ár Námumenn í Angóla grófu upp 170 karata bleikan demant í gær. Stærri bleikur demantur hefur ekki fundist í þrjú hundruð ár. 28.7.2022 10:15
Fyrrverandi Repúblikanar og Demókratar sameinast í nýjum flokki Fjöldi fyrrverandi ráðamanna og þingmanna úr röðum bæði Demókrata og Repúblikana hafa stofnað nýtt stjórnmálaafl í Bandaríkjunum. Flokkurinn mun bera heitið „Forward“ eða „Áfram“ og vonast stofnendur eftir því að ná til þeirra sem líkar ekki við tveggja flokka kerfi landsins. 28.7.2022 07:37
Segir eldflaugum hafa verið skotið frá Hvíta-Rússlandi Héraðsstjórinn í Chernhiv, Viacheslav Chaus, segir eldflaugum hafa verið skotið á svæðið í morgun. Hann segir flaugarnar hafa komið frá Hvíta-Rússlandi. 28.7.2022 06:54
Gasverð í Evrópu hefur hækkað um tvö prósent Gasverð hefur hækkað á mörkuðum í dag eftir að Rússar skertu enn frekar gasflutninga sína til Þýskalands og annarra mið-Evrópuríkja. 27.7.2022 22:29
Úkraínuforseti segir 40 þúsund Rússa hafa fallið í innrásinni Úkraínuforseti segir að fjörutíu þúsund Rússneskir hermenn hafi fallið í innrásinni í Úkraínu. Her landsins hefur vaxið ásmegin eftir að hann fékk langdræg og nákvæm eldflaugakerfi frá Bandaríkjunum og Evrópuríkjum. Vonast er til að kornútflutningur geti hafist innan fárra daga. 27.7.2022 22:00
Sádar hyggjast byggja ofurborg framtíðarinnar Krónprinsinn í Sádi-Arabíu hélt kynningu á Neom, fyrirhugaðri ofurborg, í vikunni. Hún mun innihalda tvo skýjakljúfa sem standa hvor á móti öðrum og teygja sig 170 kílómetra eftir Rauðahafinu. Fyrsti fasi uppbyggingarinnar nær til 2030 og mun kosta um 265 milljarða Bandaríkjadala. 27.7.2022 16:35
Dómsmálaráðuneytið rannsakar aðild Trumps að áhlaupinu á þinghúsið Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur til rannsóknar aðild Donalds Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseta að tilraunum til að snúa við niðurstöðu forsetakosninganna þar í landi árið 2020. Alríkissaksóknarar eru sagðir hafa spurt vitni beint út í hegðun forsetans fyrrverandi í tengslum við málið. 27.7.2022 15:40
Skipafélög fara sér hægt við að hefja kornútflutning frá Úkraínu Skipafélög eru varkár varðandi útflutning á korni frá Úkraínu sem enn hefur ekki hafist þrátt fyrir samkomulag Rússa og Úkraínumanna fyrir milligöngu Tyrkja og Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku. Rússar hafa í tvígang gert loftárásir á Odessa eftir að samkomulagið var undirritað og siglingaleiðir eru krökkar af tundurduflum. 27.7.2022 15:22
Höfundur Gaia-kenningarinnar er látinn Breski vísindamaðurinn James Lovelock sem þekktastur er fyrir Gaia-kenninguna lést í gær. Hann fæddist þann 26. júlí árið 1908 og lést því á 103 ára afmælisdaginn. 27.7.2022 14:50
Árásargjarni apinn fundinn og drepinn Heimamenn í borginni Yamaguchi í Japan höfðu uppi á apa, sem hafði ráðist á tæplega fimmtíu manns í borginni, og drápu hann. Talið er að aðrir apar úr hóp hans séu þó enn lausir og hafa árásir haldið áfram eftir að apinn var drepinn. 27.7.2022 13:34
Þúsundir kúa flattar út og urðaðar með rusli eftir að hafa drepist úr hita Þúsundir nautgripa sem drápust vegna hitabylgju í Bandaríkjunum í júní voru urðaðir í landfyllingu í Kansas. Rotnandi hræin voru fyrst flött út með þungavinnuvélum áður en þau voru urðuð með almennu rusli. 27.7.2022 12:19
Spánverjar rýmka reglur fyrir erlent verkafólk Spánverjar samþykktu á þriðjudag lagabreytingar sem rýmka reglugerðir fyrir erlent verkafólk án tilskilinna leyfa í von um að færa þúsundir verkafólks úr svartri atvinnu inn á opinberan vinnumarkað og koma reglu á atvinnugreinar sem glíma við manneklu. 27.7.2022 11:09
Stjórnarskrárbreyting veitir forseta Túnis nær alræðisvald Nýsamþykkt stjórnarskrárbreyting í Túnis veitir forseta landsins nær alræðisvald innan stjórnkerfisins. Margir óttast að landið sé að færast aftur til einræðis. 27.7.2022 08:52
Telur sig hafa borið kennsl á Somerton-manninn Prófessor við Háskólann í Adelaide telur sig hafa borið kennsl á mann sem hingað til hefur alltaf verið kallaður Somerton-maðurinn. Í rúm sjötíu ár hefur engum tekist að komast að því hver maðurinn er en málið er eitt það dularfyllsta í sögu Ástralíu. 27.7.2022 08:17