Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leiðtogi hægrimanna fær stjórnarmyndunarumboð Ulf Kristersson, leiðtogi hægriflokksins Moderatarna, fékk formlegt umboð til að mynda nýja ríkisstjórn í Svíþjóð í dag. Hægriöfgaflokkurinn Svíþjóðardemókratarnir gætu tekið sæti í ríkisstjórn hægri blokkarinnar eða varið minnihlutastjórn falli. 19.9.2022 14:21
Methafi í samfelldri geimdvöl allur Rússneski geimfarinn Valeríj Poljakov sem á metið yfir lengstu samfelldu dvöl í geimnum er látinn, áttræður að aldri. Poljakov dvaldi í sovésku geimstöðinni Mír á braut um jörðu í rúma 437 daga samfleytt á tíunda áratug síðustu aldar. 19.9.2022 11:43
Saka Rússa um að skjóta flugskeyti að kjarnorkuveri Rússneskt flugskeyti er sagt hafa lent aðeins nokkur hundruð metra frá ofni Pivdennoukrainsk-kjarnorkuversins í sunnanverðri Úkraínu í dag. Kjarnaofnarnir hafi ekki skaddast en skemmdir hafi orðið á öðrum byggingum og búnaði. 19.9.2022 11:15
Fíóna sló út öllu rafmagni á Púertó Ríkó Allir íbúar Karíbahafseyjarinnar Púertó Ríkó voru án rafmagns þegar fellibylurinn Fíóna gekk yfir hana í gær. Mikil flóð og aurskriður fylgdu bylnum sem var fyrsta stigs fellibylur. 19.9.2022 10:26
Er hægt að svindla í skák með unaðstækjum ástarlífsins? Mikil ólga er nú innan skákheimsins eftir að Magnus Carlsen, margfaldur heimsmeistari og einn mesti núlifandi skákmeistari heims, hætti á dögunum þátttöku á Sinquefield-skákmótinu. 19.9.2022 08:35
Svona var dagurinn: Elísabet Bretlandsdrottning borin til grafar Útför Elísabetar II Bretlandsdrottningar fór fram í dag og var glæsileg útsending frá London sýnd á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Heimir Már Pétursson fréttamaður lýsti því sem fyrir augu bar í útsendingunni sem stóð í sex klukkustundir. 19.9.2022 08:00
Verið að opna Westminster Abbey fyrir hinum 2.000 sem sækja útförina Röðinni í Westminster Hall var lokað í gærkvöldi en talið er að um 300.000 manns hafi beðið allt að 17 tíma eftir að votta Elísabetu II Bretadrottningu virðingu sína. 19.9.2022 07:09
Segir að heimsfaraldrinum sé lokið Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að kórónuveiran sé enn vandamál en að staðan hafi breyst og að heimsfaraldrinum sé lokið. 19.9.2022 06:34
Fengu boðskort og þurftu ekki að bíða í röð Útför Elísabetar II Bretadrottningar verður á morgun. Hundruð þjóðarleiðtoga streyma nú til Lundúna þar sem fólk hefur beðið marga klukkutíma til að votta Elísabetu II Bretadrottningu virðingu sína. Á meðal þeirra eru Íslendingar sem segja drottninguna hafa átt stóran sess í sínu lífi. 18.9.2022 21:22
Hundruð þjóðarleiðtoga væntanlegir og rándýr öryggisgæsla á svæðinu Búist er við hundruðum þjóðarleiðtoga og hátt settum embættismönnum til London vegna útfarar Elísabetar II Bretlandsdrottningar. Kostnaður við öryggisgæslu við útförina geti numið meira en 6,4 milljónum punda. 18.9.2022 15:02
Biður samlanda sína um að snerta ekki útlendinga Wu Zunyou, yfirmaður hjá Sóttvarnarstofnun Kína, hefur varað Kínverja við því að snerta útlendinga í landinu. Í gær greindist apabóla í fyrsta sinn í Kína þrátt fyrir miklar ráðstafanir á landamærunum. 18.9.2022 14:39
Telur her og lögreglu Mexíkó bera sök á fjöldamorðum á námsmönnum Lögreglan í Mexíkó hefur handtekið hershöfðingja og tvo aðra háttsetta menn innan hersins fyrir aðild þeirra að hvarfi og fjöldamorði á 43 námsmönnum fyrir 8 árum. Í síðasta mánuði var fyrrverandi ríkissaksóknari landsins handtekinn fyrir sömu sakir. 18.9.2022 14:31
Fjórar milljónir þurft að yfirgefa heimili sín Fellibylurinn Nanmadol kom á land á eyjunni Kyushu í Japan í dag en talið er að um 400 millimetrar af rigningu falli á suðurhluta eyjunnar næsta sólarhringinn. Vindhviður geta náð allt að 230 kílómetra hraða. 18.9.2022 09:51
Stór jarðskjálfti í Taívan Jarðskjálfti af stærðinni 6,9 reið yfir Taívan fyrr í morgun en í kjölfar hans hefur jarðfræðistofnun Japan gefið út flóðbylgjuviðvörun. 18.9.2022 09:02
Ákærður fyrir að reyna að grípa í líkkistuna Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður í Bretlandi fyrir að reyna að grípa í líkkistu Elísabetar II Bretlandsdrottningar. Maðurinn mun koma fram fyrir dómara á morgun. 18.9.2022 08:28
Til átaka kom vegna gleðigöngu og 64 mótmælendur handteknir Til átaka kom á milli serbnesku lögreglunnar í Belgrad og tveggja hægri sinnaðra mótmælendahópa þegar gleðiganga var farin. Tíu lögreglumenn eru slasaðir eftir átökin og 64 mótmælendur sagðir handteknir. 17.9.2022 19:25
Ákærður fyrir að leka ríkisleyndarmálum Fyrrverandi forstjóri leyniþjónustu danska hersins hefur verið ákærður fyrir að hafa lekið viðkvæmum ríkisleyndarmálum. Málið er talið einstakt í danskri réttarsögu. 17.9.2022 18:01
„Ofur-fellibylur“ stefnir í átt að Japan Jarðvísindastofnun Japan hefur óskað eftir því að íbúar á suðurhluta eyjunnar Kyushu yfirgefi heimili sín þar sem fellibylurinn Nanmadol stefnir þangað. Talið er að allt að hálfur metri af rigningu falli á svæðinu á sunnudaginn. 17.9.2022 13:47
Rússar leyfi sér siðleysi í stríðsátökum Gagnárás Úkraínumanna síðustu daga mun engin áhrif hafa á áætlanir Rússa, að sögn Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta. Sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum segir bakslags vera að vænta í gagnárásinni og að Rússar komist langt á siðleysi sem þeir leyfa sér í stríðsátökum. 17.9.2022 11:44
Hiti færist í leikinn hjá Kirgisum og Tadsíkum Að minnsta kosti 24 létu lífið í átökum á landamærum Kirgistan og Tadsíkistan í gær. Samkomulag um vopnahlé er á milli ríkjanna en báðar þjóðir saka hvora aðra um að brjóta samkomulagið. 17.9.2022 11:05
Gagnárásin hafi engin áhrif á Rússa Gagnárás Úkraínumanna síðustu daga mun engin áhrif hafa á áætlanir Rússa, að sögn Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta. Pútín tjáði sig í fyrsta sinn um stöðuna í gær. 17.9.2022 09:59
Pólitísk upplausn í aðsigi í Evrópu: „Þetta lítur út fyrir að vera einhvers konar leikrit“ Sigríður Á. Andersen fyrrverandi ráðherra segir að evrópskir ráðamenn hafi átt að vera betur undirbúnir fyrir afleiðingarnar sem refsiaðgerðir gegn Rússum hefðu á hagkerfin heima fyrir. Sumar refsiaðgerðirnar séu að reynast refsiaðgerðir ríkja gegn eigin borgurum. 17.9.2022 09:15
Mættir aftur til Indlands eftir sjötíu ára fjarveru Blettatígrar voru sagðir útdauðir í Indlandi árið 1952 en nú hafa átta tígrar verið sendir þangað í tilefni af afmæli Narendra Modi, forsætisráðherra landsins. Þeir munu dvelja í einangrun í mánuð áður en þeim verður sleppt í þjóðgarði. 17.9.2022 08:57
Beraði sig við syrgjendur drottningar og stakk sér svo í ána Thames Nítján ára karlmaður hefur verið handtekinn og sakaður um að hafa beitt tvær konur kynferðisofbeldi í röð syrgjenda sem bíða þess þolinmóðir að sjá líkkistu Elísabetar II Bretlandsdottningar. 16.9.2022 23:41
Klæddust kvenmannsfötum, settu á sig hárkollu og rændu tugi lestarfarþega Meðlimir í frönsku glæpagengi eru sagðir hafa klæðst kvenmansfatnaði, sett á sig hárkollur og rænt í það minnsta 170 farþega í fyrsta farrými lesta í Frakklandi. Lögreglan í Marseille fann þýfið og reynir nú að finna réttmætu eigendur þess. 16.9.2022 22:50
Hollenskur bær í mál við Twitter vegna sögusagna um sataníska barnaníðinga Hollenski bærinn Bodegraven-Reeuwijk hefur krafist þess að Twitter fjarlægi færslur sem bendla bæinn við satanískan söfnuð barnaníðinga. Sögusagnir um söfnuðinn hafa fengið að viðgangast á miðlinum síðan árið 2020. 16.9.2022 16:46
Selenskí kallar Rússa morðingja vegna fjöldagrafa Flestir þeirra sem grafnir hafa verið upp í fjöldagröf sem fannst nærri Izyum í Úkraínu eru óbreyttir borgarar. Minnst eitt líkanna var með bundnar hendur en Úkraínumenn hafa fundið vísbendingar um að íbúar bæjarins og aðrir hafi verið pyntaðir. 16.9.2022 15:33
Sagðist líka skilja áhyggjur Modi og vill binda skjótan enda á stríðið Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, að hann vildi binda enda á innrás Rússa í Úkraínu eins fljótt og auðið væri. Þá sagðist hann hafa skilning á áhyggjum Modi af átökunum. 16.9.2022 14:27
Bretar bíða þolinmóðir í biðröð allra biðraða Svo mikill fjöldi hefur raðað sér í röð til að votta Elísabet II Bretadrottningu virðingu sína í Lundúnum að fleiri komast ekki að í bili. Sjálfir hafa Bretar gert góðlátlegt grín að því að biðröðin sjálf sé það breskasta sem til er. 16.9.2022 14:04
Háhýsi stóð í ljósum logum Gífurlega mikill eldur kviknaði í háhýsi í borginni Changsha í Kína í morgun. Húsið er 218 metrar á hæð og 42 hæðir en engan sakaði í brunanum. 16.9.2022 12:34
Átta látið lífið eftir úrhellisrigningu á Ítalíu Að minnsta kosti átta hafa látið lífið eftir úrhellisrigningu á Ítalíu í nótt. Fjögurra er enn saknað en rigningin í nótt samsvarar helming þess sem venjan er á svæðinu á einu ári. 16.9.2022 09:47
Flugu farandfólki óvænt til Martha's Vineyard Ríkisstjórar Texas og Arizona í Bandaríkjunum, sem eru Repúblikanar, hafa um mánaða skeið sent farandfólk með rútum til borga í Bandaríkjunum, án þess að láta Demókratana sem stjórna þar vita. Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, tók þetta skrefinu lengra á dögunum og flaug um fimmtíu manneskjum frá Texast til Martha‘s Vineyard í Massachusetts. 16.9.2022 09:19
„Við erum með heimskustu ríkisstjórn í Evrópu“ Þingmaður þýska vinstriflokksins, Die Linke, fór hörðum orðum um þýsku ríkisstjórnina í harla umdeildri ræðu sem hún flutti í þýska þinginu í vikunni. Þar fjallaði hún um nauðsyn þess að halda áfram viðskiptum við Rússa þrátt fyrir stríðið - og málflutningur hennar hefur síðan leitt til þess að fjöldi flokksmanna hefur sagt sig úr flokki hennar. 16.9.2022 08:55
Pútín og Xi ávarpa leiðtogafund í Úsbekistan Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Xi Jinping leiðtogi Kína munu ávarpa leiðtogafund, sem fer fram í Úsbekistan í dag. 16.9.2022 08:31
Fundu fjöldagröf með fjögur hundruð líkum í Izyum Úkraínumenn hafa fundið merki um fjöldagröf í bænum Izyum í norðausturhluta landsins. Gröfina er að finna á landsvæði sem Úkraínumenn náðu nýverið aftur á sitt vald eftir innrás rússneska hersins. 16.9.2022 07:50
Ellefu klukkustunda bið í sjö kílómetra langri röð Biðin eftir því að votta Elísabetu Bretadrottningu virðingu sína í Westminster Abbey er nú um ellefu klukkustundir og telur röðin sjö kílómetra. 16.9.2022 07:35
Ungverjaland geti ekki talist lýðræðisríki Evrópuþingið segir að Ungverjaland geti ekki talist fullkomið lýðræðisríki. Stjórnarhættir falli ekki að grundvallarhugmyndum um lýðræði og réttarríki. Þingfulltrúar greiddu atkvæði gegn ríkisstjórn Viktors Orban forsætisráðherra landsins fyrr í dag. 15.9.2022 22:12
Sagðist skilja áhyggjur Xi af innrásinni í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, þakkaði Xi Jinping, forseta Kína, fyrir yfirvegaða afstöðu til innrásarinnar í Úkraínu. Pútín sagðist þó hafa skilning á spurningum og áhyggjum Xi af ástandinu í Úkraínu. Þá hét Pútín stuðningi Rússa við Kína varðandi meint yfirráð þeirra yfir Taívan. 15.9.2022 15:18
„Kokkur Pútíns“ býður föngum frelsi fyrir herþjónustu í Úkraínu Myndband af rússneska auðjöfrinum Yevgeny Prigozhin bjóða föngum náðun fyrir að ganga til liðs við málaliðahópinn sem kallast Wagner Group var birt á netinu í gær. Þar má sjá auðjöfurinn segja föngunum að gangi þeir til liðs við Wagner muni þeir aldrei fara aftur í fangelsi. Annað hvort muni þeir deyja í Úkraínu eða vera lausir allra mála eftir sex mánuði. 15.9.2022 11:49
Andersson segir „dyrnar standa opnar“ Magdalena Andersson gekk á fund forseta sænska þingsins í morgun þar sem hún baðst formlegrar lausnar úr embætti forsætisráðherra Svíþjóðar eftir um níu mánuði í embætti. Hægriflokkarnir á þingi hafa þegar hafið viðræður um myndun nýrrar stjórnar, en Andersson hefur rétt út hönd til hægriflokksins Moderaterna og opnað á samstarf, fari svo þeim snúist hugur varðandi stjórnarsamstarf með Svíþjóðardemókrötum. 15.9.2022 11:30
Hringdi eftir hjálp en var skotinn til bana af lögregluþjónum Foreldrar ungs mans frá Colorado í Bandaríkjunum krefjast þess að lögregluþjónar verði ákærðir fyrir að bana honum. Hinn 22 ára gamli Christian Glass var skotinn til bana í júní eftir að hann hringdi í neyðarlínuna og bað um hjálp eftir að hann festi bíl sinn. 15.9.2022 09:39
Telja að systrum hafi verið nauðgað áður en þær voru hengdar Lögreglan í indverska héraðinu Uttar Pradesh telur að systrum á unglingsaldri, sem fundust hengdar í tré, hafi verið nauðgað áður en þær voru myrtar. Sex hafa verið handteknir vegna málsins. 15.9.2022 09:35
Kona handtekin eftir að lík barna fundust í ferðatöskum Lögregla í Suður-Kóreu hefur handtekið konu sem sökuð er um að hafa myrt tvö börn sín sem fundust í ferðatösku á Nýja-Sjálandi í síðasta mánuði. 15.9.2022 08:39
Segir að brotið hafi verið á sér fyrir fyrstu tónleika Kryddpíanna Melanie Chisholm, betur þekkt sem Melanie C eða Sporty Spice, segir að á sér hafi verið brotið kynferðislega kvöldið fyrir fyrstu tónleika stúlknasveitarinnar Spice Girls árið 1998. Melanie skrifar um þetta í ævisögu sinni Who I Am og ræddi atvikið í hlaðvarpsþættinum How To Fail. 15.9.2022 08:30
Tveir nýir grunaðir í morðmáli sem fjallað var um í hlaðvarpinu Serial Saksóknarar í Baltimore í Bandaríkjunum segjast nú endurrannsaka morð sem unglingsdrengur var sakfelldur fyrir um aldamótin. Málið vakti gríðarlega athygli að nýju þegar um það var fjallað í hinu geysivinsæla glæpahlaðvarpi Serial. 15.9.2022 07:36