Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Að minnsta kosti níu látnir í mótmælunum í Íran Ekkert lát er á mótmælunum í Íran en mótmælendur kveiktu í lögreglustöðvum og bílum í höfuðborginni og öðrum borgum í dag. Minnst níu eru sagðir hafa látist eftir að mótmælin brutust út um helgina og hefur ríkisstjórnin lokað á samfélagsmiðla til að reyna að koma í veg fyrir að mótmælendur nái að tala sig saman. 22.9.2022 10:52
Ríkisstjórnin gekk út vegna samsæriskenninga umdeilds þingmanns Samsæriskenningar þar sem ýjað var að því að fjármálaráðherra Hollands væri njósnari á vegum vestrænna ríkja sem viðraðar voru í þingræðu í Hollandi í gær varð til þess að öll hollenska ríkisstjórnin gekk af þingfundi í mótmælaskyni. 22.9.2022 10:44
Kaþólikkar orðnir fleiri en mótmælendur á Norður-Írlandi Fleiri Norður-Írar telja sig nú kaþólikka en mótmælendur í fyrsta skipti samkvæmt nýbirtu manntali. Tölurnar eru taldar verða vatn á myllu þeirra sem berjast fyrir sameiningu Írlands. 22.9.2022 10:35
Stefna ríkisstjóra fyrir að senda þá á sumardvalareyju Venesúelskir hælisleitendur sem ríkisstjóri Flórída í Bandaríkjunum lét fljúga með frá Texas til lítils sumardvalarstaðar í Massachusetts hafa stefnt honum fyrir blekkingar og mismunun. Lögmaður þeirra sakar ríkisstjórann um notfæra sér þá sem pólitísk peð. 22.9.2022 09:15
Sagði mikilvægt að gefa Rússum ekki andrými til að efla varnir sínar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti virðist ekki gefa mikið fyrir tilraunir Rússa til að stigmagna átökin í Úkraínu með því að boða til herkvaðningar. 22.9.2022 07:23
„Held að íbúar í Íran séu komnir með meira en nóg af ríkisstjórninni“ Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Íran undanfarna daga eftir að ung kúrdísk kona dó í haldi lögreglu. Hún hafði verið handtekin fyrir að vera ekki klædd samkvæmt ströngum reglum klerkastjórnar Írans og dó í síðustu viku. 21.9.2022 23:03
Segir Pútín hafa gert „stór mistök“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) segir hótanir Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, um notkun kjarnorkuvopna vera „hættulegan og óábyrgan“ áróður. Hann segir að eina leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu sé að sýna Rússum það og sanna að þeir geti ekki sigrað í Úkraínu. 21.9.2022 20:27
Saka Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur höfðað mál gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og þremur elstu börnum hans, þeim Donald Trump yngri, Ivönku Trump og Eric Trump. Þau eru sökuð um umfangsmikil skatt- og bankasvik. 21.9.2022 18:29
Skýrasta myndin af Neptúnusi í þrjátíu ár Ekki frá því að könnunarfarið Voyager 2 flaug fram hjá fyrir meira en þrjátíu árum hafa menn fengið eins skarpa mynd af ísrisanum Neptúnusi og James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega af honum. Hringir plánetunnar og stærstu tungl eru greinileg á myndinni. 21.9.2022 14:55
Gefið í skyn að aðgerðum á hernumdum svæðum verði svarað fullum hálsi Orðræða rússneskra stjórnvalda hefur stigmagnast að mati sérfræðings í utanríkismálum, þar sem gefið er í skyn að hernaðaraðgerðum í úkraínskum héröðum sem Rússar hyggjast innlima verði svarað með öllum tiltækum ráðum. Tilkynnt var um herkvaðningu í Rússlandi í morgun. 21.9.2022 12:05
Gagnrýndur fyrir að syngja Bohemian Rhapsody stuttu fyrir jarðarförina Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur verið gagnrýndur síðustu daga fyrir að hafa sungið lag með hljómsveitinni Queen í hótelanddyri í London, tveimur dögum fyrir jarðarför Elísabetar II Bretlandsdrottningar. 21.9.2022 11:21
Danadrottning greinist með Covid í annað sinn Margrét Þórhildur Danadrottning hefur greinst með kórónuveiruna í annað sinn. 21.9.2022 10:40
Vaktin: Skiptu á verjendum Maríupól fyrir vin Pútíns Mikil eftirspurn er eftir flugferðum aðra leiðina frá Rússlandi eftir að Vladímír Pútín forseti tilkynnti í sjónvarpsávarpi að um 300.000 manns yrði kvaddir í herinn vegna stríðsins í Úkraínu í morgun. 21.9.2022 10:26
Segja herkvaðninguna til marks um misheppnaða aðgerð Rússa Ákvörðun Vladimir Pútín Rússlandsforseta að grípa til herkvaðningar er viðurkenning á því að innrásin í Úkraínu hefur ekki gengið eins og Rússar ætluðu. Þetta segja bæði talsmenn Úkraínustjórnar og Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands. 21.9.2022 08:33
Kveikti í sér til að mótmæla ríkisútför Abe Karlmaður á áttræðisaldri kveikti í sér nærri skrifstofu forsætisráðherra Japan til að mótmæla því að Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, fái ríkisútför. Ríkisútfarir í Japan kosta um það bil 1,4 milljarð íslenskra króna. 21.9.2022 08:07
Hundruð hvala stranda við Tasmaníu Um 230 grindhvalir hafa strandað á Ocean-ströndinni á Tasmaníu síðustu daga. Um helmingur þeirra er enn á lífi og verið er að vinna í því að koma þeim aftur í sjóinn. 21.9.2022 07:40
Konur brenna slæður sínar í Íran Íranskar konur hafa undanfarin fimm kvöld mótmælt hijab-lögum landsins eftir að 22 ára gömul kona lést í haldi lögreglu. Hún var handtekin fyrir að nota ekki hijab-slæðu á almannafæri en lést degi síðar. 21.9.2022 07:13
Fer aftur í mál við Trump vegna meintrar nauðgunar Rithöfundurinn E. Jean Carroll ætlar aftur í mál við Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna meintrar nauðgunar. Carroll skrifaði um meint atvik í bók sinni What Do We Need Men For? A Modest Proposalsem kom út árið 2019 en Trump sakaði hana um að ljúga um atvikið til að selja fleiri eintök af bókinni. 21.9.2022 06:38
Boðar herkvaðningu og hótar kjarnorkustríði Vesturlönd hafa sýnt að þau vilja ekki frið milli Rússlands og Úkraínu, sagði Vladimir Pútín Rússlandsforseti í ávarpi sínu til rússnesku þjóðarinnar í morgun. Hann sagði Vesturlönd vilja tortíma Rússlandi og sakaði þau um að nota Úkraínumenn sem fallbyssufóður. 21.9.2022 06:20
Neita að reyna að sanna hvort Trump hafi svipt leynd af gögnunum Alríkisdómari sem fenginn var til að fara yfir opinber og leynileg gögn sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) tóku af Donald Trump, fyrrverandi forseta, í ágúst þrýsti á dómara Trumps í dómsal í dag. Hann vildi að þeir færðu sannanir fyrir því að Trump hefði svipt leynd af gögnum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu og hvaða gögn um væri að ræða. 20.9.2022 22:53
Frestuðu ávarpi Pútíns um innlimun til morguns Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlaði að ávarpa þjóðina í kvöld en svo virðist sem hætt hafi verið við að birta ávarpið. Fyrst átti að ávarpið, sem ku hafa verið tekið upp fyrr í dag, klukkan fimm að íslenskum tíma. 20.9.2022 22:30
Rannsaka hreppaflutninga vonarstjörnu repúblikana á hælisleitendum Lögreglustjóri í Texas ætlar að kanna hvort að lög hafi verið brotin þegar ríkisstjóri Flórída lét fljúga tugum venesúelskra hælisleitenda þvert yfir landið til Massachusetts í síðustu viku. Vísbendingar hafa komið fram um að fólkið hafi verið beitt blekkingum um hvað biði þess þar. 20.9.2022 21:03
Ætla sér að kjósa um innlimun í Rússland Embættismenn í hersetnum héruðum í austan- og sunnanverðri Úkraínu ætla sér að halda atkvæðagreiðslu um að þau verði hluti af Rússlandi um helgina. Fyrrverandi forseti Rússlands segir innlimunina nauðsynlega til þess að hægt sé að beita öllum brögðum til að verja svæðin. 20.9.2022 14:54
Trump skipar Íslandi í flokk þriðja heims ríkja Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, gagnrýnir að Bandaríkjaforseta hafi verið skipað á bekk með þriðja heims leiðtogum við útför Bretadrottningar í gær. Bandarísku forsetahjónin sátu rétt fyrir aftan þau íslensku í kirkjunni. Trump telur að Bandaríkin hafi mátt þola vanvirðu sökum þessa. 20.9.2022 10:36
Foreldrar Madeleine McCann töpuðu hjá Mannréttindadómstólnum Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að foreldrar Madeleine McCann hafi fengið réttláta málsmeðferð í meiðyrðamáli sem þeir höfðuðu gegn lögreglumanni í Portúgal. 20.9.2022 09:21
Geimmiðstöð skemmdist þegar Nanmadol gekk yfir Japan Tveir eru látnir og yfir hundrað slasaðir eftir að hitabeltislægðin Nanmadol gekk yfir Japan. Samgöngur eru í lamasessi og víða er rafmagnslaust eftir óveðrið. Þá urðu skemmdir á eldflaugaverksmiðju japönsku geimstofnunarinnar JAXA. 20.9.2022 08:50
Lögreglubíll varð fyrir lest með handtekna konu í aftursætinu Kona sem lögregluþjónar í Colorado í Bandaríkjunum handtóku á föstudaginn slasaðist þegar lögreglubíll sem hún var í varð fyrir lest. Hún var ein í bílnum en lögregluþjónarnir höfðu lagt honum á lestarteinum, án þess að taka eftir því. 20.9.2022 08:00
Andlát Amini „óheppilegt atvik“ Lögreglan í Íran segir að dauði 22 ára konu sem lést í haldi lögreglu sé „óheppilegt atvik“. Lögreglan neitar að hafa beitt hana ofbeldi er hún var í haldi og segist hafa gert allt sem hægt var til að bjarga lífi hennar. 20.9.2022 07:56
Herinn í Mjanmar skaut sex skólabörn til bana Sex börn eru látin og sautján slösuð eftir að þyrla mjanmarska hersins skaut á skóla á Sagaing-svæðinu á föstudaginn. Herinn heldur því fram að uppreisnarmenn hafi notað skólann til að ráðast á hermenn. 20.9.2022 07:07
Sleppt úr fangelsi átta árum eftir útgáfu Serial Morðdómi Adnan Syed hefur verið snúið við af dómara eftir að saksóknarar fundu nýjar vísbendingar sem tengjast morði fyrrverandi kærustu hans. Mál Syeds varð frægt um heiminn allan eftir að fjallað var um það í hlaðvarpinu Serial sem birt var árið 2014. 19.9.2022 22:51
Stærðarinnar jarðskjálfti undan ströndum Mexíkó Stærðarinnar jarðskjálfti undan ströndum Mexíkó í kvöld. Skjálftinn mældist 7,6 stig og átti hann upptök í Kyrrahafinu, um 37 kílómetra frá ströndum Mexíkó og á 15,1 kílómetra dýpi. Sérfræðingar eiga von á flóðbylgjum en minnst einn er dáinn en sá varð undir vegg sem hrundi. 19.9.2022 20:36
Skemmdirnar á Púertó Ríkó sagðar hörmulegar Fellibylurinn Fíóna olli hörmulegum skemmdum á eyjunni Púertó Ríkó í dag. Ríkisstjóri eyjunnar segir eyðilegginguna hvað versta í þéttbýli og að minnst einn sé látinn. Enn sé þó ekki búið að ná að fullu utan um eyðilegginguna. 19.9.2022 19:05
Söguleg og tilfinningaþrungin athöfn: „Elísabet Bretlandsdrottning stóð sína plikt“ Íslensku forsetahjónin segja það heiður að hafa fengið að vera viðstödd útför Elísabetar II drottningar sem fór fram í dag. Það hafi verið tilfinningaþrungið og sögulegt, sjötíu ár Elísabetar í embætti hafi einkennst af þjónustu, samviskusemi og virðingu. Um fimm hundruð fulltrúar um tvö hundruð þjóða heims voru viðstaddir. Forsetafrúin náði að kasta kveðju á gamla kunningja, bandarísku forsetahjónin Jo og Jill Biden. 19.9.2022 17:03
Gefa ekki upp hvort þeir muni sætta sig við kosningaúrslit Á annan tug frambjóðenda Repúblikanaflokksins í þing- og ríkisstjórakosningum í haust vilja ekki taka af tvímæli um hvort þeir samþykki úrslitin þegar talið hefur verið upp úr kjörkössunum. Stór hluti flokksins afneitar enn úrslitum forsetakosninganna árið 2020. 19.9.2022 15:26
Leiðtogi hægrimanna fær stjórnarmyndunarumboð Ulf Kristersson, leiðtogi hægriflokksins Moderatarna, fékk formlegt umboð til að mynda nýja ríkisstjórn í Svíþjóð í dag. Hægriöfgaflokkurinn Svíþjóðardemókratarnir gætu tekið sæti í ríkisstjórn hægri blokkarinnar eða varið minnihlutastjórn falli. 19.9.2022 14:21
Methafi í samfelldri geimdvöl allur Rússneski geimfarinn Valeríj Poljakov sem á metið yfir lengstu samfelldu dvöl í geimnum er látinn, áttræður að aldri. Poljakov dvaldi í sovésku geimstöðinni Mír á braut um jörðu í rúma 437 daga samfleytt á tíunda áratug síðustu aldar. 19.9.2022 11:43
Saka Rússa um að skjóta flugskeyti að kjarnorkuveri Rússneskt flugskeyti er sagt hafa lent aðeins nokkur hundruð metra frá ofni Pivdennoukrainsk-kjarnorkuversins í sunnanverðri Úkraínu í dag. Kjarnaofnarnir hafi ekki skaddast en skemmdir hafi orðið á öðrum byggingum og búnaði. 19.9.2022 11:15
Fíóna sló út öllu rafmagni á Púertó Ríkó Allir íbúar Karíbahafseyjarinnar Púertó Ríkó voru án rafmagns þegar fellibylurinn Fíóna gekk yfir hana í gær. Mikil flóð og aurskriður fylgdu bylnum sem var fyrsta stigs fellibylur. 19.9.2022 10:26
Er hægt að svindla í skák með unaðstækjum ástarlífsins? Mikil ólga er nú innan skákheimsins eftir að Magnus Carlsen, margfaldur heimsmeistari og einn mesti núlifandi skákmeistari heims, hætti á dögunum þátttöku á Sinquefield-skákmótinu. 19.9.2022 08:35
Svona var dagurinn: Elísabet Bretlandsdrottning borin til grafar Útför Elísabetar II Bretlandsdrottningar fór fram í dag og var glæsileg útsending frá London sýnd á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Heimir Már Pétursson fréttamaður lýsti því sem fyrir augu bar í útsendingunni sem stóð í sex klukkustundir. 19.9.2022 08:00
Verið að opna Westminster Abbey fyrir hinum 2.000 sem sækja útförina Röðinni í Westminster Hall var lokað í gærkvöldi en talið er að um 300.000 manns hafi beðið allt að 17 tíma eftir að votta Elísabetu II Bretadrottningu virðingu sína. 19.9.2022 07:09
Segir að heimsfaraldrinum sé lokið Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að kórónuveiran sé enn vandamál en að staðan hafi breyst og að heimsfaraldrinum sé lokið. 19.9.2022 06:34
Fengu boðskort og þurftu ekki að bíða í röð Útför Elísabetar II Bretadrottningar verður á morgun. Hundruð þjóðarleiðtoga streyma nú til Lundúna þar sem fólk hefur beðið marga klukkutíma til að votta Elísabetu II Bretadrottningu virðingu sína. Á meðal þeirra eru Íslendingar sem segja drottninguna hafa átt stóran sess í sínu lífi. 18.9.2022 21:22
Hundruð þjóðarleiðtoga væntanlegir og rándýr öryggisgæsla á svæðinu Búist er við hundruðum þjóðarleiðtoga og hátt settum embættismönnum til London vegna útfarar Elísabetar II Bretlandsdrottningar. Kostnaður við öryggisgæslu við útförina geti numið meira en 6,4 milljónum punda. 18.9.2022 15:02
Biður samlanda sína um að snerta ekki útlendinga Wu Zunyou, yfirmaður hjá Sóttvarnarstofnun Kína, hefur varað Kínverja við því að snerta útlendinga í landinu. Í gær greindist apabóla í fyrsta sinn í Kína þrátt fyrir miklar ráðstafanir á landamærunum. 18.9.2022 14:39