Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sagt upp því áfanginn var of erfiður Kennara við Háskólann í New York var nýlega sagt upp eftir að nemendur hans kvörtuðu yfir því að áfangi hans væri of erfiður. Samstarfsmenn kennarans hafa kvartað yfir uppsögninni. 7.10.2022 08:33
Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Norska Nóbelsnefndin tilkynnir í dag hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels fyrir árið í ár. 7.10.2022 08:31
Stytturnar á Páskaeyju verulega skemmdar eftir bruna Nokkrar af heimsfrægu styttunum á Páskaeyju eru verulega skemmdar eftir sinubruna á svæðinu þar sem þær eru staðsettar. Talið er að eldurinn sé af mannavöldum. 7.10.2022 07:32
Óttast „ragnarök“ ef Pútín ákveður að nota kjarnorkuvopn Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur varað við því að heimsbyggðin gæti staðið frammi fyrir „ragnarökum“ ef Vladimir Pútín Rússlandsforseti ákveður að nota kjarnorkuvopn til að freista þess að vinna stríðið í Úkraínu. 7.10.2022 07:20
Fær frest til að semja endanlega um Twitter-kaupin Eftir að hafa barist fyrir því að kaupunum á samfélagsmiðlinum Twitter yrði rift fær auðjöfurinn Elon Musk nú frest til 28. október til að fjármagna kaupin. Umsamið kaupverð er 44 milljarðar bandaríkjadala en upphaflega stóð til að málið yrði tekið fyrir eftir 11 daga. Allar líkur voru taldar á því að Musk yrði gert að standa við upphaflegan samning en hann kveðst nú hafa vilja til að greiða, hann vanti aðeins tíma. 6.10.2022 23:54
Mannréttindaráðið hafnar að ræða brot Kínverja á úígúrum Meirihluti mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna hafnaði tillögu vestrænna ríkja um að ræða ætluð mannréttindabrot kínverskra stjórnvalda á úígúrum og öðrum múslimum í Xinjiang-héraði. Þetta er aðeins í annað skiptið í sögu ráðsins sem það hafnar tillögu af þessu tagi. 6.10.2022 23:46
Meirihluti frambjóðenda repúblikana afneitar kosningaúrslitunum Tæplega þrjú hundruð frambjóðendur Repúblikanaflokksins til kosninga til Bandaríkjaþings og ríkisembætta, meirihluti frambjóðenda flokksins, viðurkenna ekki úrslit forsetakosninganna árið 2020 eða efast um þau. Afar líklegt er að minnsta kosti rúmur helmingur þeirra nái kjöri. 6.10.2022 22:05
Náðar þá sem hafa hlotið dóma fyrir neysluskammta af maríjúana Joe Biden Bandaríkjaforseti ætlar að náða þúsundir Bandaríkjamanna sem hafa hlotið dóma fyrir alríkisdómstólum fyrir vörslu á neysluskömmtum á maríjúana. Hann hvetur ríkisstjóra einstakra ríkja til að fara að fordæmi hans varðandi dóma fyrir ríkisdómstólum. 6.10.2022 19:36
Leiðtogar Evrópu skerpa samstöðuna og Rússlandsforseti ráðvilltur Þrátt fyrir árangursríka gagnsókn Úkraínumanna í austur og suður Úkraínu halda Rússar áfram eldflaugaárásum á borgi og bæi. Rússlandsforseti virðist ráðvilltur en í dag komu leiðtogar rúmlega fjörutíu ríkja allt frá Íslandi til Tyrklands saman til að ræða samstarf í öryggis- og efnahagsmálum. 6.10.2022 19:21
Sigldu frá Síberíu til Alaska til að flýja herkvaðninguna Tveir rússneskir karlmenn óskuðu eftir hæli í Bandaríkjununum eftir að þeir sigldu yfir Beringshaf og tóku land á afskektri eyju undan ströndum Alaska. Þeir segjast hafa flúið herkvaðningu rússneskra stjórnvalda vegna innrásinnar í Úkraínu. 6.10.2022 18:50
Felldu enn einn háttsettan ISIS-liða Bandarískir sérsveitarmenn réðust í nótt til atlögu gegn háttsettum leiðtoga Íslamska ríkisins í Sýrlandi. Hermennirnir voru fluttir með þyrlum til þorpsins Muluk Saray, sem er skammt frá Qamishli og er á yfirráðasvæði Bashars al Assads, forseta Sýrlands. 6.10.2022 14:01
Anna Sorokin úr „Inventing Anna“ laus úr fangelsi Hinni rússnesku Önnu Sorokin, sem þekkt er fyrir að hafa svikið háar fjárhæðir frá fólki í New York í Bandaríkjunum, hefur verið sleppt úr fangelsi. Hún hefur verið flutt í stofufangelsi, verið gert að vera með ökklaband og meinað að vera á samfélagsmiðlum. 6.10.2022 13:18
Flugu herþotum að Suður-Kóreu Tólf herþotum var flogið frá Norður-Kóreu að landamærum Suður-Kóreu í morgun. Í suðri voru þrjátíu orrustuþotur sendar til móts við hinar en mikil spenna er á svæðinu vegna ítrekaðra eldflaugaskota frá Norður-Kóreu síðustu daga og heræfinga í Suður-Kóreu. 6.10.2022 12:25
Bein útsending: Hver fær bókmenntaverðlaun Nóbels? Sænska akademían tilkynnir í dag hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels. Tilkynnt verður um verðlaunahafa á fréttamannafundi sem hefst klukkan 11 að íslenskum tíma. 6.10.2022 10:31
Ian líklega mannskæðasti fellibylur Flórída frá 1935 Fellibylurinn Ian er líklega sá mannskæðasti sem gengið hefur yfir Flórída frá árinu 1935. Fjöldi dauðsfalla er enn á reiki og tala miðlar vestanhafs um að allt að 120 dauðsföll vegna fellibylsins hafi verið staðfest. Enn er verið að leita í rústum húsa. 6.10.2022 10:27
Að minnsta kosti 34 látnir eftir skotárás á leikskóla Að minnsta kosti 34 hafa látið lífið eftir skotárás á leikskóla í norðausturhluta Taílands. Bæði börn og fullorðnir eru meðal látnu. 6.10.2022 08:20
Innlimun, bakslag og yfirtaka Vladímír Pútín Rússlandsforseti skrifaði í gær undir síðustu skjölin sem fela í sér að Rússar innlimi fjögur héruð í Úkraínu, á sama tíma og rússneskar hersveitir hafa orðið fyrir bakslagi og áfram þurft að hörfa bæði í norðausturhluta og suðurhluta Úkraínu. 6.10.2022 07:38
Myrtu bæjarstjórann og sautján aðra Byssumenn brutu sér leið inn í ráðhús smábæjar í vesturhluta Mexíkó og skutu bæjarstjórann og sautján aðra til bana. Talið er að glæpagengi beri ábyrgð á árásinni. 6.10.2022 07:16
Bandaríkjamaður fékk ekki að hitta páfann og trylltist Bandarískur karlmaður braut tvær styttur er hann ferðaðist til Vatíkansins í gær. Maðurinn krafðist þess að fá að hitta páfann en þegar hann fékk ekki að gera það snöggreiddist hann. Maðurinn er nú í haldi ítölsku lögreglunnar. 6.10.2022 06:35
Saka samtök olíuútflutningsfyrirtækja um að styðja Rússa OPEC+ samtök olíuútflutningsríkja ákváðu í dag að draga verulega úr olíuframleiðslu til að bregðast við lækkandi olíuverði. Áhrifin á heimshagkerfið eru talin mikil og búist er við hækkunum á olíuverði eftir langþráðar lækkanir síðustu vikur. Ákvörðunin er högg fyrir Joe Biden Bandaríkjaforseta sem segir ákvörðunina til marks um skammsýni og sakar samtökin um að styðja Rússa með ákvörðuninni. 6.10.2022 00:12
Hlýnun gerði þurrka í sumar tuttugufalt líklegri en ella Þurrkar í þremur heimsálfum í sumar voru tuttugufalt líklegri til að eiga sér stað en ella vegna hnattrænnar hlýnunar. Stórfljót þornuðu upp, uppskerubrestur varð og skógareldar kviknuðu í þurrkunum í Evrópu, Kína og Bandaríkjunum. 5.10.2022 23:41
Telja Úkraínumenn hafa myrt dóttur ráðgjafa Pútíns Bandaríska leyniþjónustan telur að útsendarar úkraínskra stjórnvalda hafi staðið að bílsprengjuárás í Rússlandi sem varð dóttur ráðgjafa Vladímírs Pútín forseta að bana í sumar. Úkraínumenn eru sagðir hafa fengið skömm í hattinn frá bandamönnum sínum vegna tilræðisins. 5.10.2022 18:55
Vilja dæla vopnum til Taívans Ráðamenn í Bandaríkjunum vilja koma fyrir miklum birgðum af vopnum í Taívan ef ske kynni að Kínverjar reyndu að gera innrás þar. Markmiðið er að gera eyríkinu kleift að verjast innrás þrátt fyrir að Kínverjar einangri Taívan um langt skeið. 5.10.2022 17:09
Truss lofaði að koma Bretlandi „í gegnum storminn“ Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, reynir nú sitt besta til að fullvissa Breta um að ríkisstjórn hennar standi áfram sterk þrátt fyrir gagnrýni. Í ræðu sinni til Íhaldsmanna í dag sagði Truss að erfiðir dagar væru fram undan en lofaði að „koma Bretlandi í gegnum storminn.“ 5.10.2022 16:37
Bein útsending: Geimfarar sendir af stað til geimstöðvarinnar Bandaríska fyrirtækið SpaceX mun skjóta fjórum geimförum af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar í dag. Geimförunum verður skotið á loft um borð í Dragon-geimfari SpaceX með Falcon-9 eldflaug. 5.10.2022 15:01
Tökur hefjast að nýju eftir samkomulag við fjölskylduna Framleiðendur kvikmyndarinnar Rust hafa komist að samkomulagi við dánarbú kvikmyndatökukonunnar Halynu Hutchins um að fjölskylda hennar falli frá málsókn vegna dauða hennar. Hluti samkomulagsins felur í sér að framleiðsla kvikmyndarinnar fer aftur af stað. 5.10.2022 14:59
Rússar sagðir standa frammi fyrir tveimur slæmum kostum Einn af leppstjórum Rússlands á hernumdum svæðum í Kherson-héraði í Úkraínu viðurkenndi í morgun að hersveitir Rússa í héraðinu hefðu hörfað undan sókn Úkraínumanna. Ráðamenn í Rússlandi standa frammi fyrir tveimur slæmum valmöguleikum varðandi herkvaðningu. 5.10.2022 11:54
Frederiksen boðar til þingkosninga 1. nóvember Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur boðað til þingkosninga í landinu þann 1. nóvember næstkomandi. Frá þessu greindi forsætisráðherrann á blaðamannafundi klukkan 11 í morgun. 5.10.2022 10:35
Hljóta Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir á sviði smellefnafræði Efnafræðingarnir Carolyn R. Bertozzi frá Bandaríkjunum, Morten Meldal frá Danmörku and K. Barry Sharpless frá Bandaríkjunum hljóta Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. Þeir fá verðlaunin fyrir rannsóknir sínar á sviði smellefnafræði. 5.10.2022 09:52
Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði í ár. 5.10.2022 09:16
Suður-Kóreumenn svöruðu fyrir sig en báðust síðan afsökunar Fjórum eldflaugum var skotið frá Suður-Kóreu seint í gærkvöldi. Talið er að með eldflaugunum hafi Suður-Kóreumenn, ásamt Bandaríkjamönnum, verið að svara fyrir eldflaug sem nágrannar þeirra í norðri skutu í gær yfir Japan. Herinn baðst síðar afsökunar á einni eldflauginni. 5.10.2022 08:42
Fjórir látnir og 28 er saknað eftir snjóflóð í Himalaya-fjöllunum Að minnsta kosti fjórir létust í snjóflóði í Himalaya-fjöllunum í gær og er 28 manns enn saknað. Fólkið var í þjálfun í indverska hluta fjallanna þegar snjóflóðið féll. 5.10.2022 06:41
Segjast hafa fundið pyntingaklefa Rússa Lögreglan í Úkraínu segist hafa fundið pyntingaklefa í þorpinu Pisky-Radkivski í Kharkív-héraði. Þar að auki hafi fundist kassi með gulltönnum sem taldar eru hafa verið dregnar úr fórnarlömbum. 4.10.2022 23:45
Trump biður Hæstarétt um að skerast í leyniskjalaleikinn Lögmenn Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, báðu Hæstarétt Bandaríkjanna um að láta gerðardómara fara yfir aragrúa leyniskjala sem Trump hafði með sér úr Hvíta húsinu. Trump hefur áður haldið því fram að hann hafi haft vald til þess að aflétta leynd af skjölunum með því einu að hugsa um það. 4.10.2022 22:00
Tíu þúsund kílómetra hali eftir áreksturinn við geimfarið Um tíu þúsund kílómetra langur hali af braki gengur nú aftur úr smástirni sem bandarískt geimfar skall á í síðasta mánuði. Vísindamenn búast við því að halinn lengist og þynnist enn meira út þar til hann verður ekki lengur greinanlegur. 4.10.2022 21:08
Mannskaði í snjóflóði í Himalajafjöllum Að minnsta kosti fjórir fjallgöngumenn eru látnir og fjölda er saknað eftir að gönguhópur lenti í snjóflóði í Himalajafjöllum á Indlandi. Hluti hópsins er talinn fastur í jökulsprungu. 4.10.2022 19:41
Bandaríkjaforseti setur tugi milljarða í hernaðaraðstoð Joe Biden Bandaríkjaforseti hyggst setja aukinn kraft í hernaðaraðstoð. Bandaríkjamenn hyggist útvega Úkraínumönnum hergögn að andvirði 625 milljóna bandaríkjadala en þar á meðal eru HIMARS-eldflaugakerfi, skriðdrekar og stórskotaliðstæki. 4.10.2022 18:49
Neitar því að hafa borgað þungunarrof kærustu Herschel Walker, frambjóðandi Repúblikanaflokksins til annars öldungadeildarþingsætis Georgíu-ríkis, þvertekur fyrir það að hafa greitt fyrir þungunarrof fyrrverandi kærustu sinnar árið 2009. Því hefur verið haldið fram í fjölmiðlum vestanhafs en Walker segist mikill andstæðingur þess að konur eigi rétt á þungunarrofi. 4.10.2022 16:32
Talinn hafa svívirt lík rúmlega hundrað kvenna og stúlkna David Fuller, breskur rafvirki sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi í fyrra fyrir að myrða tvær konur árið 1987 og hefur játað að hafa svívirt 78 lík, hefur verið ákærður fyrir sextán brot til viðbótar. 4.10.2022 14:50
Skammast sín ekki fyrir að skipta um skoðun Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, segist ekki skammast sín fyrir að hafa dregið umdeilda tekjuskattslækkun til baka en hún hafi tekið ákvörðunina mjög fljótlega þar sem skattalækkunin hafi verið að draga athygli frá öðrum aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Hún sætir nú gagnrýni úr öllum áttum, þar á meðal innan raða eigin flokks. 4.10.2022 13:55
Úkraínuforseti segir æ fleiri Rússa leggja á flótta Úkraínuforseti segir að hersveitir hans sæki fram í suðri og austri og frelsi æ stærri svæði undan Rússum. Á sama tíma leggi fleiri rússneskir hermenn á flótta. Forseti Frakklands vill mynda pólitískt bandalag lýðræðisríkja í Evrópu og segir að það geti tekið Úkraínu nokkur ár eða áratugi að gerast meðlimir að Evrópusambandinu. 4.10.2022 13:14
Rússar á undanhaldi í suðri Úkraínskir hermenn virðast sækja hratt fram gegn Rússum í suðurhluta Úkraínu. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komið verði fram við Úkraínumenn sem búa í byggðum sem búið er að frelsa frá Rússum af sanngirni. 4.10.2022 13:13
Boðaði ekki til þingkosninga Danska þingið var sett í morgun eftir sumarhlé en fyrirfram bjuggust margir við að forsætisráðherrann Mette Frederiksen myndi nýta tækifærið í stefnuræðu sinni og boða til þingkosninga. Ekkert varð þó úr því. 4.10.2022 12:32
Hljóta Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði Eðlisfræðingarnir Alain Aspect frá Frakklandi, John F. Clauser frá Bandaríkjunum og Anton Zeilinger frá Austurríki hljóta Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár fyrir rannsóknir sínar á sviði skammtafræði. 4.10.2022 09:56
Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Sænska vísindaakademían mun í dag tilkynna um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði í ár. 4.10.2022 09:16