Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heiðursþingmaður sem lifði af dvöl í Auschwitz situr yfir fyrsta þingfundi ítalska þingsins Liliana Segre, 92 ára kona sem lifði af helförina mun sitja yfir fyrsta þingfundi ítalska þingsins eftir nýliðnar kosningar. Segre er heiðursþingmaður á ítalska þinginu og eina manneskja fjölskyldu sinnar sem lifði dvöl í Auschwitz af. Stjórnmálafólk Ítalíu sem hlaut kjör fyrir skömmu hefur verið gagnrýnt fyrir öfgafullar skoðanir og að sýna verkum Mussolini stuðning. 13.10.2022 11:40
Sprengjum rignir enn yfir borgir Úkraínu Ráðamenn í Kænugarði segja að það muni taka nokkrar vikur að gera að fullu við orkuver og dreifikerfi Úkraínu eftir umfangsmiklar árásir á innviði landsins í vikunni. Um þriðjungur rafmagnsinnviða landsins er sagður hafa orðið fyrir skemmdum og rafmagnsleysi er víða. 13.10.2022 10:05
Trump sagður hafa látið færa skjölin eftir að honum var stefnt Starfsmaður Donalds Trumps er sagður hafa tjáð alríkislögreglunni að fyrrverandi forsetinn hafi gefið skipanir um að færa kassa með skjölum sem hann hafði með sér úr Hvíta húsinu eftir að honum hafði verið stefnt til að skila þeim. Alríkislögreglan gerði síðar húsleit hjá Trump til að endurheimta skjölin. 13.10.2022 08:59
Villtum dýrum fækkað um 70 prósent á fimmtíu árum Villtum dýrum á jörðinni hefur fækkað um tæp 70 prósent á rétt tæpum fimmtíu árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu en þar er ofurneyslu mannfólks, minnkun skóglendis vegna ágangs manna og mengun þeirra kennt um þessa gríðarlegu fækkun dýra. 13.10.2022 07:53
143 af 193 aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna fordæma „innlimun“ Rússa 143 af 193 ríkjum sem eiga aðild að Sameinuðu þjóðunum greiddu atkvæði með því í gær að fordæma ólögmæta innlimun Rússa á fjórum héruðum í Úkraínu. 13.10.2022 07:11
Sögð hafa gert tilraun til þess að myrða sama nýburann fjórum sinnum Þriðji dagur réttarhalda yfir breska hjúkrunarfræðingnum Lucy Letby fóru fram í dag. Letby er sökuð um að hafa myrt sjö nýbura og gert tilraun til þess að myrða tíu til viðbótar á nýburadeild spítala sem hún vann á. Verknaðurinn er sagður hafa átt sér stað á milli júní 2015 og 2016. 13.10.2022 00:04
Úkraína fær háþróuð loftvarnarkerfi frá bandamönnum Bandamenn Úkraínu í NATO munu senda úkraínska hernum aukinn og háþróaðan herbúnað til að efla loftvarnarbúnað hersins. Ástæðan er aukning í eldflaugaárásum Rússa á skotmörk ú Úkraínu. 12.10.2022 23:30
Kunna að hafa grandað sjálfum sér með loftslagsbreytingum á Mars Hugsanlegt er að örverur kunni að hafa valdið eigin útrýmingu á Mars með því að breyta loftslagi reikistjörnunnar. Hópur vísindamanna hefur greint þrjá staði þar sem þeir telja mestar líkur á að finna merki um örverurnar, ef þær þrifust þá einhvern tímann þar. 12.10.2022 21:00
Þarf að greiða fjölskyldum fórnarlamba tæpan milljarð dollara vegna samsæriskenninga Bandaríski fjölmiðlamaðurinn og samsæriskenningasmiðurinn Alex Jones hefur verið dæmdur til að greiða fjölskyldum barna sem myrt voru í skotárásinni í Sandy Hook í Bandaríkjunum tæpan milljarð dollara í skaðabætur. 12.10.2022 20:22
Lögðu hald á margar þrívíddarprentaðar byssur og íhluti Lögregluþjónar í Lundúnum lögðu nýverið hald á magar þrívíddarprentaðar byssur og mikið magn skotfæra, sem talið er að sé stærsti slíki fundur í sögu Bretlands. Vopnin og íhlutir til að framleiða fleiri vopn fundust í íbúð í borginni en lögreglan telur að umfangsmikil framleiðsla slíkra skotvopna hafi átt sér stað þar. 12.10.2022 16:43
Heitir Sádum afleiðingum vegna skerðingar á olíuframleiðslu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hét því í gær að ákvörðun OPEC+ ríkjanna svokölluðu um að draga verulega úr olíuframleiðslu myndi hafa afleiðingar fyrir Sádi-Arabíu, sem leiða samtökin og eiga að heita bandalagsríki Bandaríkjanna. Þingmenn Demókrataflokksins hafa kallað eftir því að Bandaríkin frysti allt varnarsamstarf með einræðisríkinu. 12.10.2022 15:49
Telur það slæma hugmynd að skipta kjarnorku út fyrir kol Sænski umhverfisverndaraðgerðarsinninn Greta Thunberg varar við því að þýsk stjórnvöld loki kjarnorkuverum og framleiði í staðinn raforku með kolum. Til stendur að loka þremur þýskum kjarnorkuverum fyrir árslok á sama tíma og gömul kolaorkuver eru vakin upp frá dauðum. 12.10.2022 14:54
Lögregluþjónn ákærður eftir skothríð á tvo táninga Saksóknarar í San Antonio í Texas í Bandaríkjunum ákærðu í gær lögregluþjón sem skaut sautján ára dreng á bílastæði við McDonalds um þar síðustu helgi, 2. október. James Brennand, lögregluþjóninn, skaut hinn sautján ára gamla Erik Cantu, sem liggur á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi. 12.10.2022 13:46
Bosnía fær stöðu umsóknarríkis hjá ESB Bosnía hefur fengið formlega stöðu umsóknarríkis hjá Evrópusambandinu. Þetta staðfestir Oliver Varhelyi, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá ESB í dag. 12.10.2022 13:19
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Þagga niður í óánægjuröddum með árásum á óbreytta borgara Litlar breytingar hafa orðið á víglínunum í Úkraínu síðustu daga, eða síðan Úkraínumenn náðu töluverðum og hröðum árangri í bæði suðurhluta og austurhluta landsins. Harðir bardagar eru sagðir hafa átt sér stað víðsvegar í landinu þar sem Rússar eru sagðir hafa gert gagnárás gegn Úkraínumönnum í austri og Úkraínumenn eru sagðir hafa frelsað nokkur þorp í Kherson-héraði. 12.10.2022 11:36
Fær tvo daga til viðbótar til að sauma saman nýja stjórn Forseti sænska þingsins hefur veitt Ulf Kristersson, formanni hægriflokksins Moderaterna, tveggja daga frest til að setja saman ríkisstjórn borgaralegra flokka. Tveggja vikna frestur, sem þingsforsetinn Andreas Norlén veitti Kristersson til stjórnarmyndunar í síðasta mánuði, rann út í dag. 12.10.2022 10:36
Forseti Perú ákærður fyrir spillingu Saksóknari í Perú hefur ákært forseta landsins, Pedro Castillo, fyrir spillingu. Samkvæmt ákærunni á forsetinn að tilheyra glæpasamtökum, en forsetinn sjálfur neitar sök í málinu. 12.10.2022 09:05
Adnan Syed hreinsaður af sök Hinn bandaríski Adnan Syed, sem hefur setið í fangelsi í 23 ár fyrir á morðið á fyrrverandi kærustu sinni, hefur verið hreinsaður af sök. Mál Syeds vakti heimsathygli í rannsóknarhlaðvarpinu Serial, sem kom út fyrir átta árum síðan. 12.10.2022 08:00
Segir Pútín sýna rökhugsun en hafa stórkostlega misreiknað stöðuna í Úkraínu Joe Biden Bandaríkjaforseti segir Vladimir Pútín Rússlandsforseta sýna rökhugsun en hann hafi hins vegar stórkostlega misreiknað þegar hann ákvað að ráðast inn í Úkraínu. Þá segir forsetinn hótanir Rússa um notkun kjarnorkuvopna mögulega geta leitt til hörmulegra mistaka. 12.10.2022 07:12
Rússneska leyniþjónustan handtekur átta vegna sprengingarinnar á Kerch brú Rússneska leyniþjónustan FSB hefur handtekið fimm Rússa og þrjá úkraínska- og/eða armenska ríkisborgara vegna sprengingarinnar á Kerch brúnni á laugardag. Brúin skemmdist allnokkuð í sprenginunni en hluti hennar féll í Kerch sundið. 12.10.2022 06:48
NASA tókst að stýra smástirni af braut en það kostaði 47 milljarða króna Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur tilkynnt að tilraun á nýrri aðferð þeirra til þess að afstýra smástirnum sem séu á leið til Jarðar hafi tekist. Stofnunin framkvæmdi tilraunina sjálfa fyrir um tveimur vikum síðan og kostaði hún 325 milljónir Bandaríkjadala eða 47,5 milljarða króna. 11.10.2022 21:09
Spáir snöggri lækkun á fasteignaverði Íslenskur hagfræðingur hjá London School of Economics í Bretlandi segir að fasteignaverð þar og hér á landi geti lækkað mjög snögglega vegna mikilla vaxtahækkana. Nái spár alþjóðlegra fjármálastofnana um samdrátt á næsta ári fram að ganga hefði það mjög fljótlega áhrif á íslenskan efnahag. 11.10.2022 19:46
Karl III verði krýndur næsta vor Karl III Bretlandskonungur verður krýndur þann 6. maí næstkomandi. Hann hefur sinnt embætti konungs frá andláti móður sinnar Elísabetar II Bretlandsdrottningar í september síðastliðnum. 11.10.2022 17:57
Íhuga að skattleggja beljurop Ríkisstjórn Nýja-Sjálands lagði til að skattleggja losun gróðurhúsalofttegunda frá húsdýrahaldi í dag. Búfjárbændur hafa brugðist ókvæða við tillögunni sem þeir fullyrða að leiddi til atgervisflótta úr stéttinni. 11.10.2022 13:59
Þurfa að stórauka framlög til endurnýjanlegrar orku og aðlögunar Þjóðir heims þurfa að þrefalda framlög sín til uppbyggingar endurnýjanlegrar orkugjafar og tvöfalda framleiðslu á hreinni orku á næstu átta árum til þess að hægt verði að ná loftslagsmarkmiðum. Á sama tíma ógna loftslagsbreytingar orkuinnviðum heimsins. 11.10.2022 13:01
Úkraínuforseti segir árásir Rússa sameina þjóðina Forseti Úkraínu segir að Rússum muni ekki takast að hræða Úkraínumenn til undirgefni með eldflaugaárásum á saklausan almenning og innviði samfélagsins. Árásirnar herði andstöðuna við innrás Rússa og sameini þjóðina enn frekar. 11.10.2022 11:22
Sögulegar sættir í landamæradeilu Ísraels og Líbanons Yair Lapid, forsætisráðherra Ísraels, segir að sögulegt samkomulag hafi náðst við Líbanon sem bindur enda á áratugalangar deilur ríkjanna um markalínur á sjó á milli nágrannaríkjanna tveggja. Ríkin hafa verið svarnir óvinir um árabil. 11.10.2022 10:52
Telja sig geta varist flugskeytum frá nágrönnum sínum Suðurkóreski herinn fullyrðir að hann sé fær um að koma auga á og stöðva flugskeyti sem Norðurkóreumenn hafa gert tilraunir með upp á síðkastið. Alvarleg hætta stafi engu að síður af kjarnorkubrölti nágrannanna í norðri. 11.10.2022 08:40
Stríðshaukar í Kreml krefjast skæðari árása í Úkraínu Embættismenn og stuðningsmenn stríðsreksturs Rússa í Úkraínu hafa fagnað mannskæðum árásum um alla Úkraínu í gær. Rússneski herinn hefur undanfarnar vikur verið harðlega gagnrýndur af hópi manna í Kreml vegna þess hve honum hefur gengið illa á vígvellinum undanfarnar vikur. 11.10.2022 08:38
Tugir látnir eftir aurskriður í Venesúela Yfirvöld í Venesúela hafa staðfest að 36 hafa fundist látnir og að 56 sé enn saknað eftir að aurskriður skullu á hús í bænum Las Tejerías. 11.10.2022 08:35
Breskur hjúkrunarfræðingur grunaður um að hafa myrt sjö ungabörn Réttarhöld eru hafin á Bretlandseyjum yfir hjúkrunarfræðingi sem er sakaður um að hafa myrt sjö nýfædd börn og reynt að myrða tíu önnur á Countess of Chester-sjúkrahúsinu í Chester. 11.10.2022 08:16
Á þriðja tug hafa farist vegna fellibyljar í Mið-Ameríku Minnst 28 hafa látist í gríðarlegum rigningum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Fellibylurinn Júlía sem gekk yfir svæðið hefur misst kraft sinn en enn rignir mikið í bæði Gvatemala og El Salvador. 11.10.2022 07:49
Minnst fimmtán sprengjur féllu í Zaporizhzhia í nótt Minnst fimmtán sprengjur féllu í borginni Zaporizhzhia í suðurhluta Úkraínu í nótt. Að sögn varautanríkisráðherra landsins var sprengjunum beint að íbúðabyggingum, menntastofnunum og sjúkrahúsum. 11.10.2022 06:33
Hróp og köll gerð að forstjórum Air France og Airbus vegna flugslyssins mannskæða fyrir þrettán árum Aðstandendur þeirra sem létust þegar Airbus-þota franska flugfélagsins Air France hrapaði í Atlantshaf árið 2009 gerðu hróp og köll að forstjórum flugvélaframleiðandans og flugfélagsins þegar dómsmál vegna flugslysins hófst í Frakklandi í dag. 10.10.2022 22:23
Bandaríkjamenn aðstoða Úkraínu við loftvarnir Bandaríkjaforseti fordæmir eldflaugaárásir Rússa sem fram fóru í dag. Bandaríkjamenn halda áfram stuðningi og hyggjast gefa Úkraínumönnum háþróuð loftvarnarkerfi. 10.10.2022 21:33
Vesturlönd þurfi að bregðast við: „Það er strategískt verið að ráðast á saklausa borgara“ Utanríkisráðherra segir árásir Rússa á úkraínskar borgir í morgun skýrt dæmi um að átökin séu að stigmagnast. Ljóst sé að Rússar hafi gerst sekir um stríðsglæpi með árásum á almenna borgara. Vesturlöndin þurfi að bregðast við en fórnarkostnaður þeirra sé sáralítill í samanburði við það sem úkraínska þjóðin sé að ganga í gegnum. 10.10.2022 21:16
Evrópusambandið framlengir vernd yfir Úkraínumönnum á flótta Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen lýsti fyrr í dag yfir andúð sinni vegna sprenginga Rússa í Úkraínu í morgun. Framkvæmdastjórnin hefur nú búið til gagnagrunn sem gerir þeim sem eru á flótta vegna stríðsins aukinn möguleika á því að finna sér vinnu. Einnig verði vernd yfir Úkraínumönnum á flótta endurnýjuð til ársins 2024. 10.10.2022 16:32
Fjölskylda Amini fær líflátshótanir Hótunum hefur rignt yfir fjölskyldu Möhsu Amini, 22 ára gamallar konu sem lést í haldi siðgæðislögreglu Íran. Fjölskyldan segir að klerkastjórnin beiti hana þrýstingi að ræða ekki við mannréttindasamtök eða koma nálægt mótmælunum sem brutust út vegna dauða Amini. 10.10.2022 16:01
Alþjóðasamfélagið lýsir yfir andúð sinni og segir árásina stríðsglæp Að minnsta kosti 11 eru látin og 64 særð eftir sprengingar Rússa í Úkraínu nú í morgun. Vladímír Pútín forseti Rússlands segir árásunum hafa verið beint að innviðum Úkraínu en það hafi verið gert til að svara sprengingar við Kertsj-brúna. Alþjóðasamfélagið hefur kallað aðgerðirnar stríðsglæp. 10.10.2022 14:55
Pútín og Selenskí saka hvor annan um hryðjuverk á víxl Sprengingar skóku Kænugarð og fleiri borgir í Úkraínu í morgun þar sem Rússar svöruðu fyrir árásina á Kerch brúna um helgina. Vólódimír Selenskí og Vladimír Putín saka hvor annan um hryðjuverk á víxl en Evrópusambandið hefur fordæmt árásirnar og leiðtogar G7 ríkjanna funda með Selenskí á morgun. 10.10.2022 12:39
Réttað yfir Weinstein vegna Óskarsmála Byrjað verður að velja kviðdómendur fyrir réttarhöld yfir Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðandanum alræmda, í Los Angeles í Bandaríkjunum í dag. Weinstein er ákærður fyrir að brjóta á fimm konum, meðal annars í kringum Óskarsverðlaunahátíð fyrir níu árum. 10.10.2022 11:20
Æfðu notkun kjarnavopna til að „gereyða“ óvinunum Stjórnvöld í Pjongjang í Norður-Kóreu staðfesta að nýlegar eldflaugatilraunir þeirra hafi verið æfing í notkun skammdrægra kjarnavopna gegn suður-kóreskum og bandarískum skotmörkum. Kim Jong-un, einræðisherra landsins, boðar frekari slíkar tilraunir. 10.10.2022 10:35
Konur og börn flest þeirra sem fórust í ferjuslysi í Nígeríu Að minnsta kosti 76 fórust þegar ferju hvolfdi í Anambra-ríki í suðausturhluta Nígeríu á föstudag. Flest þeirra látnu voru konur og börn sem voru að reyna að komast undan flóðum sem hafa gert á svæðinu. 10.10.2022 09:04
Ákærð fyrir að láta vin sinn myrða föður sinn Réttarhöld hófust á Spáni í vikunni yfir 19 ára stúlku sem er ákærð fyrir að hafa ginnt rúmlega tvítugan mann til þess að myrða föður sinn. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi í tvö ár, en er ekki ákærður þrátt fyrir að játa að hafa orðið föður sínum að bana. 10.10.2022 08:00
„Þeir reyna að tortíma okkur og þurrka út af yfirborði jarðar“ Sprengjuárásir rússneska hersins á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í morgun sýna fram á að Rússar séu að reyna að tortíma Úkraínumönnum og þurrka þeim út af yfirborði jarðar. 10.10.2022 07:50