Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rússneska leyniþjónustan handtekur átta vegna sprengingarinnar á Kerch brú Rússneska leyniþjónustan FSB hefur handtekið fimm Rússa og þrjá úkraínska- og/eða armenska ríkisborgara vegna sprengingarinnar á Kerch brúnni á laugardag. Brúin skemmdist allnokkuð í sprenginunni en hluti hennar féll í Kerch sundið. 12.10.2022 06:48
NASA tókst að stýra smástirni af braut en það kostaði 47 milljarða króna Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) hefur tilkynnt að tilraun á nýrri aðferð þeirra til þess að afstýra smástirnum sem séu á leið til Jarðar hafi tekist. Stofnunin framkvæmdi tilraunina sjálfa fyrir um tveimur vikum síðan og kostaði hún 325 milljónir Bandaríkjadala eða 47,5 milljarða króna. 11.10.2022 21:09
Spáir snöggri lækkun á fasteignaverði Íslenskur hagfræðingur hjá London School of Economics í Bretlandi segir að fasteignaverð þar og hér á landi geti lækkað mjög snögglega vegna mikilla vaxtahækkana. Nái spár alþjóðlegra fjármálastofnana um samdrátt á næsta ári fram að ganga hefði það mjög fljótlega áhrif á íslenskan efnahag. 11.10.2022 19:46
Karl III verði krýndur næsta vor Karl III Bretlandskonungur verður krýndur þann 6. maí næstkomandi. Hann hefur sinnt embætti konungs frá andláti móður sinnar Elísabetar II Bretlandsdrottningar í september síðastliðnum. 11.10.2022 17:57
Íhuga að skattleggja beljurop Ríkisstjórn Nýja-Sjálands lagði til að skattleggja losun gróðurhúsalofttegunda frá húsdýrahaldi í dag. Búfjárbændur hafa brugðist ókvæða við tillögunni sem þeir fullyrða að leiddi til atgervisflótta úr stéttinni. 11.10.2022 13:59
Þurfa að stórauka framlög til endurnýjanlegrar orku og aðlögunar Þjóðir heims þurfa að þrefalda framlög sín til uppbyggingar endurnýjanlegrar orkugjafar og tvöfalda framleiðslu á hreinni orku á næstu átta árum til þess að hægt verði að ná loftslagsmarkmiðum. Á sama tíma ógna loftslagsbreytingar orkuinnviðum heimsins. 11.10.2022 13:01
Úkraínuforseti segir árásir Rússa sameina þjóðina Forseti Úkraínu segir að Rússum muni ekki takast að hræða Úkraínumenn til undirgefni með eldflaugaárásum á saklausan almenning og innviði samfélagsins. Árásirnar herði andstöðuna við innrás Rússa og sameini þjóðina enn frekar. 11.10.2022 11:22
Sögulegar sættir í landamæradeilu Ísraels og Líbanons Yair Lapid, forsætisráðherra Ísraels, segir að sögulegt samkomulag hafi náðst við Líbanon sem bindur enda á áratugalangar deilur ríkjanna um markalínur á sjó á milli nágrannaríkjanna tveggja. Ríkin hafa verið svarnir óvinir um árabil. 11.10.2022 10:52
Telja sig geta varist flugskeytum frá nágrönnum sínum Suðurkóreski herinn fullyrðir að hann sé fær um að koma auga á og stöðva flugskeyti sem Norðurkóreumenn hafa gert tilraunir með upp á síðkastið. Alvarleg hætta stafi engu að síður af kjarnorkubrölti nágrannanna í norðri. 11.10.2022 08:40
Stríðshaukar í Kreml krefjast skæðari árása í Úkraínu Embættismenn og stuðningsmenn stríðsreksturs Rússa í Úkraínu hafa fagnað mannskæðum árásum um alla Úkraínu í gær. Rússneski herinn hefur undanfarnar vikur verið harðlega gagnrýndur af hópi manna í Kreml vegna þess hve honum hefur gengið illa á vígvellinum undanfarnar vikur. 11.10.2022 08:38
Tugir látnir eftir aurskriður í Venesúela Yfirvöld í Venesúela hafa staðfest að 36 hafa fundist látnir og að 56 sé enn saknað eftir að aurskriður skullu á hús í bænum Las Tejerías. 11.10.2022 08:35
Breskur hjúkrunarfræðingur grunaður um að hafa myrt sjö ungabörn Réttarhöld eru hafin á Bretlandseyjum yfir hjúkrunarfræðingi sem er sakaður um að hafa myrt sjö nýfædd börn og reynt að myrða tíu önnur á Countess of Chester-sjúkrahúsinu í Chester. 11.10.2022 08:16
Á þriðja tug hafa farist vegna fellibyljar í Mið-Ameríku Minnst 28 hafa látist í gríðarlegum rigningum í Mið-Ameríku undanfarna daga. Fellibylurinn Júlía sem gekk yfir svæðið hefur misst kraft sinn en enn rignir mikið í bæði Gvatemala og El Salvador. 11.10.2022 07:49
Minnst fimmtán sprengjur féllu í Zaporizhzhia í nótt Minnst fimmtán sprengjur féllu í borginni Zaporizhzhia í suðurhluta Úkraínu í nótt. Að sögn varautanríkisráðherra landsins var sprengjunum beint að íbúðabyggingum, menntastofnunum og sjúkrahúsum. 11.10.2022 06:33
Hróp og köll gerð að forstjórum Air France og Airbus vegna flugslyssins mannskæða fyrir þrettán árum Aðstandendur þeirra sem létust þegar Airbus-þota franska flugfélagsins Air France hrapaði í Atlantshaf árið 2009 gerðu hróp og köll að forstjórum flugvélaframleiðandans og flugfélagsins þegar dómsmál vegna flugslysins hófst í Frakklandi í dag. 10.10.2022 22:23
Bandaríkjamenn aðstoða Úkraínu við loftvarnir Bandaríkjaforseti fordæmir eldflaugaárásir Rússa sem fram fóru í dag. Bandaríkjamenn halda áfram stuðningi og hyggjast gefa Úkraínumönnum háþróuð loftvarnarkerfi. 10.10.2022 21:33
Vesturlönd þurfi að bregðast við: „Það er strategískt verið að ráðast á saklausa borgara“ Utanríkisráðherra segir árásir Rússa á úkraínskar borgir í morgun skýrt dæmi um að átökin séu að stigmagnast. Ljóst sé að Rússar hafi gerst sekir um stríðsglæpi með árásum á almenna borgara. Vesturlöndin þurfi að bregðast við en fórnarkostnaður þeirra sé sáralítill í samanburði við það sem úkraínska þjóðin sé að ganga í gegnum. 10.10.2022 21:16
Evrópusambandið framlengir vernd yfir Úkraínumönnum á flótta Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen lýsti fyrr í dag yfir andúð sinni vegna sprenginga Rússa í Úkraínu í morgun. Framkvæmdastjórnin hefur nú búið til gagnagrunn sem gerir þeim sem eru á flótta vegna stríðsins aukinn möguleika á því að finna sér vinnu. Einnig verði vernd yfir Úkraínumönnum á flótta endurnýjuð til ársins 2024. 10.10.2022 16:32
Fjölskylda Amini fær líflátshótanir Hótunum hefur rignt yfir fjölskyldu Möhsu Amini, 22 ára gamallar konu sem lést í haldi siðgæðislögreglu Íran. Fjölskyldan segir að klerkastjórnin beiti hana þrýstingi að ræða ekki við mannréttindasamtök eða koma nálægt mótmælunum sem brutust út vegna dauða Amini. 10.10.2022 16:01
Alþjóðasamfélagið lýsir yfir andúð sinni og segir árásina stríðsglæp Að minnsta kosti 11 eru látin og 64 særð eftir sprengingar Rússa í Úkraínu nú í morgun. Vladímír Pútín forseti Rússlands segir árásunum hafa verið beint að innviðum Úkraínu en það hafi verið gert til að svara sprengingar við Kertsj-brúna. Alþjóðasamfélagið hefur kallað aðgerðirnar stríðsglæp. 10.10.2022 14:55
Pútín og Selenskí saka hvor annan um hryðjuverk á víxl Sprengingar skóku Kænugarð og fleiri borgir í Úkraínu í morgun þar sem Rússar svöruðu fyrir árásina á Kerch brúna um helgina. Vólódimír Selenskí og Vladimír Putín saka hvor annan um hryðjuverk á víxl en Evrópusambandið hefur fordæmt árásirnar og leiðtogar G7 ríkjanna funda með Selenskí á morgun. 10.10.2022 12:39
Réttað yfir Weinstein vegna Óskarsmála Byrjað verður að velja kviðdómendur fyrir réttarhöld yfir Harvey Weinstein, kvikmyndaframleiðandanum alræmda, í Los Angeles í Bandaríkjunum í dag. Weinstein er ákærður fyrir að brjóta á fimm konum, meðal annars í kringum Óskarsverðlaunahátíð fyrir níu árum. 10.10.2022 11:20
Æfðu notkun kjarnavopna til að „gereyða“ óvinunum Stjórnvöld í Pjongjang í Norður-Kóreu staðfesta að nýlegar eldflaugatilraunir þeirra hafi verið æfing í notkun skammdrægra kjarnavopna gegn suður-kóreskum og bandarískum skotmörkum. Kim Jong-un, einræðisherra landsins, boðar frekari slíkar tilraunir. 10.10.2022 10:35
Konur og börn flest þeirra sem fórust í ferjuslysi í Nígeríu Að minnsta kosti 76 fórust þegar ferju hvolfdi í Anambra-ríki í suðausturhluta Nígeríu á föstudag. Flest þeirra látnu voru konur og börn sem voru að reyna að komast undan flóðum sem hafa gert á svæðinu. 10.10.2022 09:04
Ákærð fyrir að láta vin sinn myrða föður sinn Réttarhöld hófust á Spáni í vikunni yfir 19 ára stúlku sem er ákærð fyrir að hafa ginnt rúmlega tvítugan mann til þess að myrða föður sinn. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi í tvö ár, en er ekki ákærður þrátt fyrir að játa að hafa orðið föður sínum að bana. 10.10.2022 08:00
„Þeir reyna að tortíma okkur og þurrka út af yfirborði jarðar“ Sprengjuárásir rússneska hersins á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í morgun sýna fram á að Rússar séu að reyna að tortíma Úkraínumönnum og þurrka þeim út af yfirborði jarðar. 10.10.2022 07:50
Van der Bellen endurkjörinn sem forseti Austurríkis Alexander Van der Bellen var endurkjörinn sem forseti Austurríkis í forsetakosningum sem fram fóru í gær. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum frá innanríkisráðuneyti landsins fékk van der Bellen hreinan meirihluta atkvæða, en sjö voru í framboði. 10.10.2022 07:16
Árásir á óbreytta borgara skelfilegar Vladímír Pútín, forseti Rússlands segir árásir morgunsins hafa verið svar Rússa við árásinni á Kertsj-brúna. Árásinni hafi verið beint að samskipta-, orku- og hernaðarinnviðum Úkraínumanna. 10.10.2022 06:35
Senda kafara til að kanna skemmdir á Kerch brúnni Rússar hyggjast senda kafara til að kanna skemmdir á Kerch brúnni í dag. Brúin varð fyrir kraftmikilli sprengingu í gærmorgun og hluti hennar féll í sundið. Brúin er sögð táknmynd hernáms Rússa á Krímskaga en hún tengir skagann viðmeginland Rússlands og er mikilvæg birgðaflutningaleið fyrir Rússa. 9.10.2022 07:54
Eldflaugaskot Norður-Kóreumanna óásættanleg Norður-Kóreumenn skutu tveimur skammdrægum eldflaugum á loft í dag. Eldflaugarnar höfnuðu úti í sjó milli Norður-Kóreu og Japan og drifu um 350 kílómetra langt. Japanir segja tilraunirnar óásættanlegar. 8.10.2022 23:54
Börn meðal tíu látinna eftir sprengingu á Írlandi Tíu létust í sprengingu sem varð á bensínstöð í Donegal á Írlandi í gær. Barn og ungmenni eru meðal látinna. Forsætisráðherra segir þjóðina í sárum. 8.10.2022 22:55
Óskaði Pútín til hamingju með afmælið eftir sprenginguna Háttsettur embættismaður í Úkraínu birti mynd af sprengingunni á Kerch brúnni sem varð fyrr í morgun og óskaði Rússlandsforseta til hamingju með afmælið. Úkraínumenn hafa ekki lýst formlega yfir ábyrgð en sprengingin er sögð mikið högg fyrir Rússa. 8.10.2022 21:22
Villtum dýrum í Evrópu fjölgar á ný Aðgerðir til að fyrirbyggja útrýmingu villtra dýra hafa gefist afar vel á síðustu áratugum og nú er svo komið að dýr sem fyrir fáum áratugum voru í útrýmingarhættu farnast vel í villtri náttúru Evrópu. Evrópusambandið hyggst setja aðildarríkjum sínum enn strangari kröfur til að styrkja tilvist villtra dýra. 8.10.2022 16:18
Rússar segja þrjá hafa dáið í sprengingunni á Kerch brú Rússnesk yfirvöld halda því fram að þrír hafi dáið þegar sendiferðarbíll sprakk í loft upp á brúnni yfir Kerch sund í nótt, brúnni sem tengir Rússland við Krímskaga. Hluti brúarinnar féll í sprengingunni og hefur annar hluti staðið í ljósum logum síðan sprengingin varð. 8.10.2022 11:54
Sjö létust í sprengingu á Írlandi Minnst sjö eru látnir eftir að sprenging varð á bensínstöð í Donegal á Írlandi. Átta til viðbótar liggjá á sjúkrahúsi vegna sára sem þeir hlutu í sprengingunni. 8.10.2022 09:31
Brúin sem tengir Rússland við Krím stendur í ljósum logum Kerch brúin sem tengir Rússland við Krímskagann í Úkraínu stendur í ljósum logum eftir að gríðarstór sprenging varð fyrr í morgun. Brúin er sögð táknmynd hernáms Rússa á Krímskaga og hötuð af Úkraínumönnum. 8.10.2022 07:31
Einangraður einræðisherra sjötugur í dag Lík fimm hundruð þrjátíu og fjögurra, þar af nítján barna, hafa fundist í fjöldagröf á nýfrelsuðum svæðum í Kharkiv héraði í Úkraínu. Einnig hafa fundist rúmlega tuttugu staðir þar sem greinilegt er að rússneska hernámsliðið hafði stundað pyndingar á fólki. Leiðtogar Evrópusambandsins ræddu orkukreppu Evrópu vegna stríðsins í dag. 7.10.2022 19:33
Lausir úr skotgröfunum og vilja ekki leyfa Rússum að ná áttum Eftir að hafa að mestu setið fastir í skotgröfum um mánaða skeið meðan Rússar létu sprengjum rigna yfir þá, keppast úkraínskir hermenn nú við að gera gagnárásir á Rússa. Þeim hefur nokkrum sinnum tekist að stökkva Rússum á flótta sem á undanhaldinu hafa skilið eftir sig mikið magn þungavopna og annarra hergagna sem Úkraínumenn hafa notað í átökunum. 7.10.2022 16:50
Ættleiddir fá aðgang að öllum upplýsingum um sig Írsk stjórnvöld opnuðu vefsíðu í vikunni sem gerir fólki sem var ættleitt kleift að nálgast allar upplýsingar sem ríkið hefur um það, þar á meðal nafn lífmóður. Þúsundir írskra kvenna voru beittar þrýstingi til að gefa frá sér börn sín, sérstaklega á fæðingarheimilum sem kaþólska kirkjan rak. 7.10.2022 15:49
Samkynhneigður maður afhöfðaður á Vesturbakkanum Einn er í haldi palestínsku lögreglunnar vegna morðs á 25 ára gömlum samkynhneigðum karlmanni. Lík mannsins fannst afhöfðað í Hebron á Vesturbakkanum. Samtök hinsegin fólks í Ísrael segja að honum hafi borist hótanir vegna kynhneigðar sinnar. 7.10.2022 15:10
Ólýsanleg sorg þegar foreldrar sáu börnin sín eftir árásina Fjölskyldur barnanna sem létust í skotárás á leikskóla í Taílandi í gær voru óhuggandi þegar þeir sáu kistur barna sinna í dag. Stjórnmálamenn, þar á meðal forsætisráðherra Taílands, lögðu blóm að leikskólanum og konungshjónin munu heimsækja særða í dag. Af þeim 36 sem létust voru að minnsta kosti 24 börn. 7.10.2022 14:09
Aðgerðir lögreglu sagðar hafa valdið mannskæðum troðningnum Táragas sem lögreglumenn létu rigna yfir áhorfendur á knattspyrnuleik í Malang í Indónesíu um helgina er talið kveikjan að miklum troðningi sem varð að minnsta kosti 130 manns að bana. Aðgerðir lögreglu eru sagðar hafa stangast á við innlendar og alþjóðlegar reglur. 7.10.2022 14:04
Neita því að öryggissveitir hafi drepið sextán ára mótmælanda Írönsk yfirvöld hafna því að öryggissveitir hafi drepið sextán ára gamla stúlku á mótmælum sem brutust út í kjölfar dauða ungrar konu í haldi siðgæðislögreglu. Þau halda því fram að stúlkan hafi svipt sig lífi með því að kasta sér fram af húsþaki. 7.10.2022 12:09
Evrópuleiðtogar reyna að ná samkomulagi um hámarksverð á gasi Leiðtogar Evrópusambandsins reyna nú á 70 ára afmælisdegi Rússlandsforseta að ná samkomulagi um hámarksverð á gasi til heimila og fyrirtækja. Úkraínskar hersveitir halda áfram að endurheimta landsvæði í gagnsókn sinni gegn Rússum og Úkraínuforseti heitir því að endurheimta öll hertekin svæði, þeirra á meðal Krímskaga. 7.10.2022 11:49
Illdeilur í innsta hrings Pútíns sem tekur ákvarðanir í einrúmi Minnst einn maður úr innsta hring Vladimírs Pútins, hefur lýst yfir vanþóknun sinni á innrásinni í Úkraínu beint við rússneska forsetann. Vanþóknun þessi hefur aukist meðal hæstu stéttar Rússlands, samhliða slæmu gengi rússneska hersins í Úkraínu. 7.10.2022 11:44