Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Öruggur sigur tryggði United sæti í útsláttarkeppninni Manchester United vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti FC Sheriff í Evrópudeildinni í knattspyrnu í kvöld. Sigurinn þýðir að liðið er öruggt með sæti í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar og mætir Real Sociedad í hreinum úrslitaleik um efsta sæti E-riðils. 27.10.2022 20:55
Sara tók stig gegn gömlu samherjunum | Guðrún og stöllur steinláu gegn Barcelona Sara Björk Gunnarsdóttir og liðsfélagar hennar í Juventus gerðu 1-1 jafntefli er liðið tók á móti Evróðumeisturum Lyon, gamla liði Söru, í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld. 27.10.2022 18:53
PSV vann öruggan sigur gegn Arsenal | Alfons og félagar köstuðu frá sér stiginu PSV vann nokkuð öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti Arsenal í næst seinustu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Í sama riðli þurfu Alfons Sampsted og félagar hans í Bodö/Glimt að sætta sig við 2-1 tap er liðið heimsótti FC Zürich. 27.10.2022 18:45
Bein útsending: Framtíðin er kvenna en við erum hins vegar föst í núinu! Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna standa fyrir málstofuum framtíð knattspyrnu kvenna í dag þar sem staða kvennaknattspyrnunnar verður rædd ásamt framgangi og þróun íþróttarinnar hér á landi. 27.10.2022 17:01
Silfurliðið fær góðan liðsstyrk Knattspyrnukonan Andrea Mist Pálsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá Þór/KA og mun spila með liðinu næstu árin. 27.10.2022 15:16
Dagný setur spurningamerki við hversu „hröð“ hún er í FIFA Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í fótbolta og fyrirliði West Ham United í ensku úrvalsdeildinni, er ekki parsátt með einkunnagjöf sína í tölvuleiknum FIFA 23. Dagný telur sig vera töluvert hraðari á velli en einkunnaspjald hennar segir til um. 27.10.2022 14:01
Bannað að mæta á leikinn við Alfons og félaga eftir lætin gegn Arsenal UEFA hefur ákveðið að refsa hollenska knattspyrnufélaginu PSV Eindhoven með áhorfendabanni og sekt vegna óláta stuðningsmanna félagsins á heimavelli Arsenal í síðustu viku. 27.10.2022 13:32
Adda áfram á Hlíðarenda en í öðru hlutverki Þrátt fyrir að hafa lagt takkaskóna á hilluna verður Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, eða Adda eins og hún er kölluð, áfram starfandi hjá Val næstu misserin. 27.10.2022 13:00
Frá Þrótti í Laugardalnum til Fenerbahçe í Istanbúl Danielle Marcano spilaði einkar vel með Þrótti Reykjavik í Bestu deild kvenna í fótbolta síðasta sumar. Hún hefur nú söðlað um og samið við tyrkneska liðið Fenerbahçe en það er staðsett í Istanbúl. 27.10.2022 12:31
Bakvið tjöldin við gerð skjaldarins Karlalið Breiðabliks tekur á móti nýjum verðalaunagrip í Bestu deild karla á laugardaginn þegar liðið fær Víking í heimsókn í lokaumferð deildarinnar. Nýr verðlaunagripur Bestu deildarinnar var frumsýndur í byrjun mánaðarins þegar að Valskonur tóku í fyrsta skipti við meistaraskildinum. 27.10.2022 12:00
Leikmenn Ástralíu ýta á eftir mannréttindum í Katar fyrir HM Leikmenn ástralska karlalandsliðsins í fótbolta senda frá sér skýr og sterk skilaboð í myndbandi, nú þegar styttist í að þeir spili á HM í Katar, þar sem þeir kalla eftir auknum mannréttindum í Katar. 27.10.2022 11:30
Júlíus kemur inn fyrir Guðlaug Victor Ein breyting hefur verið gerð á leikmannahóp íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir vináttuleiki liðsins gegn Sádi-Arabíu og Suður-Kóreu. Júlíus Magnússon, fyrirliði bikarmeistara Víkings, kemur inn fyrir Guðlaug Victor Pálsson, leikmann DC United í Bandaríkjunum. 27.10.2022 11:01
Öll mörkin úr Meistaradeildinni: Sjáðu ótrúlega dramatík í Madrid og London Liverpool á enn möguleika á að enda í efsta sæti A-riðils Meistaradeildar Evrópu eftir 3-0 útisigur gegn Ajax í gærkvöld en allt er í hnút í riðli Tottenham, D-riðli, eftir dramatíska jafnteflið gegn Sporting. Öll mörk kvöldsins má nú sjá á Vísi. 27.10.2022 10:01
„Mun aldrei taka því sem sjálfsögðum hlut að komast áfram í Meistaradeild Evrópu“ Jürgen Klopp, þjálfari enska fótboltaliðsins Liverpool, var gríðarlega sáttur með 3-0 sigur sinna manna á Ajax í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöld. Sigurinn tryggði sæti Liverpool í 16-liða úrslitum og gefum þeim möguleika á að ná toppsæti riðilsins i lokaumferðinni. 27.10.2022 09:30
Fjárhagsvandræði Barcelona aftur í brennidepli eftir fall úr Meistaradeildinni Á miðvikudagskvöld varð endanlega ljóst að Barcelona, stórveldið frá Katalóníu, kæmist ekki áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu karla í fótbolta. Um er að ræða mikið högg þar sem forráðamenn félagsins framkvæmdu hin ýmsu töfrabrögð í sumar til að koma liðinu aftur í fremstu röð, eða svo töldu þeir. 27.10.2022 09:00
„Reiðir“ fyrrverandi liðsfélagar bíða Söru í dag Fyrir fimm mánuðum varð Sara Björk Gunnarsdóttir Evrópumeistari í fótbolta í annað sinn. Í dag mætir hún liðsfélögunum sem hún fagnaði titlinum með, þegar Juventus og Lyon mætast í afar mikilvægum leik í Meistaradeild Evrópu. 27.10.2022 08:31
Bað um kaup á Haaland, Vlahovic og Diaz en Man. Utd hafnaði því Ralf Rangnick lagði fram stjörnum prýddan óskalista fyrir forráðamenn Manchester United varðandi kaup á leikmönnum í janúar síðastliðnum, eftir að hann hafði nýverið tekið við sem knattspyrnustjóri félagsins. Félagið neitaði hins vegar að gera vetrarviðskipti. 27.10.2022 07:31
„Raddir kvenna þurfa að heyrast“ Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, flutti erindi á fundi formanna og framkvæmdastjóra knattspyrnusambanda innan UEFA, knattspyrnusambands Evrópu, á dögunum. Þar fór hún yfir mikilvægi þess að konur sitji í nefndum og stjórn UEFA en sem stendur eru þær í miklum minnihluta. 27.10.2022 07:00
Conte segir myndbandsdómgæslu vera að skemma leikinn Antonio Conte, þjálfari Tottenham Hotspur, var rekinn af velli eftir að það sem hefði reynst sigurmark Tottenham gegn Sporting í Meistaradeild Evrópu var dæmt af. Conte sparaði ekki stóru orðin að leik loknum. 26.10.2022 23:30
Bjartsýnn á enn fleiri tækifæri með aðalliði FC Kaupmannahafnar „Skemmtilegt að vita að maður fengi sénsinn í svona stórum leik,“ sagði hinn 18 ára gamli Orri Steinn Óskarsson um innkomu sína í leik FC Kaupmannahafnar og Sevilla í Meistaradeild Evrópu sem fram fór í Andalúsíu á þriðjudagskvöld. Orri Steinn varð þar með yngsti Íslendingurinn til að spila í Meistaradeildinni. 26.10.2022 22:31
Napoli óstöðvandi | Ótrúleg dramatík í Madríd og Lundúnum Napoli heldur áfram sigurgöngu sinni í Meistaradeild Evrópu á meðan dramatíkin var gríðarleg í leikjum Atlético Madríd og Tottenam Hotspur. 26.10.2022 22:00
Sjáðu mörkin: Chelsea skoraði átta | Sveindís Jane byrjaði á bekknum í Prag Chelsea átti ekki í neinum vandræðum með Vllaznia frá Albaníu í Meistaradeild Evrópu kvenna í fótbolta í kvöld. Wolfsburg vann 2-0 sigur í Prag þar sem Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn af bekknum undir lok leiks. Öll mörk kvöldsins má sjá hér að neðan. 26.10.2022 21:15
Barcelona fagnaði Evrópudeildarsætinu með tapi á heimavelli Áður en flautað var til leiks á Nývangi í kvöld var ljóst að Börsungar gætu ekki komist í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu karla í fótbolta. Liðið hélt upp á áfangann með 0-3 tapi gegn Bayern München í kvöld. 26.10.2022 21:00
Liverpool tryggði sætið í sextán liða úrslitum með stæl Lærisveinar Jürgen Klopp unnu öruggan 3-0 útisigur á Ajax í Meistaradeild Evrópu karla í fótbolta og tryggðu sér þar með farseðilinn í sextán liða úrslit keppninnar. 26.10.2022 20:45
Markasúpa í Austurríki Tveimur af fjórum leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu kvenna í fótbolta er nú lokið. Real Madríd og París Saint-Germain gerðu markalaust jafntefli á Spáni á meðan Roma lagði St. Polten 4-3 í Austurríki. 26.10.2022 19:15
Berglind Björg kom ekki við sögu í markalausu jafntefli Real og PSG Tveimur af fjórum leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu kvenna í fótbolta er nú lokið. Real Madríd og París Saint-Germain gerðu markalaust jafntefli á Spáni á meðan Roma lagði St. Polten 4-3 í Austurríki. 26.10.2022 19:00
Inter áfram í sextán liða úrslit | Porto pakkaði Brugge saman Tveimur af leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu karla í fótbolta er nú lokið. Porto vann 4-0 útisigur á Club Brugge en síðarnefnda liðið hafði ekki enn tapað leik í keppninni, það er þangað til í kvöld. Þá er Inter Milan komið áfram í 16-liða úrslit eftir 4-0 sigur á Viktoria Plzeň. 26.10.2022 18:45
Aldrei fleiri táningar verið í einu og sama byrjunarliðinu í Meistaradeildinni Ferð Íslendingaliðs FC Kaupmannahafnar til Andalúsíu var ekki til fjár en liðið tapaði 3-0 fyrir Sevilla og situr sem fastast á botni G-riðils Meistaradeildar Evrópu. Gestirnir frá Danmörku skráðu sig hins vegar á spjöld sögunnar þar sem alls voru sex táningar í byrjunarliðinu, þar af tveir frá Íslandi. 26.10.2022 18:01
Byrjaður að æfa eftir krabbameinsaðgerð Sébastien Haller, leikmaður Borussia Dortmund, er byrjaður að æfa á nýjan leik, þremur mánuðum eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna krabbameins. 26.10.2022 16:46
Segir Haaland sleppa við ummælin sem hún fái vegna bikinímynda Króatíska landsliðskonan Ana Maria Markovic, sem er með yfir milljón fylgjendur á Instagram, segir talsverðan mun á viðbrögðum fólks við því þegar hún birti baðfatamyndir af sér í samanburði við það þegar norski landsliðsmaðurinn Erling Haaland geri slíkt hið sama. 26.10.2022 15:30
Þessi eða hinn? Del Piero eða Totti Þeir Baldur Sigurðsson og Atli Viðar Björnsson voru beðnir að velja á milli Alessandros Del Piero og Francescos Totti í dagskrárliðnum Þessi eða hinn sem er alltaf í lok hvers þáttar af Meistaradeildarmörkunum. 26.10.2022 14:46
Margfalt fleiri geta séð Sveindísi í kvöld Eftir að hafa spilað fyrir framan 21.300 áhorfendur í toppslagnum gegn Bayern München um helgina eru Sveindís Jane Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í Wolfsburg mættar til Prag til að spila í Meistaradeild Evrópu í kvöld. 26.10.2022 14:01
Spænski stuðningsmaðurinn sem hvarf talinn vera í fangelsi í Íran Santiago Sánchez, spænski stuðningsmaðurinn, sem ætlaði að ganga frá Spáni til Katar þar sem heimsmeistaramótið í knattspyrnu fer fram eftir rúmlega mánuð er talinn vera í fangelsi í Íran. 26.10.2022 13:32
Man City fylgir fordæmi WBA og skiptir út hvítum stuttbuxum Enska fótboltaliðið Manchester City hefur ákveðið að frá og með næstu leiktíð mun kvennalið félagsins ekki leika í hvítum stuttbuxum. 26.10.2022 13:00
Engin ástæða til að refsa Henderson eða Gabriel Enska knattspyrnusambandið hefur nú lokið rannsókn sinni á orðaskiptum Jordans Henderson og Gabriel, í leik Liverpool og Arsenal á dögunum, og komist að þeirri niðurstöðu að hvorugum verði refsað. 26.10.2022 12:00
Ronaldo með United á morgun Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, staðfesti á blaðamannafundi í dag að Cristiano Ronaldo yrði ekki refsað frekar vegna hegðunar sinnar í leiknum gegn Tottenham í síðustu viku. 26.10.2022 11:48
Klopp segir meiðsli hafa spilað sinn þátt í slakri byrjun Liverpool Jürgen Klopp, þjálfari enska knattspyrnuliðsins Liverpool, segir meiðsli og óheppni hafa spilað sinn þátt í óstöðugri byrjun liðsins á tímabilinu. Liverpool mætir Ajax í Meistaradeild Evrópu í kvöld og dugir jafntefli til að endanlega tryggja sæti sitt í 16-liða úrslitum. 26.10.2022 11:00
Schmeichel senuþjófur í HM-lagi Dana Danir eru byrjaðir að gíra sig upp fyrir heimsmeistaramótið í Katar enda tefla þeir fram spennandi liði á mótinu og ætla sér enn lengra en í Rússlandi fyrir fjórum árum. Nýtt HM-lag þeirra var gefið út í dag. 26.10.2022 10:00
Sjáðu Messi og Mbappé leika sér og Havertz skora sturlað mark Línur eru heldur betur farnar að skýrast í Meistaradeild Evrópu í fótbolta eftir leiki gærkvöldsins. Öll mörkin úr leikjunum má nú sjá hér á Vísi. 26.10.2022 09:00
Brynjar Ingi á listum sem enginn vill vera á Eftir afar hraðan uppgang á síðasta ári hefur miðvörðurinn og landsliðsmaðurinn Brynjar Ingi Bjarnason átt afar erfitt uppdráttar á sinni fyrstu leiktíð í Noregi. 26.10.2022 08:00
Hiti, högg og þreyta Haalands Erling Haaland lék aðeins fyrri hálfleikinn þegar Manchester City gerði markalaust jafntefli við Dortmund í Þýskalandi í gærkvöld, í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. 26.10.2022 07:31
Orri yngsti Íslendingurinn til að spila í Meistaradeildinni Orri Steinn Óskarsson, leikmaður FC Kaupmannahafnar, varð í gær yngsti Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu frá upphafi. 26.10.2022 07:00
Jón Daði tryggði Bolton dramatískan sigur Landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson reyndist hetja Bolton er liðið tók á móti Burton Albion í ensku C-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Jón Daði tryggði liðinu dramatískan 2-1 sigur með marki í uppbótartíma eftir að hafa komið inn á sem varamaður. 25.10.2022 21:22
Juventus úr leik eftir tap í Portúgal | Stjörnurnar hjá PSG fóru á kostum í stórsigri Það var nóg um að vera í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld þegar sex leikir í næst seinustu umferð riðlakeppninnar fóru fram á sama tíma. Ítalska stórveldið Juventus er úr leik eftir 4-3 tap gegn Benfica og stjörnurnar hjá Paris Saint-Germain léku á als oddi er liðið vann 7-2 sigur gegn Maccabi Haifa. 25.10.2022 21:14
Dortmund og City skiptu stigunum á milli sín Borussia Dortmund og Englandsmeistarar Manchester City skiptu stigunum á milli sín er liðin gerðu markalaust jafntefli í endurkomu Erling Braut Haaland á sinn gamla heimavöll í næst seinustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. 25.10.2022 20:53