Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Umfjöllun og viðtöl: FH - ÍR 34-29 | Heimamenn lögðu botnliðið og fóru tímabundið á toppinn FH-ingar unnu botnlið ÍR með fimm marka mun er liðin mættust í Kaplakrika í Olís deild karla í kvöld. Lokatölur leiksins 34-29 og ÍR því sem fyrr án stiga á botni deildarinnar. 18.2.2021 21:00
Gunnar: Eiginlega orðlaus hvað þetta var dapurt Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, sagði að sínir menn hefðu leikið sinn versta leik á tímabilinu gegn ÍBV í kvöld. Eyjamenn unnu fimm marka sigur, 29-34. 18.2.2021 20:55
Ólafur Bjarki: Byggjum ofan á þennan sigur Ólafur Bjarki Ragnarsson átti góðan leik með Stjörnunni í kvöld en hann skoraði átta mörk í sjö marka sigri á Þór í Íþróttahöllinni á Akureyri, lokatölur 27-20 Garðbæingum í vil. 18.2.2021 20:45
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - ÍBV 29-34 | Enn einn sigur Eyjamanna í Mosfellsbænum ÍBV gerði góða ferð í Mosfellsbæinn og vann Aftureldingu, 29-34, í fyrsta leik 10. umferðar Olís-deildar karla. Eyjamenn hafa ekki tapað á Varmá síðan í lok september 2014. 18.2.2021 20:23
Viggó öflugur í tapi Stuttgart og Melsungen með góðan sigur Íslendingalið Stuttgart mátti þola tíu marka tap í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Melsungen unnu þriggja marka sigur á Leipzig. 18.2.2021 20:16
Umfjöllun og viðtöl: Þór - Stjarnan 20-27 | Öruggt hjá Stjörnunni á Akureyri Stjarnan vann gríðar mikilvægan sigur á Akureyri í kvöld er liðið heimsótti Þór í Olís deild karla í kvöld, lokatölur 20-27. 18.2.2021 19:55
Öruggt hjá Íslendingaliðunum í Meistaradeildinni Íslendingalið Álaborgar og Vive Kielce unnu örugga sigra í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. 18.2.2021 19:37
Ljónin ósigruð í Evrópu Rhein-Neckar Löwen hefur ekki enn tapað leik í Evrópudeildinni í handbolta. Liðið vann Trimo Trebnje frá Slóveníu í kvöld, lokatölur 31-28. 18.2.2021 18:55
Tekur Svíinn hárprúði við Íslendingaliði Kristianstad? Sænska goðsögnin Staffan Olsson hefur verið orðaður við stjórastöðu sænska handknattleiksliðsins IFK Kristianstad. Íslendingarnir Ólafur Andrés Guðmundsson og Teitur Örn Einarsson leika með liðinu. 18.2.2021 17:31
Eyjamenn hafa ekki tapað leik í Mosfellsbænum í 2336 daga ÍBV liðið heimsækir Aftureldingu í Olís deild karla í handbolta í kvöld en Eyjamenn hafa geta treyst á það að undanfarin ár að ná í stig að Varmá. 18.2.2021 13:31
Mikkel Hansen snýr heim til Danmerkur á næsta ári og spilar hjá Arnóri Mikkel Hansen, stærsta handboltastjarna Dana, snýr væntanlega heim á næsta ári og gengur í raðir Aalborg frá Paris Saint-Germain. 18.2.2021 09:01
Elín fór á kostum en enginn Aron í Meistaradeildarsigri Barcelona Elín Jóna Þorsteinsdóttir fór á kostum í marki Vendsyssel í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en það dugði ekki til gegn Randers. Vendsyssel tapaði 22-20. 17.2.2021 21:14
„Sem hornamaður er ég móðguð“ Írisi Ástu Pétursdóttur finnst full fáir hornamenn vera í æfingahópi íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Rætt var um æfingahópinn í Lokaskotinu í Seinni bylgjunni. 17.2.2021 17:01
Sportið í dag: Valsmenn þurfa á hópefli að halda Kjartan Atli Kjartansson, Ríkharð Óskar Guðnason og Henry Birgir Gunnarsson fóru yfir víðan völl í síðasta hlaðvarpsþætti sínum Sportið í dag á Vísi en meðal annars ræddu þeir um vandræði Valsmanna í handboltanum. 17.2.2021 13:00
Misskilningurinn í Mýrinni Draugamarkið svokallaða í leik Stjörnunnar og KA/Þórs í Olís-deild kvenna í handbolta var að sjálfsögðu til umfjöllunar í Seinni bylgjunni. 17.2.2021 10:30
Ómar Ingi og Ýmir Örn frábærir en Viktor Gísli tapaði í Makedóníu Þrjú Íslendingalið til viðbótar voru í eldlínunni í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Magdeburg vann Montpellier frá Frakklandi 32-30 Rhein-Neckar Löwen vann 37-30 sigur á Tatabánya en GOG beið lægri hlut gegn Eurofram Pelister, 32-31. 16.2.2021 21:31
Öruggt hjá ÍBV gegn HK ÍBV vann sex marka sigur á HK í eina leik dagsins í Olís deild kvenna í kvöld. Lokatölur 24-18 Eyjakonum í vil. 16.2.2021 20:01
Teitur Örn frábær í dramatískum sigri Kristianstad Kristianstad frá Svíþjóð vann gríðar mikilvægan sigur á útivelli gegn Dinamo Búkarest í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 29-28 sænska liðinu í vil. Teitur Örn Einarsson for mikinn í liði gestanna. 16.2.2021 19:25
Daníel og Rúnar með stórleik í sigri Ribe-Esbjerg Íslendingalið Ribe-Esbjerg vann sjö marka útisigur á Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, lokatölur 30-37. 16.2.2021 19:05
Segir Valsmenn í djúpum andlegum dal Sérfræðingar Seinni bylgjunnar segja Valsmenn ekki eiga sér neinar málsbætur eftir tapið slæma gegn Stjörnunni í gær, í Olís-deild karla í handbolta. Valur hefur nú tapað gegn Fram, Selfossi og Stjörnunni eftir að keppni hófst að nýju undir lok janúar, en unnið Þór Akureyri og Gróttu. 16.2.2021 17:00
Með sex sinnum fleiri mörk en næsti markvörður Sóknarleikur FH-inga byrjar hjá markverðinum Phil Döhler en hann hefur komið að langflestum mörkum af markvörðum Olís deildar karla í handbolta. 16.2.2021 16:31
Varði jafn mörg skot og markverðir FH til samans Ísak Rafnsson átti góðan leik í vörn FH í jafnteflinu við Hauka, 29-29, í Olís-deild karla í gær. Hann varði jafn mörg skot í leiknum og markverðir FH til samans. 16.2.2021 15:01
Patrekur með gott tak á Snorra Steini Patrekur Jóhannesson stýrði Stjörnunni til sannfærandi sigurs á móti Val í Olís deild karla í handbolta í gær og hélt þar með í þá hefð sína að fagna sigri á móti Snorra Steini Guðjónssyni. 16.2.2021 12:00
Rauk beint á sjúkraflutninganámskeið eftir að hafa varið 23 skot gegn Val Sara Sif Helgadóttir var að öðrum ólöstuðum besti leikmaður vallarins þegar Fram sigraði Val, 30-22, í stórleik 9. umferðar Olís-deildar kvenna á laugardaginn. Hún varði 23 skot, eða 51 prósent þeirra skota sem hún fékk á sig. 16.2.2021 10:00
„Eins mikill ruðningur og þeir verða“ Sérfræðingar Seinni bylgjunnar voru sammála um að sigurmark KA gegn ÍBV í Olís-deild karla í gær hafi verið ólöglegt. 16.2.2021 09:31
Björgvin Páll: Langar bara enn meira að kveðja með titli Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Hauka, var ekki ánægður með frammistöðu síns liðs í leiknum gegn FH í kvöld sem endaði með jafntefli. 15.2.2021 22:28
Sigursteinn: Það tekur tíma að venjast þessari klukku „Ég verð að viðurkenna að ég er frekar svekktur að fá bara eitt stig,“ sagði Sigursteinn Arndal þjálfari FH eftir jafnteflið gegn Haukum í Olís-deildinni í handknattleik í kvöld. 15.2.2021 21:42
Umfjöllun og viðtöl: FH - Haukar 29-29 | Spennutryllir í Krikanum FH og Haukar gerðu 29-29 jafntefli í rosalegum Hafnarfjarðarslag í Kaplakrika í kvöld. 15.2.2021 21:33
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 27-35 | Stjörnumenn rústuðu Valsmönnum Stjörnumenn gerðu góða ferð á Hlíðarenda og rúlluðu yfir Valsmenn, 27-35, í 9. umferð Olís-deildar karla í kvöld. 15.2.2021 20:30
Snorri Steinn: Ömurleg frammistaða og okkur ekki til sóma Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var þungur á brún eftir tapið stóra fyrir Stjörnunni í kvöld, 27-35. 15.2.2021 20:17
Dramatískur sigur KA í Eyjum KA gerði sér lítið fyrir og sótti tvö stig til Eyja er þeir unnu 29-28 sigur á heimamönnum í Olís-deild karla í kvöld. 15.2.2021 19:40
Alexander frá næstu vikurnar vegna meiðsla Alexander Petersson meiddist á æfingu með Flensburg og verður frá keppni næstu vikurnar. 15.2.2021 17:00
Gunnar Steinn hættir hjá Ribe-Esbjerg og fer til Þýskalands Íslenski handboltamaðurinn Gunnar Steinn Jónsson hefur spilað sinn síðasta leik fyrir danska félagið Ribe-Esbjerg HH en félagið staðfestir brottför hans á heimasíðu sinni. 15.2.2021 15:40
Mörkin sem hafa ráðið úrslitum í leikjum Hauka og FH undanfarin ár Haukar og FH bjóða nær alltaf upp á mikla spennuleiki þegar þau mætast. Það þýðir jafnfram dramatískar lokasekúndur. 15.2.2021 15:01
Haukarnir hafa ekki unnið nágranna sína í FH í fimmtíu mánuði Það eru meira en fjögur ár liðin síðan að Hafnarfjörður var málaður rauður í Olís deild karla í handbolta. Haukarnir fá tækifæri til að breyta því í kvöld. 15.2.2021 14:00
Aron: Þessi leikur hefur sitt eigið lögmál Aron Kristjánsson þjálfari Hauka ætlar að mála bæinn rauðan á í kvöld þegar Haukaliðið heimsækir nágranna sína í FH í Hafnarfjarðaslag í Kaplakrika. 15.2.2021 12:31
Síðasta sambærilega dæmið frá 2007 og þá stóðu úrslitin Kæra handknattleiksdeildar Stjörnunnar á úrslitum í leik gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna á laugardaginn er komin inn á borð dómstóls HSÍ. KA/Þór vann leikinn, 26-27, en mistök á ritaraborði urðu til þess að eitt marka liðsins var oftalið. Síðasta sambærilega dæmið um að úrslit hafi verið kærð vegna rangrar skráningar marka er frá 2007. 15.2.2021 11:31
Gerði helling fyrir Dag að enda fyrir ofan Ísland á HM Dagur Sigurðsson er ánægður með árangur Japans á HM 2021 í Egyptalandi og segir að það hafi verið sætt að enda fyrir ofan Ísland á mótinu. 15.2.2021 11:00
HSÍ mun ekki aðhafast í máli Britney Cots Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, mun ekki aðhafast frekar í máli Britney Cots, leikmanns FH í Olís-deild kvenna. 14.2.2021 23:01
Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Afturelding 22-27 | ÍR-ingar héngu í Mosfellingum í 50 mínútur ÍR-ingar eru enn stigalausir í Olís-deild karla eftir fimm marka tap gegn Aftureldingu í kvöld. 14.2.2021 22:18
Þrándur Gíslason Roth: Ég þarf að árétta eða rétta nokkrar alhæfingar Þrándur Gíslason Roth, leikmaður Aftureldingar, var ánægður eftir sigur á ÍR í kvöld. Jafn leikur fram á 50. mínútu en þá gáfu Afturelding í og unnu leikinn, 22-27. 14.2.2021 22:15
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Selfoss 27-25 | Framarar slökktu í Selfyssingum Fram varð fyrsta liðið til að leggja Selfoss að velli í Olís-deild karla á þessu ári í kvöld. 14.2.2021 22:10
Sebastian: Það sem við ætluðum að gera á móti Haukum virkar líka á Selfoss Sebastian Alexandersson og hans lærisveinar í Fram unnu stórkostlegan sigur á heitu liði Selfoss. Leikurinn var jafn frá fyrstu mínútu til þeirra síðustu og var það krafturinn og viljinn í Fram liðinu sem landaði stigunum tveimur að lokum. 14.2.2021 22:00
Sigvaldi með tvö mörk í sigri Kielce Sigvaldi Björn Guðjónsson var á sínum stað í liði Kielce í pólska handboltanum í dag. 14.2.2021 20:30
Arnar Daði: Hundsvekktur og fúll, pirraður og leiður Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, var vonsvikinn eftir naumt tap gegn Þór í nýliðaslag Olís-deildar karla í handbolta í dag. 14.2.2021 20:00