Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Austurríkismaður leiðir eftir fyrsta hring í Japan Hinn austurríski Sepp Straka er í forystu eftir fyrsta hring í golfkeppni karla á Ólympíuleikunum í Japan. Fyrsti hringurinn fór fram í nótt á Kasumigaseki-vellinum í Saitama. 29.7.2021 20:01
Efsti maður heimslistans greindist aftur með veiruna og missir af Ólympíuleikunum Spánverjinn Jon Rahm þarf að hætta við þáttöku á Ólympíuleikunum eftir að hann greindist með kórónaveiruna í annað sinn á tveimur mánuðum. 25.7.2021 23:05
Golfklúbbur Reykjavíkur Íslandsmeistari í karla- og kvennaflokki Golfklúbbur Reykjavíkur, GR, fagnaði í gær tvöföldum sigri á Íslandsmóti golfklúbba. Þetta var 24. titill karlaliðsins og kvennaliðið var að vinna titilinn í 22. sinn. 25.7.2021 08:01
„Hann er framtíðin í golfinu“ Bandaríski kylfingurinn Collin Morikawa fagnaði sigri á Opna breska meistaramótinu í golfi í frumraun sinni á mótinu um helgina. Þorsteinn Hallgrímsson, fyrrum Íslandsmeistari í golfi og golfsérfræðingur Stöðvar 2 Sport, segir að um verðandi stórstjörnu sé að ræða. 19.7.2021 19:16
Morikawa kom, sá og sigraði á lokahringnum Collin Morikawa reyndist öflugastur á lokahring Opna breska meistaramótsins í golfi í dag og vann mótið með tveggja högga mun. 18.7.2021 18:24
Oosthuizen leiðir fyrir lokahringinn á opna breska Louis Oosthuizen leiðir fyrir lokahringinn á Opna breska meistaramótinu í golfi sem fram fer í Englandi um helgina. 17.7.2021 21:32
Blótaði og braut kylfuna í bræðikasti Tyrrell Hatton á yfir höfði sér sekt eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu á Opna breska mótinu í golfi í dag. Hann er úr leik á mótinu. 16.7.2021 16:53
Hársbreidd frá vallarmeti og er með þriggja högga forskot Hinn 24 ára gamli Collin Morikawa er kominn í baráttuna um að vinna sitt annað risamót á ferlinum eftir stórkostlega spilamennsku á öðrum degi Opna breska meistaramótsins í golfi í dag. 16.7.2021 12:10
Segir að DeChambeau sé martraðarviðskiptavinur og líkir honum við frekt barn Starfsmenn golfkylfuframleiðandans Cobra segja að Bryson DeChambeau sé martraðarviðskiptavinur og líkja honum við frekt barn eftir að hann sagði að sérhannaður dræver hans frá fyrirtækinu væri ömurlegur. 16.7.2021 08:01
Oosthuizen leiðir og hamfaradagur Phil Mickelson á fyrsta degi Opna breska Hið sögufræga Opna breska meistaramót í golfi hófst á Royal St George's vellinum í dag. Suður-Afríkumaðurinn Louis Oosthuizen leiðir á sex höggum undir pari, á meðan að Phil Mickelson fann engan veginn taktinn og rekur lestina. 15.7.2021 19:39
Fyrrverandi meistarar í efstu sætum Tveir fyrrverandi meistarar eru í toppsætunum eftir að hafa lokið fyrsta hring á Opna breska meistaramótinu í golfi. Fjöldi kylfinga á þó eftir að ljúka leik í dag. 15.7.2021 15:30
Tvífari kylfusveins Happys Gilmore fékk fyrsta örninn á Opna breska Bandaríkjamaðurinn ungi Will Zalatoris fékk fyrsta örninn á Opna breska meistaramótinu í golfi í ár. 15.7.2021 13:00
Draumabyrjun hjá Harman og Spieth fer vel af stað Hið sögufræga Opna breska meistaramót í golfi hófst á Royal St George's vellinum í dag. 15.7.2021 10:29
Strangar reglur fyrir keppendur en fjöldi áhorfenda á The Open Eftir langa bið vegna kórónuveirufaraldursins verður The Open, eitt risamótanna og elsta golfmót heims, haldið á Englandi um helgina. Keppni hefst í fyrramálið en kylfingar þurfa að gæta þess að fylgja ströngum sóttvarnareglum ella eiga á hættu að vera dæmdir úr keppni. 14.7.2021 17:01
Vann Opna skoska eftir bráðabana Ástralinn Min Woo Lee fagnaði sigri á Opna skoska meistaramótinu í golfi í dag eftir gríðarjafna keppni. Þrír kylfingar voru jafnir á toppnum og bráðabana þurfti til að útkljá úrslit mótsins. 11.7.2021 18:30
Deila forystunni fyrir lokahringinn Belginn Thomas Detry og Englendingurinn Matt Fitzpatrick leiða Opna skoska meistaramótið í golfi fyrir lokahringinn sem leikinn verður á morgun. Búast má við mikilli spennu á toppnum. 10.7.2021 17:45
Rekinn í burtu eftir að hafa nappað kylfu af McIlroy Áhorfandi á Opna skoska golfmótinu hefur verið rekinn af svæðinu eftir að hafa tekið kylfu úr poka Rory McIlroy, sem var að stilla sér upp á teig, og tekið nokkrar sveiflur. 9.7.2021 11:00
Fyrrum meistari á Mastersmótinu fékk fangelsisdóm Argentínumaðurinn Angel Cabrera eyðir næstu árum á bak við lás og slá í heimalandi sínu. Cabrera, sem er orðinn 51 árs gamall, vann á sínum tíma bæði Mastersmótið og Opna bandaríska risamótið. 8.7.2021 10:30
Vann sinn fyrsta PGA-sigur eftir dramatískan bráðabana Ástralinn Cameron Davis fagnaði sigri á Rocket Mortgage Classic-mótinu í Detroit í Bandaríkjunum. Um er að ræða fyrsta sigur kappans á PGA-mótaröðinni og hann var torsóttur. 4.7.2021 23:10
Allt í vaskinn á 15. braut Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson lauk í dag leik á Kaskáda Golf Challenge-mótinu í Tékklandi. Ein einkar slæm hola fór illa með annars góðan hring kylfingsins. 4.7.2021 21:01
Dagskráin í dag: Nóg um að vera í golfinu Golfið er í fyrirrúmi í beinum útsendingum á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Úrslitin ráðast á þremur mótum. 4.7.2021 06:00
Missti naumlega af niðurskurðinum eftir strembinn dag Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurð á Big Green Egg-mótinu á Rosendaelsche-vellinum í Hollandi í dag. Mótið er hluti Evrópumótaröð kvenna. 1.7.2021 20:32
Græddi 169 milljónir á pútti Harris English Bandaríski kylfingurinn Harris English fagnaði auðvitað mikið þegar hann vann í bráðabana á Travelers Championship golfmótinu um síðustu helgi en það líka einn ágætur maður honum óskyldur sem fagnaði einnig gríðarlega. 1.7.2021 11:01