Fleiri fréttir

Hatur og skrifræði

Þann 10. mars árið 1966 var Sandra Laing, tíu ára skólastúlka í smábænum Piet Retief í Suður-Afríku, kölluð upp til skólastjórans. Á skrifstofu hans biðu tveir lögreglumenn sem fylgdu henni út af skólalóðinni. Skýringin var sú að skólanum höfðu borist kvartanir frá nokkrum foreldrum vegna Söndru litlu, sem væri dökk á hörund og mætti því ekki ganga í skóla sem ætlaður væri hvítum börnum í samræmi við aðskilnaðarstefnu stjórnvalda, Apartheid.

Atburðarásin er skrautleg og viðburðarrík

Elma Stefanía leikkona hefur leikið fjölda aðalhlutverka frá því hún útskrifaðist vorið 2013. Elma er um þessar mundir í miðju æfingarferli á sýningunni Auglýsing ársins eftir Tyrfing Tyrfingsson

Öll þessi andlit í Drekkingarhyl

Steinunn J. Kristjánsdóttir prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands skrifar um dægurlag á nýrri plötu eftir Bubba Morthens og söguna sem liggur að baki textanum.

Fæ hugljómun á hverjum degi

Helga Kristjánsdóttir hefur verið valin bæjarlistamaður Grindavíkur 2016. Hún fór fyrst í sjúkraliðanám og svo hágreiðslu en nú á myndlistin hug hennar allan.

Með sjötta skilningarvitið

Júlíana – hátíð sögu og bóka í Stykkishólmi hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Gréta Sigurðardóttir hótelstjóri segir einstakt og jafnvel skrítið fólk vera þar í brennidepli.

Skissur af augnablikum

Grafísk verk Hildar Björnsdóttur eru til sýnis í veitingastofum Hannesarholts að Grundarstíg 10. Sýningin ber titilinn Innlit.

Komin upp á svið eftir útskrift

Gripahúsið er nýtt íslenskt leikverk um íslenska bjartsýni eftir Bjartmar Þórðarson. Albert Halldórsson nýútskrifaður leikari fer með eitt af aðalhlutverkum sýningarinnar. Albert er um þessar mundir að vinna að heimildarmynd sem fjallar

Morgundagurinn kemur aldrei

Saga til næsta bæjar - Árið 2001 sendi Arnaldur Indriðason frá sér glæpasöguna Grafarþögn, þar sem lögregluþjónarnir Erlendur, Sigurður Óli og Elínborg tókust á við enn eina flóknu morðgátuna. Sagan gerist á tveimur tímasviðum. Í Reykjavík samtímans þar sem mannabein finnast í nýjum húsgrunni í Grafarholti annars vegar, en hins vegar á sömu slóðum árið 1940. Grafarþögn tekst öðrum þræði á við heimilisofbeldi, en minningarleiftrin úr fortíðinni fjalla að miklu leyti um eiginmann sem beitir konu sína grófu og margítrekuðu andlegu og líkamlegu ofbeldi.

Einhvernsstaðar er tónlistin inni í manni

Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir ætlar að leika öndvegisverk fyrir einleiksselló í Mengi í kvöld og syngja líka. Hún er nýlega flutt til Akureyrar í árs frímínútur frá Frakklandi, ásamt eiginmanni og þremur börnum.

Nú ættum við að hafa fastara land undir fótum

Verksmiðjan á Hjalteyri hlaut Eyrarrósina 2016 í gær fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Öflug listastarfssemi hefur verið í Verksmiðjunni allt frá stofnun og það er margt framundan.

Sérstakt samband milli tóna og hreyfinga

Í dansverkinu All Inclusive sem sýnt verður í Norðurljósasal Hörpu í kvöld sameinar stór hópur dansara og dúóið Mankan krafta sína undir stjórn slóvakíska dansarans Martins Kilvady. Viðburðurinn er liður í Sónar.

Efnið þarf að brenna á manni

Leikkonan Þóra Karítas Árnadóttir segir frá tilurð fyrstu bókar sinnar: Mörk – saga mömmu, í Hannesarholti í kvöld. Bókin kom út í apríl 2015 og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2016. Fyrirlesturinn ber heitið Blundar í þér bók.

Þessi verk byggja á alþýðu­menningu

Nútíma þjóðsögur og ýmiss konar hjávísindi eru viðfangsefni Steingríms Eyfjörð myndlistarmanns á sýningunni Gula eyrnalokknum sem hann opnar í Gallery Gamma, Garðastræti 37, á morgun.

Fúsi fer til Ítalíu! er undirtitillinn

„Við ætlum að flytja bæði íslensk og erlend lög og slá á létta strengi inn á milli,“ segir Einar Clausen söngvari glaðlega og á þar við tónleika hans og Arnhildar Valgarðsdóttur, organista í Fella-og Hólakirkju, annað kvöld, miðvikudag. Þeir tilheyra tónleikaröðinni Frjáls eins og fuglinn.

Enginn Sigmundar Davíðsbragur á Ómari í Illsku

Óskabörn ógæfunnar frumsýna verkið Illsku í Borgarleikhúsinu á fimmtudag. Það er byggt á samnefndri verðlaunabók Eiríks Arnar Norðdahl og fjallar um ástarþríhyrning og þjóðernishyggju, svo er líka söngur og dans.

Tengist teiknuðu persónunum

Ingibjörg Berglind Guðmundsdóttir teiknar öllum stundum. Hún skapar tilfinningaheim í kringum persónurnar sem hún teiknar og á stundum erfitt með að skilja þær við sig.

Bláir tónar

Það er mannbætandi að eignast börn og ala þau upp. Barnauppeldi er þó ekki alltaf dans á rósum. Því fylgir til dæmis síbylja af barnalögum, sem virðast hafa þann eiginleika að falla börnum þeim mun betur í geð eftir því sem þau ergja hina fullorðnu meira.

Tangóarnir tvinnast saman við ljóðin

Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir ljóðadagskrá í Iðnó á morgun og mánudag, klukkan 20. Þar verða ljóð Nínu Bjarkar Árnadóttur flutt með tónum tangósveitarinnar Mandólín.

Pínulítið sumarleg sýning

Edda Guðmundsdóttir opnaði nýlega sýningu á eigin myndum í Geysi Bistro í Aðalstræti. Þær eru frá ýmsum tímabilum, sumar nýjar og aðrar eldri og eru sérvaldar í plássið.

Alltaf gaman að taka lagið

Dagur tónlistarskólanna er í dag og í Söngskólanum í Reykjavík verður heilmikið fjör milli klukkan tvö og fimm. Meðal annars ætlar Garðar Cortes að stjórna fjöldasöng.

Það er ákveðinn leikur í þessu

Þóra Sigurðardóttir myndlistarkona opnar sýninguna Teikning / Rými í sýningarsal Íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu að Tryggvagötu 17 á morgun, föstudag, klukkan 18.

Undrandi og ánægðir bókmenntaverðlaunahafar

Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir 2015 voru veitt í gær af forseta Íslands. Handhafar eru Einar Már Guðmundsson, Gunnar Helgason og Gunnar Þór Bjarnason. Hver um sig fær eina milljón króna.

Haldi áfram að endurspegla kraftinn í myndlistinni

Sigrún Inga Hrólfsdóttir er nýráðin deildarforseti myndlistardeildar Listaháskóla Íslands. Hún hefur alla tíð sótt í kennsluna meðfram myndlistinni sem hún segir standa í miklum blóma á Íslandi.

Staðráðin í að koma leikritinu til Íslands

Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari og Hera Hilmarsdóttir leikkona vinna að nýju leikverki saman, Andaðu, eða Lungs. Þorvaldur og Hera verða með opinn leiklestur þar sem leikhúsgestir geta notið þess að fylgjast með þeim í vinnslu á

Skáld í Bókasafni Seltjarnarness

Ljóðskáldin Eyþór Árnason og Linda Vilhjálmsdóttir verða gestir bókmenntakvölds Bókasafns Seltjarnarness í kvöld sem hefst klukkan 19.30.

Sjá næstu 50 fréttir