Menning

Byrjum á að mynda þríhyrning í salnum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hanna Dóra í góðum félagsskap þeirra Kjartans, Ármanns og Sigurðar Ingva sem mynda Chalumeaux-tríóið.
Hanna Dóra í góðum félagsskap þeirra Kjartans, Ármanns og Sigurðar Ingva sem mynda Chalumeaux-tríóið. Mynd/Úr einkasafni
Á hádegistónleikum Chalumeaux-tríósins og Hönnu Dóru Sturludóttur messósóprans í Hátíðasal Háskóla Íslands í dag verður frumflutt verk eftir Jónas Tómasson tónskáld.

„Ég tel mig geta sagt að efnisskráin sé áhugaverð og skemmtileg,“ segir Ármann Helgason, einn þeirra sem mynda Chalumeaux-tríóið. Hinir eru Kjartan Óskarsson og Sigurður Ingvi Snorrason.

„Við þremenningarnir byrjum á að mynda þríhyrning í salnum meðan við flytjum Mörsug, verkið hans Hjálmars H. Ragnarssonar, og sameinumst svo á sviðinu þar sem Hanna Dóra bætist í hópinn,“ lýsir Ármann.

Hann segir andstæður ríkja í hinu nýja tónverki Jónasar við Maríuversið Alma Redemptoris Mater, og þar verði styttri klarínetturnar notaðar. „Við erum með allar gerðir af klarínettum, heilmiklar pípulagnir,“ segir Ármann glaðlega og lofar litríkum tónum.

Auk fyrrgreindra verka Ísfirðinganna Hjálmars og Jónasar flytur hópurinn verkið Trio trionfante eftir Pál P. Pálsson sem var sérstaklega samið fyrir Chalumeaux-tríóið árið 2002, einnig fjögur kóralforspil eftir Johann Sebastian Bach og Vögguvísur kattarins eftir Igor Stravinsky, verk sem byggist á þjóðlögum úr safni rússnesks þjóðlagasafnara. Það er oftast sungið á rússnesku en verður nú á þýsku.

Tónleikarnir hefjast klukkan 12.30 í dag í Hátíðasal háskólans. Enginn aðgangseyrir er að þeim og allir eru velkomnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×