Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gunnar áfram hafnarstjóri Faxaflóahafna Stjórn Faxaflóahafna samþykkti að ráða Gunnar Tryggvason sem hafnarstjóra Faxaflóahafna á fundi sínum í morgun. Ráðgefandi hæfnisnefnd er sögð hafa mælt einróma með ráðningu Gunnars í stöðuna. 25.11.2022 15:14
Kynnir litaflokkun til leiks á Twitter Twitter hyggst taka í gagnið litaflokkuð hök við reikninga á Twitter sem gefa til kynna að um hinn rétta aðila sé um að ræða á bak við viðkomandi reikning. 25.11.2022 14:31
Vefurinn bilaður og kaupglaðir Íslendingar fylla búðir Elko Arinbjörn Hauksson markaðsstjóri Elko segir fyrirliggjandi að landsmenn skipuleggi heildarkaup ársins í kringum afsláttardaga. Afsláttardagar á borð við Svartan föstudag hafi klárlega gerbreytt kauphegðun landsmanna. 25.11.2022 13:01
Frá Fiskifréttum og til Hjálparstarfs kirkjunnar Svavar Hávarðsson hefur hafið störf sem fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar. Svavar hefur starfað sem blaðamaður og ritstjóri frá árinu 2006. 25.11.2022 12:07
Undirbúa leiðtoga framtíðarinnar „AFS, alþjóðlegu friðar- og fræðslusamtökin, bjóða upp á skiptinám, ungmennaskipti og tungumálaskóla. Samtökin starfa í um 60 löndum og eiga rætur sínar að rekja til ársins 1915 sem sjálfboðaliðasamtök. Það var svo árið 1947 að samtökin hófu að senda ungt fólk milli landa í skiptinám og var tilgangurinn að byggja brýr á milli mismunandi menningarheima og taka þannig skerf í átt að friðsælli og skilningsríkari heimi. Kjarni starfseminnar er að gefa nemendum og öðrum þátttakendum tækifæri til að kynnast heiminum og öðlast menningarlæsi en eitt helsta meginstarf AFS felst í því að undirbúa og efla leiðtoga framtíðarinnar og gera þá að alþjóðlegum virkum borgurum,“ segir Ingunn Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri AFS á Íslandi. 25.11.2022 08:51
Musk hleypir nær öllum sem voru bannaðir aftur á Twitter Öllum þeim notendum á Twitter sem hafa verið bannaðir fyrir nær hvaða sakir sem er verður hleypt aftur á samfélagsmiðilinn í næstu viku. Elon Musk, eigandi Twitter, ákvað þetta eftir óformlega skoðanakönnun. 25.11.2022 08:26
Að æfa þakklæti í vinnunni getur margborgað sig Rannsóknir til fjölda ára hafa sýnt mjög sterkt samband á milli þess að vera þakklát fyrir það sem við eigum og höfum og hamingju. Skiptir þá engu máli hvar eða hver við erum. Að lifa í þakklæti hefur hreinlega mjög jákvæð áhrif á það hvernig okkur líður. 25.11.2022 07:01
Ásdís og Katla taka við rekstri Lovísu Ásdís Bjarkadóttir og Katla Sif Friðriksdóttir hafa gengið frá kaupum á kynlífstækjaversluninni Lovísu. Þær taka við rekstrinum af stofnanda verslunarinnar, Jóni Þór Ágústssyni, sem ætlar að einbeita sér að öðrum verkefnum. 24.11.2022 19:59
Styrmir Sigurjónsson hættir hjá Arion banka Styrmir Sigurjónsson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá bankanum. 24.11.2022 16:53
Kúmen – svo miklu miklu meira en Stjörnutorg Það var mikil stemning á Stjörnutorgi í gær þegar veitingasvæðið var formlega kvatt. GústiB var DJ auk þess sem tónlistarmennirnir Birnir, Jón Arnór og Baldur skemmtu. Veitingastaðir buðu upp á tilboð. Gríðarlega góð mæting var á svæðið og vel á annað þúsund gestir komu í gleðina. 400 bíómiðar sem Kringlan dreifði hurfu eins og dögg fyrir sólu. Hjá sumum voru blendnar tilfinningar að kveðja svo rótgróin stað sem á sess í huga margra eftir 23 ár. 24.11.2022 16:00
N1 lækkar verð í Norðlingaholti Frá og með deginum í dag getur þú fengið fengið ódýrara eldsneyti á stöð N1 í Norðlingaholti. Stöðin bætist með þessu í hóp fimm N1 stöðva sem bjóða ódýrara eldsneyti en mikil eftirspurn er eftir slíkum stöðvum. 24.11.2022 15:00
Icelandair flýgur til Detroit Icelandair hyggst hefja áætlunarflug til bandarísku stórborgarinnar Detroit næsta vor. 24.11.2022 13:11
Saga Harley-Davidson komin á prent „Það var í vinnubanni í covid að ég settist niður til að halda áfram með gagnaöflun fyrir annað bindi bókar minnar um sögu mótorhjóla á Íslandi. Ég ákvað að byrja á að taka saman hvaða efni ég hefði yfir ákveðnar tegundir og byrjaði á Harley-Davidson. Fljótlega varð mér þó ljóst að ég hefði svo mikið efni og líka myndir að það eitt og sér myndi duga mér í heila bók, og þannig fæddist nú þessi bók mín um Harley-Davidson á Íslandi,“ segir Njáll Gunnlaugsson, höfundur bókarinnar Ameríska goðsögnin. 24.11.2022 12:51
Skýrslan stendur óhögguð þrátt fyrir gagnrýni Bankasýslunnar Ríkisendurskoðun segir að skýrsla hennar um sölu ríkisins á hlut í Íslandsbanka standi óhögguð þrátt fyrir gagnrýni Bankasýslu ríkisins og annarra. Tekið hafi verið tillit til atriða sem Bankasýslan gerði athugasemdir við í umsagnarferli skýrslunnar. 24.11.2022 12:00
Bein útsending: Rannsóknaþing og Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs Í dag fer fram Rannsóknaþing og afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs. Þingið ber yfirskriftina: Þekking í þágu samfélags – Áhrif rannsókna á íslandi og verður meðal annars fjallað um áhrifamat á Rannsóknasjóði sem ráðuneyti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar lét gera og gefið var út nýlega. 24.11.2022 10:30
Sigríður Sía í framkvæmdastjórn Advania Sigríður Sía Þórðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania. Hún fer fyrir öflugu teymi sérfræðinga sem aðstoða fyrirtæki á sinni skýjavegferð. 24.11.2022 09:19
Hver fasteignaauglýsing fær nú umtalsvert færri smelli Hver fasteignaauglýsing fær að jafnaði umtalsvert færri smelli nú en áður sem gefur til kynna að færri séu að leita sér að íbúð. Í febrúar síðastliðinn, þegar framboð íbúða var í lágmarki, fékk hver auglýsing á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali 149 smelli á dag en í fyrri hluta nóvember var sú tala komin niður í 42. 24.11.2022 07:52
Kostir og gallar: Erum orðin svo vön því að gera margt í einu Rétt upp hönd sem multitaskar aldrei? Enginn? Nei, ekkert skrýtið því flestum okkar er orðið svo tamt að gera margt í einu að við varla tökum eftir því. Að multitaska í vinnunni hefur sína kosti og galla. 24.11.2022 07:01
Segja ráðherra bera ábyrgð á ÍL-sjóði Forsvarsmenn lífeyrissjóða landsins segja lagalega stöðu sjóðanna afar sterka vegna fyrirhugaðra slita ÍL-sjóðs. Ábyrgð ríkisins á skuldum ÍL-sjóðs sé skýr. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send var út eftir að lögfræðiálit frá LOGOS var kynnt forsvarsmönnum sjóðanna í dag. 23.11.2022 16:50
Vinna að heilsueflingu og auknu heilsulæsi fyrir 60 ára og eldri Heilbrigðisþing sem helgað var lýðheilsu fór fram á vegum Heilbrigðisráðuneytisins þann 10. nóvember. Yfirskrift þingsins var Heilsa eins, hagur allra. 23.11.2022 15:38
Kona í fyrsta sinn ráðin forstjóri stærsta fyrirtækis Grænlands Stjórn sjávarútvegsrisans Royal Greenland hefur ráðið nýjan forstjóra. Fyrir valinu varð hin danska Susanne Arfelt Rajamand en hún hefur mikla alþjóðlega reynslu úr matvælageiranum. 23.11.2022 13:18
Katla og Viðar til Aurbjargar Katla Hlöðversdóttir hefur verið ráðin sem þjónustu- og upplifunarstjóri og Viðar Engilbertsson sem markaðsstjóri hjá fjártæknifyrirtækinu Aurbjörgu. 23.11.2022 13:02
Nauðsyn svefns fyrir börn og ungmenni og hvernig við leikum á eðluheilann Heilbrigðisþing sem helgað var lýðheilsu fór fram á vegum Heilbrigðisráðuneytisins þann 10. nóvember. Yfirskrift þingsins var Heilsa eins, hagur allra. Meðal þeirra sem fluttu erindi voru Guðmundur Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Akademias og Dr. Erla Björnsdóttir sálfræðingur. 23.11.2022 12:01
„Við munum hækka vexti eins og þarf“ Stjórnendur peningastefnunefndar Seðlabankans segja það alveg skýrt að nefndin muni hækka stýrivexti frekar, meti hún þörf á því. Seðlabankastjóri segir það alveg skýrt að Seðlabankinn geti ekki verið aðili að loforði um að stýrivextir verði ekki hækkaðir sem hluti af kjarasamningum. 23.11.2022 11:34
Eyesland með hagkvæmasta tilboðið á Keflavíkurflugvelli Íslenska gleraugnaverslunin Eyesland átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um rekstur gleraugnaverslunar á Keflavíkurflugvelli. Fyrirtækið mun því opna verslun í flugstöðinni á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. 23.11.2022 11:16
Bein útsending: Landsmenn kveðja Stjörnutorg Stjörnutorgi verður lokað í dag eftir 23 ára starfsemi. Kveðjuhóf fer fram á svæðinu klukkan 11:30 og verður Vísir í beinni útsendingu frá tímamótunum. 23.11.2022 10:46
Ragnar Þór segir seðlabankastjóra ganga erinda fjármagnseigenda Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, telur einsýnt að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri beri hag bankanna og fjármagnseigenda fyrst og síðast fyrir brjósti. 23.11.2022 10:01
Ráðinn fjármála- og rekstrarstjóri Orkustofnunar Ingi Jóhannes Erlingsson hefur verið ráðinn í starf fjármála- og rekstrarstjóra hjá Orkustofnun. 23.11.2022 09:49
Milljarðaeignir FTX sagðar horfnar Verulegum hluta eigna fallna rafmyntarkauphallarinnar FTX var stolið eða er horfinn, að sögn lögmanna fyrirtækisins. Lögmaður fyrirtækisins heldur því fram að Sam Bankman-Fried, fyrrverandi forstjóri FTX, hafi rekið það eins og persónulegt lén sitt. 23.11.2022 09:13
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður 25 punkta hækkun Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentustig. 23.11.2022 09:00
Rafrænn ráðgjafi TM leysir 90% fyrirspurna Rafrænn ráðgjafi TM er eitt öflugasta spjallmenni landsins. Ráðgjafinn er alltaf til þjónustu reiðubúinn, hann á svör við um tvö þúsund spurningum og það bætist stöðugt við þekkingu hans. Þau Arna Rún Guðlaugsdóttir, sérfræðingur í viðskiptaþróun og Gylfi Gylfason, vátryggingaráðgjafi komu að þróun rafræna ráðgjafans ásamt öðru starfsfólki TM. 23.11.2022 08:50
Tíunda hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,25 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 5,75 prósent í sex prósent. 23.11.2022 08:31
Stjórnendur FTX sagðir hafa keypt lúxusíbúðir fyrir milljarða Rafmyntarfyrirtækið FTX, stofnandi þess, foreldrar hans og æðstu stjórnendur fyrirtækisins eru sagðir hafa keypt fjölda lúxusfasteigna á Bahamaeyjum fyrir jafnvirði milljarða króna á undanförnum tveimur árum. Fyrirtækið er nú í gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum og er til rannsóknar vegna meintra verðbréfasvika. 22.11.2022 15:35
Halldór og Róbert slíðra sverðin Sættir hafa náðst á milli lyfjafyrirtækisins Alvogen og Halldórs Kristmannssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra, sem bar Róbert Wessman forstjóra þess þungum sökum í fyrra. Alvogen féll frá málsókn gegn Halldóri sem segist nú ekki lengur hafa stöðu uppljóstrara. 22.11.2022 12:18
Ráðin birtingarstjóri hjá Datera Ragnhildur Guðmundsdóttir hefur verið ráðin birtingastjóri birtinga- og ráðgjafafyrirtækisins Datera. 22.11.2022 09:49
Hamingjubúbblur og Ítalía: „Ég segi bara sí sí við öllu“ „Ég segi bara sí sí við öllu, flóknara þarf það ekki að vera,“ segir Rakel Garðarsdóttir athafnarkona og skellir uppúr. Rakel og eiginmaðurinn hennar, Björn Hlynur Haraldsson, fluttu til Flórens á Ítalíu í haust. Þaðan starfa þau bæði. Eða ferðast á milli eftir því hvað verkefni og vinna kalla á. 22.11.2022 07:00
Önnur Bob-skipti hjá Disney Stjórn Disney tilkynnti í gær að Bob Chapek, forstjóra, hefði verið sagt upp störfum. Í stað hans yrði Bob Iger, fyrrverandi forstjóri og fyrrverandi stjórnarformaður, ráðinn aftur til starfa. 21.11.2022 14:55
Mun leiða markaðsvinnu TourDesk á erlendum mörkuðum Guðmundur F. Magnússon hefur verið ráðinn til að leiða markaðsvinnu TourDesk á erlendum mörkuðum. 21.11.2022 12:27
Samskip fái úrlausn um tiltekin atriði í sátt Eimskips við Samkeppniseftirlitið Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Samskip hafi lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn áfrýjunarnefndar samkeppnismála um tiltekin atriði í sátt Eimskips við Samkeppniseftirlitið frá í júní 2021. 21.11.2022 09:53
Veiðihornið - traust fjölskyldufyrirtæki í aldarfjórðung Veiðihornið er fjölskyldufyrirtæki, byggt á gömlum grunni en þau Ólafur Vigfússon og María Anna Clausen festu kaup á elstu veiðibúð landsins, Veiðimanninum, árið 1998. Veiðihornið fagnar því 25 ára starfsafmæli nk. febrúar og er í dag langstærsta veiðibúð landsins. 21.11.2022 09:07
Fella ákvörðun úr gildi og segja ekkert að kynningu Costco á endurnýjun aðildar Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Neytendastofu sem kvað á um að kynning Costco á endurnýjun aðildar væri villandi. 21.11.2022 08:35
Gríðarlegar skuldir fallna rafmyntafyrirtækisins Hið fallna rafmyntafyrirtæki FTX skuldar fimmtíu stærstu lánadrottnum nærri þrjá milljarða dollara, andvirði um 430 milljarða íslenska króna. 20.11.2022 13:47
Trump mættur aftur á Twitter Búið er að opna aftur fyrir Twitter-reikning Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Elon Musk, forstjóri Twitter, tilkynnti í nótt um að aðgangurinn yrði opnaður aftur eftir skoðanakönnun sem yfir fimmtán milljón notendur tóku þátt í. 20.11.2022 02:28
Tölvuárás gerð á Mbl.is Tölvuárás var gerð á vefinn Mbl.is fyrr í dag. Vefsíðan hefur legið niðri nú í einn og hálfan tíma. 19.11.2022 15:42
Subway á Íslandi hættir við auglýsingar á RÚV yfir HM Stjarnan ehf., einkaleyfishafi Subway á Íslandi, hefur ákveðið að draga til baka þær auglýsingar sem félagið hafði keypt hjá RÚV fyrir Heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Félagið ætlar þess í stað að gefa andvirði auglýsinganna til góðgerðasamtaka. 19.11.2022 14:13